Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2001, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 Fréttir DV Hátt paprikuverð ekki vegna hækkunar í hafi: Tölur ráðherrans rangar Finnur Arnason. „Þessar yfirlýsingar ráðherra í DV í dag - um 85% álagningu á papriku - eru skandall," sagði Finn- ur Árnason, framkvæmdastjóri Hagkaups, sem segir álagningu Hagkaups aðeins 14-15% að meðal- tali. Og eftir skoðun á verðtöl- um frá uppboðs- markaði í Hollandi í gær og hvað bætist við það á leiðinni í hendur neytanda á íslandi hallast f að ^ví aö JB Hagkaupsstjór- inn sé þarna mun nær raunveru- leikanum en landbúnaðarráð- herrann. DV fékk ná- kvæma sundur- liðun á 778 kr./kg smásöluverði Hagkaups í gær; frá fob-verði sem var 277 kr./kg á grænni og 417 kr. á rauðri, en Hag- kaup selur á sama verði. Sam- kvæmt henni skilar 30% tollur og 14% vsk. um 203 kr. og 231 kr. á kíló í ríkissjóð. En samanlögð álagning vöruhúss og smásala aðeins 48 kr. Guðni Ágústsson. Smásölu- álagning Vöruhús, lagergjald, 1 dreifing Isaukaskattur Virðisaukaski Smásöluáj Aöflutningsgjöli og anna kostnaðu - ríkið tekur meira og álagningin minni krónur. Þannig að þrátt fyrir afar hóflega álagn- ingu hækkar paprikan 140%-150% á leiðinni af hollenska markaðinum til íslensks neytanda, sem er svipuö niður- staða og í dæmi Hag- kaups. (á rauða) og 181 kr. á kílóið (á græna). Dýr í Hollandi í gær Samkvæmt upplýsingum DV frá uppboðsmarkaði í Hollandi í gær var kílóverð á rauðri papriku þá allt frá 367 krónum (sú stærsta og flottasta) niður í 300 kr. (sú smæsta). Og á grænni frá 245 niður í 160 krónur. Að viðbættum algengum mismun á fob- og cif-verði, um 25%, og 30% toUi (sem leggst á papriku á tímabil- inu 15. mars til 22. apríl), gæti rauða paprikan verið komin í milli 600 og 490 krónur hér á hafnarbakkanum og sú græna 400-260 krónur kílóið. Þar af færu 60-137 kr. í 30% tollinn. Bættum við 15% heildsöluálagn- ingu og 15% smásöluálagningu við meðalverð á hvorum lit og loks 14% vsk. fengjum við rauðu paprikuna á um 820 krónur kílóið (dýrasta flokk- inn á 900 kr.) og þá grænu á um 500 Ódýrari eftir 10 daga Paprikuna sem var í borðum Hagkaups í gær sagði Finnur pantaða og keypta fyrir um 10 dög- um. „En paprikan sem við kaupum í dag, og fáum eftir 10 daga, er um 27% ódýrari." Þegar svo spænska- paprikan, sem sé helmingi ódýrari en sú hollenska, detti alveg út af markaðnum gerir hann ráð fyrir að sú hollenska hækki aftur eitthvað 1 verði. „Þetta eru vikuprísar og dag- prísar.“ En hvers vegna selur Hagkaup rauða papriku og græna á sama verði þrátt fyrir mikinn mun á innkaups- verði? „Það er bara ákvörðunaratriði. Við erum þá kannski að borga með sumum vörum og leggja meira á aðr- ar,“ sagði Finnur. „Markaðurinn er ekki alltaf rökréttur." -hei I •X*A Kona dæmd fyrir að kyrkja mann: 14 ára fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær 39 ára konu, Bergþóru Guðmundsdóttur, í 14 ára fangelsi fyrir manndráp. Bergþóra var ákærð fyrir að hafa banað Hall- grími Elíssyni, 47 ára gömlum