Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2000, Blaðsíða 2
18 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 31 Sport Bland í poka Uppskeruhátió eldri og yngri flokka FH í handbolta eru fram undan. Eldri flokkar verða í A-Hansen fostudaginn 28. apríl. Viöurkenningar verða af- hentar, maturinn þriréttaður á kr. 1.100 og dansað verður fram á morg- un. Flokkarnir sjá um skemmtiatriði. Yngri flokkar verða í Kaplakrika sunnudaginn 14. maí kl. 14.00. Viður- kenningar verða afhentar og farið i leiki. Krakkar fjölmennið og takið foreldrana með. Kiel sigraði Barcelona í fyrri leik liðanna í úrslitum meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Lokatölur leiksins uröu, 28-25, og verður síðari leikurinn háður í Barcelona um næstu helgi. Júgóslavinn Nenad Per- unicic var markahæstur hjá Kiel og skoraöi 11 mörk en Daninn Nikolaj Jakobsen skoraði sjö mörk. Hjá Barcelona skoraði Urdangarin flmm mörk. Þess má geta að Barcelona hef- ur orðið Evrópumeistari síðustu fjög- ur árin. Ipsuiich sigraöi Crystal Palace, 1-0, í 1. deild ensku knattspyrnunnar í gærkvöld. Þetta var mikilvægur sig- ur hjá Ipswich sem á enn möguleika að vinna sér sæti 1 ensku úrvalsdeild- innni. Charlton er efst með 91 stig, Manchester City hefúr 83 stig og Ipswich 81 stig. -JKS Hvað sögðu þeir? Pétur Guðmundsson „Við spiluðum ekki vel í þessari seríu, en eins og alltaf spilar maður aldrei betur en andstæðingurinn leyfir manni. Þeir voru tilbúnir í þessum leikjum sem þeir unnu en við vorum á hælunum allan timann. Þeir eiga heiður skilinn fyrir sigurinn, liðið er gott og ungu strákamir þeirra eru ekki lengur bara efnilegir, þeir eru einfaldiega góðir. Þeir nutu góös af því að margir aðrir lentu í meiðslum. Þeir fengu því að spila meira og öðlast frekari leikreynslu." Einar Einarsson „Það sem varð okkur að falli var að við gerðum of mikið af mistökum sem urðu okkur dýrkeypt. Mistökin voru þess eðlis að við vorum bara að rétta þeim boltann og þeir gengu á lagiö. Mér fannst við leika vel en við féllum á okkar eigin bragði, vorum of góðir við þá og geröum mistök á mikilvægum augnablikum. Viö vorum með leikinn í hendi okkar í byrjun, en upphaf siðari hálíleiksins var hörmuleg af okkar hálfu, gerðum eins og áður segir of mikið af mistökum sem kostuöu okkur leikinn." Brenton „Við vissum að þetta yrðu erfiðar viðureignir. Mér fannst KR sýna aö þeir væru betra liðið því þeir spiluðu frábærlega. Og núna er mér ekki stætt á ööru en að taka ofan fyrir þeim, því þeir eru jú meistarar. Það sem ég hefði viljað sjá betur fara hjá okkur var þegar þeim gekk vel, þá misstum við - að mér meðtöldum - tök á leiknum og fannst mér að við hefðum mátt sýna meiri sjálfstjóm. Þegar lið taka af skarið í leiknum er nauðsynlegt fyrir hinn aöilann að sýna sjálfstjóm og missa ekki tök á leiknum eins og við gerðum í kvöld.“ -esá NBA-DEILDIN Úrslit í nótt (úrslitakeppni) Miami-Detroit.............84-82 Mashbum 24, Mouming 22, Brown 12 - Stackhouse 26, Mills 11, Curry 10. SA Spurs-Phoenix .........85-70 Robinson 25, Johnson 21, Elliot 13 - Hardaway 19, Rogers 18, Robinson 11. Sport Ingi Þór Steinþórsson. þjálfari KR, fékk yfir sig vatnsgusu um leiö og lokaflauta íslandsmótsins gall og íslandsbikarinn var kominn í vesturbæinn eftir tíu ára fjarveru. DV-mynd E. Ol, m mm eftir að Islandsmeistaratitillinn kom í hús: 20 stiga sigur á Grindavík í fjórða úrslitaleiknum KR-ingar urðu í gær íslandsmeistarar í körfubolta á heimavelli sínum i Frosta- skjóli þegar þeir