Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Blaðsíða 26
34 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999 Afmæli Eggert Jóhannesson Eggert Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Suð- urlands um málefni fatlaðra, Kirkjuvegi 17, Selfossi, er sextugur i dag. Starfsferill Eggert fæddist og ólst upp í Helguhvammi í Vestur-Húnavatns- sýslu. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Reykjaskóla í Hrútafirði, stundaði nám í húsasmíði og lauk námi við Meistaraskóla húsasmiða 1967. Eggert stundaði húsasmíði, starf- aði hjá Byggingafulltrúa Suður- lands og hóf síðan störf hjá Svæðis- skrifstofu Suðurlands þar sem hann starfar í dag. Eggert var m.a. formaður Félags ungra framsóknarmanna í Ámes- sýslu í nokkur ár, sat i miðstjórn Framsóknarflokksins og í fram- kvæmdastjóm hans, var varafor- maður SUF 1970-74 og formaður 1974-75. Hann sat í hreppsnefnd Selfosshrepps 1974-78, í stjórn Lands samtakanna Þroskahjálpar frá stofnun 1976-87 og var formaður síðustu átta árin. Fjölskylda Kona Eggerts er Auður Hauks- dóttir, f. 27.10. 1934, hjúkrunarfræð- ingur. Hún er dóttir hjónanna Hauks Sigurðssonar, bónda á Arn- arsstöðum í Helgafellssveit, og Petr- ínar Halldórsdóttur húsfreyju. Böm Eggerts og Auðar era Jó- hannes, f. 27.2. 1965, húsgagnasmið- ur á Álftanesi, kvæntur Guðbjörgu Karlsdóttur og eiga þau tvær dætur; Baldvin, f. 6.6. 1969, búsettur á Sel- fossi; Kjartan Haukur, f. 12.9. 1970, alþjóðamark- aðsfræðingur, búsettur í Reykjavík. Fósturdóttir Eggerts er Ólöf Lilja Sigurðardóttir, f. 23.7. 1961, starfsmaður hjá Seglagerðinni Ægi, búsett í Reykjavík, í sam- búð með Daviði Björns- syni og eiga þau fjögur börn. Systkini Eggerts: Valdimar, f. 7.6. 1933, d. 27.5. 1997, bóndi í Helguhvammi, en sambýlis- kona hans var Guörún Bjamadóttir, f. 25.4. 1941, og eignuðust þau tvær dætur; Guðmundur, f. 4.6. 1934, bóndi í Helguhvammi, en kona hans er Helga Magnúsdóttir, f. 8.4. 1933, og eiga þau þrjú böm. Þá ólst upp frá fæðingu hjá for- eldrum Eggerts Halldóra Kristins- dóttir, f. 9.1. 1930, en maður hennar er Ólafur Þórhallsson, f. 2.6.1924, en þau bjuggu lengst af á Ánastöðum á Vatnsnesi og eignuðust fimm börn. Foreldrar Eggerts voru Jóhannes Guðmundsson, f. 30.9. 1904, d. 23.5. 1982, bóndi í Helguhvammi, og k.h., Þorbjörg M. Baldvinsdóttir, f. 10.11. 1897, d. 31.7. 1980, húsfreyja. Ætt Jóhannes var sonur Guðmundar, b. í Litlu-Tungu og Tjarnarkoti, Guðmundssonar, b. á Skeggjastöð- um og Dalgeirsstöðum, Guðmundssonar, b. á Skeggjastöðum, Ás- mundssonar, b. á Bjargi, Bjarnasonar, forföður m.a. Friðriks Sophusson- ar, forstjóra Landsvirkj- unnar, Guðmundar Gunnarssonar, formanns Rafiðnaðarsambands ís- lands, föður Bjarkar, og Kristínar Jóhannesdótt- ur, b. og fræðimanns í Gröf á Vatnsnesi. Móðir Jóhannesar var Kristveig Sigvaldadóttir, b. í Heydal í Strandasýslu, Sigvalda- sonar, b. í Sunnuhlíð í Vatnsdal og Litlu Hlíð í Víðidal, Haraldssonar, b. á