Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2001, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2001, Blaðsíða 1
15 Föstudagur 16. febrúar 2001 dvsport@ff.is Alda Leif lykilmaður í besta árangri Holbæk frá upphafi Alda Leif Jónsdóttir, sem leikur hjá Holbæk í Danmörku, komst með liði slnu í úrslitakeppnina um Danmerkurmeistara- titilinn sem hefst um næstu helgi. Alda Leif skoraði 18 stig þeg- ar Holbæk vann Stevnsgade, 81-55, í síðasta leiknum. Holbæk endaði í sjötta sæti en átta efstu liðin komust áfram. Þetta er besti árangur Holbækliðsins frá upphafl en liðið hefur unnið mjög á í vetur. Holbæk tapaði þannig flmm íyrstu leikjum sinum og níu af fyrstu 12 en endaði deildarkeppnina með því að vinna fjóra af síðustu sex leikjum sínum. Holbæk mætir Glostrup í átta liða úrslitunum en Glostrup varð í þriðja sæti. Holbæk vann leik liðanna 14. janúar síðastliðinn, 74-63, en Glostrup vann fyrri leik liðanna í október, 85-50. Fyrsti leikurinn er um helgina. Alda Leif er lyk- ilmaður á bak við þennan árangur; hún hefur stjórnað leik liðsins af röggsemi og var sem dæmi með 6,5 stoösendingar og 8 fráköst aö meðaltali í þessum tveimur leikjum gegn Glostrup. Alda Leif var með 11 stig, 6 fráköst, 4 stoðsend- ingar og 3,5 stolna bolta að meðaltali í deildinni í vetur. -ÓÓJ - féll Liverpool vann i gær 0-2 sigur á ítalska liðinu Roma á Ólympíuleikvanginum í Róm í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum UEFA-bikarsins, sigur sem ætti að duga liðinu til að komast áfram í næstu umferð. Roma er með sex stiga forustu á toppi ítölsku deildarinnar en varð í gær að sætta sig við fyrsta tapið á heimavelli í vetur og aðeins það annað í 28 heimaleikjum liðsins í Evrópukeppni félagsliða. Michael Owen var hetja enska liðsins og sýndi og sannaði með tveimur mörkum í seinni hálfleik að hann kemur sterkur inn að nýju eftir að hafa glimt við meiðsli í allan vetur. „Ég vissi að hann væri kominn aftur í sitt besta form og þegar hann leikur svona er alltaf mikil ógnun af honum því að hann getur alltaf skorað mörk,“ sagði Gerard Houllier, stjóri Liverpool, sem þama fagnaði einum mesta sigri sínum hjá félaginu. Liverpool á góðar minningar frá Róm en þar hefur liðið unnið tvo af fjórum meistaratitlum Evrópu og siðasti leikur liðsins í borginni á undan leiknum í gær var einmitt 1984 þegar liðið fagnaði síðasta sigri í Evrópukeppninni. í gær Liverpool batt í endahnútinn á sigursæla viku enskra liða í Evrópu en þrjú ensk lið unnu í vikunni og það fjórða, Manchester United, náði í miklvægt stig á útivelli. Jón Arnar Magn- ússon keppir á móti í Vín um helgina þar sem hann reyn- ir að tryggja sér þátttökurétt á HM innanhúss. IR vann prufuleikinn Miljkovic vill koma Vamarmaðurinn skeggjaði, Zoran Miljkovic, sem varð meðal annars íslandsmeistari fimm ár í röð (ÍA 1994-96 og ÍBV 1997-98), hefur mikinn áhuga á að koma aftur næsta sumar og spila hér á landi. Miljkovic lék með Vikingi í 1. deildinni í fyrra en nokkur lið hafa þegar sett sig í samband við kappann en hann heldur öllu opnu öðru en því að hann vUl leika í íslenska boltanum næstu tvö ár. -ósk -ÓÓJ Farmiði a HM i boði - Jón Arnar Magnússon keppir í sjöþraut í Vín um helgina Jón Amar Magnússon tugþrautarkappi er kominn til Vínarborgar í Austurríki til að taka þátt í austurríska meistaramótinu í fjölþraut. Hann mun freista þess að ná 6100 stigum í sjöþraut sem er það sem hann þarf til að tryggja farmiðann á HM innanhúss í næsta mánuði. DV-Sport hitti Jón Arnar á hóteli sínu í Vín þar sem hann var nýbúinn að koma sér fyrir eftir íremur langt ferðaiag. „Ég er kominn til Vínar til þess að reyna að tryggja farmiðann á HM í mars. Það eru sennilega fjórir gulltryggðir inn, en það mega átta sjöþrautarkappar keppa á mótinu. Ég er sem stendur í sjöunda sæti yfir samanlagðan árangur úr fjölþraut, það er tugþraut og sjöþraut. Ég veit ekki hvort þeir miða við árangurinn í tugþraut eða sjöþraut. Minn besti árangur í sjöþraut í ár er 6056 stig sem ég hlaut í Tallinn í Eist- landi fyrir stuttu og er það fimmti besti ár- angur ársins." Olli sú þraut þér vonbrigðum? „í rauninni ekki. Þúsund metra hlaupið heföi mátt vera betra, en þetta var fyrst og fremst til að yfirstíga sálræna hlutann. Að komast í gegnum þraut án þess að meiðast. En mér hefur gengið vel að undanfórnu, til dæmis um síðustu helgi á meistaramótinu. Þannig að þetta er að komast af stað aftur.“ Hvernig hefur verið að œfa þjálfara- laust síðan i haust? „Það hefur bara gengið mjög vel. Ég hef- ur fengið góða hjálp hjá hinum og þessum og þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem ég hef haft æfingafélaga sem slíka. Fyrir norðan var ég nánast alltaf einn. í hvernig formi ertu i núna, saman- boriö við Ólympiuleikana? „Ekki í verra formi heldur en þá. Ég byrjaði að vísu frekar seint að æfa, en það var fyrst og fremst til að jafna sig andlega eftir leikana. En það virðist ekkert vera neitt míkið lakara." Hversu mikla þýðingu hefur þetta mót fyrir þig? „Þetta er ekki spursmál upp á líf eða dauða. Ég hengi ekkert haus þótt ég kom- ist ekki inn á HM í næsta mánuði. Það væri gaman að geta skorað vel um helgina og þar af leiðandi að geta komist á HM, en þegar upp er staðið verður maður einfald- lega að gera sitt besta. Það verður af nægu að taka í sumar, til að mynda heimsmeist- aramótið utanhúss. Ég tek nú bara fyrir eitt ár í einu, þannig að upp á framtíðina að gera verð ég bara að sjá tii hvernig mér gengur i ár og ákveða fram- haldið upp frá því.“ Hvaó myndirðu segja að vœri ásœttanlegur árang- ur fyrir þig núna um helg- ina? „Allt yfir 6100 stigum yrði ég mjög ánægður með. Það fer lika eftir því hvernig mót- ið er, hvort það verða sterkir einstaklingar að keppa við mig. Austurríkismenn eru ekk- ert mjög hátt skrifaðir í fjöl- þrautaheiminum, en þeir eiga þó sína menn sem eru sterkir hver í sinni grein,“ sagði Jón Arnar Magnússon í viðtali við DV-Sport í gær. -esá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.