Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2001 Fréttir I>V Þarf allar hendur á dekk - borgarstjóra þar á meðal: Stóriðjuáformin eru verðbólgu hvetjandi Nafn: Össur Skarphéöinsson Staða: Formaöur Samfylkingarinnar Efni: Þjóðmál Skiptar skoðanir eru um ASÍ- leiðina sem felur meðal annars i sér að taka 20 milljarða að láni erlendis og sprauta inn í ís- lenskt efnahagslif. Hvert er þitt viðhorf? „Það er mikilvægt að ASÍ skyldi taka þetta frumkvæði. Við sjáum það á markaðnum því krónan styrktist nokkuð. Ég tel þó að er- lend lántaka sem þessi geti til lengri tíma leitt til þenslu útlána nema að gripið verði til annarra aðgerða samhliða. ASÍ-leiðina ber að skoða út í hörgul og ég fagna þessu frumkvæði. Það sýnir að ASÍ er á réttri leið.“ Ertu að biðja um nýja þjóðar- sátt? „Já. Og ekki í fyrsta sinn. Það er mín skoðun aö á ný þurfi aö taka upp samráð stjómar, stjórnarand- stöðu og aðila vinnumarkaðarins sem drap verðbólguna í kringum 1990. Ég legg mikla áherslu á að ráðist verði í þjóðarátak gegn verð- bólgunni sem er að renna í tíunda prósentið. í tengslum við það er mikilvægt að lækka matvöruverð í landinu. Það er til dæmis hægt að gera með lækkun eða afnámi græn- metistolla. Með þeim mikla sam- runa sem hefur orðið á matvöru- markaði hefur skapast hálfgerð einokun sem birtist í hækkandi álagningu. Á því þurfum við að taka.“ Er skattalækkun á fyrirtæki og hugsanlega einstaklinga raunhæfur kostur, að þínu mati? „Já, eins og ég lagði til í vor. Menn ættu að íhuga skattalækkan- ir á lítil og meðalstór fyrirtæki. Samhliða þarf aö lækka skatta á þeim sem eru verst staddir. Það er til dæmis hægt að gera með því að afnema skatta á fjárhagsaöstoð sveitarfélaga, afnema skatta á húsaleigubætur og stíga skref til að lækka skatta á lífeyristekjum aldr- aðra. Til lengri tíma vil ég taka upp auðlindagjald í sjávarútvegi, á orkuframleiðslu og fjarskiptarásir og nota það meðal annars til að lækka tekjuskatta. í dag er svo mjög mikilvægt að skapa umhverfi sem gerir Seðlabankanum kleift að lækka vexti rækilega þegar líöur á árið.“ Forsætisráöherra hefur gert verkföllin í landinu ítrekað að umræðuefni - líturðu á hugarfar íslenskra launþega sem einhvers konar vandamál eða liggur vandinn annars staðar?" „Forsætisráöherra kennir jafnan öðrum um þann vanda sem hann og ríkisstjómin hafa skapað. í dag erum viö að súpa seyöið af röngum ákvörðunum ríkisstjórnarinnar fyr- ir nokkrum misserum. Við horfum upp á gríöarlegan viðskiptahalla sem sprengdi krónuna. Sjómanna- verkfallið hafði líklega áhrif til skamms tíma, en ekki varanleg. Það er ekki stórmannlegt af forsæt- isráðherra að kenna verkföllum um ástandið. Allra síst í dag þegar ríkisstjórnin rembist við aö komast hjá því að semja við fólk sem sér um velferð þroskaheftra og fatl- aðra. Það er ömurlegt að horfa upp framkomu hennar gagnvart þroska- þjálfum og skjólstæðingum þeirra.“ Þú talaðir um tifandi tíma- sprengju. Er sprengjan sprung- in? „Já, eins og sést á genginu sem er kolfallið og verðbólgunni sem er rokin upp. Ég sagði á sínum tíma að viðskiptahallinn væri tima- sprengja sem gæti leitt til þess að krónan veiktist heiftarlega og ný verðbólguhrina færi af stað. Þetta hefur illu heilli gengið eftir. Ríkis- stjómin glutraði góðærinu niður að nauðsynjalausu. Verðbólga hér er þrefalt hærri en í samanburðar- löndunum og vextir einnig. Þetta er herkostnaðurinn af sjálfbirgings- hætti stjómarinnar sem hlustaði hvorki á varnaðarorð stjórnarand- stöðu, verkalýðshreyfingarinnar né fjármálastofnana sem fjölluðu um málið.