Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2000, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 23 r töl !éi ii s: LU Lff vun tík n i ■í 09 1W V í s i nda WonderSwan Color á markaö í Japan: 300.000 eintök seld fyrstu vikuna - aöeins til í Japan Japanskir unglingar eru hvað duglegastir allra unglinga að spila tölvulelki sem gerir Japan að gósenlandi til að sjá hvort tölvur komi til með að meika það. Fyrir skömmu síöan kom á markaðinn í Japan ný teg- und af lófa- leikjavél sem nefnist Wonder- Swan Color. Þessi leikjavél er gerð af fyrirtækinu Bandai og ætlar fyr- irtækið sér stóra hluti á þessum markaði sem Nintendo hefur haft mikla yfirburði á. Síðasta leikja- tölvan til að keppa við Game Boy- vélina var NeoGeo-leikjatölvan sem var slegin af eftir stutt stopp. WonderSwan virðist vera að slá í Einrs afþeim leikjum sem eru fáanlegir fyrir véiina strax er útgáfa af leiknum víðfræga Final Fantasy ogvirð- ist sem það haffheld- ur betur hjálpað WonderSwan þar sem leikurinn hefur selst í jafnmörgum eintökum og leikjavélin. gegn hjá japönskum leikjavinum því vélin hefur selst gríðarlega vel eða í 300.000 eintökum á einni viku. Einn af þeim leikjum sem eru fáan- legir fyrir vélina strax er útgáfa af leiknum víðfræga Final Fantasy og virðist sem það hafi heldur betur hjálpað WonderSwan þar sem leik- urinn hefur selst í jafnmörgum ein- tökum og leikjavélin. Hvort að WonderSwan á eftir að gera Nintendo einhvem alvarlegan grikk á leikjamarkaðinum verður að koma i ljós en hvað sem gerist þá er öll aukin samkeppni til góðs fyrir neytendur, ekki sist þegar eitt fyrirtæki hefur haft yfirburðastöðu á markaði í langan tima eins og í þessu tilviki. Ekki er ljóst hvort WonderSwan kemur á markað í Evrópu eða Bandaríkjunum og fer það örugg- lega eftir því hvort vel gengur í Japan. Hakkari hakkar kortafyrirtæki - og stelur kreditkortanúmerum Hakkarar virð- ast aldrei taka sér frí og stöðugt berast fregnir af hökk- urum að hakka. I siðustu viku tilkynnti fyrirtækið Creditcards.com viðskiptavinum sínum aö hakkari hefði komist í gagnagrunn þeirra og komist yfir fullt af kreditkortanúmerum. Creditcards.com, sem sér um að geyma kortanúmer fyrir alls kyns netverslanir, sagði hakkarann hafa reynt að kúga fé út úr fyrirtækinu Það virðist ekki vera nóg að passa upp á kortið sitt því hakkarar virðast eiga greiðan aðgang inn í tölvukerfi kortafyrirtækja. með því að hóta því að birta kredit- kortanúmerin á Netinu. Fyrirtækið lét ekki undan hótunum hakkarans og birti hann þá númerin á Netinu. Creditcards.com hefur verið gagn- rýnt fyrir að segja ekki frá málinu fyrr og hafa margir viðskiptavinir fyrirtækisins hætt viðskiptum viö það vegna þess. Þetta mál er ekki einstakt því á síðasta ári gerðist sami hluturinn hjá fyrirtækinu Salesgate.com sem er svipað fyrirtæki og Creditcards.com og hafa þessi mál vakið athygli á lélegum öryggismál- um fyrirtækja af þessu tagi. PlayStation-leikurinn Driver 2: Gallað framhald - að mati margra netleikjamiöla Einn vinsælasti tölvuleikurinn fyrir PlayStation á síðasta ári var án efa snilldar- leikurinn Dri- ver. Þar fór sam- an frábær leikheimur og einstök leikhæfni sem hélt mörgu leikjafrík- inu fóstu í sófanum í nokkrar vikur. Reflections, fyrirtækið á bak við Driver, fór svo auðvitað út á þá braut að gera framhald af leiknum og er það komið út. Eitthvað virðist Driver 2 fara öf- ugt ofan í blaðamenn helstu net- Það sem mest er kvartað yfir eru tækni« leg atriði eins og að leikurinn hægi á sér í mesta hasarnum, að oft sjáist i gegnum veggi og annað sem á ekki að sjást í gegnum. leikjamiðla og eru dómar um leik- inn ansi slæmir. Ganga sumir svo langt að segja Driver 2 vera mestu vonbrigði ársins 2000. Það sem mest er kvartað yfir eru tæknileg atriði eins og að leikurinn hægi á sér i mesta hasamum, að oft sjáist í gegnum veggi og annað sem á ekki að sjást í gegnum og svo að byggingar skoppi upp eins og gorkúlur fyrir framan spilarann þar sem teiknifjarlægö leiksins sé engin. Sumir segja Driver 2 sýna fram á að PlayStation 1 sé bara orðin of kraftlítil til að heilla menn með graflskum flugeldasýningum. Hvað svo sem er satt í þessu öllu saman þá selst Driver 2 eins og heitar lummur um allan heim og er um að gera fyrir leikjavini að prófa bara leikinn áður en hann er keyptur. Það er mat sumra að PlayStation 1 sé úr sér gengin grafíklega séð og þar með virki leikir eins og Driver 2 ekki lengur á spilara. Glæsilegt úrval \ J Glæsilegt úrval af handunnum rúmteppum, dúkum, Ijósum og gjafavörum. Árshótíðadress fyrir börn og fullorðna, samkvæmisveski. . Matta rósin 20% afsl. . r Ti í l Pelsar í úrvali op» Sigurstjarnan virka daga 11-18, {fc>láu húsi við Fákafen. laugard. 11-16 Sími 588 4545. Raðhús óskast Raðhús í Staðahverfi í Grafarvogi óskast keypt. Þurfa aö vera 3-4 svefnherbergi. Tvöfaldur bílskúr æskilegur en ekki nauðsynlegur. sttSS, Jlk Upplýsingar í síma 893 3355. 14 ífguCísífirtfjripir. *• „ 71965 W-l 0,04 W/SI I W V 27326 0,04 W/SI 6n ko«)ju 9850,* \ T- t f-á» : 13459 Zfr. : 0,06 W/SI 1 13500,* ■ UJBMWItMMIUI '■'... ¥ ‘Miíqð úrvaí af demantsskartgrvpum dfrábczru verði. Sett með demöntum, fráBcert verð. (futfeða Fivítagutf. Sendum myndalista. <&,u (dfyöttin Laugavegi 49, sími 561 7740 JÓIdbækur 10-30% afsláttur Sími 525 3000 • Skútuvogi 16 *Fylgir ekki með barnabókum Moulinex blandari fylgir hverri bók.* HÚSASMIÐJAN Smáauglýsingar Markaðstorgið —allt til alls 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.