Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2000, Blaðsíða 6
24 + Sport MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2000 MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2000 DV DV Sá fyrsti Keflvíkingar unnu sinn fyrsta leik eftir jóla- frí þegar þeir unnu KR-inga, 101-98, suöur með sjó í gærkvöldi. Ljóst er að KR-ingar sakna Jónatans Bow og eru ekki eins sterkir inni í teig án hans. Það var Ijóst í upphafi leiks að Keflavík ætlaði að selja sig dýrt og bæta stöðu sína í deildinni. Hvert 3ja stiga skotið rataði ofan í og var Guðjón Skúlason heldur betur í stuði. Hann geröi alls átta 3ja stiga körfur og tók bak- verði KR-inga i kennslustund. Keflavík náði 24 stiga forskoti, 58-34, en það voru KR-ingar sem skoruðu síðustu 9 stigin í fyrri hálfleik og löguðu stöðuna í 58-43 þegar flautað var til leikhlés. Liðin skiptust á að skora fyrstu mín- útur seinni hálfleiks en þá ákvað Ingi Þór, þjálfari KR, að prófa 3-2 svæðisvöm. Keflavík lenti í vandræðum og KR-ingar náðu að minnka muninn jafnt og þétt. Þegar tæpar 2 mínútur vom eftir hafði KR náð að minnka muninn í aðeins 1 stig, 94-93, með góðri baráttu. Þá kom Gunnar Einarsson með mikil- væga 3ja stiga körfu sem gerði út um vonir KR- inga. Hjá Keflavík átti Guðjón Skúlason stórleik og skoraði 8 3ja stiga körfur. Jason Smith var góður í fyrri hálfleik og gladdi áhorfendur nokkrum sinnum með fallegum troðslum. Hann fékk lítið boltann í seinni háifleik og hefði mátt leita meira til hans þegar KR var að saxa á forskotið. Hjörtur Harðarson var einnig sterkur ásamt Fannari Ólafsyni. Hjá KR var Keith Vassell öflugur og Jesper Sören- sen átti skemtilegar rispur. Stórsigur Njarðvíkinga Njarðvík sigraði Hamar, 95-74, í Njarðvík í gærdag eftir að hafa haft yfir í hálfleik, 47-44. Það var ekki fyrr en í seinni hálfleik sem hlut- irnir fóm að gerast hjá heimamönnum þegar þeir skiptu yflr i svæðisvöm sem Hamar fann aldrei svar við. Gestirnir frá Hveragerði misstu Hjalta Pálsson út af í upphafi leiks þegar hann meidd- ist á ökkla. Þeir létu það ekki slá sig út af lag- inu og spiluðu vel með Brandon Titus heitan í sókninni og Óla Barðdal grimman í vörn. Hamarsmenn náðu mest 10 stiga forskoti um miðjan hálfleikinn en Njarðvíkingar fóru loks að bíta frá sér og það var Keith Veney sem kom þeim yfir með 3ja stiga körfu, 47-45, á síð- ustu sekúndu fyrri hálfleiks. Njarðvík byrjaði seinni hálfleikinn í svæðisvöm og reyndist það vel. Fljótlega skildi leiðir og á meðan ekkert gekk hjá gestunum fór Friðrik Ragnarsson á kostum og skoraði grimmt ásamt þvi að mata samherja sína með góðum sendingum. Njarð- vikingar spiluðu síðustu mínútur leiksins mest á varamönnum sínum enda komnir með 25 stiga forskot um tíma. Bestu leikmenn Friðrik Ragnarsson atti stórleik með Njarðvík í gær og hér skorar hann körfu án þess að Skarphéðinn Ingason í liði Hamars komi vörnum við. DV-mynd E.