Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 DV 11 Fréttir Andstaðan við sameiningu ríkisbankanna: Ríkisstjórnarflokkar á öndverðum meiði - sjálfstæðismenn einir með meirihlutafylgi við samrunaferlið Samkvæmt skoðanakönnun DV eru landsmenn mjög andvígir sam- einingu Landsbanka íslands hf. og Búnaðarbanka Islands hf. Meiri- hluti kjósenda allra flokka nema Sjálfstæðisílokksins er andvígur sameiningunni. Könnunin sem gerð var á mánu- dagskvöldið leiðir í ljós að 62,9% þeirra sem afstöðu tóku eru á móti sameiningu fyrirtækjanna. Úrtakið var 600 manns, skipt jafnt á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggð- ar, og eins var jöfii skipting á milli karla og kvenna. Spurt var: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) samein- ingu Búnaðarbanka íslands og Landsbanka íslands? Afstöðu tóku 72,8% og 27,2% voru óákveðin eða svöruðu ekki þessari spurningu. Þegar skoðuð er afstaða fylgis- manna flokkanna kemur ívljós að andstæðingar við sameiningu rikis- bankanna eru í meirihluta í öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokknum. Ef litið er á skoöanir þeirra sem á annað borð tóku afstöðu er tölurnar athyglisverðar. Enda virðist niður- staða skoðanakönnunarinnar hafa komið mörgúm bankaráðsmönnum Vegamót við nýju Fnjóskárbrúna: Slysagildra eða ekki? DV, AKUREYRI:_______________________ „Eg tel þetta mjög hættulegt og í rauninni megi tala um slysagildru í því sambandi," segir Bergvin Jó- hannsson, bóndi á Áshóli í Grýtu- bakkahreppi i Eyjafirði, um vegamót á Grenivíkurvegi við nýju brúna yfir Fnjóská sem tekin var í notkun fyrir nokkrum dögum. Gatnamót eru um það bil 40 metra austan við brúna og kemur þar svokölluð t-beygja. Það er sú beygja sem Bergvin hef- ur áhyggjur af. „Þetta er rétt við brú- arsporðinn, þama kemur t-beygja og það er ekk viðlit að mætast í henni. Ég keyri skólabil á þessum slóðum og þótt ekki sé langt um liðið síðan brúin var tekin í notkun hef ég þó þegar lent i því að þurfa að stansa al- veg áður en ég kom að beygjunni til að lenda ekki á öðrum bíl þar. Ég tel að þetta sé mjög hættulegt, sérstak- lega þegar hálka fer að vera á vegin- um og menn ætla að fara að nota bremsurnar“ segir Bergvin. Ekki eru allir á sama máli. Bíl- stjóri mjólkurbíls, sem DV hitti við umrædda beygju, sagðist ekki telja hana neina slysagildru og ekki hættulega. Vegagerðin hefði án efa haft sínar ástæður fyrir því að ganga svona frá beygjunni þvi annars hefði þurft að fara með veginn upp í fjalls- hlíð fyrir austan núverandi vegamót og það hefði varla verið betra. -gk DV- MYND GK Beygjan umtalaöa Er hún slysagildra eða ósköp venjuleg beygja? Nýjar sóknir á Kirkjuþingi Kirkjuþing hafnaði sameiningu Barðastrandar- og ísafjarðarprófasts- dæmis í Vestfjarðaprófastsdæmi, með- al annars með tilliti til samgöngumála á þessu svæði en sameiningin var meðal tillagna sem biskupafundur lagði til varðandi sameiningu sókna og prestakalla. Einnig var ákveðið að samþykkja ekki sameiningu Tálkna- fjarðar- og Bíldudalsprestakalla. Þá var stofnun nýrrar sóknar í Kópavogi, Lindasóknar, frestað. Meðal þess sem Kirkjuþing sam- þykkti var að stofha nýja sókn og nýtt prestakall í Kjalamesprestakalli sem heita munu Vallasókn og Valla- prestakall sem verður stofnað 1. júlí 2000. Ári seinna verður Grafarholts- prestakall stofnað og það myndar nú sókn sem kölluð verður Grafarholts- sókn. Báðar sóknir verða stofnaðar í byrjun næsta árs. Á þinginu voru einnig samþykktar nokkrar tillögur um sameiningu sókna á landsbyggð- inni og flutning á öðrum