Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2000, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 DV 7 Fréttir Erlend fjárfesting í sjávarútvegi: Frumvarp um beinar fjárfestingar í fiskiðnaði Svanfríöur Jónasdóttir mun á Al- þingi mæla fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri hér- lendis. Meðflutningsmenn hennar að frumvarpinu eru Sighvatur Björgvinsson, Jóhann Ársælsson, og Lúðvík Bergvinsson. Er þar sér- staklega vikið að heimild til fjárfest- inga í fiskiðnaði. FVumvarp þetta var flutt á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga og verður því endurflutt nú í haust. í greinargerð með því er gert ráð fyr- ir því að um fiskiðnað gildi almennt sömu reglur og annan iðnað hvað varðar fjárfestingar erlendra aðila. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á gildandi lögum um útgerð. Samkvæmt gildandi lögum um fjárfestingar er- lendra aðila er þeim heimilt að eiga óbeinan hlut í íslenskum sjávar- útvegi og ekki er gerður greinar- munur á veiðum og vinnslu nema að því er varðar til- tekna vinnsluþætti. Heimild til óbeinn- ar eignaraðildar var lögfest til að laga lögin að veru- leikanum en vitað var um óbeina eignaraðild erlendra fyrirtækja í sjávarútvegsfyrirtækjum og ekki var talið ráðlegt að fylgja fortaks- lausu banni eftir, eins og þágildandi lög gerðu ráð fýrir. Með því að heimila einungis óbeina eignaraðild voru því engir nýir möguleikar opn- aðir. Flutningsmenn gera ráð fyrir að með heimild til beinna fjárfestinga erlendra aðila í íslenskum flskiðn- aði, eins og i öðrum matvælaiðnaði, geta skapast ýmsir nýir möguleikar og sóknarfæri fyrir flskvinnsluna. Jafnframt megi ætla að ný sóknar- færi kynnu að skapast fyrir annan matvælaiðnað þar sem mjög er nú sóst eftir samstarfi við erlend fyrir- tæki. I núgildandi lögum eru eftirtaldar vinnsluaðferðir þegar undanþegnar sérstökum takmörkunum: reyking, súrsun, niðursuða, niðurlagning og umpökkun afurða í neytendaum- búðir eða frekari vinnsla afurða til Minjagripaverslun við Gullfoss: Fingralangir skiptinemar „Þetta var algjört áfall. Ég er orð- laus,“ sagði Elva Björk Magnúsdótt- ir, sem rekur kafiihús og minja- gripaverslun við Gullfoss, eftir heimsókn hóps svissneskra nem- enda sem heimsóttu staðinn fyrr í vikunni. Um er að ræða skiptinema sem eru í heimsókn hjá Valhúsa- skóla á Seltjarnamesi. Að sögn Elvu Bjarkar kom hópur- inn til hennar ásamt kennurum og fararstjóra á þriðjudag í síðustu viku. Fararstjórinn spurði hvort nemendurnir mættu snæða nesti sitt inni í kaffihúsinu. Hún kvaðst yfírleitt ekki leyfa slíkt en ætla að gera undantekningu í þetta sinn. - létu greipar sópa Nemendurnir komu inn, borðuðu nestið, gengu vel frá eftir sig og fóru síðan út í rútuna sem flutti þá. „Skömmu síðar kom fararstjór- inn inn með platta sem einhver hafði tekið ófrjálsri hendi,“ sagði Elva Björk. „Bílstjórinn hafði séð að þau voru eitthvað mikið að pukrast og sá að ekki myndi allt vera með felldu. Fararstjórinn fór að því búnu en kom enn inn eftir drykk- langa stund og nú með fullt af vam- ingi. Þar á meðal voru dýrir bolir, einnota myndavélar, filmur, minja- gripir og fleira dót. Þetta var varn- ingur fyrir tugi þúsunda króna. Nokkrir krakkanna komu sjálfir og skiluðu af sér. Afgreiðsluborðið hjá mér var hlaðið þegar öllu hafði ver- ið skilað," sagði Elva Björk, sem hefur reynt að ná í skólastjóra Val- húsaskóla út af málinu en ekki enn tekist. „Svissnesku umsjónarmennirnir voru miður sín,“ sagði Sigfús Grét- arsson við DV í morgun. „Þeir létu nemendurna tæma allar töskur og skila mununum. Það varð mikil rekistefna út af þessu máli. Umsjón- armennimir ætla að grípa til viðeig- endi ráðstafana hér og eftir að heim kemur. Málinu er þar með lokið.