ÓI. Njarðvíkur voru Friðrik Ragnarsson, sem átti frábæran seinni hálfleik, og nafni hans Stef- ánsson sem var duglegur í fráköstunum og barðist vel í vörninni. Hjá gestunum var Brandon Titus góður í fyrri hálfleik en náði sér ekki á strik í þeim seinni. Óli Barðdal var mjög góður í vörninni og Skarphéðinn Ingason var traustur. Mikið fjör í Síkinu Það var mikið fjör í Síkinu á Sauðárkróki í gær þegar Isflrðingar komu í heimsókn. Áhorf- endur urðu vitni að einum albesta leik vetrar- ins, geysileg spenna og fjör allan timann, jafn leikur þar sem heimamönnum tókst loksins að hrista gestina af sér á síðustu fjórum mínútum leiksins og sigra 87-74. Með sigrinum halda Tindastólsmehn sér enn í hópi efstu liða en staða ísfirðinga er enn erf- ið, falldraugurinn skammt undan en einnig sæti í átta-liöa úrslitunum á sjónmáli. Leikurinn í gær er kannski dæmigerður fyr- ir það hvað deildin er jöfn í ár og lítill getu- munur á liðunum. Tindastólsmenn voru þó með frumkvæðið allan leikinn og gestunum tókst aldrei að komast yfir en í tvígang i fyrri hálfleiknum náðu þeir að vinna upp gott for- skot Tindastóls og jafna en komust aldrei yfir í leiknum. Þeir voru drifnir áfram af góðum leik Bandaríkjamannsins Kliftons Buss og skyttur þeirra voru líka drjúgar. Þannig skor- aði Baldur Jónasson þrjár þriggja stiga körfur í röð í fyrri hálfleik og jafnaði í stöðunni 40-40. Tindastóll var einungis fjórum stigum yfir í leikhléi og gestimir náðu að hanga á þessu róli með mikilli baráttu þar til um fjórar minútur voru eftir að Tindastóll gerði út um leikinn. Var Svavar Birgisson þá í miklum ham ásamt Bandaríkjamanninum Shawn Mayers sem var geysisterkur í vörninni og náði að halda Bush í skefjum. Lokatölur urðu sem fyrr segir 87-74. Svavar Birgisson átti stórleik i liði Tinda- stóls, bæði i vörn og sókn, og nýting hans á sóknarfærunum var mjög góð. Mayers vann geysilega vel fyrir liðið og Valur Ingimundar- son, sem nú lék með liðinu að nýju, átti góða innkomu, sem og hinn ungi Helgi Margeirsson. Þá léku þeir Lárus Dagur, ísak og Kristinn Friðriksson einnig vel þótt Kristinn skoraði óvenjulítið að þessu sinni. Hjá ísfirðingum var Klifton Bush sterkur og Baldur Jónasson átti mjög góðan leik. Tómas Hermannsson var drjúgur og Halldór Krist- mannsson var sterkur i seinni hálfleiknum en Grikkinn Patelis komst fljótt í villuvandræði. Skagamenn nánast fallnir Stórleikur Kim Lewis hjá Snæfelli varð til þess aö Snæfellingar lögðu Skagamenn að vefli í gærkvöldi og sendu þá nánast niður í 1. deild rekinn Michael Jordan er kominn aftur í NBA og um helgina kom fyrsta fórnin þegar Jordan rak þjálfara Washington Wizards, Gar Heard, þrátt fyrir að liðið hefði unnið 2 af 5 leikjum síðan Jordan kom inn í dæmið eftir að hafa