Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2000, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 13 I>V Fréttir Alaskalóðin í Breiðholti seld: íbúðarhús fyrir ellilífeyrisþega - Breiðholtsbúi vill sjá lystigarð Búið er að selja landið sem gróðrastöðin og blómabúðin Alaska stóð á í Breiðholti og ætlar hinn nýi eigandi, Ólafur og Gunnar Bygging- arfélag ehf., að byggja íbúðarhús á svæðinu. Það er þó ekki búið að setja endapunktinn á deiliskipulag- ið og vilja íbúar í Breiðholtinu sjá minnisvarða reistan um Jón H. Bjömsson. „Það er alveg griðarlega mikið magn af plöntum þarna eftir Jón H. Bjömsson. Mér fyndist það synd og skömm ef það á ekki að reisa þess- um manni einhvem minnisvarða, heldur bara urða allan gróðurinn og byggja þarna einhver íbúðarhús," segir Sveinn Þorsteinsson, íbúi í Breiðholtinu, sem vill láta búa til lystigarð til minningar um Jón H. Bjömsson, fyrsta landlagsarkitekt íslands, garðyrkjumann og stofn- anda Alaska á Miklatúni og í Breið- holti. „Það má segja að flestallur gróður í görðum hér í Reykjavík í dag sé mikið til þessum tveimur frumkvöðlum, Jóni og Óla Val Hanssyni, að þakka. Þetta voru þeir menn sem voru einna fyrstir til þess að fara til Alaska og víðar í leið- angra að safna plöntum." Jón ræktaði mikinn gróður á svæðinu, auk þess sem hann rak blómaverslun í gömlu fjósi úr Breið- holtsbænum sem þar stóð. Þetta fjós, sem stendur enn, fellur undir fomminjar og þarf að bera áætlanir um það undir Árbæjarsafn. Einnig liggur landið að opnum útivistar- svæðum fyrir almenning, Seljabotn- um og Skógabrekkum. Ekkert ákveöiö enn „Það er veriö að búa til hugmynd- ir, þetta er allt í biðstöðu eins og er. Þetta er auðvitað dýr lóð. Ein hug- myndin er að byggja lítil hús fyrir ellilífeyrisþega þama,“ segir Ólafur Friðriksson, eigandi byggmgarfyrir- tækisins. Hann bætti því við að ör- uggt væri að engin háhýsi yrðu byggð á svæðinu, og þótt ekki hefði verið tekin nein ákvörðun um hvort lystigarður yrði gerður er ljóst að reynt verður eftir fremsta megni að vemda gróðurinn sem fyrir er á svæðinu. „Þetta er dýrmaetur staður og hann er vandmeðfarinn. Við ætlum ekkert að styggja einn eða neinn þama, við fórum varlega í sakim- ar,“ segir Ólafur. Þegar búið er að gera deiliskipu- lag fyrir svæðið þarf að bera það undir garðyrkjustjóra Reykjavíkur. Málið er þó ekki komið svo langt. „Þama væri náttúrlega tilvalið að gera einhvem lítinn, fallegan lysti- garð, þar sem landslagsarkitektar gætu reist Jóni brjóstmynd og hafa þetta garð fyrir almenning. Það 36 skjálftar í Mýrdalsjökli - yfir 300 skjálftar f vikunni voru staðsettir 305 skjálftar á landinu. Mesta virknin var á Holta- og Hestfjallssprungun- um á Suðurland eins og undanfam- ar vikur. Jarðskjálftavirkni heldur áfram undir vestanverðum Mýr- dalsjökli. 34 skjálftar mældust 0,8-2,3 stig, og í nótt mældust tveir skjálftar til viðbótar. Sá fyrri var kl. 01.10, að styrkleika 2,4 á Richter og hinn varð kl. 3.25 og mældist 2,7 á Richter. Lítil virkni var á Norðurlandi, en tveir skjálftar mældust undir Grímsvötnum, 1,7 og 1,8 að stærð. Einhver virkni var á Torfajökuls- svæðinu og sunnan við Langjökul, samkvæmt upplýsingum frá skjálftavakt Veðurstofu íslands,- væri hægt að taka gamla fjósið í gegn og hafa þama einhverjar kaffi- veitingar og gera þetta virkilega huggulegt í stað þess að fara að ryðja þessu öllu um, malbika og steypa þarna einhverja steinkumb- alda,“ sagði Sveinn. -SMK DV-MYND GVA Vili láta setja lystigarö til minningar um frumkvööul Sveinn Þorsteinsson, íbúi í Breiðholtinu, vill láta byggja lystigarö til minn- ingar um Jón H. Björnsson, fyrsta iandlagsarkitekt íslands, á Alaskalóö- inni í Breiöholti. Byggingarfélag hefur keypt lóðina og segir eigandi þess aö gróöur á svæöinu veröi verndaöur eftir fremsta megni. Kawasaki fjórhjólin traust & lipur „Svo fáum við okkur kannski •v á eftir" í sfðustu kjarasamningum VR var stigið stórt skref í átt að auknum lífsgæðum þegar samþykkt var í fyrsta sinn i áratugi aó stytta vinnuvikuna um 30 mínútur. Frá 1. október styttist vinnuvikan hjá afgreiðslufólki og verður 36 klst. og 35 mínútur án kaffitima samkvæmt kjarasamningi við SA. 30 mínútur á viku virðist ekki mikið við fyrstu sýn, en ef þú hefur tækifæri til aó safna tímunum saman geturðu reglulega átt auka fridag. Að sjálfsögðu þarftu að hafa samráð við atvinnurekanda þinn og ræða við hann um möguleika þína á að nýta tímana betur og bóka frjálsar stundir. Lffsgæði eru nefnilega fólgin í því að njóta lífsins. Virkur vinnutlmi Áður Nú Afgreiðslufólk 37:05 36:35 Skrifstofufólk 36:45 36:15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.