Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Blaðsíða 2
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 um ieið komu íslandsmeistarabikarsins í Sport Sport Kefiavikurkonur fagna her ó k'C á i'íýívlqHÍ JDUH'UÖ ÖDIII Ul IWIJO V inui « 5 <6- árura. DV-mynd Hilmar Þór S ** .• > Anna María Sveinsdóttir sigursælasti körfuknattsleikmaður sögunnar: tvjeisiarapunktar - titillinn á 12 árum til Keflavíkur eftir sigur í úrslitaleik í KR-húsinu Keflavíkurstúlkur sýndu og sönnuðu að þær eru með besta kvennakörfuknattleikslið landsins, í það minnsta þegar mest á reynir. Þær höfðu yfirhöndina allan tím- ann gegn KR-ingum og það var að- eins í upphafi síðari hálfleiks sem KR-stúlkur eygðu von um að kom- ast inn í leikinn. Lokatölur urðu 43-58 og sanngjam sigur í höfn. Það var strax í byrjun sem Kefla- víkurstúlkur settu allt á fullt. Þær voru mun grimmari undir körf- unni, ákveðnari í öllum sínum að- gerðum og hittnin var mun betri. Varnir beggja liða voru reyndar sterkar en munurinn á liðunum lá í fráköstunum þar sem Keflavík hafði mun betur. Sóknarlega gerðu bæði lið hins vegar töluvert af mis- tökum, einkum þó KR. Eftir rúm- lega sex mínútna leik var staðan 13-3 en þá tóku KR-ingar ögn við sér og náðu að minnka muninn þrátt fyrir að vera oft í vandræðum með frábæra vörn Keflvíkinga. hálfleik mun- aði aðeins fjórum stigum, 25-29, og sýnir þessi stigatala vel hve sterk- ar varnirnar voru. KR-stúlkur skoruðu fyrstu körfu leiksins og var það þriggja stiga karfa. Fyrir vikið var munurinn orðinn aðeins eitt stig og fengu KR- ingar síðan tvær sóknir til að kom- ast yfir. Þetta náðu þær ekki að nýta sér og eftir þetta sigu Kefla- víkurstúlkur smátt og smátt fram úr. Og enn var það vömin sem gerði útslagið. KR-stúlkur léku sig oft í mikil vandræði og oft lentu þær í að neyðast hreinlega til að gefa boltann á andstæðinginn, svo sterk var vörnin. Tak- ið var hert smátt og smátt og KR-ingar sáu aldrei til sólar eftir þetta meðan Keflvík- ingar léku við hvern sinn fingur og unnu öruggan sig- ur. Anna María Sveinsdóttir, fyrir- liði Keflavíkinga og ein styrkasta stoð þeirra til margra ára, var að vonum ánægð í leikslok. „Ég á ekki til orð til að lýsa þessu. Þetta gat ekki farið á betri veg og þetta er sætasti sigurinn á ferlinum. Við sýndum með þessum tveimur sigr- um í KR-húsinu að við erum með miklu , IMI55AN betra lið en þær. Við erum með meiri breidd og þegar við erum komin í svona marga leiki þá verð- um við hreinlega að nota alla leik- mennina." Það er ekki hægt að segja annað en Keflavíkurstúlkur séu vel að þessum sigri komnar og þessir tveir sigrar á KR á þeirra eigin heimavelli er sönnun þess. „Það er alltaf sárt að tapa. En boltinn vildi bara ekki fara ofan í hjá okkur. Vörnin var eins góð og hún hefur alltaf verið en dagsformið skiptir máli í svona leikjum og þær sýndu meiri reynslu en við. Það hefði verið gott að hafa mann- eskjur á borð við Lindu og Helgu með í dag. Þetta er hins veg- ar góð reynsla fyrir yngsu leik- mennina og það kemur ár eftir þetta ár,“ sagði Óskar Kristjáns- son, þjálfari KR. KR-stúlkur áttu i raun aldrei mögu- leika í þessum leik, svo góð var vörn Keflavíkur. Guðbjörg Norðfjörð stóð upp úr í liði þeirra en miklu munaði að Hanna Kjartansdóttir náði sér engan veginn á strik. -HI A’tr".1 Litháinn Robertaz Pauz- oulis í liði Framara meiddist Ula á hné i fyrri hálfleik gegn KA- mönnum í gær eftir að hann fékk Oleg Titov, félaga sinn úr liði Fram, ofan á fótinn. Hann var borinn út af vellinum á börum og var óttast að liðband hefði slitnað. Sé það niðurstaðan leikur hann ekki meira með Framliðinu á leiktíðinni. Það er auðvitað slæmt fyrir Framara enda Litháinn sterkur varnar- maður og mikil skytta. í kvöld rœðst hvort þaö verður Afturelding eða Haukar sem leika til úrslita um íslandsmeistaratitilinn en liöin eigast við í oddaleik í Mosfellsbænum og hefst leikurinn klukkan 20.30. -GH Safamýrinni þegar Fram maröi KA, 29-27 KR (25) 43 - Keflavík (29) 58 0-5, 3-5, 3-13, 10-13, 12-15, 12-21, 14-25, 16-27, 18-29 (25-29), 28-29, 28-34, 30-39, 35-41, 35-45, 38-49, 40-52, 43-54, 43-58. Fráköst: KR 30 (10-20), Keflavík 38 (13-25). 