tapað 30 af fyrstu 42 leikjum vetrarins. Ekki var tilkynnt um eftirmann Heard en hann átti tvö ár eftir i af samningi sínum sem hann skrifaði undir í júní. -ÓÓJ en Snæfellingar eru jafnir og Þórsarar með 10 stig í 10. sæti. Leikurinn var mjög jafn í fyrri hálfleik en síöan kom stórleikur Kim Lewis sem gerði 19 stig á stuttum tíma og kom Snæfellingum í 13 stiga mun. Skagamenn komust aðeins nálægt Snæfellingum en ekki til að sigra. Hjá heima- mönnum var Ægir H. Jónsson bestur en hjá Snæfelli eins og áður sagði Kim Lewis, einnig átti Jón Þór góðan dag. 3ja stiga körfur Gindvíkinga réðu úr- síitum Grindvíkingar unnu sinn flmmta leik i röð í deildinni í Borgamesi, 87-93, og Skallagríms- menn þurftu að sætta sig við sitt annað tap á þremur dögum. Borgnesingar höfðu unnið alla þrjá leiki árs- ins fyrir þessa helgi. Strax í byrjun leiks varð Skallagrimur fyrir áfalli er spánski leikmaðurinn í liðinu varð að fara af leikvelli vegna meiðsla. Fyrri hálfleikur liðanna var frekar jafn og Grindvíkingar leiddu með 7 stiga mun í fyrri hálfleik. Um miðjan síðari hálfleik röðuðu Grind- víkingar 3ja stiga körfum á svæðisvöm heimamanna og náðu 20 stiga forskoti og áflt stefndi í öruggan sigur Grindvíkinga. Skallagrímsmenn breyttu yfir í maður á mann og náðu að gera leikinn æsispennandi í lokin en urðu fyrir öðru áfalli er Tómas Holton nef- brotnaði mjög illa á lokasekúndu leiksins og 6 stiga sigur Grindvikinga var i höfn. Hjá liði Skallagríms var Hlynur Bæringsson að spila vel, einnig vakti athygli hinn ungi Hafþór I. Gunnars- son en aörir leikmenn lík- lega ekki búnir að jafna sig eftir rússíbanaferð til ísafjarðar. Hjá Grindavík var Brenton Birmingham yfirburðamaður bæði í vörn og sókn. -BG/-ÞÁ/- DVÓ/-EP/-ÓÓJ ÍA (31) 72 - Snæfell (32) 76 Skailagrímur (34) 87 - Grindavík (41) 93 9-7, 21-22, 26-28, (31-32), 42-55, 56-63, 65-70, 72-76. Frúköst: ÍA 17, Snæfell 22. 3ja stiga: ÍA 23\6, Snæfell 18/6. Ægir Jónsson 29 Reid Beckett 15 Chris Horrock 9 Brynjar K. Sigurðsson 5 Sveinbjörn Ásgeirsson 4 Brynjar Sigurðsson 4 Elías Guðjónsson 2 Halldór B. Jóhannsson 2 Dómarar (1-10): Kristinn Óskarsson og Rúnar Gíslason, 5. Gœói leiks (1-10): 6. Viti: ÍA 11/8, Snæfell 21/16. Áhorfendur: 40. Kim Lewis 35 Jón Þór Eyþórsson 14 Adonis Pomanis 10 Pálmi Sigurgeirsson 9 Ágúst Jensson 5 Rúnar Sævarsson 2 Baldur Þorleifsson 1 Maður leiksins: Kim Lewis, Snæfelli. 1 Maður leiksins: Brenton Birmingham, Grindavík. 6-5, 14-8, 21-24, 24-34, (3441), 3841, 43-57, 51-72, 59-77, 75-85, 87-93. Torrey John 22 Hlynur Bæringsson 18 Tómas Holton 14 Birgir Mikaelsson 9 Ari Gunnarsson 9 Hafþór Gunnarsson 8 Sigmar Egilsson 7 Fráköst: Skallagrímur 34, Grindavík 26. 