Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 8
26 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 Sport Jón Örn Guðmundsson, þjálfari ÍR: Stoltur - af ungu strákunum sem stóðust álagið Jón Örn Guðmundsson, þjálfari ÍR, var að vonum kampakátur með sigurinn. Hann er fyrsti þjálfari félagsins sem nær þessum áfanga og má vel við una. „Þetta er búinn að vera vægast sagt langþráður titiIL hjá okkur ÍR- ingum. Það eru orðin rúm 20 ár síð- an, eða um það leyti sem ég var að byrja að æfa hjá ÍR hjá Einari Ólafs- syni, fyrrum þjálfara hjá lR. Þetta er búin að vera löng bið og gaman að henni skuli ljúka hérna með Ein- ar sem heiðursgest okkar ÍR-inga. Það var ægilegur skrekkur í báðum liðum í fyrsta fjórðung og mikið um mistök. Þetta eru leikmenn hjá báð- um liðum sem ekki hafa verið í svona leikjum áður. Gríðarleg reynsla Um leið og menn fóru að hrista þennan skrekk af sér þá fóru þeir að spila sinn bolta. Það sem hjálpaði okkur var, að við náðum að taka Chris Dade út úr leiknum í seinni hálfleik og þó að hann hefði skorað talsvert þá hafði hann virkilega mikið fyrir því þar sem það þurfti margar skottilraunir. Mér fannst ungu strákarnir komast mjög sterkt frá þessu. Þessi leikur er gríðarleg reynsla fyrir þá og ánægjuleg þar sem þeir fara héðan sem sigurvegar- ar og ég er mjög stoltur af þeim. Nú eigum við mjög krefjandi verkefni fyrir höndum því við erum að berj- ast við að komast í úrslitakeppnina. Við eigum leik við Skallagrím á flmmtudaginn og það er nánast ann- ar úrslitaleikur fyrir okkur og ég hef trú á því að það lið sem vinnur þann leik fari í úrslitakeppnina. En við ætlum að leyfa okkur að njóta þess yfir helgina að vera bikar- meistarar. -BG Loksins - sagði Eiríkur Önundarson sem beið lengi eftir bikar Bikarúrslit 2001 „Maður er búinn að vera ansi lengi í þessu án þess að fá titil. Það lengsta sem ég hef komist í bikarnum eru 8- liða úrslit og ég hef ekki heldur kom- ist lengra en i fyrstu umferð í úrslita- keppni Islandsmótsins. Það Var kom- inn tími á þetta, bæði fyrir mig og eins eldri strákana, eins og Halldór Kristmannsson, og þetta er það sem borgar fyrir allt puðið sem maður leggur á sig. Þetta er búið að vera smáævintýri að komast í þennan leik, sérstaklega fyrir Hamarsmenn, og þaö er leiðin- legt að annað liðið skuli þurfa að tapa. En þeir mega vel við una með árang- urinn. Það var vitað fyrir að við yrð- „Það er ekkert gaman að tapa. Það er áfangi að komast í úrslita- leikinn. Ég er ánægður með mína menn því þeir gera sitt besta og legg það upp að menn gefi sig alla í leikina og þeir gera það og ég get ekki beðið um meira. Við misnot- uðum mörg vitaskot í seinni hálf- leik og tókum of mörg 3ja stiga skot sem er ekki árangursríkt á velli sem er ekki okkar heimavöll- um aldrei með eins fjölmennt stuðn- ingsmannalið og Hvergerðingarnir en þeir sem komu frá ÍR voru með mikil læti og létu heyra vel í sér. Sjálfur hef ég oft spilað betur en I þessum leik - missti mig í smárugl í lokin og smáóðagot en sem betur fer varð það okkur ekki að falli. Við erum að vinna þetta á liðs- heild og allir áttu nokkuð góðan dag. Mér fannst þeir einblína alltof mikið á Chris Dade og hann reyndi of mikið sjálfur í stað þess að nýta sér þessa stráka í kringum sig. Hann er kannski með fullgrænt ljós í liðinu. En það var bara gott fyrir okkur,“ sagði Eiríkur. -BG ur. Þeir spiluðu vel og skoruðu mikið á okkur. Ég get tekið það á mig að hafa ekki verið búinn að láta liðið æfa víti meira því það munar um að misnota þau. Við spiluðum sama sóknarleikinn