3ja stiga: KR 18/6, Keflavík 16/2. Guðbjörg Norðfjörð 13 (3 þriggja stiga, 7 frák.) Hanna B. Kjartansdóttir 7 (8 fráköst) Kristín B. Jónsdóttir 7 (3 stoðs,, 3 stolnir) Deanna Tate 7 (7 frák., 5 stoðs., 5 stolnir) Emilie Ramberg 5 Gréta María Grétarsdóttir 4 Dómarar (1-10): xxx. Gcedi leiks (1-10): x. Víti: KR 15/3 Keflavik 22/15. Áhorfendur: 300. Maöur leiksins: Alda Leif Jónsdóttir, Keflavík. Áhorfendur í íþróttahúsi Fram við Safamýri fengu svo sann- arlega mikið fyrir auranna í gærkvöld þegar Fram og KA áttust við í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Nissandeildarinnar. í framlengdum leik tókst Fram að knýja fram sigur, 29-27, og jafn- framt oddaleik sem fram fer á Akureyri annað kvöld. Framarar hljóta samt að hugsa sinn gang eftir leikinn í gær. Þeir voru með unninn leik í höndunum en tókst á óskiljanlegan hátt að missa hann niður í jafhtefli. Þegar 5 mínútur lifðu leiks höfðu heimamenn 5 marka forskot, 24-19, og flestir ef ekki aflir þeir sem fylgdust með leiknum sannfærðir um öruggan sigur þeirra bláklæddu. En strákamir hans Atla voru ekki á því að leggja árar í bát. Með ótrúlegri seiglu söxuðu KA-menn jafht og þétt á forskotið og þegar 55 sekúndur voru eftir minnkaði Jóhann G. Jóhannsson muninn í eitt mark. Gunnar Berg átti skot í stöng KA- marksins þegar 15 sek- úndur voru eftir, KA- menn brunuðu í sókn og fengu aukakast þegar 4 sekúndur voru til leiksloka. Norðanmenn stflltu upp í blokk fyrir Guðjón Val Sigurðsson og þessi frábæri hand- boltamaður jafnaði met- in með þrumuskoti rétt áður en leiktiminn rann Anna María Sveinsdóttir 16 (8 fráköst, 4 stobiir, 3 stoðs.) Alda Leif Jónsdóttir 12 (4 stoös., 4 stolnir, 4 frák.) Christy Cogley (12 fráköst, 6 i sókn) Eria Reynisdóttir Kristín Blöndal Erla Þorsteinsdóttir (4 stoðs., 7 fráköst) Bima Valgarðsdóttir út. Framarar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið og höguðu sér líkt og þegar þeir töpuðu bikarúrslitaleiknum gegn Val hér um árið en KA-menn stigu vifltan stríðsdans ásamt fjölmörgum stuðningsmönnum sínum. f framlengingunni var lengi vel allt í jámum en Framarar áttu betri endasprett og tryggðu sér sigur með því að skora tvö síðustu mörkin. „Ég hef ekki lagt það í vana minn að gagnrýna dómara eftir leiki en mér fannst dómaramir hjálpa KA-mönnum ansi mikið undir lokin. Auðvitað var það mjög slæmt að missa niður svona gott forskot og má kannski skýra það þannig að við höfum hald- ið að þetta væri búið. Við létum þetta áfaff ekki slá okkur út af laginu. Við höfum oft lent í þessari stöðu og ég vissi að við mynd- um klára þetta. Fyrir vikið var þetta sætari sigur,“ sagði Njörð- ur Ámason, leikmaður Fram, við DV. Vilhelm G. Bergsveinsson átti frábæra innkomu í sókn Fram- liðsins. Hann skipti við Gunnar Berg, sem náði sér ekki á strik, og þessi 21 árs strákur skoraði 9 glæsileg mörk i 11 skotum. Guð- mundur H. Pálsson lék einnig vel, skoraði 4 góð mörk með gegn- umbrotum og fiskaði 3 vítaköst. Sebastian Alexandersson var góður í markinu og ekki skemmdi það fyrir að vöm Fram var lengi vei mjög traust með Oleg Titov sem besta mann. „Það var vissulega gott að vinna upp þetta góða forskot Fram- ara en það var skandall að láta þá ná þessari forystu. Sóknarleik- ur okkar var lengi vel mjög kfaufalegur þar sem einstakfings- framtakið réð rikjum en það var ekki fyrr en viö fórum að spifa sem lið að hfutirnir fóm að ganga okkur í hag. Okkur hefúr ekki gengiö vel í þessum framfengingum og við verðum bara að ein- beita okkur að því að klára þetta í venjulegum leiktíma fyrir noröan," sagði Jóhann G. Jóhannsson, homamaðurin