Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1999, Blaðsíða 2
20 21 + FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 Valsmenn á tímamótum: Þung spor - engin dauðadómur, segir formaðurinn Sport Páll ráðinn - til tveggja ára í Keflavík Páll Guðlaugsson var í gær ráð- inn þjálfari meistaraflokks Kefla- víkur í knattspyrnu til tveggja ára. Páll kvaðst mjög spenntur yflr því að hafa verið ráðinn til Kefla- víkur og markmið hans og forráða- manna Keflavíkur væri að koma Keflvíkingum á beinu brautina á nýjan leik. Það væri mikil hefð fyr- ir knattspyrnuiðkun í Keflavfk og með tilkomu flölnotaíþróttahúss myndu aðstæður suður með sjó verða þær bestu á landinu til knatt- spyrnuiðkunar. Ekkert hefur verið ákveðið enn með leikmannakaup og munu þau mál verða skoðuð en ljóst er að hóp- urinn mun verða styrktur eitthvað fyrir næsta keppnistímabil. Að sögn formanns Keflavíkur, Rúnars Arnarssonar, hefur knatt- spymudeildin ekki verið í viðræð- um við Jens Martin Knudsen, mark- mann Leifturs frá Ólafsflrði. . Allir leikmenn Keflavíkur eru með samning við liðið fyrir utan Gunnar Oddsson en viðræður standa nú yflr við hann um endur- nýjun. Páll Guðlaugsson þjálfari lagði mikla áherslu á að samið yrði við Gunnar. Verið er að vinna í því að fá Velimir Sargic aftur til landsins. Hann var unglingaþjálfari hjá Kefla- vík í átta ár en þjálfar nú öll yngri landslið Möltu í knattspyrnu. Ef af verður mun hann verða yfirþjálfari yngri flokka Keflavíkur og sjá um tækniæfmgar meistaraflokks. -KS Arsenal slapp með skrekkinn Sporin hafa verið þung fyrir leikmenn og stuðningsmenn Vals undanfarna daga en sem kunnugt er féllu Valsmenn í fyrsta sinn í sögunni þegar þeir biðu lægri hlut fyrir Grindvíkingum í lokaumferð íslandsmótsins í knattspyrnu um síðustu helgi. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um það hvort Ingi Bjöm Albertsson verður áfram við stjórnvöl- inn hjá Hlíðarenda- liöinu og eins em leikmannamálin óljós. Þó er vitað að Kristinn Lárasson og Sigurbjörn Hreiðars- son, tveir af máttarstólp- um liðsins, munu leika áfram með félaginu. Samn- ingar Amórs Guðjohnsens, Ólafs Stígssonar, Daða Dervics, Ingólfs Ingólfssonar, Hjörvars Hafliðasonar og Lúðvíks Jónasson- ar eru útrunnir og alls ekki er vist að þessir leikmenn haldi áfram að leika með Val. Endurheimta fjóra og vonast eftir Bjarka Valsmenn munu hins vegar end- urheimta flóra leikmenn sem þeir lánuðu til Dalvíkinga í sumar en þetta eru Sigurður Flosason, Jó- hann Hreiðarsson, Ágúst Guð- mundsson og Grímur Garðarsson og þá vonast Valsmenn eftir því að Bjarki Stefánsson, varnarmaður- inn sterki sem missti af öllu tíma- bilinu í ár vegna meiðsla, verði klár. Ætlum upp með miklum slagkrafti „Þetta fall er enginn dauðadóm- ur fyrir félagið þó svo að það hafi verið gríðarlegt áfall. Við ætlum að koma upp með eins mikl- um slagkrafti og hægt er og stefnan verður