Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 17 Sport Sport * Bland í poka Evrópukeppni landsliða í kvennaknattspyrnu: Stórt tap - gegn Evrópumeisturum Þjóðverja í Þýskalandi í gær islenska piltalandsliðið í knatt- spyrau, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, tapaði í gær fyrir Króatíu, 2-0, í riðlakeppni Evrópumótsins. Næsti leikur liðsins verður á laugardag gegn Makedóniu. í gœr var dregiö í riðlana tvo í heimsmeistarakeppni félagsliða 1 knattspyrnu en keppnin fer fram i Brasilíu dagana 4.-14. janúar. í A-riðli sem leikinn verður i Sao Pa- olo leika Real Madrid, Spáni, A1 Nassr, Sádi Arabíu, Corinthians, Brasilíu, og lið frá Afríku en það ræðst í desember hvaða lið það verð- ur. í B-riðli leika Manchester United, Necaxa, Mexíkó, Vasco da Cama, Brasilíu, og South Melbourne, Ástral- íu. Þessi riðill fer fram í Rio de Jan- eiro. Fyrirkomulag keppninnar er þannig að sigurvegarar riðlanna leika hreinan úrslitaleik 14. janúar. Sex leikmenn úr byrjunarliði þýska kvennalandsliðsins gegn íslandi hafa náð 100 landsleikjamúrnum. Bettina Wiegmann fékk viðurkenningu frá þýska knattspymusambandinu fyrir leikinn, en hún var að leika sinn 104 landsleik og skoraði mörk númer 33 og 34 á ferlinum. Þjóöverjar fœróu íslendingum þau tíðindi í Oldenburg að áfrýunardóm- stóll UEFA hefði staðfest fyrri dóm um að leikur Úkraínu og íslands skyldi dæmdur 3-0 íslandi í hag. ítal- ía sigraði Úkraínu 1-0 í 3ja riðli Evr- ópukeppninnar á miðvikudag og er Úkraína eina liðið án stiga í riðlin- um. Wuppertal tapaði fyrir Minden, 33-22, í þýska handboltanum í gær- kvöld. Heiömar Felixsson var ekki á meðal markaskorara Wuppertal. Snókerspilarinn Kristján Helgason tapaði í gær fyrir Englendingnum, Jimmy White, 4-5, á alþjóðlegu móti í Englandi og er hann því úr leik á þessu sterka móti í Preston íslenska kvennalandsliðið í knatt- spymu átti aldrei möguleika gegn Öórföldum Evrópumeisturum Þjóð- verja þegar liðin mættust í 3ja riðli Evrópukeppninnar í bænum Olden- burg í gær. íslensku stelpumar vora á eftir þeim þýsku á öllum sviðum, hraða, tækni og skipulagi, auk þess sem það bætti ekki úr að leikgleðin, sem var aðall íslenska liðsins gegn ítölum í lok síðasta mánuðar, var víðs fjarri. Inka Grings, Bettina Wiegemann og Martina Voss skoraðu þrjú mörk í fymi hálfleik, en Guðlaug Jónsdóttir fékk besta færi íslands á 10. mínútu þegar hún var ein á móti markverði þýska liðsins, en færið rann út í sand- inn. í seinni háifleik bætti Bettina Wi- egemann við öðru marki sínu og fjórða marki Þjóðverja og varamaður- inn Claudia Múiier því fimmta sjö mínútum fýrir leikslok. Leikur íslenska liðsins olli miklum vonbrigðum. Það var allt annar svip- ur á liðinu heldur en var gegn ítölum fyrir fjórum vikum. Leikmenn virt- ust þreyttir og þungir og sumir sáust hreinlega ekki á vellinum í lengri tíma. Þórður Lárasson landsliðsþjálf- ari og stelpumar hans þurfa heldur betur