3ja stiga: Skallagrímur 24/6, Grindavík 39/14. Dómarar (1-10): Sigmundur Herbertsson og Erlingur Erlingsson, 5. Gœdi leiks (1-10): 7. Viti: Skallagrímur 32/24, Grindavík 16/11.. Áhorfendur: 252. Brenton Birmingham 30 Bjami Magnússon 11 Pétur Guðmundsson 9 Guðjón Egilsson 8 Sævar Garðarsson 7 Bergur Hinriksson 7 Alexander Ermolinski 6 Guðmundur Ásgeirsson 6 Unndór Sigurðsson 5 Dagur Þórisson 4 Fimmtánda umferö úrvalsdeildarinnar í körfubolta í gær: Fýrsti sigur aldarinnar - er Keflavík vann KR. Grindvíkingar á toppnum Sport l.deild kvenna í körfubolta: 27 firáköst í tvígang hjá Ebony Dickinson gegn KR Ebony Dickinson hjá KFÍ var enn í sviðsljósinu um helgina í 1. deild kvenna er hún setti nýtt frá- kastamet í deildinni með því að taka 27 fráköst í báðum leikjum KFÍ gegn KR. Metið var áður 25 og Dickinson var ein þriggja sem áttu það. Með þessum 54 fráköstum i KR-húsinu um helgina hefur Ebony tekið 277 fráköst í 14 leikjum vetr- arins sem er það mesta á tímabili í sögu deildarinnar þó enn séu 6 leikir eftir. Að meðaltali hefur Dickinson tekið 19,8 en met deildar- innar eru 14,4 fráköst hjá Svönu Bjamadóttur fyrir Blika 1996-97. KR-konur fógnuðu aftur á móti sínum 25. og 26. heimasigri í röð og eiga nú 7 sigra i að jafna met Kefla- víkur frá 1990-1994. Hanna B. Kjart- ansdóttir bætti upp fyrir slaka hittni á laugardegi með því að skora 26 stig á 23 mínútum í gær þar sem hún hitti úr 79% skotanna. Þær Linda Stefánsdóttir , Guðbjörg Norðfjörð og Kristín Jónsdóttir léku mjög vel báöa dagana. Laugardagur, KR-KFÍ 90-57 (49-32) Stig KR: Guðbjörg Norðfjörð 22 (11 frú- köst), Kristín Björk Jónsdóttir 15, Linda Stefánsdóttir 14, Gréta María Grétarsdóttir 10, Hanna B. Kjartansdóttir 7 (13 fráköst, 5 stoðsendingar), Sigrún Skarphéðinsdóttir 6, Emilie Ramberg 6 (5 stoðsendingar), Hildur Sigurðardóttir 6, Sigrún Hallgrims- dóttir4. Stig KFÍ: Ebony Dickinson 43 (27 frá- köst, 10 í sókn), Sigríður Guðjónsdóttir 7 (9 fráköst, 6 í sókn), Tinna B. Sigmundsdóttir 5, Sólveig Pálsdóttir 2. Simnudagiur, KR-KFÍ 95-50 (45-26) Stig KR: Hanna 26 (8 fráköst, 6 stolnir, hitti 11 af 14 skotum), Linda 20 (5 stolnir, 4 stoðsendingar), Guðbjörg 12 (7 stoðs.), Kristin 11, Emilie 11, Gréta 7, Guðrún Ama 3, Sigrún Hallgrímsdóttir 3, Hildur 2. Stig KFÍ: Ebony Dickinson 23 (27 frá- köst, 23 í vöm), Sigríður 14, Sólveig 3, Svan- dis Egilsdóttir 3, Tinna 3, Sesselja Guðjóns- dóttir 2, Arrna Sigurlaugsdóttir 2. Tindastóll í 4. sætið Tindastólsstúlkur komust upp í 4, sæti deildarinnar með tveimur sigrum á Grindavík um helgina. Sólveig Gunnlaugsdóttir skoraði átta 3ja stiga körfur í leikjunum tveimur en næst mætast KFÍ og Tindastóll í 2 úrslitaleikjum um sæti í úrslitakeppninni. Tlndastóll-Grindavlk 58-40 (29-20) Stig Tindastóls: Jill Wilson 19 (16 frá- sköst, 6 stolnir, 5 stoðsendingar), Bima Ei- ríksdóttir 14, Halldóra Andrésdóttir 8, Dúfa Ásbjömsdóttir 6, Efemía Sigurbjömsdóttir 5, Aníta Sveinsdóttir 2 (10 fiáköst), Sigur- laug