tekin á að fara beint upp í úr- valsdeildina. Þar ætl- um við að marka okk- ur spor á allt öðrum slóðum en við höfum verið síðustu árin. Til þess að svo megi verða þurfum við að auka verulega flármagn- ið í rekstrinum,“ sagði Eggert Kristófersson, formaður knatt- spyrnudeildar Vals, í samtali við DV í gær. „Það er ljóst að við missum ein- hvern mannskap en við eigum fullt af ungum strákum sem geta tekið við. Við lentum í miklum áföllum í sumar hvað varðar meiðsli og það var dýrt fyrir þenn- an litla hóp sem við höfðum úr að spila. Nú þurfa Valsmenn að taka saman höndum og koma félaginu til vegs og virðingar að nýju,“ sagði Eggert. -GH - skoraði tvö á lokamínútunni gegn AIK Arsenal slapp fyrir horn í gær- kvöld þegar liðið sigraði AIKfrá Svíþjóð, 3-1, í meistaradeild Evrópu í knattspyrnu frammi fyrir 70 þús- und áhorfendum á Wembley-leik- vanginum í London. Allt stefndi í 1-1 jafntefli þegar Thierry Henry skoraði fyrir Arsenal á lokamínútunni. AIK geystist í sókn og fékk hornspyrnu en beint eftir hana óð Davor Suker upp völlinn og gerði þriðja mark Arsenal. Manchester United var hins veg- ar ekki í vandræðum gegn Sturm Graz í Austurríki, skoraði þrívegis í fyrri hálfleik og lét þar við sitja. í seinni hálfleik varði Raimond Van Der Gouw, markvörður United, vítaspyrnu frá Ivica Vastic. Barcelona sýndi snilldai'knatt- spymu gegn Fiorentina og 4-2 sigur var í minnsta lagi. Rivaldo skoraði tvö markanna á þremur mínútum í síðari hálfleik. Rosenborg sýndi enn styrk sinn með 2-2 jafntefli gegn Feyenoord í Þrándheimi þar sem öll mörkin komu á fyrstu 24 mínútunum. John Carew gerði bæði mörk Rosenborg- ar. Árni Gautur Arason sat á vara- mannabekknum hjá Rosenborg eins og í síðustu tveimur leikjum. -VS David Beckham, Andy Cole og Dwight Yorke fagna marki Cole gegn Sturm Graz í Austurríki í gærkvöld. Reuter IRB fer til Sviss og Finnlands - og til Nancy í Frakklandi Lugano frá Sviss og Huima frá Finnlandi komust í gærkvöld áfram í Korac-bikamum í körfubolta og leika því í riðli með ÍRB úr Reykja- nesbæ. Franska liðið Nancy fór beint i riðlakeppnina og er flórða liðið í riðlinum sem verður leikinn frá 6. október til 17. nóvember. Lugano tapaði fyrir Seixal í Portúgal, 76-72, en hafði unnið fymi leikinn, 83-71. Lugano virðist nokk- uð öflugt lið, hefur unnið tvo fyrstu leikina á tímabilinu í Sviss og ann- an þeirra með 51 stigs mun. Huima tapaði fyrir Ulm í Þýska- landi, 86-84, en vann fyrri leikinn, 100-87. Huima vann á dögunum fyrsta leik sinn í flnnsku A-deild- inni. Athygli vekur að í leiknum í Þýskalandi notaði Huima aðeins 6 leikmenn og breiddin hjá liðinu virðist ekki mikil. Lið Nancy hefur valdið miklum vonbrigðum i upphafi tímabilsins í Frakklandi og tapað báðum deilda- leikjum sínum, öðrum með 25 stiga mun. Fjórir Kanar leika með liðinu, tveir þeirra með franskt ríkisfang, og auk þess finnskur landsliðsmað- ur. -VS