að taka til í sínum ranni ef lið- ið ætlar sér að eiga einhverja mögu- leika í seinni umferð riðilsins. Það verður að koma með leikskipulag sem hentar liðinu og leggja upp taktík sem stefnir að einhverju ákveðnu marki. Hvort það er að verjast framarlega Staöan í riölinum Þýskaland 2 2 0 0 8-0 6 Italía 2 1 1 0 1-0 4 ísland 3 1 1 1 3-5 4 Úkraina 3 0 0 3 0-7 0 eða aftarlega eða sækja upp kantana eða miðjuna skiptir ekki máli, það þarf að sjást á liðinu að einhver taktik hafi verið lögð upp fyrir hvem leik en sást ekki gegn Þjóðverjum í gær. Get tekið gagnrýni „Það er erfitt að finna einhverja skýringu á þessu en stelpurnar virt- ust ekki hafa neina trú á því að þær gætu unnið þennan leik. Við lögðum upp með nákvæmlega sömu hluti og gegn ítölum, og stefndum að því að ná í hagstæð úrslit. Það vantaði reyndar Ásthildi frá Ítalíuleiknum en það á ekki að breyta svona miklu. Ég ætla ekki að skella skuidinni á stelpumar frekar en mig, ég þoli al- veg gagnrýni og er maður til að taka henni. En við verðum að fá fleiri verkefni. Kvennaknattspyrnan er í mikilli sókn en knattspyrnuforystan verður að fylgja þessu miklu betur eftir og útvega fleiri verkefni. Stelp- urnar komu hingað til að gera sitt besta en því miður varð þetta niður- staðan og við erum alls ekki sátt við hana,“ sagði Þórður Lárasson. Vart er hægt að segja að einhver leikmanna íslenska liðsins hafi átt góðan dag. Þóra B. Helgadóttir mark- vörður varði oft vel og verður ekki sökuð um mörkin fimm - enda vörn- in hripiek fyrir framan hana. Mar- grét Ólafsdóttir og Guðlaug Jónsdótt- ir áttu ágætar rispur en aðrir leik- menn íslenska liðsins léku langt undir getu. Lið íslands: Þóra B. Helgadóttir - Rósa Júlía Steinþórsdóttir (65. Guðrún Gunnarsdóttir), Edda Gardasdottir (57. íris Sæmundsdóttir), Auður Skúiadóttir, Sigrún S. Óttarsdóttir - Guö- laug Jónsdóttir, Margrét R. Ólafsdóttir, Katrin Jónsdóttir, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Rakel ögmundsdóttir - Ásgerður H. Ingibergs- dóttir. _jjj Keflavíkurkonur fagna því að vinna KR, fyrst liða í heila 13 1 \ Mp•■ «. oMKl Jii I ■ Wsjr :■ ® Sigurgangan stöðvuð Knattspyrna: Þormóður ffam- lengir dvölina hjá Walsall KR-ingurinn Þormóður Egils- son lék i fyrrakvöld varaliðsleik með enska' B-deildarliöinu Walsall er liðið gerði 1-1 jafntefli við Exeter City. Ray Graydon, framkvæmdarstjóra Walsall, leist ágætlega á frammistöðu Þormóðs og bað hann að vera hjá liðinu út vikuna svo hann gæti skoðað hann betur. Þormóður féllst á það og í vikulok mun hann og Graydon taka ákvörðun um framhaldið. Hjá Walsall eru fyrir íslending- arnir Sigurður Ragnar Eyjólfs- son og Bjarnólfur Lárusson. -ÍBE Keflavíkurkonur bundu enda á 13 mánaða og 31 leiks sigurgöngu KR- kvenna í körfubolta í gær er þær unnu þær 60-57 í æsispennandi leik liðanna i Keflavík. KR byrjaði leikinn mun betur og hélt framkvæðinu aflan fyrri hálfleik og leiddi 22-28 í hálf- leik. Þar