unnu 20 stiga sigur á Grindavík, 83-63, í kaflaskiptum leik eft- ir að Grindavík hafði leitt framan af leik og haft þrjú stig yfir í hálfleik. KR-ingar eru einfaldlega bestir í dag og sönnuðu það með því að fara fyrstir liða í sögunni erfiðustu leiðina að titlinum. KR varð fyrsta félagið í sögu úrslitakeppninni til að fagna titlinum án þess að hafa heimavallarrétt í einu einasta einvígi í úrslitakeppninni. KR-liðið virkaði taugaveiklað í upp- hafi leiks. Hvort sem það var töfm á leiknum vegna ljósavandræðanna eða bara troðfullt húsið eða vegna þess að bikarinn var kominn á borðið, þá tók það KR-liðið allan fyrri hálfleik að ná tökum á leik sínum. KR-ingar náðu ekki að komast yfir fyrir hlé og þar sem KR - ingar höfðu tapað öllum þremur leikjum sínum í úrslitakeppninni í vetur einmitt með þvi að vera undir í hálfleik, var ör- ugglega farið að fara um suma KR-inga því Grindvíkingar gátu verið að spilla fýrirhugaðri sigurhátíð í Frostaskjólinu. En hálfleiksræða Inga Þórs hreif og það svo um munaði. KR-vömin hleypti engum bolta í gegn fyrstu fimm mínútur hálfleiksins og á meðan skoruðu þeir 14 stig í röð, komust í 45-34 og litu aldrei aftur eftir það. Grindvíkingar gáfust þó ekki upp og komu muninum niður í tvö stig, 50-48, en þá þraut lykilmenn þrek á meðan varamenn KR komu ferskir inn af bekknum og KR-liðið sýndi meistara- takta síðustu 10 mínútur leiksins og skoraði þá 33 stig gegn 15, hittu úr 12 af síðustu 17 skotum sínum og vann loks tuttuga stiga sigur. Grindavíkurliðið mætti einfaldlega Olafur Jón Ormsson, fyrirliöi KR, tók viö Islandsbikarnum fyrstur KR-inga í tíu ár í gær en Ólafur hefur veriö frábær í vetur og óumdeilanlega einn besti leikmaður íslandsmótsins. ofjörlum sínum í þessu einvígi. Þrátt fyrir að framan af hafi liðið leikið prýð- isvel í gær og mun betur en á útivelli í úrslitakeppninni til þessa misstu þeir KR-inga á flug og eftir það var ekki aft- ur snúið. Guðlaugur Eyjólfsson og Pétur Guðmundsson voru mjög sterkir í upp- hafi leiksins hjá Grindavík og gerðu 17 af fyrstu 29 stigunum en náðu ekki að fylgja því eftir í seinni hálfleik. Alexand- er Ermolinskij gerði vissulega sitt sem og Brenton en það var ekki nóg og liðið hrundi í seinni hálfleik. KR-liðið sýndi á sér tvær hliðar en smelli vörnin eins og hún gerði í seinni hálfleik í gær á ekkert lið á íslandi svar við henni. Keith Vassell, Jesper Sören- sen og Jónatan Bow áttu allir mjög góð- an dag og ekki má gleyma fyrirliðanum Ólafi Ormssyni sem leggur ómetanlegt starf tfl liðsins i baráttu og gríðarsterk- um varnarleik auk afburðahittni. Enn erum við ekki komin að ungu strákunum. Jón Amór Stefánsson og Jakob Sigurðarson komu sterkir inn og leystu sín hlutverk óaöfmnanlega við erfiðar aðstæður og þeir félagar geta fylgt þessum sigri eftir með íslandsmeistaratitlum í drengjaflokki og unglingaflokki um næstu helgi. Þar bíða fleiri strákar eftir tækifærinu sem Jakob og Jón Arnór fengu nú og KR-ing- ar geta treyst Inga þjálfara fyrir að sækja áfram í brunninn. Ef haldið er rétt á spUunum í vesturbænum gæti þessi sigur í gærkvöldi aðeins verið upp- hafið að miklu góðæri körfuboltans þar á bæ. Tii hamingju KR-ingar. -ÓÓJ Keith Vassell, kanadíski leikmaöurinn hjá KR, fagnaöi gríöarlega þegar hann loks fékk aö koma höndunum á islandsbikarinn. DV-mynd E.