Maður leiksins:Edda Garðarsdóttir, Islandi. Lykilmaður i sterkri og skipulagðri íslenskri vörn. íslenska kvennalandsliðið hefur komið mörgum á óvart í upphafi undankeppni Evrópumóts landsliða. Markalaust jafntefli gegn silfurliði ítala frá síðasta Evrópumóti í Laug- ardalnum í gær kemur liðinu í topp- sæti síns riðils eftir flögur stig í fyrstu tveimur leikjunum. íslenska liðið spilaði vel gegn ítöl- um í gær, það er ljóst að stelpumar hafa alla burði til að halda áfram að nálgast bestu þjóðir álfunnar. \ Þannig gátu ítalir, sem teljast til þeirra, þakkað fyrir að vera ekki tveimur mörkum undir í hálfleik. íslenska liðið hafði völdin í fyrri hálfleik og var 5-0 yfir i skotum á mark. Tvö gullin færi hjá þeim Rakel Ögmundsdóttur á 3. mínútu og Ásthildi Helgadóttur á þeirri sjö- undu hefðu auðveldlega gert stöðu íslenska liðsins enn betri. í seinni hálfleik fór að bera á meiri tilburðum hjá þeim ítölsku en sterk og skipulögð íslensk vöm gaf þeim fá færi til að ógna íslenska markinu verulega en nokkur hálf- færi sluppu þó í gegn er leið á leik. Sterkur mannskapur Þórður Lárusson er með sterkan framtíðarmannskap í höndunum, + liðið er skipað ungum stelpum auk nokkuma jaxla en það sem mestu skiptir er að stærsti hluti þess hefur mikla reynslu og í hópnum em fimm af átta leikreyndustu lands- liðskonum okkar frá upphafi. Vörnin mjög sterk Vörnin var mjög sterk í gær, með hina tvítugu Eddu Garðarsdóttur í fararbroddi, dyggilega studda af tveimur reynsluboltum, þeim Auði Skúladóttur og Guðrúnu Jónu Krist- jánsdóttur. Katrín Jónsdóttir skilaði sínu hlut.verki einnig vel á miðjunni og Rakel Ögmundsdóttir var sú sem gerði usla í vörn ítala. Áhyggjuefnið var kannski að þær Ásthildur Helgadóttir og Margrét Ólafsdóttir hafa átt betri daga. Það og sending- armistök á sóknarvelli var aftur á móti eitt af fáum vandamálum sem Þórður Lárusson þarf að huga að fyrir næsta leik úti gegn Evr- ópumeisturum Þjóðverja í næsta mánuði. Auður Skúladóttir fyrirliði var ánægð. „Það gekk mjög vel en við hefðum átt að skora í fyrri hálfleik. Ég bjóst við þeim grimmari en held að við höfum slegið þær út af laginu. Ég er mjög sátt.“ -ÓÓJ Ágæt byrjun íslands í Evrópukeppni kvenna: toppnum aðilinn í 0-0 jafntefli gegn silfurliðinu úr síðustu keppni - sagði þjálfari ítala Á - sterkari Hugrún Þorsteinsdóttir, markvörður og fyrirliði Fram, átti stærstan þátt í sigr- inum á Stjörnunni og það var því við hæfi að hún tæki við meistarabikarnum. DV-mynd Hilmar Þór íslenska lið- ið sterkt „Ég er aðeins búinn að stjórna ítalska liðinu í eina viku þannig ég gat ekki búist við miklu hjá stelpunum í þessum leik,“ sagði þjálfari ítala, Ettore Recagni, í samtali við DV eftir leikinn í gærkvöld. Keppnistímabilið hjá okkur byrjar ekki fyrr en í október en ég sá það sem ég þurfti í þessum leik. Fyrri hálfleikurinn var slakur hjá okkur en þetta lagaðist í þeim seinni. Island átti skilið meira en stigið í fyrri hálfleik en við áttum skilið meira en stigið í þeim síðari. Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé til íslenska liðsins og það spilaði vel í kvöld og kom mér á óvart hversu sterkt það er. Leikmaður númer tvö (Auður Skúladóttir) í vörninni var best hjá íslandi að mínu rnati," sagði ítalski þjálfarinn. -ÓÓJ ísland 0 - Ítalía 0 Þóra B. Helgadóttir - Rósa Júlía Steinþórsdóttir, Auður Skúladóttir, Edda Garðarsdóttir, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir - Guðlaug Jónsdóttir (Sigrún Óttarsdóttir 82.), Margrét Ólafsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Ásthildur Helgadóttir, Rakel Ögmunds- dóttir - Ásgerður H. Ingibergsdóttir (Erla Hendriksdóttir 70.). Vara- menn: Sigríður F. Pálsdóttir, Helena Ólafsdóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir. Gul spjöld: Rósa. Giorgia Brenzan - Luisa Marchio, Elisa Miniati, Ro- berta Stefanelli, Danilela Tavalazzi - Damiana Dei- ana (Paola Zanni 46.), Tatiana Zorri, Federica D'Astolfo, Pamela Conti - Rita Guarino (Silvia Tagliacame 86.), Patrizia Panico. Gul spjöld: Conti, Panico. Sport ÞÝSKAUND Flensburg - Essen.........25-23 Christiansen 8 - Dragunski 8/1. Grosswallstadt - Minden . . 28-20 Roos 7/4, Jensen 6, Kljaic 6 - Dushe- bajev 6, Traub 5. Willstátt - Gummersbach . . 19-23 Stahl 6 - Yoon 10/3, Kodljpv 5. Dormagen - Kiel.........26-27 - Wislander 6. Wetzlar - Nordhorn .....19-27 Klimpke 4, Kestawitz 4 - Flemister 6, Hagen 6, Pettersson 6/3. Nettelstedt - Bad Schwartau 30-24 Beuchler 10, Mikulic 7/2 - Kordo- wiecki 5, Thorsson 5. Wuppertal - Eisenach.......31-29 Nordhorn 4 4 0 0 112-83 8 Kiel 4 4 0 0 120-93 8 Flensburg 4 4 0 0 111-95 8 Lemgo 3 3 0 0 77-61 6 Grosswallst. 4 3 0 1 97-88 6 Magdeburg 3 2 0 1 80-61 4 Essen 3 2 0 1 83-72 4 Minden 4 2 0 2 102-103 4 Wuppertal 4 2 0 2 99-103 4 Nettelstedt 4 2 0 2 98-106 4 Frankfurt 3 1 0 2 70-68 2 Gummersb. 3 1 0 2 65-68 2 Eisenach 4 1 0 3 106-110 2 Wetzlar 4 1 0 3 88-106 2 Dormagen 4 0 1 3 87-102 1 Schutterw. 3 0 1 2 71-86 1 Willstátt 4 0 0 4 84-112 0 B. Schwartau4 0 0 4 81-114 0 Flensburg hefur nú fengið 35 stig af 36 mögulegum í síðustu 18 heima- leikjum sínum í deildinni. Minden er greinilega vængbrotið án Alexanders Tutschkins og var auðveld bráö fyrir Grosswallstadt. Tutschkin leikur ekkert i vetur vegna bílslyssins sem hann lenti í fyrr í mánuðinum. Lemgo og Magdeburg mætast í sannkölluðum stórleik í kvöld. Lemgo er án Daniels Stephans, leik- manns ársins í heiminum, en hann er meiddur. -VS * Ímeistaradeildin A-riðill: Maribor - Leverkusen.........0-2 0-1 Zivkovic (82.), 0-2 Kirsten (90.) Lazio - Dynamo Kiev.........2-1 O-l Rebrov (67.), 1-1 Negro (69.), 2-1 Salas (71.) Leverkusen 2 110 3-1 4 Lazio 2 110 3-2 4 Maribor 2 10 1 1-2 3 D. Kiev 2 0 0 2 1-3 0 B-riðill: Arsenal - AIK .................3-1 1- 0 Ljungberg (28.), 1-1 