Reykvikingi, í íbúð að Leifsgötu 10 í Reykjavík hinn 23. júlí síðastliðinn þar sem þau voru bæði gestkom- andi. Bergþóra hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu en framburður hennar tók töluverðum breytingum í lög- regluyfirheyrslum, sem og fyrir dómi. Hún var sýknuð af ákæru um að hafa rænt Hallgrím seðlabúnti þar sem dómararnir töldu meint rán ósannað. Tveir menn voru ákærðir fyrir að hafa tekið við ráns- feng Bergþóru, en dómararnir sýkn- uðu mennina alfarið. Gloppótt vitni Vitnisburður hinna ákærðu, sem og annarra vitna, reyndist vera af- skaplega gloppóttur, bæði hjá lög- reglu og fyrir dómi, enda voru flest- ir þeir sem málinu tengdust afskap- lega ölvaðir daginn sem Hallgrími var ráðinn bani. Ekki bætti úr skák að húsráðandi fékk heilablóð- fall í vetur og bar fyrir dómi að hann hefði misst minnið við það. Þó er ljóst að Bergþóra, Hall- grímur, húsráðandi og annar mað- ur sátu öll að drykkju í íbúðinni að Leifsgötu 10 þegar til átaka kom milli Bergþóru og Hallgríms. Undir lok þeirra átaka réðist Bergþóra á Hallgrím þar sem hann lá á dýnu á gólfi íbúðarinnar. Samkvæmt krufningarniðurstöð- um var banamein Hallgríms kyrk- ing en miklir áverkar voru á lík- ama hans frá höku að viðbeini. Sér- fræðingurinn sem framkvæmdi krufninguna mætti fyrir dómi og bar að áverkar á hálsi Hallgríms samræmdust best áverkum frá fmgrum og taldi að Hallgrímur hefði verið kyrktur með berum höndum. „Samkvæmt framburði allra ákærðu var nokkurt ónæði af Hall- grími meðan hann dvaldi á Leifs- götu 10. Hann haföi reitt ákærðu, Bergþóru, til reiði. Dómurinn telur að í upphafi, er hún réðst á Hall- grím, hafi ekki verið ásetningur hennar að deyða hann. Hins vegar er það álit dómsins, eins og rakið var, að atlaga ákærðu gegn Hall- grími hafi verið svo ofsafengin að háttsemi hennar beri að virða sem ásetningsverk sem varði við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940,“ segir í dómnum. Bergþóra var dæmd til 14 ára fangelsisvistar, að frádregnu gæsluvarðhaldi hennar slðan 24. ágúst síðastliðinn. Að frádregnum 400.000 króna málsvarnarlauna verjanda meðákærðu, var Berg- þóru einnig gert að greiða allan sakarkostnað. -SMK DV-MYND HILMAR ÞÓR. Ákærða bíður dóms. Bergþóra Guömundsdóttir var dæmd til 14 ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir aö hafa banaö Hallgrími Elíssyni í júlí í fyrra. Venjulegir menn reknir Brigslyrðin ganga á milli sjó- manna og útvegsmanna í samn- ingaviðræðum sem virðast vera komnar í algeran hnút þegar um sólarhringur er í að verk- fall sjómanna skelli á. „Seinagangurinn i útvegs- mönnum er þvílíkur að það væri búið að reka alla venju- lega menn úr vinnu ef verklag- ið væri svona,“ segir Grétar Mar Jónsson, forseti Far- manna- og fiskimannasambandsins, og bætir því við að útvegsmenn vilji ekki lengur ræða við sig. „Ég móðgaði þá og særði á dögunum." Útvegsmenn segja hins veg- ar að það sé af og frá að þeir vilji ekki ræða við Grétar Mar og félaga hans í Far- manna- og fiskimannasam- bandinu: „Þetta er fáránlegt hjá