munaði samt miklu fyrir heimamenn að Anna Mar- ía Sveinsdóttir skoraði tvær miklvægar körfur á síðustu minútu hálfleiksins og kom muninum niður í sex stig fyrir hlé. Keflvíkurliðið kom mun ákveðnara til leiks í seinni há- fleik, Kristinn Einarsson, þjálf- ari liðsins, breytti vörninni í svæðisvöm og liðið komst í fyrsta sinn yfir eftir 4 mínútur. Keflavík varð þá fyrir áfalli er Anna María Sveinsdóttir meiddist og spilaði ekkert síð- ustu átta mínútur leiksins. KR-konur tóku þá við sér og komust yfir, 56-57, þegar 1 mínúta var eftir en Birna Valgarðsdóttir kórónaði þá frábæran leik með sinni þriðju þriggja stiga körfu, Keflavík komst síðan í 60-57 með vítaskoti Öldu Leifar Jónsdóttur og þriggja stiga skot Guðbjargar Norð- fjörö skoppaði síðan af hringnum rétt áður en lokaflautið gail. Keflavíkurkonur fögnuðu inni- lega enda búnar að stöðva lengstu sigurgöngu í íslenskri kvennakörfu frá upphafi en KR-konur vita að þó að þessi bardagi hafi tapast mun barátta þessara jöfnu liða verða hörð og opin í allan vetur. Sóknarleikur Keflavíkur var bor- inn upp af framtaki Birnu og Erlu Þorsteindóttur sem gerðu 40 af 60 stigum liðsins en liðið átti í vand- ræðum með pressu KR-kvenna og tapaði 26 boltum í leiknum. Anna María Sveinsdóttir skilaði líka sínu og Kristín Blöndai barðist vel. Hjá KR léku þær Guðbjörg Norðfjörð, Kristín Jónsdóttir og Hanna Kjart- ansdóttir best en sú síðastnefnda átti 11 stoðsendingar í leiknum. Stig Keflavikur: Birna Valgarðsdóttir 21, Erla Þorsteinsdóttir 19 (7 af 7 í vítum), Anna María Sveinsdóttir 11 (4 varin skot), Kristín Blöndal 6 (9 fráköst og 7 stoðsendingar), Alda Leif Jónsdóttir 3. Stig KR: Guðbjörg Norðfjörö 14, Kristin Jónsdóttir 13, Hanna Kjartansdóttir 8, Hildur Sigurðardóttir 8, Linda Stefáns- dóttir 5 (8 fráköst), Emilie Ramberg 5, Gréta Grétarsdóttir 4. -ÓÓJ Anna María meiddist Anna María Sveinsdóttir, fyrirliöi Kefla- víkur, meiddist á hné þegar 9 mínútur voru eftir af leik Keflavíkur í gær og spilaði ekk- ert siðustu 8 mínútur leiksins. Ekki er ljóst hvort meiðslin eru alvarleg en það kemur í ljós við nánari athugun í dag. Þess má geta að leikurinn var stöðvaður þegar Anna Maria skoraði sin fyrstu stig í gær og fékk hún þá viðurkenn- ingu fyrir að skora fyrst kvenna meira en 4000 stig í efstu deild, sjá hér til hægri. -ÓÓJ l.deild karla í handbolta: HK hefur gott tak á Stjörnunni Einn leikur fer fram í 1. deild karla i kvöld þegar Stjarnan tek- ur á móti HK í Garðabæ klukk- an 20:00. Kópavogsliðið við botn- sætið Kópavogsliðið er sem stendur á botni deildarinnar, enn án stiga, en Stjörnumenn unnu sinn fyrsta sigur i síðasta leik eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikj- um sínum. HK hefur strítt Stjömuliðinu mikið frá því þeir unnu sér sæti I deildinni á ný vorið 1996 og Stjömumenn hafa ekki náð að vinna HK í deildinni síðustu þrjú tímabil. HK hefúr á þeim tíma unnið fimm af sex leikjum