Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000 29 Sport Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, stýröi liöi í stjörnuleik í fyrsta skipti um helgina en tapaöi. DV-mynd Hilmar Pór Stjörnuleikur KKÍ um helgina: - þegar Sprite vann Esso, 154-124 Stjörnuleikur KKÍ, Esso og Sprite var háður á laugardag og fór fram 1 íþróttahúsinu við Strand- götu. Eins og tíðkast i stjömuleikjum var meira lagt upp úr að sýna tiltrif og spila fyrir augað og áhorfendur, á meðan allt það sem tilheyrir vam- arleik vair látið liggja milli hluta. Athygli vakti hversu margir leik- menn gáfu ekki kost á sér í þennan leik en í staðinn fengu körfuknatt- leiksáhugamenn að sjá marga unga og mjög hæfileikaríka leikmenn sem em nú þegar búnir að sýna fram á það að framtíð íslensks körfuknattleiks er mjög björt. Nokkur getumunur var á liðun- um og sigraði Sprite-liðið, lið Frið- riks Inga, nokkuð örugglega, 154-124. Liðin voru mjög ólík þar sem Friðrik Ingi tefldi fram 9 leik- mönnum af Suðumesjum en Ingi Þór, þjálfari Esso-liðsins, var með aðeins 1 leikmann þaðan. Þeir leik- menn sem vöktu mesta athygli voru Shawn Myers, Tindastóli, sem er mikill háloftaleikmaður og gladdi augað með mörgum troðslum, og svo Keith Veney sem er nýkominn í raðir Njarðvíkinga. Veney, sem hefur alls ekki náð sér á strik með Njarðvik, skoraði tólf 3ja stiga körfur og nýtti sér heldur betur að leika lausum hala og raðaði hverri 3ja stiga körfunni á eftir annarri og var að lokum valinn maður leiksins. Stig Sprite-liðsins: Keith Ven- ey 43, Gunnar Einarsson 26, Brent- on Birmingham 21, Guðjón Skúla- son 14, Fannar Ólafsson 13, Friðrik Ragnarsson 10, Páll Kristinsson 8, Örlygur Sturluson 7, Tómas Holton 6, Pétur Guðmundsson 5, Hlynur Bæringsson 4. Stig Esso-liðsins: Torrey John 31, Shawn Myers 26, Óðinn Ásgeirs- son 19, Kristinn Friðriksson 12, Kim Lewis 11, Ægir Jónsson 9, Guðlaug- ur Eyjólfsson 4, Jakob Sigurðsson 4, Hjalti Pálsson 2, Svavar Birgisson 2, ísak Einarsson 0. Teitur besta skyttan í hálfleik var keppt í 3ja stiga skotum og troðslum. Það var Teit- ur Örlygsson sem vann 3ja stiga keppnina örugglega með frábærri hittni og fékk 16 stig af 20 möguleg- um. Ungur Stjörnustrákur tróð best allra í troðslukeppninni var það ungur drengur úr Stjömunni, Eiríkur Sig- urðsson, sem kom sá og sigraði. Ei- ríkur býr yfir miklum stökkkrafti og sýndi skemmtileg tiltrif í loftinu. Undarlegt þótti að engin útlending- ur tók þátt í troðslukeppninni að þessu sinni. -BG Brenton Birmingham lék ágætlega meö liöi sínu í stjörnuleiknum og skoraöi hann 21 stig. DV-mynd Hilmar Þór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.