Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 Fréttir I>V íslendingurinn sem týndist í miðríkjum Bandaríkjanna og gaf sig fram 12 árum síðar: Skildi bílinn eftir og var horfinn eftir það Yfirgefinn bíll I miðríkjum Banda- ríkjanna var eitt af fáu sem lögreglan vestra gat farið eftir í mars árið 1988 þegar mikU leit var gerð að HaUdóri Heimi ísleifssyni. Hann var þá náms- maður í framhaldsnámi í hagfræði og hafði verið að fara á mUli tveggja staða en bíllinn hafði verið skilinn eftir og eftir litlu að fara. Samkvæmt upplýsingum DV lagði fjölskylda HaUdórs, sem þá var 26 ára, mikið á sig tU að reyna að finna út hvað af honum hefði orðið. Faðir hans fór tU Bandaríkjanna en sú fór bar engan árangur. Þegar árin liðu vUdi fólk ekki gefa upp vonina en aldrei heyrðist neitt frá HaUdóri. Eft- ir þrjú ár var gengið í það með laga- legum hætti að ganga frá dánarbúi Halldórs og hann tekinn út af þjóð- skrá. HaUdór varð stúdent frá Mennta- skólanum í Kópavogi áður en hann hélt í framhaldsnám ytra og stundaði vinnu um skeið hér heima. Eins og fram kom í DV í gær kom HaUdór tU landsins á þriðjudag eftir að systir hans hafði flogið vestur til að fylgja honum heim. HaUdór á roskna foreldra sem búa í Garðabæ og fjögur systkini, tvær systur og tvo bræður. Annar þeirra býr erlendis en er kominn heim til íslands. Fjöl- skyldan hittist öU fyrst á þriðjudag, ekki aðeins foreldrarnir og börnin fimm heldur einnig systkinabörn HaUdórs sem hann hafði ekki séð mörg hver vegna sinnar löngu og óútskýrðu fjarveru - frá því í mars 1988, tólf og hálft ár. Hinn „týndi“ maður sem nú hefur gefið sig fram er, samkvæmt upplýs- ingum DV, við góða heUsu hér heima. -Ótt Ríflegur lífeyrir ráðherra Skuldir rikissjóðs vegna lífeyris- sjóða ráðherra og þingmanna sam- svara um tveimur þriðju af öUmn eign- um Viðlagatrygging- ar íslands. í lífeyris- sjóð ráðherra greið- ir vinnuveitandinn, það er skattgreið- i endur, 80% á móti 4% framlagi ráð- herra sem öðlast fuU | réttindi 14 sinnum hraðar en í sjóð- um okkar venjulega fólksins, segir Guðmundur Gunnarssonar á vefsíðu Rafiðnaðarsambandsins. Gerði konu ófrjóa Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til að greiða konu á fertugs- j aldri tæpar 3 miUjónir króna í skaða- ; bætur auk dráttarvaxta og máls- ' kostnaðar. Laugavegur: Táragas á veitinga- stað Gestum, sem sátu aö snæðingi á veitingastað við Laugaveg á átt- unda tímanum I gærkvöldi, brá ónotalega þegar sterk lykt sem erti vit fólksins gaus upp á staðnum. Starfsfólk og gestir yfirgáfu húsið og var lögregla kölluð tU. Að sögn lögreglunnar i Reykjavík var talið líklegast að einhver hefði sprautað táragasi inni á veitingastaðnum en ekkert fékkst sannað i þeim efn- um. Húsnæðið var loftræst og þeg- ar efnið var horfið úr andrúmsloft- inu sneru gestir aftur að borðum sínum og héldu áfram snæðingi. -SMK Grafarvogur: Sorp féll af bíl Hliðardyr á flutningabíl frá Sorpu opnuðust þegar bUlinn keyrði eftir Borgarvegi í Grafar- vogi i