liðanna en þau gerðu síðan jafntefli i Garða- bæ í fyrra. Sigurður Valur Sveinsson, þjálfari HK, verður í leikbanni í þessum leik en hann fékk rautt spjald gegn Fram í síðustu um- ferð og mun Páll Ólafsson því stjórna liðinu í kvöld. -ÓÓJ Körfuknattleikur: David Colbac til liðs við Snæfell DV, Vesturlandi: Úrvalsdeildarlið Snæfells í Stykkishólmi hefur fengið nýjan leikmann. Nýi leikmaðurinn kom til landsins sl. föstudag og hefur hafið æfmgar með liðinu. Hann heitir Colbac David og varð 26 ára daginn eftir að hann kom til landsins. Á síðasta leik- tímabiii lék hann i Rúmeníu. Hann er 205 cm á hæð og 110 kg. Fyrsti leikurinn hans verður gegn Njarðvík í Njarðvík fjóröa nóvember. -DVÓ Leikmenn í norsku úrvalsdeildinni velja leikmann ársins: Rúnar bestur í Leikmenn í norsku úrvalsdeildinni í knattspymu kjósa árlega besta leik- manninn fyrir hvert tímabii og í gær kom í ljós að það var Rúnar Kristinsson, landsliðsmaður, hjá Lilleström. Val þetta ætti ekki að koma neinum á óvart sem hefur fylgst með norska fótboltanum í ár. Rúnar hefur átt frábært tímabil með liðinu og fyrir vikið hafa félög utan Noregs fylgst grannt með íslendingnum. Það er knattspyrnutímaritið Fotball Noregi sem stendur að þessu kjöri. í öðra sæti varð Magnus Svensson hjá Vik- ingi í Stavanger og í þriðja sæti hafn- aði Erik Hoftun hjá meisturunum Rosenborg í Þrándheimi. -JKS Jónatan Bow átti mjög góðan leik hjá KR gegn Skagamönnum í gær og hér kemst hann fram hjá Magnúsi Guðmundssyni, leik- manni ÍA. DV-mynd Hilmar Þór «* Urvalsdeildin í körfuknattleik í gærkvöld: - það eina sem gladdi augað í sigri KR-inga á Skagamönnum, 73-60 Leikur KR og ÍA í úrvalsdeildinni í körfuknattleik var slakur og oftast nær var engu líkara en lið úr neðri deildum væra að leika. Hittni beggja leikmanna var með ólíkindum slök og sóknarleikur- inn var almennt í molum, sérstaklega hjá Skagamönnum. KR sigraði, 73-60, í leiknum sem fram fór í nýja íþróttahúsinu þeirra KR-inga. KR-ingar byrjuðu betur en Skagamenn náðu að jafna leikinn um miðjan seinni hálfleik með því að þétta vömina hjá sér en KR-ingum tókst svo að ná fimm stiga forystu í leikhléi. í síðari hálfleik settu KR-ingar síðan á fullt og gerðu 11 stig gegn tveimur og til marks um þennan góða kafla gerðu Skagamenn ekki stig i síðari hálfleik fyrr en eftir fjórar og hálfa mínútu. Þetta bil tókst Skagamönnum aidrei að brúa og leikurinn varð aldrei spennandi eftir þetta. Lið KR þurfti engan stórleik til að sigra og það sem helst gladdi augað vora skemmtileg tilþrif Jóntatans Bow auk þess sem Guömundur og Sörensen sýndu oft ágæta takta. Hjá Skagamönnum bar mest á Beckett auk þess sem Bjöm Einarsson átti ágæt- an endasprett. Þeir sem stóðu sig þó best í leiknum voru dómararnir sem gerðu hvað fæst mistök af þeim sem inni á vell- inum vora. -HI Ross vill koma aftur til íslands Englendingurinn Ian Ross, sem þjálfaði liðs Vals og KR með góðum árangri á sínum