Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Blaðsíða 1
15 Miðvikudagur 7. mars 2001 KR-stúlkur uröu deildarmeistar- ar í kvennakörfunni í gær meö því aö vinna 31 stigs sigur í Keflavík. Þær sýndu frábær tilþrif í leiknum og eru vel aö titl- inum komnar en þetta er þriöji bikarinn sem fer í vesturbæinn í vetur. Á stóru myndinni lyftir Kristín Björk Jónsdóttir, bikurunum í leikslok en á þeirri minni fagna KR-stúlkur deildarmeistarartitlinum saman. Þriðja árið í röð KR varð í gær deildarmeistari í kvennakörfunni 3ja árið í röð en Keflavík vann deildarmeistaratitilinn sex fyrstu árin sem úrslitakeppnin fór fram. -ÓÓJ - en ekki bugaður - Guðmundur Guðmundsson fékk að taka pokann sinn í gær Handknattleiksþjálfarinn Guð- mundur Guðmundsson, sem þjálfað hefur þýska 1. deildarliðið Bayer Dormagen síðan í júlímánuði 1999, var í gær rekinn frá félaginu þrátt fyrir að eiga tæplega eitt og hálft ár eftir af samningi sínum. Lítið hefur gengið hjá Bayer Dor- magen í vetur og situr liðið í þriðja neðsta sæti þýsku 1. deildarinnar eft- ir fjögur töp í síðustu fjðrum leikjum. Guðmundur hefur þurft að glíma við mörg vandamál í vetur. Illa hefur gengið að fá fjármagn og auk þess hafa mikil meiðsli hrjáð liðið. Meðal annars var þeirra besti leikmaður, sænska skyttan Christian Eriksson, frá í fjóra mánuði. DV-Sport náði tali af Guðmundi í gærkvöldi og ræddi við hann um brottreksturinn. Fer með höfuöið hátt „Ég fer ekki héðan frá Dormagen með skömm. Þvert á móti ber ég höf- uðið hátt því ég veit hvemig ég hef unnið síðan ég kom hingað út. Ég hef lagt mig allan fram en því miður em það sumir hlutir sem ekkert fær breytt, s.s. litlir peningar og meiðsli leikmanna. Við vorum með lítinn hóp vegna lítils fjármagns og máttum þar af leiðandi illa við meiðslum. Við þessu er ekkert að gera. Ég og fram- kvæmdastjórinn vomm oft búnir aö ræða saman á undanfórnum vikum um gengi liðsins og þessi ákvörðun var tekinn í algerri vinsemd. Ég er ekki svekktur heldur lít ég á þennan tima hjá Dormagen sem gífurlegan lærdómstíma. Þetta er harður heim- ur og menn verða að þola mótlæti af og til,“ sagði Guðmundur Guðmunds- son. „Það er kannski fullsnemmt að segja til um það hvað gerist næst hjá mér. Ég vil ekki útiloka neitt og í þéssum geira geta hlutimir verið fljótir að gerast." Þegar Guðmundur var spurður út í stöðu þjálfara íslenska landsliðsins sem hann hefur verið orðaður sterk- lega við vildi hann litlu svara. „Það væri rangt af mér að vera að tjá mig um þessa hluti, sérstaklega í ljósi þess að Þorbjörn hefur ekki enn ákveðið hvort hann ætlar að hætta eða halda áfram,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, brottrekinn en ekki bugaður í samtali við DV-Sport. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.