gær, með þeim afleiðingum að nokkrir vírbundnir sorpbaggar duttu af bílnum. BUlinn var á leið meö sorpið tU urðunar. Þar sem búið var að vírbinda sorpið gekk greiölega aö setja baggana upp á bílinn aftur og gatan var' svo hreinsuð. Bílstjórinn lokaði síðan dyrunum og hélt áfram á urðunar- staðinn. -SMK Bifhjól skall aftan á bíl Ungur piltur á léttu bifhjóli ók hjólinu aftan á fólksbíl á mótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitis- brautar um sexleytið í gær. Piltur- inn var fluttur með sjúkrabU á slysadeUd Landspítalans í Foss- vogi þar sem grunur lék á að hann hefði lærbrotnað en hann var ekki talinn i lífshættu. Fólkið í bílnum var ómeitt eftir atburðinn. -SMK Árbær: Brotist inn á hársnyrtistofu Brotist var inn á hársnyrtistofu í Árbænum á sjötta tímanum í morgun. Innbrotsþjófurinn braut tvær rúður og rótaði tU á stofunni en að sögn lögreglunnar í Reykja- vik virtist sem engu hefði verið stolið. Sá sem tilkynnti um inn- brotið sá pörupUtinn yfirgefa hár- snyrtistofuna á reiðhjóli skömmu áður en lögreglan mætti á svæðið. Lögreglan er með málið í rann- sókn. -SMK DV-MYND INGÓ Slátrun á ný Eftir tíu ára hlé á slátrun á laxi úr sjókvíum vió suöurströndina er hún hafin á ný. Myndin var tekin viö slátrun hjá Sil- ungi hf. í Helguvík í gærmorgun. Tímamót í laxeldi hjá Silungi hf. í Helguvík: Stefna á 5000 tonna framleiðslu á ári DV, SUÐURNESJUM: A fóstudag var fyrsta slátrun eft- ir 10 ára hlé á laxi úr sjókvium við suðurströnd landsins. Fyrirtækið Silungur ehf. slátraði 7 tonnum af laxi í Helguvík en laxinn hefur ver- ið alinn upp í sláturstærð í sjókví- um. Við athöfn sem haldin var af þessu tUefni sagði Jónatan Þórðar- son, framkvæmdastjóri Silungs ehf., að þessi dagur markaði tímamót í laxeldi hér á landi. Lax félagsins er framleiddur með aðferð sem nefnist skiptieldi. Á þann hátt næst mikiU vaxtarhraöi og affóU í eldi eru lítU. „Þessir fiskar voru um 700 grömm í maí i vor þegar þeim var sleppt í sjókvíar til eldis," sagði Jón- atan. Jónatan sýndi viðstöddum glæsilega 4 og 6 kílóa þunga laxa tU að sanna sitt mál. SUungur ehf. er rótgróið fyrirtæki í íslensku laxeldi. Þórður Þórðarson, stjómarformað- ur SUungs hf. og bróðir Jónatans, segir að fyrirtækið hafi verið byggt upp á 10 árum, fjármagnað af ein- staklingum og án fyrirgreiðslu frá bönkum eða ríki. SUungur ehf. mun framleiða 1500 tonn af laxi í ár og er stefnt að því að þrefalda magnið á næstu þremur árum. -DVÓ Rúmlega 500 manns bíða eftir félagslegum íbúðum: Fjöldamet á biðlista - hjálpum fólki að þrauka, segir félagsmálastjóri Nú eru 501 á biðlista eftir félags- legum íbúðum í Reykjavík. Það mun vera mesti fjöldi umsókna sem legið hafa fyrir hjá Félagsþjónust- unni í Reykjavík, að sögn Láru Björnsdóttur félagsmálastjóra. Flestir bíða eftir l-2ja herbergja íbúðum, eða 331. Á biðlista eftir 3ja herbergja íbúðum bíða 118 og 52 eft- ir 4ra herbergja íbúðum. „Þar er einstaka umsækjandi með barn með sér, en öryrkjarnir eru langsamlega flestir