Bjarnarstöðum og Dalkoti í Vatnsdal, Ólafssonar, b. á Másstöð- um og fleiri bæjum i Vatnsdal, Egg- ertssonar, pr. á Undirfelli í Vatns- dal, Sæmundssonar. Móðir Kristveigar var Lilja Lalila Jóhannesdóttir, b. í Heydal, Jóns- sonar, b. í Heydal og Kollsá, Sig- urðssonar, b. í Stóra-Langadal á Skógarströnd. Móðir Lilju Lalílu var Helga Björnsdóttir, b. í Guð- laugsvík, Björnssonar og Sigríðar Gísladóttur. Þorbjörg var dóttir Baldvins, b. í Helguhvammi, Eggertssonar, hrepp- stjóra þar, Helgasonar, bróður Þor- bjargar í Gröf og á Marðarnúpi, móður Guðmundar Björnssonar landlæknis og Ingibjargar á Torfa- læk, ömmu Ögmundar Jónassonar alþm. Bróðir Eggerts var Sigurður, afi Sigurðar Nordal prófessors og Jóns Eyþórssonar veðurfræðings. Móðir Þorbjargar var Vigdís Jónsdóttir, hálfsystir, sammæðra, ísólfs Sumarliðasonar, sparisjóðs- stjóra á Hvammstanga. Móðir Vig- dísar var Vilborg, dóttir Þorleifs Þorkelssonar og Vigdísar Sigurðar- dóttur sem lengst af bjuggu á Flat- nefsstöðum á Vatnsnesi. Systkini Vilborgar voru m.a. Una, móðir Magnúsar Þorleifssonar, afa Þórðar Skúlasonar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga og móðir Kristmundar, fóður Þor- leifs, prófasts á Kolfreyjustað. Önn- ur systir Vilborgar var María, móð- ir Guðmundar Guðmundssonar, b. og veiðimanns í Grafarkoti. Faðir Vigdísar var Jón, frá Bergsstöðum á Vatnsnesi, Jónsson, síðast b. á Bergsstöðum, Benediktsson, b. á Ytri-Ey, Jónssonar, á Balaskarði, Jónssonar, harðabónda á Mörk í Laxárdal. Fyrri kona Jóns Bene- diktssonar var Sólveig Ölafsdóttir, b. á Njálsstöðum, Bjarnasonar. Kona Benedikts á Ytri-Eý var Katrín Jónsdóttir, frá Hvammi í Langadal, Halldórssonar. Móðir Baldvins var Margrét Hall- dórsdóttir frá Gröf á Vatnsnesi, dóttir Halldórs Brynjólfssonar og Hólmfríðar Þórðardóttur frá Svarð- bæli í Miðfirði. Bróðir hennar var m.a. Jóhann „skytta", síðasti land- námsmaður íslands, en hann byggði upp Látravík þar sem nú stendur Hornbjargsviti. Eggert verður að heiman. Eggert Jóhannesson. Arngrímur Þorgrímsson Til hamingju með afmælið 31. ágúst 90 ára Ólafur Guðjónsson, Kirkjuhvoli, Hvolhreppi. 80 ára Jón Strandberg, Stekkjarkinn 13, Hafnarfirði. Margrét Einarsdóttir, Einigrund 28, Akranesi. 75 ára Hjörleifur Guðnason, Gullsmára 9, Kópavogi. Sigurður Níels Elíasson, Garðabraut 8, Akranesi. 70 ára Aðalheiður Bergsteinsdóttir, Ugluhólum 2, Reykjavík. Halldóra Guðmundsdóttir, Hverfisgötu 100 B, Reykjavík. Leifur Eiríksson, Laugavegi 43 B, Reykjavík. 60 ára Ágúst Sörlason, Hátúni 10 B, Reykjavík. Erla Jónsdóttir, Blöndubakka 3, Reykjavík. Erla Sigurgeirsdóttir, Engihjalla 17, Kópavogi. Hólmfríður K. Guðjónsdóttir, Búlandi 17, Reykjavík. Ólafía Magnúsdóttir, Þverholti 24, Reykjavík. Þorfinnur Óli Tryggvason, Laufskógum 1, Hveragerði. 