Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 36
Smíöabekkir, eldhús, þvottahús og fleira skemmtilegt fyrir börnin. Sími 567 4151 & 567 4280 Heildverslun með leikföng og gjafavörur FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá I sfma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið t hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Mjólkurfræðingar krefja forstjóra um svör - funda á laugardag Mjólkurfræðingar munu halda fund í sínum röðum á landsvísu á laugardag í Reykjavík og eru komnir í viðræður " við vinnuveitendur sem þeir telja að eigi að skýrast fyrir helgi. „Við höfum ákveðinn forgang til ákveðinna starfa í okkar grein í mjólkuriðn og sömdum skýrt um það i kjarasamningum árið 1994 - að ákveðin störf sem snúa að pökkun og stjómun pökkunarvéla séu í okkar höndum,“ sagði Geir Jónsson, formaður mjólkurfræðingafélagsins við DV. „Þetta viðurkenna menn ekki, þetta byrjaði hjá KEA og Samtök at- vinnulifsins taka undir að atvinnurek- endur geti sinnt þessu með umsjón okkar manna. Þetta getum við ekki sætt okkur við - að okkur sé hent út fyrst verið er að manna þessar stöður," sagði Geir. Hann segir málið snúa að mjólkuriðnaðinum í öllu landinu. For- ,_-jstjórar og sambandsstjórar stærstu mjólkursamlaganna eru að vinna að þvl að svara spumingum mjólkurfræð- inga fyrir helgi. -Ótt Best og verst klæddu karlarnir í Fókus á morgun verður birt ít- '~~rarleg úttekt á því hverjir eru best og verst klæddu karlarnir á íslandi, hljómsveitin Mínus ræðir um nýju plötuna og rokkið almennt og skoð- uð verða nokkur sérstök manna- nöfn á íslandi. Ballettdansararnir Jóhann Freyr Björgvinsson og Cameron Corbett segja frá hlut- skipti ballettdansaranna og skoðað verður hverjir hafa oftast verið í Hverjir voru hvar-dálkinum. Þá er rýnt í hvað þarf að gera til að kom- ast inn á skemmtistaðina í miðborg- inni, sem er enginn leikur lengur, svo eitthvað sé nefnt. Lífíð eftir vinnu er á sínum stað, þrælná- kvæmur leiðarvísir um skemmtana- og menningarlifið. Gamlir leikmunir DVMYND 'ngó Leikmunaveröir hafa að undanförnu veriö aö taka til í leikmunageymslu sjónvarpsins. Ýmsir skemmtilegir munir hafa grafist úr gleymsku og sumir þeirra væru aö öllum líkindum best geymdir á Þjóðminjasafninu. Skoðanakönnun DV: Ánægjuefni að fólki líði vel Laufey Steín- grímsdóttir. „Það kemur mér í sjálfu sér ekki á óvart að fólk sé ánægt með holda- far sitt. Það hlýtur að vera ánægjuefni að fólki líði vel og sé sátt við sitt,“ seg- ir Laufey Stein- grímsdóttir, for- stöðumaður Mann- eldisráðs, um nið- urstöður skoðanakönnunar DV þar sem spurt var hvort fólk væri sátt eða ósátt við eigiö holdafar. í stuttu máli eru niðurstöður könnunarinn- ar þær að 70% þjóðarinnar eru sátt við holdafar sitt. Laufey bendir á að rannsóknir sýni að þjóðin sé að þyngjast. „Mér hefði þótt forvitnilegt að vita hversu margir aðspurðra eru að reyna að grenna sig eða hafa reynt það. Umframþyngd þarf ekki að vera skaðleg ef fólk lifir heilbrigðu lífi, hreyfir sig reglulega og borðar hollan mat. í því sambandi getur verið mikilvægt að fólk sætti sig við líkamsþyngd sína og leitist við að lifa heilbrigðu lífi án þess að vigt og fatanúmer hafi þar úrslitaáhrif," segir Laufey Steingrimsdóttir. Sjú bls. 4 og 6 -aþ Enn ein úttektin á starfsháttum Heilbrigðiseftirlits Suðurlands: Fulltrúarnir í fjölmiðlabann - heilbrigðisnefndin sjái um „formleg samskipti“ við fjölmiðla Ráðgjafarstofan KPMG leggur til að formaður Heilbrigðisnefnd- ar Suðurlands annist „formleg samskipti“ við fjölmiðla í stað framkvæmdastjóra þess. Þetta kemur m.a. fram í nýrri úttekt KPMG á starfsemi Heilbrigðiseft- irlits Suðurlands. Eins og DV hefur greint frá hafa heilbrigðisfulltrúarnir mátt sæta stöðugum rannsóknum og úttektum að undirlagi heilbrigð- isnefndar. Á síðasta