Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Blaðsíða 10
26 MÁNUDAGUR 26. MARS 2001 Sport DV Zdravko Demirev, leikmaöur og þjalfari IS, og Guömundur Hefgi Porsteinsson lyfta bikarnum í leikslok. DV-mynd POK Huldu Elmu Ey- steinsdottir, fyrirliöi Próttar, N., lyftir bikarnum ásamt Porbjörgu Olöfu Jónsdottur. DV-mynd PÖK Bikarúrslitin í blaki fóru fram um helgina og þar bættu nýkrýndir deildarmeistarar bikurum í safnið og sönnuðu styrk sinn. íþróttafélag stúdenta tryggði sér bikarmeistaratitilinn í þriðja skipt- ið i röð þegar félagið skellti Stjörn- unni í fimm hrinu leik í Digranesi á laugardaginn. Það má segja að heilladísirnar hafi verið réttum megin fyrir leikmenn ÍS sem unnu oddahrinuna 20-18 eftir að leik- menn Stjörnunnar höfðu glutrað niður tveimur tækifærum á að klára hrinuna. Leikurinn var spennandi og í heildina góður bikarúrslitaleikur, nokkuð vel leikinn og hreinlega ekki hægt að biðja um meira þar sem að úrslitin réðust með „gullhávörn" frá örvhenta smassaranum Gal- in Raditchkov sem var sá leikmaður sem halaði inn flest stig fyrir IS. Það skildu aðeins tvö stig liðin í heildina en Stjarnan skoraði 107 gegn 109 frá ÍS. Hrinurnar enduðu 25-23, 16-25, 25-16, 23-25 og 20-18. Leikurinn tók kúvendingu um miðbik fjórðu hrinunnar þegar ÍS leiddi með sex stiga forskoti en Stjarnan náði að skora sjö stig í röð og vinna hrin- una með minnsta mun. Það var greinilegt að leik- menn ÍS voru slegnir yfir þessari stöðu enda virtust þeir með leikinn í höndum sér en klaufagangur í sókninni og góðar uppgjafir frá Emil Gunnarssyni gerðu gæfumuninn fyrir Garðabæjarliðið sem sýndi tennurnar hressilega. Leikmenn ÍS voru alltaf skrefinu á undan í oddahrinunni, allt þar til í blá- lokin að Stjarnan jafnaði og komst einu stigi yfir og átti tvisvar möguleika á að klára leikinn. Það gekk hins vegar ekki eftir þar sem smass í netstrenginn á lokakaflanum og frábær hávörn Galins varð stúd- entum að vopni. Bikarmeistaratitillinn hafnaði því enn eitt árið hjá ÍS og leikmenn liðsins voru vel að þeim titli komnir þar sem þeir náðu að þjappa sér saman þeg- ar mest á reyndi og þar átti uppspilarinn Martin Raditchkov, bróðir Galins, stóran þátt og Davíð Búi Halldórsson sem lék einn af sínum betri leikjum í vetur. Zdravko Demirev, leikmaður og þjálfari ÍS, var ánægður með úrslit leiksins og sagði að þetta hefði verið sannkölluð töfrastund hjá liðinu í lokin. „Við virkuðum frekar spenntir og náðum því - ÍS og Þróttur N. bikarmeistarar ekki að sýna okkar besta blak en leikmenn Stjörn- unnar léku líka nokkuð vel og þeir komu okkur nokkuð á óvart. Við héldum þó hiaus í oddahrin- unni og náðum að klára okkar ætlunarverk þrátt fyrir að það stæði tæpt. Það var frábært að vinna með minnsta mun og það gefur þessu meira gildi.“ „Við erum búnir að vera alloft í þessari stöðu síð- ustu árin og höfum tapað á ögurstundu í úrslita- hrinu, það hefur loðað við okkur. Þetta var rosalega sárt að þurfa að kyngja þessum ósigri og það kem- ur vonandi að því að vinnum eitthvað. Við lögðum okkur allir 100% fram í þessum leik en það dugði því miður ekki núna,“ sagði Emil Gunnarsson, leik- maður Stjörnunnar, eftir leikinn. Annan árið t röö Kvennalið Þróttar frá Neskaupstað skellti stúdín- um í þremur hrinum gegn engri í Digranesi á laug- ardaginn. Félagið hampaði þar bikarmeistaratitlin- um i annað sinn i röð, vann hrinurnar 25-23, 25-14 og 25-16. Það má segja að stúdínur hafi átt á brattann að sækja frá fyrstu mínútu og það var einungis í fyrstu hrinunni sem þær áttu fræðilega möguleika á að krækja sér í hrinu en af því varð ekki. Eftir það má segja að Þróttarastúlkur hafi haft vinninginn á öllum sviðum leiksins með þær Önnu Pavlouka ásamt fyrirliðanum Huldu Elmu Eysteins- dóttur sterkar á köntunum og þetta var aldrei nein spurning. Sæunn Svana Rikharðsdóttir kom líka á óvart með góðum leik á miðjunni fyrir Þróttara- stúlkur. Móttakan var hins vegar slök hjá stúdínum og uppspilið gekk heldur ekki nægjanlega vel. I kjölfar- ið gengu sóknarskellirnir