ÓI. Ólafur Jón Ormsson, fyrirliði KR, í körfunni: Höfum þroskast mikið „Þessar viðureignir hafa fyrst og fremst einkennst af baráttu. Leikurinn í kvöld þróaðist þannig að við mættum ekki tilbúnir tU leiks. Fyrri hálfleikur var að mestu leyti slakur af okkar hálfu en í hálfleik tókum við okkur saman í andlitinu og spUuðum þann leik sem við höfum veriö að spUa aö undanfomu. Við höfum þroskast mikið síðan í bikarúrslitaleiknum. Við lentum í erfiðleikum en við lærðum mikið af þeim, öðluðumst reynslu og liðið sem er í dag er hreint út sagt frábær hópur,“ sagði Ólafur Jón Ormsson sem hefur verið ómetanlegur fyrir KR í vetur. Erfitt að leika gegn Pétri „Þetta voru hörkuleikir og persónulega var mjög erfitt að leika gegn Pétri Guðmundssyni. Hann er langt frá því að vera grófur leikmaður en er svo sannarlega mjög harður í horn að taka og það gat verið frekar ergjandi. En gegn mönnum eins og Brenton, sem mér fmnst vera besti útlendingurinn í deUdinni, verður liðsheUdin að virka og við gerðum aUt sem við gátum tU að gera honum erfltt fyrir,“ sagði Keith VasseU sem kom aftur tU þess að vinna íslandsbikarinn fyrir KR. -esá Meistarapunktar KR-ingar unnu íslandsmeistaratitilinn í níunda sinn í gær og í fyrsta sinn i tíu ár en líkt og 1990 þá hófu þeir tímabilið á að verða Reykjavíkurmeistarar og enduðu það á að lyfta íslandsbikamum. Hvorug- ur kom í vesturbæinn í miUitíöínni. Ingi Þór Síeinþórsson varö þriðji ís- lenski þjálfarinn á níu árum sem fagnaði íslandsmeistaratitli á sínu fyrsta ári sem meistaraflokksþjálfari en hann fylgdi þar í fótspor Frióriks Inga Rúnarssonar með Njarðvík 1991 og Siguröar Ingi- mundarsonar með Keflavík 1997. KR-ingar uróufyrsta félagið tii að verða íslandsmeistari án þess að hafa heima- vallarrétt i einu einasta einvígi. KR end- aði í 5. sæti í deildinni í vetur, vann alla fimm heimaleiki sína og stal einum úti- sigri af öllum mótherjum sínum, Tinda- stól, Njarðvík og Grindavík. KR-ingar fóru vissulega erfuðustu leiðina að titlin- um því í átta liða úrslitunum unnu þeir eggjabikarmeistarana; bikarmeistarana lögðu þeir i undanúrslitunum og loks bik- armeistarana í úrslitunum. Þetla er í fimmta sinn frá upphafl og annað árið í röð sem sömu lið mætast í bikarúrslitaleik og úrslitaleikjum um Is- landsmeistartitilinn og í tjórða skiptiö skiptu liðin á milli sín titilinum. Eina lið- ið til að vinna tvöfalt á því að vinna sama liöið var Njarðvík sem vann Val tvisvar 1987, 91-69 í úrslitaleik bikarins og 2-0 í úrslitunum um íslandsbikarinn. KR-ingar fögnuöu íslandsbikarnum á fyrsta ári sínu í nýja íþróttahúsi sínu við Frostaskjól en liðið vann 14 af 18 leikjum sínum í vetur, 8 af 11 í deildinni, 1 af 2 í Eggjabikar og alia flmm leikina í úrslita- keppninni. -ÓÓJ KR (31) 83 - Grindavík (34) 63 2—Q, 2-4, 6-6, 6-13, 9-20,11-22, 14-25,19-29, 23-29, 24-32, 31-32, (31-34), 45-34, 45-39, 48-39, 50-51, 50-48, 53-51, 59-51, 59-53, 64-53, 69-57, 77-57, 79-63, 83-63. Fráköst: KR 40 (11-29), Grindavík 27 (7-20). 3ja stiga: KR 21/7, Grindavík 24/6. Keith Vassell 21 (18 fráköst, 6 f sókn) Jónatan Bow 14 Jesper Sörensen 14 Ólafur Ormsson 12 (9 fráköst, 6 stolnir) Jón Amór Stefánsson 9 (4 stolnir, 3 stoðsendingar) Jakob Siguröarson 6 Steinar Kaldal 5 Ólafur Már Ægisson 2 Dómarar (1-10): Jón Bender og Sigmundur Már Herbertsson (8). Gteði leiks (1-10): 8. Víti: KR 20/14, Grindavík 8/7 . Áhorfendur: 1200. Brenton Birmingham 18 (7 fráköst, 7 stoðsendingar, hitti úr 8 af 21 skoti) Guðiaugur Eyjólfsson 14 Pétur Guðmundsson 13 Sævar Garðarsson 7 Alexander Ermolinskij 7 (11 fráköst, 4 stolnir) Bergur Hinriksson 4 Maöur leiksins: Keith Vassell, KR ■ ■■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.