Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 32
 FRETTASKOTI0 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gaett. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. almeka NY NISSAN ALMERA FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000 Lottó: Milljónir falla í Árbæjarskalla Einn var með flmm rétta í lottó- inu á laugardaginn og hlýtur 29,8 ■g miUjónir í vinning. Lottómiðinn var keyptur í Skaiia viö Hraunbæ á fostudaginn. Að sögn afgreiðslu- manns í Skalla hefur vinningshaf- inn ekki gefið sig fram í sölutum- inum. „Við höfum ekki minnsta grun um hver vinningshafinn er og hann hefur ekki gefið sig fram við okkur. Okkur þætti auðvitað gaman að vita hver var svona heppinn en það er ekki víst að okk- ur verði að þeirri ósk okkar,“ sagði afgreiðslumaðurinn og bætti við að nýtt slagorð sölutumsins væri nú: Milljónir falla í Árbæjar- skalla. -aþ Hitabylgja á Suðurlandi Það er búin að vera hrein hita- Skip fastaflota NATO voru í höfn í Reykjavík nú um helgina og settu aö vonum svip sinn á mannlífiö í borginni. Þó aö borgarbúar hafi cfftWjhM'VéffitpH þessum erlendu gestum vel voru ekki allir jafnsáttir við veru þeirra hér eins og sjá má á myndinni. Þarna voru á feröinni herstöövarandstæöingar meö Birnu Þóröardóttur í fararbroddi en eitthvaö viröist hafa fækkaö í þeirra rööum undanfariö því einungis þrír létu sjá sig um helgina, öfugt viö fjölmennar Keflavíkurgöngur í gegnum tíöina. Örvæntingarfull leit að smitbera vegna tíðra salmonellusýkinga á Höfn: Opin klóaklögn og smitaðir sjófuglar - hver bendir á annan í leit að skýringum DV-MYND NH Kind í skugga Hún naut skuggans i gær þessi kind í Tungunum. bylgja á Suðurlandi um helgina. Á hitamæli fréttaritara fór hitinn yfir 40 gráður í gærdag. Fólk og fénaður reyndi að hafast við í hit- anum á ólíkum stöðum. Þessi kind i Biskupstungunum leitaði í skugga fyrir sólinni undir vesælu tré í vegarbrúninni og á meðan hún naut skuggans fékk hún sér eitt og eitt laufblaö til að seðja hungrið. -NH Svínahraun: Tveir bílar höfn- uðu utan vegar Harður árekstur tveggja bila varð á fimmta tímanum í gærdag í Svína- hrauni, skammt austan við Þrengsl- in. Að sögn lögreglunnar á Selfossi varð slysið með þeim hætti að önn- ur bifreiðin hugðist taka fram úr en hætti við þegar bíll kom á móti. Þá vildi ekki betur til en svo að fram- úrakstursbíilinn keyrði aftan á bíl- inn á undan með þeim afleiðingum að báðir höfnuðu utan vegar. Ekki urðu alvarleg meiðsl á fólki en einn var fluttur á Landspitalann í Foss- vogi með minni háttar meiðsl. -aþ Á annan tug dularfullra salmon- ellusýkinga hafa skotið upp kollin- um á Höfn í Homafirði og nágrenni frá því i vor og hefur verið gerð dauðaleit að smitvaldinum en án ár- angurs. Engin skýring hefur fundist á salmonellusmitunum og er mikill beygur í fólki á staðnum. Móðir bams sem smitaðist er nú flutt af staðnum og segir hún fargi af sér létt í kjölfarið. „Það vita allir hvað er í gangi og þeir hafa gert örvæntingarfulla leit að smitvaldinum,“ segir móðirin en bam hennar smitaðist í vor. „Þetta er yndislegur staður og frá- bært að búa þama en maður fann til gífurlegs óöryggis að vita ekki hvaðan þetta kernur," segir hún. Opin klóaklögn liggur út i fjöruna nærri þáverandi heimili móðurinn- ar og segir hún allar líkur benda til þess að smitin megi rekja þangaö. „Þegar það er fjara er klóaklögn- in opin og það em alltaf einhverjir fuglar í kring að leita sér að æti. Oft er mávaskarinn svo mikill að það lítur út fyrir að það sé skip að veið- um þar sem klóakið liggur. Fólk er á nálum yfir því að böm fari að leika sér þama í kring og smitist," segir móðirin. Tugir hrafna og máva hafa verið skotnir og rannsakaðir og greindust nánast allir með kampylobacter en ekki var um salmonellusýkingu að ræða þar. „Þetta er mjög erfitt mál því það er langt á milli salmonellutilfell- anna og ég held þetta sé eitthvað sem allir eru að borða. Við höfum lítil afskipti af málinu núna og mér þykir nærtækara að horfa til mat- vælanna," segir Kjartan Hreinsson, héraðsdýralæknir á Höfn. Heilbrigðiseftirlit Austurlands stóð fyrir umfangsmikilli leit að salmonellu í matvælum í vor en án árangurs. „Við leituðum meðal annars í kryddstaukum, sælgæti og vatnsból- um en höfum ekkert fundið. Við erum lítið með þetta mál hjá okkur því það virðist vera mjög erfitt að tengja þetta matvælum," segir Helga Hreinsdóttir hjá Heilbrigðis- eftirliti Austurlands á Egilsstöðum. Mikil umræða hefur skapast um fjölda campylobactersýkinga frá Reykjavík til Hafnar í Homaflrði sem rekja má til fugla en talsvert hefur verið um þær á Höfn. Svo langt hefur þetta gengið að maður í nágrenni Hafnar greindist með campylobacter og salmonellusýk- ingu á sama tima en allt er enn á huldu með uppruna salmonellusýk- inganna. -jtr Gróf líkamsárás: Svíi barinn til óbóta í Laugardal Gróf líkamsárás var gerð á Reykjavegi við Laugardalslaugina um hálfsjöleytið á sunnudagsmorg- un. Hópur pilta mun hafa umkringt vegfaranda, sænskan mann á miðj- um aldri, og látið höggin dynja á honum. Lögreglu barst tilkynning um árásina frá rútubílstjóra sem ók hjá en hann kvaðst ekki geta numið staðar vegna vinnu sinnar. Rútubílstjórinn sagði að í hópnum hefðu líklega verið um átta manns, þar af fjórir piltar, klæddir stutt- ermabolum, sem gengu fram fyrir skjöldu í barsmiðunum. Þegar lögregla kom á staðinn lá maðurinn á jörðunni og gat sig hvergi hrært. Árásarmennirnir voru á bak og burt. Hann hlaut mikla áverka og var fluttur á slysa- deildina í Fossvogi þar sem gert var að sárum hans. Að sögn læknis á slysadeild var maðurinn töluvert slasaður, blár og marinn auk þess sem hann hlaut nokkra djúpa skurði. Talið er líklegt að piltamir hafa ekki látið hnefana duga held- ur notast við einhvers konar bar- efli. Maðurinn var útskrifaður síð- degis í gær og gaf þá lögreglu skýrslu. Árásarmennirnir voru enn ófundnir í gærkvöld og að sögn lögreglu stendur rannsókn málsins yfir. -aþ Vettvangur árásarinnar. Pantið i tima da^arí Þjóðhátíð 25 FLUGFÉLAG ÍSLANDS 570 3030

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.