Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1999, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1999, Blaðsíða 34
42 MIÐVKUDAGUR 29. DESEMBER 1999 Afmæli Ólafur Skúlason Herra Ólafur Skúlason biskup, Kirkjusandi 5, Reykjavík, er sjötug- ur í dag. Starfsferill Ólafur fæddist í Birtingaholti í Hrunamannahreppi og ólst upp í foreldrahúsum, lengst af í Keflavík. Hann lauk stúdentspófi frá VÍ 1952, embættisprófi í guöfræöi frá HÍ 1955, stundaði framhaldsnám og sótti ýmis námskeið við bandaríska háskóla fyrir starfandi sóknar- presta á starfsármn sínum þar vestra en auk þess stundaði hann guðfræðinám í skóla alkirkjuráðs- ins í Bossey í Sviss 1960. Ólafur var prestur íslenska safn- aðarins í Montain í Norður-Dakota 1955-59, í Keflavík í þrjá mánuði 1959-60, var fyrsti æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar 1960-64, sóknar- prestur í Bústaðaprestakalli í Reykjavík 1964-89, dómprófastur 1976-89, vígslubiskup 1983-89, og biskup íslands frá 1989 og þar til hann fékk lausn frá embætti að eig- in ósk frá 1.1. 1998. Ólafur sat í stjóm Hins íslenska kirkjufélags í Ameríku 1956-59, í stjóm Prestafélags íslands 1970-79 og formaður þess 1974-79, var for- maður æskulýðsnefndar þjóðkirkj- unnar 1964-67, sat í Bamaverndar- ráði íslands 1975-78, var kosinn í stjóm Lútherska heimssambands- ins 1990 og formaður Rannsóknar- stofnunar þess í Strassborg frá sama tíma. Fjölskylda Ólafur kvæntist 18.6. 1955 Ebbu Guðrúnu Brynhildi Sigurðardóttur, f. 5.12. 1935, húsmóður. Hún er dótt- ir Sigurðar Þ. Tómassonar, f. 16.7. 1910, forstjóra í Reykja- vík, og k.h., Maggýjar Flóventsdóttur, f. 1.9. 1910, húsmóður. Börn Ólafs og Ebbu eru Guðrún Ebba, f. 1.2.1956, formaður Félags grunn- skólakennara, gift Stefáni Halli Ellertssyni stýri- manni og eiga þau tvær dætur, Hrafnhildi, f. 1981, og Brynhildi, f. 1987; Sig- ríður, f. 9.8.1958, húsmóð- ir og BA í frönsku og hol- lensku, gift Höskuldi Hrafni Ólafssyni, fram- kvæmdastjóra hjá Eimskipafélagi íslands í Reykjavik, og eiga þau þrjú böm, Ólaf Hrafn, f. 1981, Ás- gerði, f. 1987, og Sigriði, f. 1998; Skúli Sigurður, f. 20.8. 1968, prestur á ísafirði en kona hans er Sigríður Björk Guðjónsdóttir, skattstjóri á ísafirði og eru böm þeirra Ebba Margrét, f. 1991, og Ólafur Þor- steinn, f. 1999. Systkini Ólafs eru Helgi, f. 4.9. 1933, d. 30.9. 1996, leikari og leik- stjóri, var kvæntur Helgu Bach- mann leikkonu; Móeiður, f. 10.2. 1938, ökukennari í Keflavík, gift Bimi Bjömssyni, lögregluþjóni; Ragnheiður, f. 12.3.1943, píanókenn- ari í Keflavík, gift Sævari Helgasyni málara. Hálfsystir Ólafs, samfeðra, er Kristrún, f. 9.2. 1927, húsmóðir í Reykjavík, gift Þóri Geirmundssyni. Foreldrar Ólafs voru Skúli Ódd- leifsson, f. 10.6.1900, d. 3.1.1989, um- sjónarmaður í Keflavík, og k.h., Sig- ríður Ágústsdóttir, f. 11.4. 1902, d. 16.11. 