Nordin (53.), 2- 1 Henry (90.), 3-1 Suker (90.) Barcelona - Fiorentina ........4-2 1-0 Figo (7.), 2-0 Enrique (10.), 2-1 Amoroso (50.), 3-1 Rivaldo (68.), 4-1 Rivaldo (70.), 4-2 Chiesa (79.) Barcelona 2 2 0 0 6-3 6 Arsenal 2 110 3-1 4 Fiorentina 2 0 11 2 -i 1 AIK 2 0 0 2 2-5 0 C-riðill: Dortmund - Boavista.........3-1 1-0 Möller (44.), 1-1 Bento (44.), 2-1 Bobic (53.), 3-1 Bobic (64.) Rosenborg - Feyenoord.......2-2 0-1 Tomasson (10.), 1-1 Carew (21.), 1-2 Kalou (22.), 2-2 Carew (24.) Rosenborg 2 110 5-2 4 Dortmund 2 110 4-2 4 Feyenoord 2 0 2 0 3-3 2 Boavista 2 0 0 2 1-6 0 D-riðill: Sturm Graz - Manch. Utd ... 0-3 0-1 Keane (15.), 0-2 Yorke (31.), 0-3 Cole (33.) Croatia Zagreb - Marseille . . . 1-2 0-1 Bakayoko (5.), 1-1 Sokota (64.), 1-2 Perez (77.) Marseille 2 2 0 0 4-1 6 Manch.Utd 2 110 3-0 4 Croatia Z. 2 0 11 1-2 1 Sturm Graz 2 0 0 2 0-5 0 Nýliðarnir eru óstöðvandi - Guðmundur og félagar í efsta sætinu Nýliðar Nordhorn, með Guðmund Hrafnkelsson í markinu, héldu áfram sig- urgöngu sinni í þýska handboltanum í gærkvöld og sigruðu þá Wetzlar, 19-27, á útivelli. Nordhorn hefur unnið alla flóra leiki sína og er efst með betri markatöiu en stórliðin Kiel og Flensburg. Sigurður Bjarnason skoraði eitt mark fyrir Wetzlar í leiknum. Willstátt á í meiri vandræðum með að laga sig að A-deildinni og tapaði, 19-23, fyrir Gummersbach og er enn án stiga. Gústaf Bjarnason skoraði 2 mörk fyrir Willstátt og Magnús Sigurðsson lék aðeins í vörn liðsins vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu um síðustu helgi. Dormagen tapaði naumlega fyrir meist- urum Kiel, 26-27, en Kiel hafði reyndar ekki unnið sigur í Dormagen í flögur ár. Það var fyrst og fremst stórleikur hjá Magnus Wislander og markverðinum Steinari Ege sem tryggði Kiel sigurinn. Patrekur Jóhannesson átti góðan leik með Essen sem tapaði í Flensburg, 25-23. -VS Sátt meö stigið „Við hefðum átt að geta náð í öll þrjú stig- in en erum nokkuð sátt með að fá eitt út úr þessum leik. Við fómm í þennan leik með því takmarki að spila agaðan vamarleik og gerðum það. Þær fengu nokkur hálffæri en Þóra þurfti aldrei að veija í leiknum. Ég bjóst við að þær kæmu framar enda með eitt af bestu liðum Evrópu og það voru aðeins flórar breytingar á liði þeirra frá því á HM. Ég hefði viljað sjá tvö mörk í byrjun og það hefði breytt leiknum og fengið þær til að koma framar á völlinn sem hentar okkur betur. Fjögur stig er kannski meira en við áttum von á og mjög gott fararnesti í næstu leiki. Sjálfstraustið er gott hjá stelpunum, þær eiga sér engin takmörk og eiga eftir að koma fleimm á óvart en sjálfum sér,“ sagði Þórður Lárusson, þjálfari íslenska liðsins. Sterkari en sumir halda „Það var mjög fint að ná í jafntefli en við hefðum þó átt að klára færin okkar betur í fyrri hálfleik. Við hleyptum þeim ekkert í gegn um vömina og erum sterkari en sumir halda,“ sagði Edda Garðarsdóttir, besti