Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Blaðsíða 52
60 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 Helgarblað I>V íehraa Brad Pitt: Fight Club Árás á neyslu- þjóðfé- lagið ★★★ Heimsendafantasiur eru vin- sælt umfjöllunarefhi í kvikmyndum í kringum árþúsundamótin. I Fight Club er ógnvaldurinn ekki geim- vera eða loftsteinn, heldur mann- skepnan sjálf, sem gerir uppreisn gegn eigin lífsháttum. Myndin segir frá skrifstofublók sem er komin í algjört þrot í lífsstU sínum sem einkennist af hugsunar- lausri og hömlulausri þátttöku í neysluþjóðfélaginu. Honum tekst að brjótast út úr þessu kæfandi lífs- munstri með aðstoð sápusölumanns sem hann hittir i flugvél. Saman stofna þeir slagsmálaklúbb þar sem menn komast í snertingu við sinn innri mann með því að berja hver annan í plokkfisk. Smám saman spretta fleiri slíkir klúbbar upp og fljótlega eru þeir orðnir aðcdmenn- irnir í eins konar hryðjuverkasam- tökum sem herja á lífshætti nútíma- mannsins. Skemmtileg og hugmyndarík háðsádeUa á neysluþjóðfélagiö ræð- ur ríkjum framan af en snjaUt hand- ritið fikrar sig síðan meira í áttina að sálrænum tryUi með ævintýra- legri sögufléttu. Vandræðagangur með að binda endahnút á söguna í lokin skemmir örlítið fyrir annars mjög sniðugri sögufléttu, en það er eini gaUinn á þessari stórskemmti- legu mynd. Brad Pitt er mjög laginn viö að leika brjálæðinga og Edward Norton virðist geta hvað sem er í leiklist og er sennilega besti leikari undir fertugu í heiminum í dag. -PJ Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: David Fincher. Aðalhlutverk: Edward Norton, Brad Pitt og Heiena Bon- ham Carter. Bandarísk, 1999. Lengd: 133 min. Bönnuð innan 16 ára. A Kind of Hush Stað- reyndir lífsins ★★★i Maður vUl ekki trúa því að tU sé svo ógeöslegt fólk að það mis- noti börn á aUan mögulegan hátt. Þrátt fyrir það hefur þetta verið þekkt fyrirbæri í gegnum aldimar og í raun aUs ekki eins óalgengt og maöur gæti haldið. Þetta leiðir af sér fjölda þolenda misnotkunar sem berjast við að halda veUi í hinum brenglaða heimi. Málið er að hefna sin á „þeim“ áður en maður missir vitið. Það eru þeir eða við. Þannig er viðhorf nokk- urra drengja sem aUir hafa verið misnotaðir í æsku. Sumir þeirra koma af fósturheimUum en aðrir úr faðmi lífeðlisfræöilegra foreldra sinna. Myndin kynnir okkur þessa drengi og þeirra samskipti viö um- heiminn. Tekið er á þeim tilfinning- um sem upp koma hjá þolendum og sýn þeirra á heiminn. Hvaða lausn er tU? Hvemig nær maður að fjar- lægjast eða ráða við þær skemmdir sem hafa orðið á sálinni? Myndin er hrikalega sorgleg og aUs ekki fyrir viðkvæmt fólk. Hún er byggð á sögu eftir Richard Johnson sem heitir Getting even og er alveg í stU myndarinnar. Reyndar tel ég þann titU hæfa myndinni betur en A Kind of Hush. Þrátt fyrir það er um- fjöllunarefnið náttúrlega hálfgert leyndarmál. Leikaramir eru hver öðmm betri og ná að túlka og sýna raunverulegar tilfmningar þolenda misnotkunar. Þetta gerir myndina enn sorglegri og átakanlegri. Þetta er mynd sem fólk ætti að horfa á. Vill vera meira en kyntákn Brad Pitt er ein af stórstjömum tíunda áratugarins. Hann þykir með kynþokkafyUstu karlmönnum og var í upphafi ferUsins talinn fyrst og fremst augnakonfekt fyrir kven- þjóðina en hann sætti sig ekki við að vera bara kyntákn og fór að velja sér krefjandi hlutverk. Hann er nú ekki aðeins frægur fyrir útlitið, heldur einnig umtalsverða leikhæfi- leika og hefur m.a. náö sér í eina óskarsverðlaunatilnefningu. Hann er í miklu stuði í Fight Club, sem hefur verið vinsæl á leigunum und- anfarið, og einnig má berja hann augum í Being John Malkovich, sem enn er verið að sýna í bíó, en þar leikur hann sjálfan sig. Stakk af tíl Hollywood Brad Pitt var næstum búinn að klára háskólanám í fjölmiðlunar- fræðum þegar hann pakkaði niöur og stakk af tU Kalifomíu. Hann laug því að foreldrum sínum að hann væri að fara í hönnunamám í Pasa- dena en tók þess í stað beint strik tU HoUywood þar sem hann tók leik- listamámskeið og reyndi að koma sér á framfæri. Eins og algengt er meðal óreyndra leikara framfleytti hann sér með því að þjóna tU borðs og frægt er að hann neyddist til að klæðast kjúklingsbúningi þegar hann vann á E1 PoUo Loco (Brjálaði kjúklingurinn). Fljótlega fór hann þó að næla sér í eitt og eitt hlutverk og kom m.a. fram í þremur Dallas- þáttum veturinn 1987-1988. Tán- ingahroUurinn Cutting Class (1989) var síðan fyrsta alvöru kvikmyndin sem hann fékk hlutverk í. Stóra tækifærið kom síðan þegar hann fékk lítið hlutverk í