1961. Ætt Faðir Skúla var Oddleif- ur, b. í Langholtskoti í Hrunamannahreppi Jónsson, b. á Hellishólum Jónssonar, dbrm. á Kóps- vatni Einarssonar, b. í Berghyl Jónssonar, b. í Skipholti Jónssonar, bróður Fjalla-Eyvindar. Móðir Skúla var Helga, systir Önnu, ömmu Jóns Skúlasonar, fyrrv. póst- og símamálastjóra. Anna var dóttir Skúla, alþm. í Berghyl Þorvarðarsonar, bróður Jósefs, langafa Ólafs ísleifssonar, framkvæmdastjóra Alþjóðasviðs Seðlabanka íslands. Annar bróðir Skúla var Þorvarður, afi Sigurgeirs Jónssonar, fyrrv. ráðuneytisstjóra. Þriðji bróðir Skúla var Hannes, langafi Ástu, móður Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Fjórði bróðir Skúla var Jón, langafi Önnu, móður Hjartar hæstaréttardómara og Ragnheiðar, rektors MR Torfa- barna. Systir Skúla var Margrét, langamma Björgvins Vilmundar- sonar, fyrrv. bankastjóra og Gunn- ars Arnar listmálara og Þórðar Steinars hrl. Gunnarssona. Önnur systir Skúla var Helga, amma Ólafs Halldórssonar handritafræðings. Sigríður var dóttir Ágústs, alþm. í Birtingaholti, bróður Guðmundar, föður Ásmundar biskups. Annar bróðir Ágústs var Kjartan, prófast- ur í Hruna, faðir Guðmundar jarð- fræðings. Þriðji bróðir Ágústs var séra Magnús, skólastjóri KÍ. Ágúst var sonur Helga, b. í Birtingaholti, bróður Andrésar í Syðra-Langholti, foður Magnúsar, prófasts og alþm. á GOsbakka, foður Péturs, ráðherra og Ragnheiðar, ömmu Jakobs Fri- manns Magnússonar, hljómlistar- manns og málsvara Umhverfisvina. Þá var Andrés hreppstjóri afi Þórð- ar hæstaréttardómara, föður Magn- úsar, framkvæmdastjóra NATO á íslandi, föður Kjartans borgarfull- trúa. Loks var Andrés hreppstjóri langafi Guðmundar í. Guðmunds- sonar, ráðherra og sendiherra. Helgi var sonur Magnúsar, alþm í Syðra-Langholti Andréssonar. Móð- ir Magnúsar var Margrét Ólafsdótt- ir, b. í Efra-Seli Magnússonar, og Malínar Guðmundsdóttur, b. á Kópsvatni, ættföður Kópsvatnsætt- arinnar Þorsteinssonar. Móðir Helga var Katrín Eiriksdóttir, ætt- föður Reykjaættar Vigfússonar, langafa Sigurgeirs Sigurðssonar biskups, föður Péturs biskups. Móðir Sigríðar var Móeiður Skúladóttir Thorarensen, læknis og alþm. á Móeiðarhvoli, bróður Bjama amtmanns og skálds. Skúli var sonur Vigfúsar, sýslumanns á Hlíðarenda í Fljótshlið Þórarinsson- ar, ættföður Thorarensenættar Jónssonar. Móðir Skúla var Stein- unn Bjamadóttir, landlæknis Páls- sonar og Rannveigar Skúladóttur, landfógeta Magnússonar. Móðir Mó- eiðar var Sigríður Helgadóttir, kon- rektors í Skálholti Sigurðssonar og Ragnheiðar Jónsdóttur, systur Val- gerðar, konu biskupanna Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónsson- ar, ömmu Steingríms Thorsteins- sonar, skálds og rektors, og langömmu Níelsar Finsen, nóbels- verðlaunahafa í læknisfræði. Ólafur og Ebba verða að heiman á afmælisdaginn. Herra Ólafur Skúlason. Kristín Bjömsdóttir Liiders Kristín Björnsdóttir Lúders, áður húsfreyja að Kársnesbraut 103, Kópavogi, nú búsett að Fælledvej 24 c. 1. dv. 4000, Raskilde, Danmark, er níræð í dag. Starfsferill Kristín fæddist að Saurbæ í Kol- beinsdal og ólst þar upp. Hún stund- aði nám við Húsmæðraskólann á Blönduósi 1929, dvaldi síðan þrjú ár á heimili læknishjónanna Braga Ólafssonar og Sigríðar Jónsdóttur á Hofsósi þar sem hún vann jöfnum höndum á heimili þeirra og aðstoð- aði lækninn við læknisverk á lækn- isstofunni. Þá sigldi hún til Dan- merkur 1935, lærði þar fatasaum og vann að saumum fyrir verslunar- húsið Rosenberg í tvö ár. Er Kristín