sóknum á milli prestakalla. -MA Landsbanka og Búnaðarbanka mjög á óvart. Andstaða er í öllum flokk- um. Framsóknarmenn andvígir sameiningu Af þeim fylgismönnum Fram- sóknarflokksins sem á annað borð tóku afstöðu til málsins eru 52,8% á móti sameiningu rikisbankanna en 47,2% eru sameiningunni hlynnt. Sjáifstæðismenn skera sig úr Fylgismenn Sjálfstæðisflokksins skera sig úr í þessari könnun en 57% þeirra eru fylgjandi samein- ingu bankanna, 43% á móti. Þetta er eini flokkurinn sam hefur meiri- hlutafylgi við þann samruna sem nú er stefnt að. Stuðningsmenn stjórnarand- stöðu eru á móti Varhugavert er aö taka mjög bók- staflega greiningu á skoðunum fylg- ismanna Frjálslynda flokksins í þessu máli vegna þess hversu úrtak kjósenda flokksins er lítið sem þar tekur afstöðu. Mæld andstaða þeirra fylgjenda flokksins sem þó tóku afstöðu er hins vegar yflrgnæf- andi eða 85,7% sem voru andvíg á móti þeim 14,3% sem voru fylgjandi sameiningu bankanna. Hjá fylgismönnum Samfylkingar- innar er einnig yflrgnæfandi and- staða. Þar er 81,1% kjósenda andvíg sameiningu ríkisbankanna en 18,9% henni fylgjandi. Fylgismenn Vinstrihreyfingarinn- ar-græns framboðs eru á svipuðum nótum og samfylkingarmenn. Þar mælist andstaðan við sameiningu bankanna 80% á móti þeim 20% sem eru fylgjandi sameiningu Búnaðar- banka og Landsbanka. -HKr. DVJVIYND HILMAR ÞÓR Ossuri heilsað á þingi BSRB Meðal þeirra sem fluttu ávarp við setningu þings BSRS í gær voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Geir H. Haarde fjármálaráöherra. Borgarstjóri gaf sér tíma til að taka í höndina á Ossuri Skarphéðinssyni, formanni Samfyik- ingarinnar, við upphaf þingsins. Þing BSRB: Lagabreytingar á starf- semi bandalagsins - meðal tillagna sem lagðar verða fram Aðgangseyrir að velferðarþjón- ustu er ávísun á félagslegt misrétti, að mati Ögmundar Jónassonar, for- manns Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Þetta var meðal þess sem fram kom í ræðu hans við setningu 39. þings BSRB í Bíóborginni í gær. Þingið var þá í fyrsta skipti sett annars staðar en þinghaldið fer fram. Ögmundur telur að taka verði al- varlega þá hugmynd, sem fram kom í nýlegum bæklingi stjómvalda, að þegar fram líða stundir verði þjón- usta sem veitt er af einkareknum stofnunum fjármögnuð með not- endagjöldum. Með því sé verið að stuðla að félagslegu misrétti, hvort sem um er að ræða skóla, sjúkrahús eða elliheimili og samtök launafólks muni aldrei sætta sig við það. Þá mun BSRB leggja sitt af mörk- um til samstarfs um framtíð félags- þjónustunnar í landinu á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og er kjörorð þingsins því „Bætum samfélags- þjónustuna". Að mati Ögmundar er einnig brýnt að bæta stöðu langveikra bama verulega og endurreisa þarf hið félagslega húsnæðiskerfi. Þá leggur hann til að að öll launasam- tök í landinu sameinist um öfluga hagfræðistofnun sem hefði það verkefni að koma á framfæri upp- lýsingum til launafólks í landinu. Með því væri hægt að stuðla aö vandaðri, upplýstri og lýðræöislegri þjóðfélagsumræðu. Seðlabankinn og Þjóðhagsstofnun hafi ekki reynst þeim vanda vaxnar. Þing BSRB mun standa yfir til 28. október og meðal mála, sem liggja fyrir þinginu, eru tillögur um laga- breytingar sem miða að því að gera starfsemi á vegum bandalagsins markvissari og stjórnkerfi þess lýð- ræðislegra. Einnig mun umræða um kjara- og efnahagsmál skipa stóran sess á þinginu þar sem samn- ingar við ríkið eru lausir 1. nóvem- ber næstkomandi. -MA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.