“ -JSS Opið hús á Slökkvistöðinni Ungir sem aldnir kynntu sér starfsemi Slökkviliösins í Reykjavík í opnu húsi í Slökkvistööinni um helgina. Héraðsdómur Norðurlands eystra: Sekt fýrir falsað skírteini DV, AKUREYRI:______________________ Nítján ára gamall Dalvíkingur sem gerði tilraun til að komast inn á skemmtistaðinn Kaffi Amsterdam í Reykjavík í október á sl. ári og hafði undir höndum falsað ökuskír- teini hefur verið dæmdur í Héraðs- dómi Norðurlands eystra. Dalvíkingurinn hafði látið falsa ökuskírteinið fyrir sig nokkrum árum áður en þarna komst upp um hann og kæra fylgdi í kjölfarið. Pilt- urinn mætti ekki fyrir dómi en brot hans taldist nægjanlega sannað og var hann dæmdur í 45 þúsund króna sekt og komi 8 daga fangelsi í stað sektarinnar hafi hún ekki verið greidd innan fjögurra vikna. -gk að gera þær hæfari til dreifingar, neyslu eða matreiðslu. Ef frumvarp þetta yrði að lögum yrði jafnframt heimilt að erlendir aðilar fjárfestu í frystingu, söltun, herslu, bræðslu og mjölvinnslu. Flytjendur frumvarpsins segja að íslendingar hafa undanfarin ár afnumið sérstakar hömlur fyrir er- lenda fjárfesta hérlendis á flestum sviðum. Afnám sérstakra takmark- ana í fiskvinnslu sé því eðlilegt framhald þeirrar stefnu. -HKr. Z°,T„. SUDURNESJUM op,,.,™ SÍMI 421 4888-421 5488 □odge Caravan ‘97, ekinn 45 þús., sjálfskiptur, brúnn, 7 manna. Verð 1.890 þús. Höfum einnig 2 stk. ‘97 Caravan V6 3,3 til sölu. Höfum nokkraToyota Corolla 1,4 vvti, bílaleigubíla, nýskráöa 6/2000, ekna á bilinu 12-16 þús., 4 dyra, nokkrir litir. Verö 1.270 þús. Toyota Land Cruiser VX 3,0 turbo dfsil, nýskráöur 11/98, ekinn 54 þús., sjálfskiptur, silfurgrár, 38" breyttur ( ný 38“ dekk), varahjólshlif, krókur. Verö 3.800 þús. Toyota Land Cruiser GX 3,0 turbo dísil, nýskráöur 2/99, ekinn 45 þús., sjálfskiptur, varahjólshlíf, toppgrindarbogar, silfurgrár. Verö 3.250 þús. Toyota Land Cruiser VX 3,0 turbo dísil, nýskráöur 3/98, ekinn 55 þús., sjálfskiptur, drátt- arkrókur, grænn, 7 manna. Verö 3.100 þús. Toyota Land Cruiser VX 3,0 turbo dísil, nýgkf.f9/^|, ek. 57 þús., sjálf- sk., btáf,7inánnl, leður, cruísecon- trol, krókur, varahjólshlíf. Verö 3.250 þús. SP- FfARMÖGNUN HF Sigtúni 42, sími 569 2000 Skoðaðu vefinn okkar www.sp.is MMC Pajero 2,5 turbo dísil, nýskráöur 2/96, ekinn 96 þús., blár, 5 gíra, 32“ ný nagladekk á felgum fylgja. Verö 1.750 þús. Toyota Land Cruiser GX 3,0 turbo dísii, nýskráöur 11/97 (árg. '98), ekinn 75 þús., 33“ breyting, sjálfskiptur, drkrókur, spoiler, varahjólshlíf, toppgrindar- bogar. Verö 3.000 þús Toyota Rav4, nýskráöur 11/99, ekinn 12 þús., sjálfskiptur, silfur- grár, dráttarkúla. Verö 2.100 þús. Höfum nokkra 3ja dyra Toyota Yaris Terra 1,0, nýskráöa 6/2000, ekna 12-16 þús., nokkrir litir. Verö 890 þús. Nissan Terran II SE turbo dísil, nýskráöur 2/98, ekinn 56 þús., gr., 5 gíra, 7 manna. Verö 2.200 þús. Kláraðu dæmið með SP-bílaláni Nissan d/c dísill turbo, nýskráöur 8/99, ekinn 17 þús., toppl., pallhús, grillgrind, cd, o.fl. Verö 2.400 þús. VW Passat 1,8 st., nýskráöur 1/99, ekinn 33 þús., sjálfskiptur, silfurgrár, dráttarkrókur. Verö 1.890 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.