Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Blaðsíða 2
2 Fréttir MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 ----------------5v Beiskja og reiði framhaldsskólakennara í garð ráðherra: Hatt i helmingur kennara í önnur störf - aðstoðarskólameistarinn í Flensborg farinn að kenna í grunnskóla Kosið um flugvöll Borgarráð sam- þykkti í gær að stefnt skuli að því að at- kvæðagreiðsla borg- arbúa um framtíðar- nýtingu Vatnsmýrar og staðsetningu Reykjavíkurflugvall- ar fari fram hinn 3. febrúar 2001 án þess að ákveða þó um hvaða kosti borgarbúum verði gert að velja. „Ef forstjórinn i fyrirtækinu tal- ar svona við starfsfólkið hvers vegna ætti það þá að vinna hjá honum?“ spyr Magnús Þorkelsson, aðstoðarskólameistari í Flensborg- arskóla í Hafnarfirði, sem er að fá sig fullsaddan af verkfalli fram- haldsskólakennara, og þá sérstak- lega því sem hann kallar harkaleg- ar yflrlýsingar og heift mennta- málaráðherra og yfirvalda í garð kennara. „Margir eru orðnir ógur- lega fúlir yfir viðhorfum ráðherra og ég veit til þess að kennarar ílykkjast nú daglega inn á heima- síðu hans til þess eins að ergja sig,“ segir Magnús sem er alvar- lega að hugsa um svipast um eftir Aðstoöarskólameistarinn í Flensborg Magnús Þorkelsson gerir klárt fyrir jólin og íhugar alvarlega aó skipta um starfsvettvang. nýju starfi og starfsvettvangi ef verkfallið dregst enn frekar á lang- inn. Hann er þegar farinn að kenna börnum i Setbergsskóla til að halda sönsum, eins og hann orð- ar það sjálfur. Kannanir framhaldsskólakenn- ara sýna að um 40 prósent þeirra sem voru við kennslu fyrir verkfall hafa ráðið sig í aðra vinnu. Því lengra sem verkfallið dregst á lang- inn því ólíklegra er að kennaram- ir snúi aftur til vinnu að því loknu: „Ég verð var við vaxandi von- leysi hjá kennurum, nemendum og foreldrum. Það verður skelfilega erfitt að fá fólkið aftur til kennslu og ekki síður að halda áfram skóla- starfinu þar sem frá var horfið. Ég trúi því vel að hartnær helmingur framhaldsskólakennara hafi ráðið sig til nýrra starfa. Mannskapur- inn þarf jú að bjarga sér,“ segir Magnús, aðstoðarskólameistari í Flensborg. Mikil eftirspurn er eftir starfs- kröftum framhaldsskólakennara enda eru þeir flestir sérmenntaðir á ýmsum sviðum, svo sem í verk- fræði, tölvunarfræði, veðurfræði og viðskiptafræði, svo eitthvað sé nefnt. Sjálfur er Magnús, aðstoðar- skólámeistari i Flensborg, forn- leifafræðingur og sagnfræðingur að mennt og auk þess vel tölvu- menntaður. -EIR Komlnn til byggða dv-mynd e.ól Fyrsti jólasveinninn kom til byggða í gær og þaö hýrnaöi yfir börnunum í leikskólanum Steinahlíö þegar Stekkjarstaur leit í heimsókn til þeirra og lék á als oddi. Engihjallamálið þar sem ákæruvaldið krefst sakfellingar fyrir manndráp: Sýknu er krafist á grundvelli vafaatriða - segir verjandi - ákærði viðurkenndi ábyrgð á dauða hinnar látnu, segir sækjandi Hart var tekist á í Héraðsdómi Reykjaness í gær af hálfu ríkissak- sóknara og verjanda 24 ára íbúa í Ölfushreppi sem ákærður er fyrir manndráp með því að hafa ýtt Ás- laugu Perlu Kristjónsdóttur, 21 árs, yfir 119 cm hátt handrið á svölum á 10. hæð fjölbýlishússins að Engi- hjalla 9 i Kópavogi að morgni laug- ardagsins 27. maí síðastliðinn. Stúlkan lést af völdum mikilla áverka er hún lenti á steinstétt við bakdyrainngang hússins. Mjög greinilega kom fram í rétt- arhaldinu i gær að tvö gjörsamlega ólík sjónarmið eru sett fram af hálfu ákæruvalds og varnar. Kolbrún Sævarsdóttir krefst fullrar sakfell- ingar fyrir manndráp en verjandinn krefst sýknu. Þetta hefur talsvert leitt huga lögfróðra að því hvort dómurinn muni standa frammi fyr- ir því - með hliðsjón af vafaatriðum - að sýkna sakborninginn af ákæru um manndráp með ásetningi en sak- fella fyrir líkamsárás sem leiðir til dauða. Þarna getur verið um 6-8 ára mun á fangelsisrefsingu að ræða. Óttar Sveinsson Vettvangur Hótaði að drepa börn lög- reglumanna í réttarhaldinu í gær lýstu lög- reglumenn því hvernig ákærði hót- aði því að drepa börn þeirra eftir að hann losnaði úr fangelsi eftir 10-15 ár. Þessi ummæli hafði hann m.a. í frammi í lögreglubil á leiðinni frá Engihjalla 9 þar sem hann var handtekinn í íbúð í sama húsi þar sem hann hafði sofnað eftir að Ás- laug Perla fór fram af svölunum á 9. hæð. í réttarhaldinu í gær hélt Kol- brún Sævarsdóttir frá rikissak- sóknara því fram að ásetningur ákærða virðist hafa myndast eftir að stúlkan synjaði honum um að hafa við hann kynmök. Hún hefði verið fislétt, um 55 kíló og fingerð, í víðum buxum. Ákæruvaldið telur „öll gögn“ benda til að ákærði hafi ýtt Áslaugu Perlu yfir handriðið. Hann hafi borið hjá lögreglu að hann bæri ábyrgð á dauða hennar en hafi ekki viljað greina frá hvernig það hefði borið að. Kolbrún sækjandi benti jafn- framt á að ákærði hefði hegðað sér eins og sekur maður eftir atburð- inn - ekki sist með tilliti til hvern- ig hann kom fram við lögreglu- mennina - hann hefði heldur ekki getað skýrt hvernig það bar að að stúlkan fór fram af svölunum. Kol- brún sagði að ekkert benti til að stúlkan hefði verið í sjálfsvígshug- leiðingum. Hjá sækjandanum kom einnig fram að ákærði hefði neitað því að fara á vettvang á svölunum í Engihjalla til að lýsa því nánar hvað þar hefði gerst. Hann neitaði einnig að gangast undir geðrann- sókn. Foreldrarnir krefjast þriggja milljóna Réttargæslumaður foreldra Ás- laugar heitinnar fara fram á það fyrir hönd þeirra að ákærði greiði þeim samtals rúmar 3 milljónir króna í skaða- og miskabætur enda sé slíkt í samræmi við lög þar sem um manndráp er að ræða eða stór- kostlegt gáleysi. Erlendur Gislason, verjandi ákærða, lagði þunga áherslu á það í málflutningi sínum fyrir fjölskip- uðum dómi héraðsdóms í gær að ákærði yrði að njóta þess mikla vafa sem í málinu er. Það væri m.a. reginmisskilningur og einungis „orðrómur í fjölmiðlum" að skjól- stæðingur hans hefði viðurkennt að hafa banað Áslaugu heitinni. “Það verður að gera ráð fyrir öllu,“ sagði Erlendur og átti við þrjá möguleika; manndráp, slys eða sjálfsvíg - þannig bæri ákæru- valdið hallann af skorti á sönnun- um sem í málinu væru. „Það eru engin áþreifanleg sönn- unargögn," sagði Erlendur. „Meg- inreglan er að skýra ákærða vafann í hag“. „Hér er ekki um harðsvíraðan af- brotamann að ræða en hann hefur farið á mis við lán í lífinu," sagði verjandinn. Hann sagði framburð ákærða hafa verið stöðugan og alls ekki ótrúverðugan. „Það er ákærðuvaldið sem ber sönnunarbyrði um það hvemig hún fór fram af,“ sagði Erlendur og lagði áherslu á að skjólstæðingur hans hefði stöðugt neitaö að hafa beitt hina látnu ofbeldi til að koma henni yfir handriðið á svölunum á 10. hæð í fjölbýlishúsinu í Engi- hjalla. Hækkun hjá AV Fargjöld Almenningsvagna bs. hækka að meðaltali um 11% hinn 2. janúar. Síðast var gjaldskrá breytt 1. febrúar 1999. Engin hækkun verður þó á verði græna kortsins. Ástæðan er sögð 16% hækkun almenns rekstrar- kostnaöar. ísfélagið greiði mismun Stj órn Atvinnuleysistryggingasj óðs samþykkti á fundi sínum í dag að hún mundi svara játandi ef Isfélagið bæði um að atvinnuleysisbætur starfsfólks yrðu lagðar inn á reikninga fyrirtækis- ins sem myndi þá greiða starfsfólki sínu kauptryggingu. Kauptryggingin er 93.000 krónur á mánuði en atvinnuleys- isbætur 63.000 krónur. Mismuninn verður ísfélagið að greiða sjáift. Rækjuvinnslu lokaö Ákveðið hefur ver- ið að loka rækjuvinn- nslu Hraðfrystihúss Eskifjarðar í janúar. Að sögn Emils Thorarensens útgerð- arstjóra, er ástæðan samdráttur í rækju- veiðiheimildum fyrir- tækisins. Þá er búið að binda togarann Hólmanes SU við bryggju og segja upp sex manna áhöfn. Endurskipulagning Mikil endurskipulagning fer nú fram hjá Genealogia Islandorum og er verið að flytja starfsfólk úr störfum hjá Genealogia Islandorum í störf hjá und- irfyrirtækjum þess, JPV-forlag, Sögu- steini og Islenska myndafélaginu. - Vísir greinir frá. Sýslumenn í stað presta Dómsmálaráðherra kynnti á ríkis- stjómarfundi í gær frumvarp til laga um breytingu á hjúskaparlögum frá 1993. Til þessa hefur vígslumaður, oft- ast prestur, séð um alla þætti kirkju- legrar hjónavígslu og þar með talið könnun á hjónavígsluskilyrðum. Gagnrýna hækkun útgjalda Samtök atvinnulífsins gagnrýna þá hækkun ríkisútgjalda sem gert er ráð fyrir í fjárlögum. Telja samtökin þetta öfugþróun og hvetja til hraðari einka- væðingar. Ýmsar blikur em nú á lofti í rækju- vinnslu en afurða- verð stendur ekki undir því háa hráefn- isverði sem nú við- gengst. Rækjuvinnslu er lokið fyrir jól hjá Skagstrendingi og byrjar ekki fyrr en í lok janúar. Blikur em á lofti í hráefnisöflun á nýju ári. Styðja kennara Stjóm Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er stuðningi við kjarabar- áttu Félags framhaldsskólakennara. - Vísir greinir frá. Svifryk í Reykjavík Þurrt og gott veður á höfuðborgar- svæðinu að undanfómu hefur haft í fór með sér að svifryk í andrúmsloftinu er mun meira en venulega og hefur farið hátt yfir viðmiðunarmörk að mati Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur. -HKr Blikur á lofti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.