Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 4
4 Fréttir MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000 I>V Skiptar skoðanir um byggingu íþróttahúss á Hvammstanga: Menningarfólk gegn íþróttahúsi DV. HVAMMSTANGA:____________________ Mjög skiptar skoðanir eru um þau áform meirihluta sveitarstjómar Húnaþings vestra að ráðast í bygg- ingu íþróttahúss á Hvammstanga. Á fundi menningar- og æskulýðsráðs í síðasta mánuði var mælt gegn fyrir- hugaðri íþróttahússbyggingu á þeirri forsendu að hingað til hefði sveitarfélaginu ekki tekist að tryggja nægjanlegt fjármagn til frágangs, viðhalds og rekstrar þeirra íþrótta- mannvirkja sem fyrir eru, svo sem vallanna uppi í Kirkjuhvammi og á Reykjum. Allmiklar umræður uröu um þessa fundargerð á fundi sveitarstjómar nýlega. Elín R. Líndal oddviti lagði fram bókun þar sem borin er til baka fullyrðing frá nefndum fundi menn- ingar- og æskulýðsráðs um að „erfið- lega gangi að fá fjármagn til reksturs og viðhalds þeirra mannvirkja sem fyrir em“, og segir Elín þær fullyrð- ingar út í hött, þar sem á þessu ári verði varið 20,8 milljónum til æsku- lýðs- og íþróttamála, nær þrefalt því sem varið var til málaflokksins á ár- inu 1998. Og alls vom framlög til við- halds íþróttamannvirkja orðin á þessu ári 7,724 milljónir, 21. septem- ber sl. Ólafur Óskarsson í Víðidalstungu, einn fulltrúi minnihlutans, vakti at- hygli á því að meirihluti fagnefndar sveitarstjórnar mælti gegn byggingu íþróttahúss á Hvammstanga. Tók Ólafur undir þessi sjónarmið og sagði íþróttahússbygginguna fráleita. Þorsteinn Helgason á Fosshóii lagði fram langa bókun og telur að sveitarsjóður sé ekki í stakk búinn að ráðast í svo stóra framkvæmd og við það mundu skuldir sveitarfélags- ins vaxa þannig að óvarlegt sé. Hann segir enn fremur að almenna sam- stöðu um málið skorti. Síðan segir Þorsteinn í bókun sinni: “Einnig fer íbúum fækkandi ár frá ári og því miður er ekki að sjá neina breytingu á því á næstunni. Þá er gott íþróttahús á Laugarbakka sem dugir okkur alveg við þær aðstæður sem við búum við í dag þannig að bygging íþróttahúss yrði offjárfesting sem engan veginn er hægt að verja við núverandi aðstæður," sagði Þor- steinn og jafnframt að nær væri að sameina fólk heldur en að sundra því. -ÞÁ Rjúpnaveiðin: Fáir fuglar og dreifðir „Ég man eftir þessu ástandi áður, það er mjög lítið um fugl og hann er dreifður mjög um landið. Það þarf að kólna ogsnjóa til að hann þétti sig,“ sagði Sigmar B. Hauksson formaður Skotveiðifélags ís- lands í samtali við DV í gærkvöld. Rjúpnaveiðin hefur verið sáralítil víða um land það áem af er tímabilinu og margir hafa fengiö lítið sem ekkert. Líklega hafa verið skotnar á milli 6000 og 7000 þúsund rjúpur, sem þykir ekki mik- ið. „Fuglinn er í hæstu hæðum og er mjög dreifður þar, þama er nóg fyrir fuglinn að bíta og brenna. Ef maður kíkir í veiðibækur kemur þetta ástand fyrir á fjögurra til flmm ára fresti, svo maður hefur séð þetta ástand áður. Það mesta sem ég hef frétt eru 40 rjúpur, en sjálfur hef ég fengið lítið, ætli mað- ur fari nokkuð að ráði fyrr en kóln- ar og fer að snjóa,, sagði Sigmar B. í lokin. Skortveiðimenn sem DV - beðið eftir snjó og frosti ræddi við um helgina voru á sama máli og formaður Skotveiðifé- lagsins, lítið hefur sést og veiðast af fugli. Og hann er mjög dreifður í því fíðarfari sem núna er um landið. Þetta gæti breyst næstu daga, allavega fyrir norðan, þar er spáð kólnandi veðri. „Ég fékk mér góðan labbitúr vestur í Döl- um og ég sá ekki fugl, hvað þá spor eftir hann. Þetta gerðist lika hjá mér fyrir hálf- um mánuði,, sagöi veiðimaður sem var Búðardal, á leiðinni suður fyrir heiðar, rjúpnalaus eftir helg- ina. Og annar var við veiðar í Öxarfirði og þar hafði hann haft 9 fugla, eftir tveggja daga veiði. -G.Bender DV-MYND BENOER Kátur veiðimaöur Þessi veiöimaöur er himinlifandi meö veiöi sína. Aörir eiga erfiöari tíma og flengjast um fjöll án þess aö fá fugl. Svo viröist sem eyöublaöahönnuöir Hagstofunnar kunni ekki stafrófiö. Öll trúfélög íslands eru hér skráö í stafrófsröö nema þjóökirkjan sem er talin fyrst. Ástæöan