Bjamadóttir 2, Hrafnhildur Kristjáns- dóttir2. Stig Grindavíkur: Sólveig Gunnlaugs- dóttir 18 (5 stoðsendingar, 4 stolnir), Sigríð- ur Anna Ólafsdóttir 9, Bára Vogninsdóttir 6, Þuríður Gísladóttir 4, Bryndís Gunn- laugsdóttir 2, Sandra Guðlaugsdóttir 2. Tindastóll-Grlndavik 67-50 (36-22) Stig Tindastóls: Bima 22, Efemia 13, Wilson 11 (7 stoðsendingar, 5 stolnir), Hall- dóra 7, Dúfa 6, Sigurlaug 3, Aníta 2, Ingi- björg Marín Guðmundsdóttir 2. Stig Gilndavíkur: Sólveig 24 (8 fiáköst, 7 stoðsendingar, 5 3ja), Sigríður Anna 8 (3 varin), Bryndis 8, Sandra 8, Þuríður 2. -ÓÓJ ÚRVALSDEILDIN Grindavík 16 13 3 1427-1234 26 Njarðvík 14 11 3 1287-1086 22 Tindastóli 16 11 5 1349-1248 22 KR 15 10 5 1208-1102 20 Haukar 14 10 4 1168-1070 20 Hamar 16 8 8 1237-1301 16 Keflavík 16 7 9 1475-1305 14 KFÍ 16 6 10 1277-1337 12 SkaUagr. 16 6 10 1357-1442 12 Þór A. 15 5 10 1200-1381 10 SnæfeU 16 5 11 1163-1276 10 ÍA 16 1 15 994-1360 2 1. DEILD KVENNA KR 14 12 2 1025-623 24 Keflavík 12 11 1 889-614 22 ÍS 14 10 4 836-712 20 Tindastóll 12 4 8 684-846 8 KFÍ 14 3 11 786-1045 6 Grindavík 16 1 15 712-1092 2 Keflavik vann sjötta heimaleik sinn gegn KR í röð í úrvalsdeildinni í gær en Vesturbæjarliðið hefur aðeins unnið 4 af 23 leikjum liðanna. Skagamenn töpuöu sínum 14 deildarleik í röð og þeim sjöunda á heimavelli gegn Snæfelli en Snæfell var eina liðið sem hafði ekki sótt sigur á Akranesi í úrvalsdeildinni í fimm viðureignum liðanna. Þessar báðar taphrinur eru jöfnun á félagsmetum Skagamanna en þeir töpuðu 14 deildarleikjum í röð 1995 til 1996 og 7 heimaleikjujm í röð á sama tímabili. -ÓÓJ Fimmta fram- lengingin Hún ætlar að verða eftirminni- leg rimman í úrvalsdeildinni milli KFÍ og Skallagríms á þessu tímabili. Fyrri leikur liðanna var sögulegur og komst í metabækur með fjórar framlengingar þar sem KFÍ hafði betur, það var sama upp á teningnum í leik þeirra á föstudag nema að nú var aðeins ein framlenging. KFÍ hafði aftur betur í hörku- leik, 76-75, en Skallagrímur hafði fyrir leikinn unnið íjóra leiki í röð og var taplaus á nýja árinu. KFÍ vann aftur á móti sinn fjórða heimaleik í röð. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað, mikið um mistök, hræði- leg skotnýting og tapaöir boltar voru margir. Það sem bjargaöi leiknum var dramatík í lokin og spennandi framlenging. KFÍ komst þar með að hlið Keflvík- inga og Skaflagrimsmanna með 12 stig og greinilegt að baráttan verður hörð á milli þessara liða um sæti í úrslitakeppninni. Skallagrímsmenn unnu sig aft- ur inní leikin eftir sterka byrjun heimamanna. Framlenging var jöfn og spennandi. Bestu menn KFÍ voru þeir Clifton Buch og Vinko með 15 stig. Hjá Skallagrímvoru þeir Torrey John og Hlynur Bæringsson bestir. -AGA/ÓÓJ KFÍ (41) (71) 76 - Skallagrímur (39) (71) 75 4-0, 12-4, 16-8, 24-11, 29-18, 34-26, 37-32, 