Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000 DV Utlönd u Hófsamir lýsa yfir sigri í sveitarstjórnarkosningum í Kosovo: Vilja sjálfstæði frá Serbíu strax Ibrahim Rugova, leiötogi hóf- samra Albana, lýsti í gær yfir sigri í fyrstu lýðræðislegu kosningunum í Kosovo og sagði að héraðið ætti skilið að fá sjálfstæðí frá Serbíu strax. Fulltrúar Öryggis- og samvinnu- stofnunar Evrópu (ÖSE) sögðu að fyrstu bráðabirgðaúrslit sveitar- stjómarkosninganna, sem haidnar voru á laugardag, yrðu birt í dag. Rugova sagði hins vegar að flokkur hans, Lýðræðisbandalag Kosovo (LDK), hefði farið með sigm- af hólmi. Serbneski minnihlutinn í Kosovo sniðgekk kosningarnar. „Ef tekið er mið af bráðabirgðaúr- slitum fékk LDK sextíu prósent at- kvæða,“ sagði Rugova við frétta- menn i gær. „Þetta er staðfesting og viðurkenning á stefnu LDK.“ Hann sagði að niðurstaða kosn- inganna veitti Kosovo rétt til að öðl- ast frelsi frá Serbiu, stærsta lýð- Rugova með trefilinn Ibrahim Rugova, leiðtogi hófsamra Albana í Kosovo, lýsti yfír sigri í sveitarstjómarkosningunum. veldi júgóslavneska sambandsríkis- ins. Kosovo hefur verið undir stjórn sérstakrar nefndar á vegum Sam- einuðu þjóðanna frá miðju ári 1999, í kjölfar ellefu vikna langra loft- árása fhigflota Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) á hersveitir Serba og skotmörk í Serbíu. Að þeim árás- um loknum hörfuðu serbnesku her- sveitimar sem höfðu áður stundað þjóðemishreinsanir gegn albanska meirihlutanum. Formælendur friðargæslusveita NATO sögðu að laugardagurinn hefði verið einhver rólegasti dagur frá þvi þeir gæsluliðar komu til landsins. Nítján stjómmálaflokkar Albana í Kosovo vilja allir að héraðið fái sjálfstæði og stundum bar kosninga- baráttan þess merki að fátt annað skipti máli. Kjörsókn Albana var góð og biðu margir klukkustundum saman við kjörstaðina. Færeyjar öðlist sjálfstæði í smáskömmtum: Krossar og bannaður þjóðernisfáni í Hvíta-Rússlandi Þúsund Hvít-Rrússar gengu fylktu liði með krossa og bannaða fána þjóðernissinna frá höfuðborginni Minsk til nær- liggjandi skóglendis til að minnst fórnarlamba Jósefs Stalíns og stjórnar hans í Sovétríkjunum. Þúsundir Hvít-Rússa féllu fyrir sovéskum sérsveitum á árunum 1937 til 1941. Færeyskir stjórnmálamenn lítt hrifnir af tillögum Nyrups Nýjustu hugmyndir Pouls Nyrups Rasmussens, forsætisráðherra Dan- merkur, um sjálfstæði Færeyja falla i grýttan jarðveg meðal færeyskra stjómmálamanna. Danski forsætisráðherrann til- kynnti eftir að fjórða lota sjálfstæð- isviðræðna færeysku landstjómar- innar og stjómvalda í Kaupmanna- höfn rann út í sandinn á fimmtu- dagskvöld að hann vildi taka aftur upp viðræður um nýja skipan mála í Færeyjum. Hann nefndi í því sam- bandi að Færeyingar tækju smám saman yfir málaflokka sem Danir hafa farið með til þessa. „Á þennan hátt endar það með því að Færeyjar fá fullt sjálfstæöi," sagði í tillögum Pouls Nyrups. Stjóm og stjómarandstaða í Fær- eyjum eru ekki hrifnar af tillögum Nyrups. Anfinn Kallsberg, lögmað- Nyrup vekur litla hrifningu Færeyskir stjórnmálamenn eru ekki mjög hressir með tillögur danska forsætisráðherrans um sjálfstæði. ur Færeyja, segir að landstjómin hafi ekki enn gefið það upp á bátinn að sjálfstæðisáform hennar nái fram að ganga á þessu ári. Kallsberg tilkynnti á fimmtudagskvöld að boð- að yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta ári um sambandsslit við Dan- mörku. Formenn stóm stjórnarandstöðu- flokkanna tveggja í Færeyjum, Joannes Eidesgaard frá Jafnaðar- mannaflokkinum og Edmund Joen- sen frá Sambandsflokkinum, telja ekki að tillögur Nyrups séu rétta leiðin til að koma á nýrri skipan sambandsins milli Færeyja og Dan- merkur. Flokkamir tveir hafa báðir lagt fram tillögur um framtíðarskip- an sambands Færeyja og Danmerk- ur. Formennimir sögðu að þeir vildu fyrst og fremst halda sig við þær en útilokuðu ekki tilslakanir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.