og við höfum spilað frá þvi ég tók við liðinu og við fengum ágæt færi í sókninni. Þetta munaði svona þremur sóknum," sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari Hamars. -BG ÍR-ingar uröu tiunda félagiö til að fagna bikarmeistaratitli í körfubolta karla en þetta var sjötti bikarúrslita- leikur félagsins. ÍR hafði tapað 1971, 1972, 1979, 1983 og 1989 og haföi því í raun mátt bíða í 30 ár eftir að fagna bikarmeistaratitlinum í fyrsta sinn, eða frá því í fyrsta bikarúrslitaleik liðsins gegn KR 1971. Eiríkur Önundarson, leikstjórnandi ÍR, bætti stoðsendingametið í bikarúr- slitaleik með því að gefa 11 slíkar í leiknum á laugardag. Mest höfðu þeir Páll Kolbeinsson (með KR 1991) og Jón - ^iEPSON y* DEILOIN Njarðvík 19 15 4 1759-1515 30 Tindastóll 19 14 5 1687-1606 28 Keflavík 19 14 5 1749-1580 28 KR 19 13 6 1686-1555 26 Haukar 19 11 8 1576-1488 22 Hamar 19 10 9 1585-1619 20 Grindavík 19 9 10 1663-1640 18 Skallagr. 19 8 11 1547-1694 16 ÍR 19 8 11 1557-1673 16 Þór Ak. 19 6 13 1624-1737 12 Valur 19 3 16 1477-1603 6 KFÍ 19 3 16 1624-1824 6 Nœsta umferd hefst á fimmtudaginn og leika þá Valur-Hamar, Grinda- vík-Haukar, KeQ%vík-Þór Ak„ Tinda- stóll-KFÍ, ÍR-Skaífagrímur. Á fóstu- dag mætast Njarövík og KR. KFÍ-Grindavík 101-99 9-7, 14-22, (22-26), 29-35, 38-39, 46-46, (56-53), 63-57, 63-65, 70-69, (77-75), 82-78, 91-85, 98-94, 101-99. Stig KFÍ: Dwayne Fontana 33, Sveinn Blöndal 24, Ales Zivanovic 19, Baldur Ingi Jónasson 16, Magnús Guðmundsson 4, Hrafn Kristjánsson 2, Gestur Sævarsson 2, Branisalv Dragojlovic 1. Stig Grindavikur: Páll Axel Vil- bergsson 28, Guðlaugur Eyjólfsson 26, Dagur Þórisson 14, Pétur Guðmunds- son 11, Bergur Hinriksson 7, Kristján Guðlaugsson 6, Davið Þór Jónsson 5, Elentínus Margeirsson 2. Fráköst: KFl 44 (12 í sókn, 32 í vörn, Zivanovic 17, Fontana 11), Grindavík 31 (10 í sókn, 21 i vörn, Páll Axel 10). Stoösendingar: KFÍ 17 (Sveinn, Hrafn 4), Grindavík 19 (Elentínus 6). Stolnir boltar: KFÍ 4 (Sveinn, Hrafn Zivanovic, Fontana 11), Grindavík 6 (Guðlaugur 2). Tapaöir boltar: KFÍ13, Grindavík 7. Varin skot: KFÍ 2 (Sveinn, Fontana), Grindavík 2 (Guðlaugur 2). 3ja stiga: KFÍ 11/5, Grindavík 43/16. Víti: KFÍ 25/16, Grindavik 11/7. Dómarar (1-10): Björgvin Rúnarsson og Rögnvaldur Hreiðarsson (7). Gceöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 120. Maður leiksins: Páll Axel Kr. Gislason (með Kefla- vík 1993) gefið 10 stoðsendingar í bikarúr- slitaleik. Metsendingin hjá Eiríki kom í undir- búning Eiríks fyrir glæsilega troðslu Cedrick Hobnes einni og hálfri mínútu fyrir leikslok en síðustu tíu stig Breiö- hyltinga komu síðan af vítalínunni. Átta af stoðsendingum Eiríks komu í seinni hálfleik, þar af fimm í þriðja leikhluta en í þeim leikhluta, sem IR vann 30-20, lagði Breiðholtsliöið grunninn að sigrinum. Eirikur var þá einnig með átta stig. Hamarsmenn uröu þriöju nýliðar í bikarúrslitaleik í röð til að tapa sínum fyrsta bikarúrslitaleik en fimm af síðustu sex bikarúrslitaliðum hafa tap- að í frumraun sinni í Höllinni. Síðasta lið til að vinna í sinni fyrstu ferð í Laugardalinn var Grindavik sem vann sinn fyrsta leik 1995 og hefur síðan unnið tvo bikarmeistaratitla tU viöbót- ar. ÍR-ingar uróu aftur á móti fyrstu ný- liðar í úrvalsdeUd í 19 ár til að vinna Það var ekki burðugur varnar- leikur sem KFÍ og Grindavík sýndu fáum áhorfendum í Jakanum á ísa- firði í frestuðum leik sínum i EP- SON-deildinni á fóstudaginn var. Bæði liö nýttu sér vel styrkleika sína í sókninni: Grindvíkingar skutu grimmt utan af velli á meðan heimamenn skoruðu flest sin stig undir körfunni þar sem þeir nutu liðsmunar. Billy Keys, hinn nýi bandaríski leikmaður Grindvík- ingaa, mátti ekki leika þennan leik þar sem hann var ekki orðinn lög- legur þegar leikurinn átti að fara fram. Við þetta vænkaðist hagur heimamanna nokkuð fyrir fram séð en frábær barátta og sterk liðsheild gestanna frá Grindavík dró þá áfram í leiknum og hefði sigurinn hæglega getað orðið þeirra. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 22-26 fyrir Grindavík og þá þegar var Páll Axel búinn að skora þrjár þriggja stiga körfur og setja samtals 11 stig í leiknum. Dwayne Fontana skoraði fyrstu 9 stig heimamanna í öðrum leikhluta en gestirnir neituðu að láta forskot- ið frá sér framan af og það var ekki fyrr en á síðustu mínútu hálfleiks- ins að Baldur Ingi kom KFÍ í for- ystu með þriggja stiga körfu og stað- an var 56-53 í hálfleik. Eftir 4 mínútur þriðja leikhluta var KFÍ komið með 6 stiga forystu en þá komu 8 stig í röð hjá gestun- um. Fram eftir fjórðungnum skipt- ust liðin á að hafa forystu en það bikarinn en Framarar gerðu slíkt hið sama 1 bikarkeppninni 1982. Reyndar eru þessi tvö lið þau einu sem hafa komist í bikarúrslitaleik á sínu nýliða- ári í úrvalsdeild og hafa því nýliðar í úrvalsdeild 100% sigurhlutfall í bikar- úrslitum. ÍR-ingar brutu líka upp venju síöustu þriggja ára um það að liö sem hafði tapað síðasta deildarleik milli bikarúr- slitaliðanna fyrir úrslitaleikinn myndi fagna bikarmeistaratitlinum. ÍR-ingar unnu deildarleik liðanna aðeins níu dögum áöur og svo aftur í Höllinni um helgina. Hamarsmenn töpuöu þarna sínum þriðja leik i röö þegar IR-ingar unnu sinn þriðja leik í röð og enn fremur sinn fimmta sigur í siðustu sex leikj- um. Bikarinn fór nú í fyrsta sinn til Reykjavíkur í tíu ár, eða síðan KR-ing- ar unnu hann 1991. Reykjaneslið (Haukar þar meðtaldir) höfðu unnið bikarmejstaratitilinn níu ár í röö fyrir keppniná 5 ár, þar af lið frá Suðurnesj- um átta þeirra. -ÓÓJ voru heimamenn sem skoruðu 4 síð- ustu stigin og staðan var 77-75 við lok leikhlutans. Ales Zivanovic, hinn stæðilegi leikmaður KFÍ, naut sín vel í fjórðungnum og gekk heimamönnum betur að finna hann en Fontana sem var 1 strangri gæslu Péturs Guðmundssonar. í síðasta leikhlutanum náðu Grindvíkingar forystunni, 82-84, með þriggja stiga körfu frá Páli Ax- el en þá fylgdu 5 stig í röð hjá heimamönnum og þeir komust 3 stig yfir. Eftir það létu þeir foryst- una ekki af hendi þrátt fyrir harða hríð gestanna og lokatölumar urðu 101-99 fyrir KFÍ og þriðji sigur liðs- ins var staðreynd. Hann dugar þó skammt þar sem ljóst var eftir leik- inn gegn -Njarðvík að þeir væru fallnir í 1. deild. Ales Zivanovic lék vel fyrir heimamenn og Fontana skilaði sínu að venju. Sveinn Blöndal og Baldur Ingi áttu góðan leik í sókninni og Hrafn stjómaði liðinu vel. Hjá gestunum vora þeir Páll Axel og Guðlaugur í fantaformi og gekk heimamönnum ekkert að ráða við þá. Auk stiganna 28 tók Páll 10 frá- köst og sendi 5 stoðsendingar og átti því mjög góðan heildarleik. Dagur Þórisson kom sterkur af bekknum og var með 100% skotnýtingu í tveggja stiga skotum, hitti úr 7 af 7 og gerði 14 stig þótt hann léki að- eins í 15 mínútur. Þá stóð Pétur Guðmundsson sig vel að venju. -TBS Ungu strákarnir hjá ÍR, Ásgeir Bachmann (fremst), Hreggviöur Magnússon og Sigurður Þorvaldsson, lengst til hægri, fagna sætum sigri. DV-myndir ÞÖK Vítaskotin - fóru mörg forgöröum hjá Hamri Litlar varnir - þegar KFÍ vann Grindavík f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.