knái hjá KA, eftir leikinn. Það er ekki hægt annað en hrósa leikmönnum KA. Þeir áttu á brattann að sækja allan tímann en með seiglu, ótrúlegri baráttu Fram 29 (24) (11) - KA 27 (24) (9) 0-1, 1-1, 4-1, 5-2, 7-4, 7-7, 8-7, 10-8, (11-9), 12-9, 12-10, 15-10, 17-13, 21-15, 23-17, 24-19, (24-24), 25-24, 25-26, (27-26), 27-27, 29-27. • Vilhelm G. Bergsveinsson 9, Kenneth Ellertsen 7/7, Guöm. H. Pálsson 4, Róbert Gunnarsson 3, Björgvin Björgvinsson 2, Gunnar Berg Viktorsson 2, Guðjón Drengsson 1, Robertas Pauzuolis 1. Varin skot: Sebastian Alexandersson 16/1 Brottvisanir: 8 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 8 af 9. -ÓÓJ Framararnir Guójon Drengsson o-g Kenneth Ellertsen glokollur fagna her sigri a KA i framlengingu i gær en Ellertsen nýtti öll sjö vrti sín í leiknum. DV-mynd Hilmar Por Áhorfendur: 700 Gœöi leiks (1-10): 7. Domarar (1-10): Anton Pálsson og Hlynur Leifsson (5). fGuðjón V. Sigurðsson 8/2, Sævar Amason 6, Jðhann G Jóhannsson 5, Jónatan Magnússon 4, Heimir Ö. Ámason 2 Magnús A. Magnússon 2. Varin skot: Reynir Þ. Reynisson 4/1, Hörður F. Ólafsson 4. Brottvisanir: 10 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 2 af 3.. Maöur leiksins: Vilhelm G. Bergsveinsson, Fram og karakter náðu þeir að snúa leiknum upp í mikinn spennutryUi undir lokin. Homamennirnir Sævar Áma- son og Jóhann G. Jóhannsson áttu báðir mjög góðan leik, Guðjón V. Sigurðsson sýndi á köflum frábær til- þrif en var óheppinn með skot sín framan af leik, en markvarslan, sem var svo góð i leiknum fyrir norðan, var lítil og það hafði sitt að segja. -GH Siguröur Ingimundarson stjórnaði Keflavíkurliðinu til sigurs í gær í forfollum Kristins Einarssonar þjálf- ara sem var í leikbanni en Sigurður er ekki ókunnugur þvi að vinna titla með liðinu því alls vann Keflavík átta titla undir hans stjórn á ár- unum 1992 til 1996. Þetta er ifyrsta sinn í átta ára sögu úrslitakeppni kvenna að lið verður ís- landsmeistari eftir að hafa tapað fyrsta leik í úrslitaein- víginu. Það hefur reyndar aðeins gerst einu sinni áður að undanúrslitunum með- töldum, því Keflavík sló þannig út ÍS í fyrra. Anna María Sveinsdóttir, fyrirliði Keflavíkur í 1. deild kvenna, setti í gær íslands- met sem sigursælasti körfuknattleiksmaður ís- lands frá upphafi. Anna María bætti met sitt og tví- burasystranna Ernu og Lindu Jónsdœtra úr KR en þær Erna og Linda unnu samtals átján stóra titla með KR frá 1973 til 1987, 11 Is- landsmeistaratitla og 7 bik- armeistarartitla. Anna Maria vann aftur á móti í gær sinn nítjánda stóra titil, jafnframt því að vinna tvöfalt í áttunda sinn á ferlinum. Anna María hef- ur verið með í öllum titlum sem kvennalið Keflavíkur hefur unnið frá upphaft alls 9 íslandsmeistaratitla og 10 bikarmeistaratitla á þessum 12 árum frá fyrsta titlinum sem vannst 1988. Tveir leikmanna Keflavik- ur voru að verða islands- meistarar í fyrsta sinn, þær Birna Valgarðsdóttir og Alda Leif Jónsdóttir, aðrir leikmenn liðsins voru að rifja upp góða tíma, Erla Þorsteinsdóttir og Erla Reynisdóttir unnu í fjórða sinn og Kristin Blöndal sem er sú eina ásamt Önnu Maríu til að vera í meistara- liði Keflavíkur fyrir 12 árum, vann í sjöunda sinn. Fimmta áriö í röó var ís- landsbikarinn afhentur í vesturbæ, fjögur árin á und- an í Hagaskóla en nú í nýja KR-húsinu í Frostaskjóli en aðeins einu sinni hafa heimastúlkur úr KR getað fagnað komu íslandsbik- arsins á heimavelli. Þrir siöustu leikirnir í úr- slitakeppninni unnust á úti- völlum en þetta er aðeins í annað skiptið frá upphaft að úrslitaleikirnir fara alla leið í oddleik. Keflavik hefur oröiö ís- landsmeistari kvenna á sléttum tölum síð- ustu sex ár en ekki á odda- töluárum. Keflavík vann 1994, ‘96, ‘98 og 2000 en þetta er fimmta árið röð sem ís- lands- bikar kemur i Kefla- vík, ann- aðhvort hjá körlun- um eða konun- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.