er sú aö sam- kvæmt lögum er þjóökirkjan ekki skráö trúfélag. íslensk lög: Þjóðkirkjan er ekki skráð trúfélag Á eyðublaði því sem fólk fyllir út hjá þjóðskrá Hagstofu íslands, þegar það skráir sig i trúfélag eða utan þeirra, virðist sem hönnuður blaðsins hafi aðeins ruglast í stafrófinu sínu. Öllum 23 trúfélögunum sem skráð voru hjá Hagstofunni hinn 1. janúar 2000 er raðað i stafrófsröð á eyðublað- inu, nema þjóðkirkjunni, sem er skráð fyrst, á undan Ásatrúarfélaginu og Zen á íslandi - Nátthaga. Hjá Hagstofunni fengust þau svör að lögum samkvæmt væri þjóðkirkjan ekki og hefði aldrei verið skráð trúfé- lag. Þar af leiðandi var ekki með réttu hægt að setja þjóðkirkjuna meðal trú- félaganna þegar eyðublaðið var hann- að. Þá var brugðið á það ráð að setja þjóðkirkjuna fyrst og telja svo hin réttnefndu skráðu trúfélög upp í staf- rófsröð á eftir þessari algengustu trú íslendinga. Hins vegar fellur skráning manna innan þjóðkirkjunnar undir lög um skráð trúfélög íslands. -SMK Austfirskar verk- smiðjur græða á kolmunnanum í gær höfðu borist 220 þúsund tonn afkolmunnatilbræðsluhjá fiskimjöls- verksmiðjunum, þar af um 197 þúsund tonn frá íslenskum skipum. Hraðirystihús Eskifjarðar hefúr tek- ið á rrióti 50 þúsund tonnum af kolmunna til bræðslu á árinu, Síldar- vinnslan í Neskaupstað hefur tekið á móti rúmlega 43 þúsund tonnum og SR- mjöl hf. á Seyðisfíröi tæpum 42 þúsund tonnum. Hjá þremur verksmiðjum SR- mjöls hf. á Seyðisfirði, í Helguvík og á Raufarhöfn var alls búið að taka á móti 50.200 tonnum af kolmunna það sem af er vertíðinni. -DVÓ Veörið i kvöld Lægir austan til Að mestu þurrt á Suövestur- og Vesturlandi en vætusamt í öðrum landshlutum. Lægir talsvert austan til á landinu er kemur fram á morgundaginn. Hiti 1 til 10 stig, mildast syöst. Sólargangur og sjávarfoll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 17.17 Sólarupprás á morgun 09.08 Síódegisflóö 20.13 Árdegisflóó á morgun 08.33 16.51 08.04 00.46 13.06 ^♦''.VINDÁTT “■"\viNDSTYIIKUR í metriim á sekúnðu IOTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO RIGNING SKÚRift ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR Nfrost hbðskirt £3 0 SKÝJAÐ AISKÝJAO SLYDDA SNJÓKOMA SKAF- ÞOKA RENNINGUR Skýríngar á veðurtáknum 10V-Hm -10° Vindm Vindurinn Vindurinn hefur veriö aö láta finna fyrir sér á síöustu dögum. Hann blés þó ekki eins hressilega og geröist á Washingtonfjalli í New Hampshire í Bandaríkjunum áriö 1934 en þá mældist mesti vindhraöi sem mælst hefur í heiminum og var hann 362 km/klst. Veöriö a niorgun Skúrir og rigning Norðan og noröaustan 8 tiil 13 m/s en 13 til 18 norðvestan til. Víöa skúrir eöa rigning, einkum norðan- og austan til. Hiti 1 til 6 stig. Miðviktula Vindur: 13-18 r J rþjT Hiti 1° til 6° Fimmttubi Vindur: 13—18 m/% Hiti 1° til 6 m Noröan 13 til 18 m/s og slydda eöa snjókoma meö köflum noröan til en fremur bjart sunnan- og suövestanlands. Kólnandl veöur og frystir víöa. Noröan 13 til 18 m/s og slydda eöa snjókoma meö köflum noröan til en fremur bjart sunnan- og suövestanlands. Kólnandi veöur og frystir víöa. Fostiiclagi iit Vindur. 3-13 m/s\ Hiti 1° tii 6° «4 Norölæg átt, 8 tll 13 m/s og slydda eða snjókoma norðan tll en úrkomulaust sunnan til. AKUREYRI rigning BERGSSTAÐIR hálfskýjaö BOLUNGARVÍK rigning EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. skýjaö KEFLAVÍK skýjaö RAUFARHÖFN rigning REYKJAVÍK skýjað STÓRHÖFÐI alskýjaö 5 6 6 6 6 6 5 6 6 BERGEN skúr 9 HELSINKI snjókoma 2 KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 12 ÓSLÓ skýjaö 9 STOKKHÓLMUR slydduél 10 ÞÓRSHÖFN skúr 9 ÞRÁNDHEIMUR úrkoma 5 ALGARVE léttskýjaö 20 AMSTERDAM skýjaö 10 BARCELONA mistur 20 BERLÍN léttskýjaö 15 CHICAG0 hálfskýjaö 4 DUBLIN rigning 7 HAUFAX alskýjaö 8 FRANKFURT skýjaö 13 HAMBORG skýjaö 12 JAN MAYEN skýjaö 4 LONDON hálfskýjaö 12 LÚXEMBORG skýjað 11 MALLORCA léttskýjaö 23 MONTREAL alskýjað -1 NARSSARSSUAQ heiöskírt -6 NEW YORK heiöskírt 4 ORLANDO þokumóöa 13 PARÍS skýjaö 13 VÍN skýjaö 20 WASHINGTON léttskýjaö 13 WINNIPEG heiöskírt 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.