tíma, hefur mikinn áhuga á að koma aftur til íslands að þjálfa. Ross var þjálfari hjá Sunderland áður en Peter Reid tók við stjóminni hjá félaginu og var þar áður knattspymustjóri hjá Huddersfield. Ross er búsettur rétt utan við Manchester og rekur þar bar en hann hefur frá því hann yfírgaf ísland fylgst með knattspymunni hér heima. Ross þjálfaði lið Vals í fjögur ár, frá 1984-1987, og skilaði tveimur íslandsmeistaratitlum tii félagsins og síðan tók hann við þjálfun hjá KR og var hjá vesturbæjarliðinu i þrjú ár. Ross sneri svo aftur til íslands árið 1994 og gerðist þjálfari Keflavíkur en hætti snemma það sumar vegna fjölskylduerfiðleika og hélt aftur til Englands. -GH Gamalreyndur kappi á Krókinn Tindastólsmenn ákváðu i gær að láta er- lendan leikmann sinn, Ryan Williams, fara eft- ir aðeins tvo leiki.Wiiliams var með 20,5 stig og 12 fráköst að meðaltali í fyrstu 2 leikjunum. í stað hans kemur Shawn Myers, 30 ára Bandaríkjamaður. Hann er 1,97 m og lék meðal annars með Pyrbasket í Finnlandi í fyrra þar sem hann var annar stigahæstur með 22,2 stig í leik auk þess að taka 10,3 fráköst. Hann hitti líka 34,7% úr 3ja stiga körfum og gerði yfir eina slíka að meðaltali í leik. -ÓÓJ URVALSDEILDIN Hamar 3 3 0 258-223 6 KR 3 2 1 221-195 4 Keflavik 2 2 0 240-148 4 Grindavík 2 2 0 189-138 4 Haukar 2 1 1 164-151 2 ÍA 3 1 2 195-245 2 Skallagr. 2 1 1 162-180 2 Njarðvík 2 1 1 187-179 2 Tindastóll 3 1 2 232-253 2 Þór A. 2 0 2 158-236 0 KFÍ 2 0 2 137-153 0 Snæfell 2 0 2 132-174 0 í kvöld eru tveir leikir, Snæfell tekur á móti KFÍ í Stykkishólmi klukkan átta og hálftima síðar hefst leikur Þórs og Skallagríms á Akureyri. Leikjum Grindavik vió Keflavík og Hauka viö Njarðvík var frestað til 14. desember vegna þátttöku ÍRB 1 Evrópukeppninni. -ÓÓJ Kristinn Hafliðason knattspyrnumaður: Með samning frá Raufoss - Hácken viH fá að skoða hann DV, Sviþjóð: Kristinn Hafliðason, sem hefur leikið með Eyjamönnum síðastlið- inn tvö knattspyrnu- tímabil, hefur þessa viku verið við æfingar hjá norska liðinu Raufoss og í gær bauð norska liðið honum samning sem Kristinn ætlar að skoða betur. Það er fleiri lið á hött- Perry látinn fara unum á eftir íslendingnum því sænska liðið Hácken hefur boðið honum að æfa með lið- inu alla næstu viku. Kristinn ætlar að þekkj- ast boðið og kemur til '• Gautaborgar um helg- ina. Töluverður uppgangur er á Hácken en liðið er á góðri leið með að tryggja sér sæti í sænsku A-deildinni á næsta timabil. -JKS/EH Purnell Perry, sem hefur skilað miklu til liðs Reykjanesbæjar í Evrópukeppninni og er sem dæmi stigahæsti leikmaður Korac- bikarsins að meðaltali það sem af er, var rekinn eftir leik ÍRB og Huima á miðvikudagskvöid. Perry er látinn fara vegna frammistöðu utan vallarsins frekar en innan hans. í stað Perry kemur til liðsins, Jason Hoover sem lék síðast í Sviss en kemur upprunanlega úr sama skóla og Brenton Birmingham, er nú leikur hjá Grindavík. Með