í þessum hópi, svo og fólk sem er lúið eftir langt ævistarf," sagði Lára. „Þarna er einungis um að ræða lágtekju- fólk. Flestir sem komast í forgangs- röðina eru þeir sem eru með árs- tekjur undir einni milljón." Lára sagði að ástandið á leigu- markaöinum hefði verið mjög erfitt að undanfomu, eins og alkunna væri. Húsaleiga hefði hækkað og leiguíbúðum fækkað þar sem marg- ir notuðu nú tækifærið og seldu íbúðir, sem hefðu verið í leigu, því fasteignaverð væri hátt. Leigumark- aðurinn væri því mjög óstöðugur um þessar mundir. „Félagsbústaðir ætluðu að kaupa 100 íbúðir í ár, en eru ekki búnir að kaupa nema um 52 enn sem komið er. Við erum því að vona að það komi einhverjir tugir af íbúðum inn í lok ársins. En við verðum að reyna að hjálpa fólki til að þrauka meðan það er að bíða,“ sagði Lára. „Sumir eru inni á ættingjum eða vinum. Þá er allt fullt hjá Félagi ein- stæðra foreldra. í síðustu viku voru 30 á biðlista eftir að komast inn þar. Þar er um að ræða fólk sem er í mjög slæmri stöðu. Ég veit að verið er að leggja drög að kaupum á nokkrum 4ra herbergja íbúðum, sem verður úthlutað til bamflestu fjölskyldnanna." 15 þúsund ný störf Störfum fjölgaði um 15.000 á ís- landi frá árinu 1996 til 2000 en á tíma- bilinum var hagvöxtur um 4,5%, að því er fram kemur í Hagvísum Þjóð- hagsstofnunar. Mest fjölgun starfa var í verslun eða um 2.800 en athygli vekur að 1.900 ný störf sköpuðust i hinu svokallaða nýja hagkerfl. - Mbl. segir frá. . »III t«< 11! ■ imnimi "-'f 'ir •áí Símaútboð hugsanlegt Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að sér fínnist vel at- hugandi að skoða hvort rétt sé fyrir bæinn að leita útboða í símaviðskipti bæjarins. Bæjarstjórinn segir þó að engin vinna sé hafin í þessum efnum. - Dagur segir frá. Félög bílstjóra deila Athugun stendur yfir á vegum samgönguráðuneytisins um hvernig staðið var að skipun í umsjónamefnd fólksbifreiða á höfuðborgarsvæðinu. Fulltrúi sveitarfélaganna í nefndinni óskaði eftir þessu á sérstökum sam- ráðsfundi nefndarinnar. - Mbl. grein- ir frá. Síld fundin á Breiöafirði Fimm bátar em nú við síldveiðar um 30 mílur vestur af Öndverðarnesi og á Breiðafirði. Grindvíkingur GK fékk um 30 tonn á þriðjudagskvöld í blíðuveðri og var í dag að leita á Breiðafirði ásamt Júpíter ÞH, Ant- ares VE, Hákoni ÞH og Oddeyrinni EA. Aðrir hafa verið að fá allt að 100 tonn í þremur köstum. - Dagur segir frá. Vilja lögfræöiaðstoö Vélstjórafélag íslands hefur fengið beiðni um lögfræðiaðstoð frá Rússum í áhöfn togarans Vídalíns SF-80. Hann hefur verið að veiðum í Barentshafi en er nú í Reykjavíkur- höfn. - RÚV segir frá. Vill setur á Þingvöllum Kirkjuþing samþykkti í gær að Þingvallanefnd geri ekki lengur til- lögur um ráðningu prests á Þingvöllum þegar fallist var á breytingu í frum- varpi til laga um stjórn og starfshætti kirkjunnar. Lagt er til að halda beri úti prestakalli tengdu Þingvöllum og að prestur sitji það prestakall. -HKr. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.