50 ára Arngrímur Þorgrímsson, sölu- stjóri hjá Rekstrarvörum, Háaleitis- braut 83, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Amgrímur fæddist á Akureyri og ólst þar upp til flmm ára aldurs en síðan i Reykjavík. Hann var í Álfta- mýrarskóla, lauk gagnfræðaprófi frá Ármúlaskóla 1976, samvinnu- skólaprófi frá Samvinnuskólanum að Bifröst 1978 og stúdentsprófi 1981. Arngrímur hefur stundað sölu- störf allan sinn starfsferil, fyrst hjá Hljómbæ 1981-84, hjá heildverslun Lárusar G. Lúðvíkssonar 1984-85 og hjá Rekstrarvörum frá 1985. Þar var hann fyrst sölumaður og hreinlætis- ráðgjafi en hefur verið sölustjóri fyrirtækisins frá 1992. Arngrímur sat í stjóm Heimdall- ar 1979-81, var einn af stofnendum blakdeildar Fram 1978, sat í stjóm deildarinnar og spilaði með henni til 1980, spilaði með blakdeild Vík- ings 1980-87 og var formaður henn- ar 1983-86, lék blak með íþróttafé- lagi stúdenta frá 1987, hefur starfað í ýmsum nefndum og ráðum Blak- sambands íslands frá 1978, var vara- formaður og formaður lands- liðsnefndar í blaki 1989-91 og var formaður Blaksambands ís- lands 1991-94. Hann hefur leikið tuttugu og þrjá lands- leiki í blaki fyrir íslands hönd. Amgrímur gekk í Oddfellow-regluna 1988. Fjölskylda Kona Amgríms er Elín Ósk Óskarsdóttir, f. 18.12. 1957, bókari, en þau hófu sambúð 1980. Elín Ósk er dóttir Óskars Jóhanns Guð- mundssonar vélstjóra og Kristínar Maríu Magnús- dóttur húsmóður. Arngrímur Þorgrímsson. Dóttir Arngríms og Steinunnar skylda hans Ingu Ólafsdóttur er Bryndís Amgrímsdótt- ir, f. 6.12. 1979. Böm Arngríms og El- ínar Óskcir eru Óskar Þór Arngrímsson, f. 19.9. 1983; María Rós Amgrímsdóttir, f. 5.9. 1990. Foreldrar Arngríms eru Þorgrímur E. Sig- urðsson, f. 23.2. 1933, vagnstjóri í Reykjavík, og Rósa Arnaldsdóttir, f. 22.1. 1934, ritari. Arngrímur og íjöl- dvelja á Benidorm. Einar Björgvinsson, Hjaltabakka 24, Reykjavík. Eygló Björk Sigurðardóttir, Bræðraborgarstíg 20, Reykjavík. Guðmundur Egilsson, Álfheimum 46, Reykjavik. Guðrún Sigmarsdóttir, Smárarima 106, Reykjavík. Jón Valur Jensson, Eskihlíð 14 A, Reykjavík. Margrét Valsdóttir, Hávegi 9, Siglufirði. Sigríður Friðriksdóttir, Álfabergi 22, Hafnarfirði. 40 ára Sií* stjjafast sWiir #ik Vessvaeði er ekki heppilegt beitariand! httpJ/www.umtad.is Elísabet A. Ingimundardóttir, Noröurbyggð 2, Þorlákshöfn. Hildur Halldóra Karlsdóttir, Suðurmýri 4, Seltjamarnesi. Hulda Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Víðihvammi 1, Hafnarfirði. Jóhanna S. Gunnarsdóttir, Ásbúð 19, Garðabæ. Ragnar Ingvar Sveinsson, Skúlagötu 54, Reykjavík. Stefán Scheving Árnason, Hrauntungu 18, Hafnarflrði. Steinunn Gestsdóttir, Dalbraut 5, Grindavík. Þórólfur Örn Helgason, Sunnuvegi 7, Reykjavík. Þorgeir Birnir Hjaltason Þorgeir Birnir Hjaltason sjómaður, Nónási 5, Raufarhöfn, er sextugur í dag. Starfsferill Þorgeir fæddist á Brunnvör á Raufar- höfn en ólst upp á Hjaltabakka á Raufar- höfn auk þess sem hann var í sveit hjá móðurbróður sínum, Jónasi i Krossavík í Þistilfirði. Hann var í barna og unglingaskóla á Raufar- höfn og stundaði auk þess nám við MA í einn vetur. Þorgeir fór ungur til sjós og stundaði sjómennsku á eigin bátum, trillum og dekkbátum, en hefur auk þess stundað almenna verkamanna- vinnu á Raufarhöfn og víðar. Fjölskylda Eiginkona Þorgeirs er Signý Ein- ardóttir frá Sveinungsvík. Foreldrar hennar vora Einar Einarsson, f. 23.3. 