illa og það var hálfgerð veisla fyrir Þróttarastúlkur sem fiskuðu marga þeirra upp úr gólfinu og skoruðu grimmt á stúdín- ur. Þrátt fyrir þetta var Dagbjört Víglundsdóttir öfl- ug í liði stúdína og lék vel en hún fékk ekki nægj- anlega aðstoð frá stallsystrum sínum til þess að geta breytt gangi leiksins. Það má segja að stúdínur hafi aldrei komist almennilega inn í leikinn og Þróttara- stúlkur voru heldur ekkert á því að hleypa þeim neitt áfram eins og úrslitin í tveim síðustu hrinum leiksins staðfestu. Norðfjarðarliðið mun mæta stúd- ínum í úrslitaleik íslandsmótsins og ljóst er að mikið þarf að breytast hjá stúdínum til þess að þær eigi möguleika þar. -GHÞ íslandsmótið ijudo 15 ára og eldri / Konur Þyngdarflokkur -52 kg 1. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ármanni 2. Arnfriður G. Arngrimsdóttir, JR Þyngdarflokkur -57 kg 1. Urður Skúladóttir, KA 2. Hjördís Ólafsdóttir, JR 3. Heiða Dögg Jónsdóttir, JR Þyngdarflokkur -63 kg 1. Berglind Andrésdóttir, KA 2. Margrét R. Bjarnadóttir, Ármanni 3. Olga Kolbrún Vilmundardóttir, JR Þyngdarflokkur -70 kg 1. Gígja Guðbrandsdóttir, JR 2. Anna Soffía Víkingsdóttir, JR 3. Gigja Gunnarsdóttir, KA Þyngdarflokkur -78 kg / +78 kg 1. Bettina Wunsch, UMFF 2. Sólborg B. Heimisdóttir, JR Opinn flokkur kvenna 1. Berglind Andrésdóttir, KA 2. Gígja Gunnarsdóttir, Ármanni 3. Bettina Wunsch, UMFF 3. Gígja Guðbrandsdóttir, JR 15 ára og eldri / Karlar Þyngdarflokkur -60 kg 1. Höskuldur Einarsson, JR 2. Heimir Kjartansson, JR Þyngdarflokkur -66 kg 1. Snævar Már Jónsson, JR 2. Jósep Þórhallsson, JR 3. Einar Jón Sveinsson, UMFG 3. Karles Ólafsson, KA Þyngdarflokkur -73 kg 1. Vignir Grétar Stefánsson, Ármanni 2. Tómas Sigursteinsson, KA 3. Hinrik S. Jóhannesson, Ármanni 3. Hilmar Trausti Harðarson, KA af sigurglímum sínum um helgina. DV-mynd Vernha - varð tvöfaldur meistari á íslandsmótinu i júdó íslandsmótið i júdó fór fram í Austurbergi á laugar- daginn. 119 þátttakendur voru mættir til leiks í karla- og kvennaílokkum. Alls voru þátttakendur frá 7 félögum og gekk mótahald vel fyrir sig í öruggum höndum Jóns Óðins Óðins- sonar mótsstjóra. JR vann 11 gull Það Júdófélag sem bar sigur úr býtum á laugardag- inn var Júdófélag Reykja- víkur með samtals 26 verð- laun, þar af 11 gullverðlaun. Ármenningar og KA voru samstíga með 14 verðlaun hvort félag og 5 gull hvort. Ef skoðað er vinnings- hlutfall út frá fjölda þátttak- enda frá hverjum félagi er UMFF örugglega með vinn- inginn því einn keppandi kom frá Framtíðinni og hafði með sér tvenn verð- laun, eitt gull og eitt brons. Vernharð í fínu formi E instaklingssigurvegari mótsins í karlaflokki er án efa Vernharð Þorleifsson, KA, en hann sigraði í -100 kg flokknum og opnum ílokki karla. Vemharð er í finu formi þessa dagana og glímdi með miklum ágæt- um. Berglind lagði meist- arann I kvennaflokki var Berg- lind Andrésdóttir (KA) kona mótsins, sigraði i sínum flokki i -63 kg og lagði svo íslandsmeistarann frá því í fyrra í opnum flokki kvenna, Gígju Gunnarsdótt- ur, sem er einnig gamli þjálfarinn hennar Berglind- ar. Þetta er ótrúlegt afrek hjá Berglindi þar sem hún var að glíma við sér miklu stærri og sterkari stelpur. Það má því segja að Akureyringamir Vernharð Þorleifsson og . Berglind Andrésdóttir hafi stolið sen- unni á íslandsmótinu að þessu sinni. Þau unnu bæði til tvennra gullverðlauna. Þyngdarflokkur -81 kg 1. Karl Erlingsson, JR 2. Bergur Pálsson, JR 3. Max Jónsson, KA 3. Björn Blöndal Haröarson, KA Þyngdarflokkur -90 kg 1. Bjarni Skúlason, Ármanni 2. Guðmundur Sævarsson, Ármanni 3. Gunnar Fannar Gunnarsson, JR Þyngdarflokkur -100 kg 1. Vernharö Þorleifsson, KA 2. Þorvaldur Blöndal, Ármanni 3. Ásmundur Steindórsson, KA Þyngdarflokkur +100 kg 1. Heimir S. Haraldsson, Ármanni 2. Guömundur Gunnarsson, UMFÞ 3. Gunnar B. Sigurðsson, JR Opinn flokkur karla 1. Vernharð Þorleifsson, KA 2. Bjarni Skúlason, Ármanni 3. Þorvaldur Blöndal, Ármanni. 3. Heimir S. Haraldsson, Ármanni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.