gifti sig var hún heimavinnandi framan af en hóf síðan störf við niðursuðuverksmiðj- una ORA við stofnun hennar og starfaði þar um árabil þar til hún lét af störfum, heiðruð með gjöfum og viðurkenningarskjali af forstjóra fyrirtækisins. Kristín og maður hennar voru landnemar í Kópavogi þar sem þau byggðu sér litið hús að Kársnes- braut 37 árið 1944 og reistu síðan stærra hús á sama stað er varð númer 103. Þeim hjónum voru andleg mál hugleikin og leituðu margir tfl þeirra um fyrirbænir. Eftir lát eig- inmanns Kristínar bjó hún ein en flutti síðan til dætra sinna til Dan- merkur 1975 þar sem hún býr nú ein í íbúð eldri borgara og hugsar um sig sjálf með hjálp dætra sinna. Fjölskylda Eiginmaður Kristínar var Georg Lúders, f. 21.3. 1909, d. 16.6. 1965, húsgagnasmiður hjá Kristjáni Sig- geirssyni og trésmiðjunni Byggir. Hann var af dönsku og austurrísk- um ættum. Dætur Kristínar og Georgs eru Jóhanna Ragnheiður, f. 21.8. 1944, skrifstofumaður í Fredriksberg, gift Henning Smith skrifstofumanni og eiga þau þrjú böm og fjögur bama- böm; Rut, f. 16.4.1947, danskennari, starfsmaður við leikskóla og rekur brúðarkjólcdeigu í Roskilde, gift Sören Tomsen en var áður gift Jan Schmidt og em böm þeirra tvö. Systkini Kristínar: Jó- hannes, lést af slysförum á fjórða ári; Haflína, f. 24.11.1905, ekkja eftir Sig- urmon Hartmannsson, bónda og hrossaræktanda að Kolkuósi í Skagafirði. Foreldrar Kristínar voru Björn Hafliðason, f. 13.9. 1869, d. 24.8. 1937, bóndi í Saurbæ 1 Kol- beinsdal, og k.h., Ragn- heiður Sigríður Þorláks- dóttir, f. 5.6. 1874, d. 15.2. 1957, húsfreyja. Ætt Bjöm var sonur Hafliða, b. í Sviðningi í Kolbeinsdal Jónssonar, b. í Hofdölum Hafliðasonar, bróður Margrétar, ömmu Jóns Jóhannsson- ar, fræðimanns á Siglufirði. Móðir Bjöms var Marín, systir Kristinar í Neðra-Ási, föður Sigur- bjöms prests, föður Gísla, forstjóra Elliheimilisins Grundar, Lárusar borgarminjavarðar og Friðriks stór- kaupmanns. Marín var dóttir Bjöms, b. í Brekkukoti, Ingimund- arsonar, b. á Miklahóli. Móðir Björns var Sesselja Gísla- dóttir, prests á Staðar- bakka, Hannessonar. Móðir Marínar var Elín Sigfúsdóttir, b. i Víkur- koti, Þorsteinssonar frá Hryggjum. Ragnheiður Sigríður var dóttir Þorláks, b. á Vatns- leysu, bróður Ásmundar, afa Ingibjargar Einars- dóttur, ljósmóður á Akur- eyri, á tíræðisaldri, heið- urfélaga Ljósmæðrafé- lagsins. Þorlákur var son- ur Einars, b. í Bjamastaðagerði, Einarssonar, og Kristínar, systur Áma á Grundarlandi, langafa Hjart- ar Leós Jónssonar, hreppstjóra á Eyrarbakka, og Baldurs Magnús- sonar módelsmiðs. Kristín var dótt- ir Ásmundar, b. á Bjamastöðum, Jónssonar og Kristínar Þorkelsdótt- ur. Móðir Ragnheiðar Sigríðar var Rut Guðmundsdóttir frá Teigakoti Kristjánssonar og Guðbjargar Markúsdóttur. Móðir Guðbjargar var Rut Konráðsdóttir, systir Jóns pr. á Mælifelli. Kristín Björnsdóttir Luders. Pétur Snæbjörnsson Pétur Snæbjömsson hótelstjóri, Austurhlíð, Mývatnssveit, er fertug- ur í dag. Starfsferill Pétur fæddist á Húsavík og ólst upp i Mývatnssveit. Pétur stundaði nám viö Hótel- og veitingaskóla íslands og lauk þaðan prófúm sem matreiðslumaður 1980, öðlaðist Diplom í