því að láta Perry fara þarf að tilkynna nýjan útlending til FIBA vegna þátttöku ÍRB i Evrópukeppninni og það kostar víst sitt. -ÓÓJ Þriðji sigurinn í röð DV, Hveragerði: Hcunar vann sinn þriðja leik í röð í deildinni og hafa nýliðamir sannar- lega komið á óvart. í gærkvöld vora Tindastólsmenn lagðir að vefli, 98-93. Tindastólsmenn byrjuðu betur í fyrri hálfleik og höföu yfirhöndina mestcillan tímann. Leikmenn Ham- ars tóku sig á í lokin og komust yfir þegar 3 mín. vora til loka fyrri hálf- leiks og vora yfir i hálfleik, 53-49. Rodney Dean hjá Hamri var lengi að komast í gang. Hann skoraði sjö stig í fyrri hálfleik en hrökk í gang í seinni hálfleik og skoraði 25 stig og var þar af leiðandi með 32 stig og stigahæstur í leiknum. Einnig var Skarphéðinn Ingason atkvæðamikill hjá Hamri. í seinni hálfleik var Ryan Wifli- ams atkvæðamestur hjá Tindastól. Ryan skoraði 26 stig og var með flest- ar þriggja stiga körfúr hjá Tindastól eða þrjár. Tindastóll missti leikinn í r villuvandræði, sem og Hamar, og missti tvo leikmenn út af í seinni hálfleik og var Tindastóll með alls 20 villur en Hamar 25. Leikurinn þróaðist vel en greinilega kunnu hvorki leikmenn liðanna né áhorfendur að meta dóm- gæsluna í lok fyrri hálfleiks. Mikil spenna var í lok seinni hálfleiks og var staðan 95-93 Hamar í vil, 23 sek- úndur eftir og þeir vora með boltann. Tindastólsmenn reyndu hvað þeir gátu til að stela boltanum en hann endaði hjá Kristni L. Karlssyni sem sá um að koma boltanum öragglega í körfuna. KR (36) 73 - ÍA (31) 60 7-0, 15-4, 19-19, 24-25, 32-29, (36-31), 47-33, 55-42, 69-48, 71-55, 73-60. ? KR: Jónatan Bow 18, Guö- mundur Þ. Magnússon 18, Jakob Öm Sigurðar- son 12, Jesper W. Sören- sen 8, Ólafur Már Ægis- son 7, Ingvar Ormars- son 6, Atli F. Einarsson 2, Hjalti Kristinsson 2. Fráköst: KR 43, ÍA 32 3ja stiga: 26/4, ÍA 11/5 Vítahittni: KR 22/13. ÍA 11/6. Dómarar (1-10): Jón Bender og Helgi Bragason 8. Gceöi leiks (1-10): 4. Víti: KR 22/13, ÍA 11/6. Áhorfendur: Um 100. IA: Reid Beckett 17, Bjöm Einarsson 12, Ægir H. Jónsson 12, Brynjar Sigurðsson 8, Magnús Guðmundsson 7, Hjörtur Þ. Hjartarson 4. Maður leiksins: Jonathan Bow, KR Hamar (53) 98 -Tindastóll (49) 93 3-0, 9-5, 12-16, 23-20, 28-25, 33-39, 40-43, 4545, 50-48, (53-49,). 57-57, 59-60, 66-60, 69-60, 74-72,76-67, 82-67, 86-73, 91-76, 93-85, 95-90, 95-93, 98-93 Hamar: Fráköst: 27, Tindastóll 28. Tindastóll: Rodney Dean 32, Pétur Ingvarsson 16, Hjalti Pálsson 13, Kristinn Karlsson 12, Skarphéðinn Ingason 12, Ómar Sigmarsson 11, Óli S. Barðdal 1. Áhorfendur: 450. Dómarar (1-10): Kristján Möller og Einar Einarsson. Gœði leiks (1-10): 7. Ryan Williams 26, ísak Einarsson 14, Svavar Birgisson 10, Valur Ingimundarson 10, Flemming Stie 9, Kristinn Friðriksson 6, Sune Henriksen 6, Sverrir Þór Sverris- son 2, Lárus Dagur Pálsson 2. T Maður leiksins: Rodney Dean, Hamar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.