Grét- ari Mar. Við verðum að ræða við alla aðila málsins ef við eigum að geta róið. Sannleik- urinn er sá að við höfum ekki orðið varir við samningsvilja hjá sjómönnum þar sem Grétar Mar er í forsvari. Hann þarf að breyta vinnu- brögðum ef árangur á að nást,“ segir Friðrik J. Arngrímsson. -EIR Grétar Mar Jónsson. Baksviðs með bömin DV fer í leikhús Áhyggjulaus við Arnarhól Rnnur Ingólfsson I (slensklr álitsgjafar Baulaðu Búkolla mín Fegurö íslenskra kúa Hvað á ég að hugsa? Óskilahundar úr Eyjafirði Undarleg hljómsveit Interlagos- formúlan DV-formúla Fær ekki vinnu sem ritari Þórarinn Soebech 26 Heimabíó fyrir Ragnheiöur Elriksdóttir Öruggasti bíllinn DV-bílar strokkinn íslensk þjóbtrú Matarúrgangur urðaður Yfirdýralæknir hefur falið Holl- ustuvernd að sjá til þess að heilbrigðis- eftirlit á landinu tryggi það að mat- arúrgangur úr skip- um sé urðaöur sómasamlega til þess að koma í veg fyrir að gin- og klaufaveiki berist til landsins. Kaldar heima í nýjasta tölublaði Times er grein um ísland þar sem fjallað er um kosti íslenskra kvenna sem sagðar eru heitar á reykvískum skemmti- stöðum en kaldar heima fyrir. Dátar í heimsókn í fyrradag kom til landsins 130 manna hópur frá varnarmálaskóla Atlantshafsbandalagsins í Róm í þeim tilgangi að kynna sér íslensk öryggis- og vamarmál. „Gullfundur" Þrjú lög með MA-kvartettinum eru komin í leitirnar í hljómplötu- safni Útvarpsins. Þau voru leikin í fyrsta sinn í þættinum íslensk dæg- urtónlist í eina öld á Rás eitt á sunnudaginn var. Óttast framtíðina Þroskaþjálfar eru langþreyttir á afskiptaleysi viðsemjenda þeirra, en lítið sem ekkert hefur þokast í sam- komulagsátt frá því samningar voru lausir. Óttast þeir um framtíðina fyrir bragðið. 3937 öryrkjar fengu í gær 880 milljónir króna frá Tryggingastofnun í samræmi við ör- yrkjadóminn svo- kallaða. „Loksins,“ varð einum þeirra að orði þegar hann Kosið í Rangárþingi Rangæingar ganga að kjörborði í dag og kjósa um það hvort öll 10 sveitarfélög sýslunnar skuli samein- ast í eitt sveitarfélag. Tæplega 2.200 hundruð íbúar eru á kjörskrá í hin- um 10 sveitarfélögum Rangárvalla- sýslu. Þurrt í Tungunum Hálfgert neyðarástand er í Bisk- upstungum vegna vatnsskorts. Vatnsbólið þornaði upp í kjölfar jarðskjálftahrinu í september og átta ára gömul vatnsveita sveitar- innar varð þar með óvirk. Súrir grásleppukarlar Grásleppukarlar á Húsavík og Þórshöfn ákváðu í fyrrakvöld aö leggja ekki net sín, vegna óánægju með það verð sem kaupendur vilja greiða fyrir hrognin. Tapið 300 milljónir Rekstrartap Samvinnuferða- Landsýnar 1 fyrra var rúmar 300 miljónir króna eftir skatta. Árið á undan var fyrirtækið rekið með 13 miljóna króna tapi. Lýst eftir konu Lögreglan í Reykjavík lýsir eft- ir Ólöfu Snæbjörgu Ingvadóttur, en hún fór að heiman frá sér mánudaginn 26. mars síðastliðinn. Lögreglan i Reykja- vík biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um hvar hún er niðurkomin að láta vita í síma 569 9020. -EIR Loks bætur fékk aurinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.