1901, d. 16.4. 1961, og Þorbjörg Björnsdóttir, f. 18.11. 1900, d. 21.10. 1983. Þau bjuggu allan sinn búskap í Sveinungs- vík. Börn Þorgeirs og Signýjar eru Þórhildur Hrönn, f. 15.9.1961, húsmóðir og fisk- verkakona á Raufarhöfn, en maður hennar er Gunn- ar Finnbogi Jónsson, vinnslustjóri í Fiskiðju Raufarhafnar, og eru böm þeirra Eva Guðrún, f. 27.3. 1983, Friðgeir, f. 22.10. 1988, og Þorgeir, f. 21.5. 1992; Fjóla Björg, f. 16.8. 1964, húsmóðir og fiskverkakona á Raufarhöfn, en maður hennar er Þorbergur Gestsson, verkamaður og sjómaður á Raufarhöfn, og eru börn þeirra Alma Ýr, f. 1.9. 1983, Aron Bimir, f. 18.1. 1986, og Signý Lind, f. 15.10. 1991; Hörður Ingimar, f. 25.7. 1970, sjómaður á Raufarhöfn, en eig- inkona hans er Kristín Þormar Páls- dóttir og era böm þeirra Þorgeir Birnir, f. 31.8. 1994, og Hákon Breki, f. 5.5.1998, auk þess sem sonur Krist- ínar er Páll Þormar, f. 6.5.1988; Heiöa Ingunn, f. 25.7. 1970, en maður henn- ar er Magnús Einarsson og eru böm þeirra Elísabet, f. 6.11. 1990, Þorbjörg Eva, f. 18.11.1993, og Einar Hafstein, Þorgeir Birnir Hjaitason. f. 23.7.1996; Hugrún Elfa, f. 1.3.1977. Systkini Þorgeirs: Sturla, f. 10.12. 1940, sjómaöur á Raufarhöfn, en kona hans var Katrín Björnsdóttir sem lést 1985 og eignuðust þau tvö börn, Snorra og Sóleyju; Stefán, f. 25.8. 1942, sjómaður á Raufarhöfn, en kona hans er Björg Guðrún Ein- arsdóttir og er dóttir þeirra Þor- björg; Ragnheiður, f. 5.9. 1943, skrif- stofumaður í Reykjavík, en börn hennar eru Kristinn, Tómas og Friðný; Guðný, f. 24.12. 1944, hús- móðir í Reykjavík, en maður henn- ar er dr. Þorsteinn Sæmundsson stjarnfræðingur og eru börn þeirra Hákon, Máni og Svanhildur; Sverrir, f. 25.5.1946, sjómaður í Nes- kaupstað, en kona hans er Jakobína Stefánsdóttir sjúkraliði og eru synir þeirra Alexander, Egill og Hjalti; Friðgeir, f. 4.9. 1947, sjómaður og iðnverkamaður í Reykjavík; Hjalti, f. 7.2. 1949, sjómaður og' verslunar- maður í Reykjavík, en kona hans er Herdís Óskarsdótth’ verslunarmað- ur; Trausti, f. 16.12. 1950, sjómaður; Þórunn, f. 8.6.1953, skrifstofumaður í Reykjavík, en maður hennar er Gestur Ásólfsson rafvirki og era böm þeirra Ragnheiður, Hjalti og Haukur Már; Konráð, f. 13.2. 1956, verslunarmaður í Reykjavík, en kona hans er Gréta Pálsdóttir og eru dætur þeirra Þyrí og Helena. Foreldrar Þorgeirs voru Hjalti Friðgeirsson, f. 10.12. 1911, d. 30.6. 1981, frá Hóli á Sléttu, og Þórhildur Kristjánsdóttir, f. 29.1. 1913, frá Garðstungu í Þistilfirði. Þau bjuggu á Raufarhöfn tO 1968 er þau fluttu til Reykjavíkur. Þorgeir verður heima á afmælis- daginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.