Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Blaðsíða 28
Súludans „ í morgun: Afram þrýst á krónuna Litlar breytingar voru á gengi ís- lensku krónunnar fyrstu mínútumar eftir opnum millibankamarkaðarins í morgun enda voru viðskipti þá enn lít- il. Yngvi Öm Kristinsson, forstöðumað- ur peningamálasviðs Seðlabanka ís- lands, sagði bankann enn frnna fyrir aukinni gjaldeyriseftirspum. Frá áramótum hefur gengi íslensku krónunnar lækkað um 4,07% að meðal- tali gagnvart helstu gjaldmiðlum. Mest hefúr krónan lækkað gagnvart banda- ríkjadal, mn heil 9,5%, en um 2,03% gagnvart evrunni. -GAR Ráðist á leigubíl- stjóra Leigubílstjórilenti í hremmingum er hann var að skila af sér farþega í Brekkubæ f Árbæ um klukkan hálf- þrjú f nótt. Er farþegi hans yfirgaf bílinn sá bílstjórinn hvar annar blll kom inn götuna. Sjö ungir menn stigu út og veittist einn þeirra að leigubílstjóranum og sparkaði í hann svo hann fékk skurð á nefið. Hann fór á slysadeild og kærði atvik- ið til lögreglunnar. -SMK Helgarblað DV: Unglingastjarna og mistök lækna í Helgarblaði DV er að fmna við- tal við Þorvald Davíð Kristjánsson sem er upprennandi stjama innan skemmtanabransans og mjög eftir- sóttur kostur i augum tánings- stelpna landsins. Jórunn Anna Sig- urðardóttir segir frá 9 ára baráttu sinni við kerfið en hún hefur veriö óvinnufær eftir brjóstaminnkun. Einnig er talað við norsku hesta- konuna Olil Ambler sem heillaðist snemma af íslenska hestinum, heit- ustu sumardrykkirnir kynntir og góð ráð gefin fyrir ferðalagið um það hvernig halda megi bömum í skefjum í bílnum. SULURNARI 5ÚÐA RVOG? FRETTASKOTIÐ SÍMiNN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FÖSTUDAGUR 14. JULI 2000 Eldur í bát og íbúðarhúsi Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Hverfisgötu í Reykjavík á áttunda tímanum í gærkvöld. Slökkviliðið mætti á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn, sem átti upptök sín í vegg í eldhúsi, og reykræsta húsið. Húsráðendur voru ekki heima. Einnig var slökkviliðið kallað út seinnipartinn í gær vegna elds sem kom upp í hraðbát sem geymdur er í bílageymslu í kjallara við Tryggvagöt- una í Reykjavík. Eldurinn var fljótt slökktur, en báturinn er talsvert skemmdur eftir atvikið. Lögreglan í Reykjavík rannsakar nú upptök elds- ins í bátnum. -SMK DV-MYND KK íbúðarhús reykræst Eldur kviknaöi í vegg í eldhúsi íbúðarhúss á Hverfísgötu í gær. Slökkviliðinu gekk greiðlega að slökkva eldinn og reykræsta húsið en talsverðar skemmdir urðu á eldhúsinu. Sextíu og tveggja ára karlmaður lést eftir að hann féll um fjóra metra af vinnupalli í Lindahverfinu i Kópa- vogi í gær. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi er talið líklegast að maður- inn hafi fallið niður um op í vinnu- pallinum þar sem hann var að störf- um í nýbyggingu, um sexleytið í gær- dag. Hann var fluttur á slysadeild með alvarlega áverka og lést af þeirra völd- um um þremur tímum eftir slysið. -SMK 4 * * * Borgarráð vill bæta ímynd Reykjavíkurborgar erlendis: Enga nýja nektar- staði i miðborgina - frjáls afgreiðslutími áfram og tími „korter fyrir þrjú gæjanna“ liðinn Borgarráð ákvað á fundi sínum í gærkvöld að hætta að úthluta leyfum til reksturs nektardansstaða i mið- borginni eða í návígi við verslunar- kjarna borgarinnar. „Reykjavík hefur fengið fremur slæman stimpil á sig sökum þess að mikill fjöldi nektardansstaða hefur verið opnaður á litlu svæði. Óneitan- lega hafa þessir staðir sett svip á borg- ina og hún fengið óæskilega umfjöll- un, t.a.m. hefur borgin verið kölluð „Bangkok norðursins" í breskum fjöl- miðlum. Þessi umfjöllun hefur haft í fór með sér ákveðinn túrisma sem við kærum okkur ekki endilega um,“ sagði Helgi Hjörvar, forseti borgar- stjómar, í samtali við DV í gærkvöld. Þá ákvað borgarráð að framlengja tilraun á ótakmörkuðum afgreiðslu- tíma vínveitingahúsa í Reykjavík í óbreyttri mynd fram á næsta vor. TU- raunin hefur staðið frá júlí á síðasta ári. „Niðurstaða borgarráðs var að tU- raunin hefði gefist vel. Þó hafa komið fram ábendingar um að stundum teygist skemmtunin fuUlangt fram á laugardags- morgna - sérstaklega að sum- arlagi. Þetta hefur haft áhrif á verslun og ferðamannaþjón- ustu. Það er þó lítUs háttar og við vUdum ekki setja neinar takmarkanir á afgreiðslutim- ann á þessu stigi málsins," sagði Helgi. Helgi sagði að í stað þess að vera með boð og bönn hefði borgarráð ákveðið að gefa Viljum ekki þannig túrista. verið hægt að koma í veg fyrir - nokkuð sem hefði lík- lega átt sér stað í heimahús- um væri ekki opið á skemmtistöðunum." Helgi játti því að skemmt- anamynstur Reykvikinga hefði breyst örlítið í kjölfar nýja opnunartimans. „Fólk fer aðeins seinna af stað og er kannski örlitið lengur að. Þó finnst fólki það ekki vera knúið tU þess að vera aUan tímann sem opið er eins og áður. Nú Nektarstöðum í miðborginni mun ekki fjölga og nýjum stöðum verður plantað annars staöar. þessarri tilraun meiri tima og sjá hvemig staðan væri að ári liðnu. „Lögreglan hefur verið ánægð með þessa tilraun og segist hafa betri stjóm á miðbænum sökum hennar. Nokkur ofbeldisverk hafa komið upp inni á skemmtistöðum borgarinnar þegar lið- ið er fram á morgun, en talið er að þar sé um að ræða nokkuð sem ekki hefði skemmtir fólk sér þegar það langar tU, ekki af því að á einhverjum ákveðnum tíma er aðeins hægt að skemmta sér. Tími „korter fyrir þrjú gæjanna" heyrir sögunni tU og eru þeir orðnir fornminjar frá 20. öld- inni,“ bætti Helgi við í glettnistón. Einhugur var um ákvarðanir borg- arráðs. -ÓRV Héraðsdómur úrskurðar í lögbannsmáli Sleipnismanna: Lögbannið stendur Sleipnismenn mættu í héraðsdóm í morgun tU þess að hlýða á úrskurð í lögbannsmáli atvinnurekenda gegn Sleipni. Sleipnismenn áfrýjaðu úr- skurði sýslumanns Reykjavíkur um lögbann á verkfaU þeirra en 12 fyrir- tæki sóttu um lögbann á verkfaUið á þeirri forsendu að sumir starfsmenn þeirra væru ekki í Sleipni. í héraðs- dómi í morgun var dæmt í máli Teits Jónassonar og Austurleiðar. í úr- skurði héraðsdóms var ákveðið að lögbannið skyldi standa. VerkfaUið hefur verið í sjálfheldu um nokkurt skeið og hefur það stað- ið fram á fimmtu viku. Engin lausn er ennþá í sjónmáli og vist þykir að niðurstaða hér- Oskar Stefánsson: Vonbrigði aðsdóms nú kem- ur eingöngu til þess að herða þann hnút sem deUan hefur ver- ið í. Óskar Stef- ánsson, formaður Sleipnis, segir Samtök atvinnu- lífsins (SA) aldrei hafa vUjað semja við Sleipni. „Það hefur aldrei verið neinn vUji tU þess að semja hjá Samtökum at- vinnulífsins. Þessi barátta hefur aldrei verið kjarabarátta. Það sem’ þetta snýst um er að SA er að reyna að ganga á mUli bols og höfuðs á verkalýðsfélaginu Sleipni. Þetta eru mikil vonbrigði. Það er ekkert við þessu að segja nema að þetta kemur á óvart. Vissulega kem- ur þetta tU með að hafa áhrif á fram- gang verkfaUsins og það verður ekki hægt að beita sér gegn þessum tveim- ur aðUum,“ sagði Óskar, vonsvikinn, í héraðsdómi í morgun. -ÓRV/ótt Pantið i tima dajaiitjMMií H 21 FLUGFÉLAG ÍSLANDS 570 3030 oppurinn n Unum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.