39-37, (41-39), 4H3, 48H5, 52-51, 54-59, 60-59, 67-66, 71-69, (71-71), 71-73, 73-73, 76-73, 76-75 Fráköst: KFÍ 35 (12-23), Skallagrímur 40 (17-23) 3ja stiga: KFÍ 26/6, Skallagrimur 16/4. Clifton Buch 20 Vinko-Charal Pateli 15 Baldur Ingi Jónasson 14 Tómas Hermannsson 9 Halldór Kristmannsson 7 Pétur Sigurðsson 6 Þórður Jensson 3 Mark Burton 2 Dómarar (1-10): Jón H. Eðvaldsson og Sigmundur Már Herbertsson (7). Gceöi leiks (1-10): 6. Torrey John Hlynur Bæringsson Hafþór Gunnarsson Birgir Mikaelsson Tómas Holton Ari Gunnarsson Viti: KFÍ Skallagrímur 20/16. Áhorfendur: 400. 22/10, Maður leiksins: Hlynur Bæringsson, Skallagrími. 23 19 12 10 8 3 Tindastóll (48) 87 - KFÍ (44) 74 6-0, 10-2, 15-8, 15-15, 26-17, 31-19, 40-31, 40-40, (48-44), 5646, 60-55, 60-60, 68-60, Svavar Birgisson 23 Shawn Myers 13 Lárus D. Pálsson 12 Valur Ingimundars. 11 Helgi Margeirsson 7 ísak Einarsson 7 Kristinn Friðriksson 7 Sune Hendriksen 3 Flemming Stie 2 Friðrik Hreinsson 2 Fráköst: Tindastóll 30, KFÍ 31. 3ja stiga: Tindastóll 16/12, KFÍ 14/8. Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson og Einar Einarsson, 9. Gœði leiks (1-10): 8. Víti: Tindastóll 11/9, KFl 17/11.. Áhorfendur: 330. Clifton Buch 27 Baldur I. Jónasson 15 Halldór Kristmannsson 9 Tómas Hermannsson 7 Vinko-Charal Pateli 6 Pétur Sigurðsson 6 Þórður Jensson 4 Maður leiksins: Svavar Birgisson, Tindastóli. Keflavík (58) 101 - KR (43) 98 8-5, 14-9, 20-11, 29-20, 39-27, 46-30, 57-32, (5643), 66-50, 73-55, 80-59, 80-67, 87-76 90-82, (0 Guöjón Skúlason 28 Hjörtur Harðarsson 22 Jason Smith 22 Fannar Ólafsson 12 Gunnar Einarsson 12 Jón Hafsteinsson 4 Elentínus Margeirsson 1 93, 99-95, 101-98. Fráköst: Keflavík 30, KR 25. 3ja stiga: Keflavík 15/31, KR 9/21. Dómarar (1-10): Kristján MöUer og Jón Bender, 9. Gceói leiks (1-10): 9. Víti: Keflavík 8/12, KR 24/30. Áhorfendur: 200. Keith VasseU 36 Jesper Sörensen 22 Ólafur Ormsson 15 Jakob Sigurðsson 10 Atli Einarsson 5 Steinar Kaldal 4 Ólafur Ægisson 3 Guðmundur Magnússon 3 Njarðvík (47) 95 - Hamar (45) 74 5-6, 9-15, 15-24, 22-32, 32-38, 41-44, (47-45), 53-51, 65-53, 72-56, 86-61, 90-88, 95-74. Friðrik Ragnarsson 27 Teitur Örlygsson 17 Hermann Hauksson 12 Keith Veney 10 Páll Kristinsson 10 Friðrik Stefánsson 6 Ragnar Ragnarsson 5 Gunnar Örlygsson 4 Sigurður Sigurðsson 4 Fráköst: Njarðvík 36, Hamar 30. 3ja stiga: Njarðvík 8/29, Hamar 5/24. Dómarar (1-10): Helgi Bragason og Einar Skarphéðinsson, 5. Gceöi leiks (1-10): 7. Víti: Njarðvík 17/29, Hamar 8/14. Áhorfendur: 250. Brandon Titus 19 Skarphéðinn Ingason 16 Pétur Ingvarsson 13 Óli Barðdal 9 Kristinn Karlsson 5 Lárus Jónsson 5 Svavar Pálsson 4 Kjartan Kárason 2 Ómar Sigmarsson 1 Maður leiksins: Guðjón Skúlason, Keflavík. Maður leiksins: Friðrik Ragnarsson, Njarðvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.