leik- maður íslenska liðsins í gær, gríðarsterk í hjarta íslensku vamarinnar. -ÓÓJ ísland - ítalia ísland - ítalia Markskot: 6 6 Völlur: Mjög góður. Horn: 2 6 Dómari: Bente Skogvang, til Áhorfendur: 1.021. fyrirmyndar, mjög röggsöm. Öruggur sigur Fram í meistarakeppninni: „Stoppuðum þær strax“ m j| Falur Harðarson. Herbert Arnarson. Helgi J. Guðfinnsson. Helgi einn í sigurliði Framstúlkur tryggðu sér sigur í meistarakeppni HSÍ í kvenna- flokki með öraggum sigri, 22-19, yfir Stjömustúlkum í Ásgarði i gærkvöld. Sigurinn var mun ör- uggari en þessar tölur gefa til kynna því Fram komst í 10-2 og Stjarnan gerði flögur síðustu mörkin í leiknum. „Við náðum að stoppa þær strax í byrjun í vörninni og það skóp forskotið. Við vorum síðan ákveðnar í að tapa ekki leiknum," sagði Hugrún Þorsteinsdóttir, fyr- irliði Fi-am, eftir leikinn. Fram- stúlkur léku ágætlega, sérstaklega miðað við að þær hafa átt í nokkrum meiðslavandræðum í sumar. Hugrún var þó fremst með- al jafningja og varði geysivel. Díana Guðjónsdóttir nýtti sín færi einnig vel í horninu. Þær eiga ör- ugglega eftir að mæta mjög sterkar til leiks í vetur og hugsanlega upp- skera meira en þær náðu að gera í fyrra. „Við byrjuðum mjög illa og það var erfitt að elta þegar við voram svo langt undir. Við fengum svo tækifæri til að saxa á forskotið en Hugrún var okkur erfið. Við eig- um eftir að stilla okkur betur sam- an,“ sagði Ragnheiður Stephensen, skytta Stjömunnar, eftir leikinn. Hjá Stjörnustúlkum var Sigrún Másdóttir best og Rut Steinsen sýndi einnig ágæta takta eftir að hún kom inn á. Liðið á trúlega eft- ir að slípast betur þegar á líður en það hefur misst sterka leikmenn síðan í fyrra og það mun trúlega hafa áhrif á gengið hjá því í vetur. Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður Stephensen 6/3, Sigrún Másdóttir 5, Nína K. Bjömsdóttir 3, Inga S. Björg- vinsdóttir 2, Rut Steinsen 2, Svava Björk Jónsdóttir 1. Varin skot: Sóley Halldórsdóttir 9/1. Mörk Fram: Díana Guðjónsdóttir 6, Hafdís Guðjónsdóttir 5, Marina Zueva 4/1, Olga Prokorova 3, Katrín Tómas- dóttir 3, Jóna Björg Pálmadóttir 2. Varin skot: Hugrún Þorsteinsdóttir 14. -HI Helgi Jónas Guðfinnsson var eini íslenski atvinnumaðurinn í körfubolta sem var í sigurliði í Evrópukeppni í vikunni. Lið Helga, Telindus Antwerpen, vann Sparta frá Lúxemborg auð- veldlega, 85-48, og hafði unnið fymi leikinn svipað, 95-57. Helgi skoraði 8 stig á 24 mínútum og hitti úr tveimur 3ja stiga skotum af sjö í leiknum. Herbert Arnarson og félagar í Donar frá Hollandi eru úr leik í Korac-bikarnum en þeir töpuðu, 61-78, fyrir Vacallo frá Sviss á heimavelli. Herberf lék í 31 mín- útu og skoraði 12 stig en hitti illa. Falur Harðarson skoraði 3 stig á 30 mínútum þegar ToPo Helsinki tapaði, 63-70, fyrir Saka- lai Vilnius frá Litháen í Evrópu- keppni bikarhafa. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.