ári fór nefnd- in fram á rannsókn umhverfis- ráðuneytis á starfsháttum heil- brigðisfulltrúanna. Þá vísaði hún málinu einnig til rannsóknar hjá lögreglu. Loks tók hún tiltekið mál úr höndum heilbrigðiseftir- litsins og vísaði til Hollustu- verndar sem vísaði því til baka. Úrskurðir þessara aðila voru að starfshættir heilbrigðisfulltrú- anna væru með eðlilegum hætti. Á fundi i apríl sl. tók heilbrigð- isnefnd svo ákvörðun um að leita álits lögfræðings á stööu sinni gagnvart heilbrigðisfulltrúunum. Þá fól heilbrigðisnefndin endur- skoðunar- og ráðgjafarstofu KPMG að gera úttekt á heilbrigð- iseftirlitinu. Sú úttekt liggur nú fyrir ásamt tillögum sem KPMG telur vera til úrbóta. í helstu niðurstöðum úttektar- innar segir m.a. að meiri hluti þeirra eftirlitsþega sem KPMG ræddi við í síma var ánægður með þjónustu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og viðmót starfs- manna þess. Þá segir í úttektinni, að samskiptum heilbrigðisfull- trúa við fjölmiðla hafi verið ábótavant miðað við fyrirmæli laganna og „hefð á öðrum eftir- litssvæðum“. Enn fremur segir að mikið vanti upp á að samskipti heil- brigðisnefndar og heilbrigöisfull- trúa, einkum framkvæmdastjóra eftirlitsins, séu eins og best verði á kosið. Skilgreina þurfi betur hlutverk aðila og hver æskileg ábyrgðarsvið þeirra séu. Þá hafi komið fram skiptar skoðanir á aðkomu framkvæmdastjóra Sam- taka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) að starfsemi heilbrigðis- eftirlitsins. Tekið er fram að ekk- ert bendi þó til þess að fram- kvæmdastjóri SASS né heilbrigð- isnefndin hafi reynt að hafa áhrif á faglega starfsemi heilbrigðiseft- irlitsins.Bæta þurfi stjórnun inn- an heilbrigðiseftirlitsins, svo og skráningarmál. KPMG leggur til að stofnaður verði vinnuhópur um stjórnun og skipulag heilbrigðiseftirlitsins. Skipulag, stjórnun og fram- kvæmd heilbrigðiseftirlits á öðr- um stöðum verði könnuð og æski- legar breytingar á skipulagi og framkvæmd Heilbrigðiseftirlits Suðurlands gerðar í framhaldi af því. -JSS Halldór Heimir var talinn af í 12 ár en birtist skyndilega: Skjaldborg slegiö um týnda soninn „Þeirri spumingu verður aldrei svarað," segir Kristín ísleifsdóttir, syst- ir Halldórs Heimis ísleifssonar, týnda læknissonarins frá Hvolsvelli, spurð um það hvað vakað hafi fyrir honum með því að láta ekkert vita af sér í rúm 12 ár. Frétt DV um endurkomu manns- ins í gær vakti gifurlega athygli og fjöldi manns hefur haft samband við blaðið og viljað vita hvar maðurinn hélt sig öll þessi ár. Árið 1988 var hann talinn af og foreldrar, vinir og systkini syrgðu hann. Halldór Heimir hringdi síðan heim til íslands fyrir hálfum mánuði. Læknisbústaöurinn á Hvolsvelli. Þarna bjó Halldór Heimir. Skömmu eftir að hann hvarf var fjallað um málið í íslenskum gölmiðl- um og getgátur voru um að hann hefði gengið til liðs við sértrúarsöfnuð og síðan verið myrtur. Náinn aðstandandi sem DV ræddi við sagðist ekki trúa þeirri kenningu. „En ef svo er þá mun- um við nú hjálpa honum að snúa til sannrar kristni," sagði ættinginn. Halldór Heimir stundaði hagfræöi- nám í Texas þegar hann hvarf skyndi- lega og fannst ekki þrátt fyrir leit. Á sameiginlegum fundi fjölskyldunnar í fyrrakvöld var ákveðið að slá skjald- borg um hinn týnda. Systir hans Krist- ín ísleifsdóttir, kennari við Listahá- skólann, var skipuð talsmaður fjöl- skyldunnar. „Það verður ekki sagt meir. Þetta er fjölskyldumál," sagði Kristín í morgun. Nánar á bls. 2 -rt brother P-touch 9400 Stóra merkivélin sem þolir álaglð 10 leturgerðir margar leturstærðir 16 leturstillinpar prentar i 10 linur borði 6 til 36 mm Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport Gæði og glæsileiki smort (sólbaistofa) Grensásvegi 7, sími 533 3350.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.