Thelma & Louise (1991). Þar var hann í litlu hlutverki puttaferðalangs sem tælir Geenu Davis og rænir hana síðan. Hlutverkið vakti á honum athygli og hann sást næstu árin i myndum eins og A River Runs Through It (1992), Kalifomia (1993), True Romance (1993) og Legends of the FaU (1994). Þegar hér var komið sögu var Brad Pitt orðin stjama og eitt stærsta kyntákn bransans. Tímaritið People útnefndi hann kynþokkafyUsta mann veraldar og hann var valinn gimUegasti karl- maðurinn á næstu tveimur MTV- kvikmyndaverðlaunahátíðum. Fór að vanda valið Brad Pitt vUdi þó vera meira en kyntákn og fór nú aö vanda hlut- verkavalið. Hann hlaut góða dóma fyrir hlutverk vampíru meö sam- visku í Interview With the Vampire (1994) og lék síðan í sótsvarta raðmorðingjatryUinum Seven (1995). Honum tókst síðan endanlega að sanna sig hvað leikhæfileika varðar þegar hann var tUnefndur til óskarsverðlauna fyrir hlutverk geö- truflaðs róttæklings í 12 Monkeys (1995). Næstu myndir hans voru Sleepers (1996), Seven Years in Tibet (1997), Meet Joe Black (1998) og síðan Fight Club og Being John Mal- kovich á síðasta ári. Það er kannski ekki að furða, þegar um kyntákn á borð við Brad Pitt er að ræöa, að mikið hafi verið fylgst með ásta- málum hans. Hann , átti ferlinum. Hann leikur á þessu ári lítið hlut- verk í Snatch’d, nýjustu mynd breska leik- stjórans Guy Ritchie (Lock i Stock * and Two Smok- ffi ing Barrels). Á næsta ári stendur til að leika á móti öðru ofur- kyntákni, George Clooney, undir leikstjórn Stevens Soderbergh í Ocean’s Eleven. Einnig verður hann í smyglarakómed- íunni The Mexican. Stelpunum ætti þó að vera nokk sama í hvemig myndum hann verður. Þær vita að það er alveg sama hvers kon- ar geðsjúklinga eða raddamenni honum dettur í hug að leika - hann verður alltaf svaka sætur. Pétur Jónasson Devil's Own Brad Pitt í hlutverki írska hryöju- verka- manns- ins. i sam- bandi við Gwyneth Pal- trow, sem lék á móti honum í Seven, í tvö ár og trúlofaðist henni meira að segja áður en upp úr slitnaði. Nú er það Jennifer Aniston sem á hug hans og hjarta en hann virðist vera að reyna að forðast sviðsljósið eftir fremsta megni og einbeita sér að Þjóðsögur og dulræn fyrirbæri: Katanesdýrið - af því leggur megna fýlu og ódaun Á seinni hluta nítjándu aldar varð vart við skrímsli rétt hjá Kata- nesi á Hvalfjarðarströnd. Kvikindi þetta olli nokkru uppnámi og var m.a. gerður út leiðangur af hinu op- inbera til að ljósmynda dýrið og skjóta en hvorugt tókst. Að lokum hvarf kvikindið eins skyndilega og það birtist. Haus sem líkist mest nýflegnu kjöti Dýrsins varð fyrst vart á Kata- nesi á Hvalfjarðarströnd árið 1874. Unglingar á staðnum sögðust hafa séð óvenjulegt dýr koma upp úr Katanestjöm og hverfa ofan í hana aftur. Þeir gátu ekki lýst því ná- kvæmlega en sögðu að það væri á stærð við stóran hund. Ári seinna sögðust menn oft sjá þessa skepnu á svipuðum slóðum og virtist hún hafa vaxið mikið. Þegar hér var komið sögu voru menn sam- mála um að dýrið væri á stærð við þriggja vetra nautgrip. Væri það með aílangan digran skrokk og rauðan haus sem likist mest hvelju eða nýflegnu kjöti og tæplega tveggja metra langan það með sex stórar klær á hverjum fæti og visaði ein þeirra beint aftur en fætumir væru stuttir. Dýrið væri með stóran kjaft og hvassar framtennur fjórar var hala. Búkur- inn sagð- ur hvít- ur og næstum þvi hár- laus. Haft var eftir sannorðum manni, sem var á ferð skammt frá tjöminni þar sem dýrið hélt sig, að hann heföi séð það liggjandi í laut. Hann sagðist hafa séð dýrið vel og væri T”— Katanesdýrið Þaö er meö aflangan skrokk og rauöan haus sem líkist mest hvelju eöa nýflegnu kjöti og lafandi. Aðrir höfðu þó sagt að eyrun væru reist. Sagt var að dýriö stykki frekar en gengi og af því legði megna fýlu og ódaun. Syndir hratt Þeir sem sáu kvikindið í tjöm- inni sögðu að það synti mjög hratt en það virtist vera hægfara á landi. Menn sögðust þó hafa séð það ein- angra kind frá fjárhópi enda hurfu margir sauðir og kindur þar um slóðir eftir að skrímslið fór á stjá. Dýrið virðist hafa átt það til að reika frá tjöminni því oft sást það ekki dögum saman við hana. Setið fyrir Katanesdýrinu Einu sinni ákváðu þrír menn að sitja fyrir dýrinu og reyna að skjóta það. Þeir sátu við tjömina í nokkra daga án þess að verða varir við það. Sama dag og þeir gáfust upp elti Katanesdýrið smaladreng heim að bæ en hvarf svo aftur. í dag er búið að ræsa fram Kata- nestjöm og því litil von um að finna dýrið þar. -Kip
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.