eldhússtjórnun frá Norsk Hotell Högskole 1984 og i hót- elstjórnun frá sama skóla 1986. Þá lauk hann prófum til kennslurétt- inda við KHl 1995. Pétur var hótelstjóri á Hótel Húsavík 1986-89, yfirmatreiðslu- maður hjá Veislueldhúsinu í Glæsi- bæ 1989-92, kennari í matreiðslu í Hótel- og veitingaskóla íslands 1990-95 og er hótelstjóri í Hótel Reynihlíð frá 1993. Pétur situr i stjórn flugfélagsins Mýflugs og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga. Hann er varaformaður kjördæmisráðs Framsóknarflokks- ins i Norðurlandi eystra, á sæti í eftirfarandi nefndum innan Sam- taka ferðaþjónustunnar: Gististaða- nefnd, Samskiptanefnd milli gisti- staða og ferðaskrifstofa og Flokkun- amefnd gististaða. Fjölskylda Pétur kvæntist 24.8.1985 Maríu F. Rúriksdóttur, f. 21.3.1958, viðskipta- fræðingi og skrifstofustjóra Skútu- staðahrepps. Hún er dóttir Rúriks Sumarliðasonar, húsvarðar í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti, og Guðlaugar Björnsdóttir, læknarit- ara á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Börn Péturs og Maríu eru Þuríð- ur, f. 5.9. 1984; Ástríður, f. 8.9. 1989. Systkini Péturs eru Þuríður, f. 10.8. 1951 í Mývatnssveit; Þórunn, f. 19.2.1953 í Mývatnssveit; Halldór, f. 19.3. 1966 í Noregi; Bryndís, f. 25.1. 1968, í Reykjavík. Foreldrar Péturs: Snæbjöm Pét- ursson, f. 31.8. 1928, fyrrv. starfsm. Kísiliðjunnar, og Guðný Halldórs- dóttir, f. 2.3. 1930, húsmóðir. Afmælisbarnið stendur fyrir gleð- skap í Gamlabænum að kvöldi af- mælisdagsins. Til hamingju með afmælið 29. desember 90 ára Baldur Kristjónsson, Kópavogsbraut 69, Kópavogi. 85 ára Björgvin Jón Pálsson, Suðurgötu 17, Sandgerði. Guðlaug Margrét Bjömsdóttir, Heiðmörk 13, Hveragerði. Margrét Kristin Pétursdóttir, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. 80 ára Einar Júliusson, Holtsgötu 24, Sandgerði. Guðrún Karlsdóttir, Hnappavöllum n, Fagurhólsmýri. ögmundur Ingvar Þorsteinsson, Fannarfelli 10, Reykjavík. 75 ára Jóhanna G. Gunnlaugsdóttir, Kópavogsbraut lb, Kópavogi. Margrét Inger Olsen, Faxabraut 27d, Keflavik. 70 ára Andrés Einarsson, Hruna 2, Kirkjubæjarklaustri. Kristjana Anna Jónasdóttir, Eskihlíð 14, Reykjavík. Þorgerður Halldórsdóttir, Stigahlíð 4, Reykjavík. 60 ára Bjami Kristinsson, Langagerði 7, Reykjavík. 50 ára__________________ Árni Andersen, Fífuseli 33, Reykjavík. Bergljót Pétursdóttir, Háagerði 69, Reykjavík. Elín Jóhanna Eliasdóttir, Grjótaseli 1, Reykjavík. Elisabet Þórdis Guðmundsdóttir, Fífuseli 37, Reykjavík. Svanborg Kjartansdóttir, Sóltúni 30, Reykjavík. Þorgeir Jón Pétursson, Sæviðarsundi 9, Reykjavik. 40 ára Anna Gunnlaug Egilsdóttir, Holtagerði 13, Kópavogi. Guðbjörg Steina Björgvinsdóttir, Funafold 32, Reykjavík. Hulda Arndís Jóhannesdóttir, Gnoðarvogi 78, Reykjavík, Kjartan Skaftason, Tryggvagötu 18, Reykjavík. Óli Tryggvason, Svarfaðarbraut 4, Dalvík. Sigrún Óskarsdóttir, Blikastíg 5, Bessastaðahreppi. Víglundur Jón Gunnarsson, Miðstræti 12, Neskaupsstað. Þorsteinn V. Sigurðsson, Skaftahlið 10, Reykjavík. / IJrval - 960 síður á ári - fróðleikur og skemmtun sem liíir mánuðum og árumsaman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.