“ rr-r-rr’n^rrnrer""^’1"' Björn Þorláksson og Arndís Þorgeirsdóttir blaöamenn Á slðasta ári einkenndi bjart- sýni ráðgjöf fiskifræðinga Haf- rannsóknarstofnunar? Á þessu ári týndust 550 þúsund tonn af þorski. Er Hafró á villigötum? „Það dregur að minnsta kosti úr trúverðugleika stofnunarinnar að eftir að hún setti fram gögn um að veiða mætti 150 þúsund tonn þá mótmælti hún ekki þeirri óvísinda- legu og heimskulegu aflareglu, sem ríkisstjórnin setti, um að aldrei mætti lækka veiðiheimildir um meira en 30 þúsund tonn. í ár eru menn að veiöa 40-50 þúsund tonn umfram það sem Hafró telur ráð- legt. Ef stofnunin hefði trú á eigin aðferðum hefði hún mótmælt þessu. Það gerði hún ekki. Ef hún tekur ekki mark á sjálfri sér, hver á þá að gera það?“ ítrekað kemur Samfylkingin fremur illa út úr skoðanakönn- unum. Nú síðast missti stjórnar- meirihlutinn 5% en bróðurpart- ur þess fylgis fór til vinstri grænna. Segir þetta ekki að Samfylkingin er á rangri braut? „Ég held ekki að við séum á rangri braut. En ég væri ekki heið- arlegur ef ég segöi ekki að auðvit- að eru þetta mér vonbrigði. Ég tel hins vegar að við eigum eftir að koma stefnu okkar skýrar á fram- færi og við skulum ekki gleyma því að flokkurinn hefur ekki verið til nema í rúmt ár. Það eru tvö ár til kosninga og menn taka hvorki kosningasigra né ósigra út fyrir- fram.“ Er draumurinn um sameinaða vlnstri menn fyrir bi? „Nei. Við getum ekki jarðað þann draum. Því má heldur ekki gleyma að pólitísk kennileiti á vinstri vængnum hafa gjörbreyst með stofnun Samfylkingarinnar. Áður fyrr höfðu A-flokkarnir á góð- um degi um 30% fylgi en nú er svo komið að hver könnun af annarri sýnir að VG og Samfylking eru vel yfir 40% samanlagt. Að mínu mati eiga viðhorf sem spanna frá endi- mörkum VG til ystu marka Sam- fylkingar að rúmast í einni breiðri, póltískri kirkju. Það er enn minn draumur.“ / ár eru menn að veiða 40-50 þúsund tonn um- fram það sem Hafró telur ráðlegt. Ef stofnunin hefði trú á eigin aðferð- um hefði hún mótmœlt þessu. Það gerði hún ekki. Hefurðu eitthvað hugleitt að skipta þér út sem karlinum í brúnni ef fylgi flokksins eykst ekki? „Nei, ég hef ekki hugleitt það.“ Náttúruvernd ríkisins hefur gefið út að stofnunin telji mikla mengxm hljótast af fyrirhuguðu álveri í Reyðarfirði. Eru stóriðj- ur tímaskekkja? „Nei. En Kárahnjúkavirkjun er hins vegar ákaflega umdeilanleg, bæði frá sjónarmiði umhverfis- verndar og efnahagslífsins. Mér flnnst menn vera að flýta sér um of í stóriðjumálum, af því menn eru búnir að tala sig inn í kreppu. Nú skiptir mestu máli að ná stöðug- leika og draga úr verðbólgu. Eitt af því sem hefur ekki komið fram varðandi þau stóriðjuáform sem nú eru uppi, það er stækkun Norður- áls og Kárahnjúkavirkjun, er að þau myndu hafa í fór með sér verð- bólgu upp á 2,5 til 3% árlega, ofan á þá verðbólgu sem er fyrir. Er það það sem við þurfum i dag? Frá sjónarhóli efnahagslífsins ættu menn því fremur að velta fyrir sér smærri skrefum eins og stækkun Norðuráls og ísals. Ég tek hins veg- ar undir með varaformanni Fram- sóknarflokksins um að það á ekki að taka fermetra af Þjórsárverum undir lón. Það er hægt að fá ork- una til dæmis í Núpa- og Urriða- fossvirkjun, auk þess sem Reykja- víkurborg og Svartsengi geta lagt til orku.“ í ljósi Evrópumálanna telurðu stjórnarsamstarf Samfylkingar og Framsóknar líklegt eftir næstu kosningar? „Ég tel miklu frekar að ríkis- stjórn sem Samfylkingin ætti aðild að myndi snúast um uppstokkun í sjávarútvegsmálum, afnám gjafa- kvótans og breytingu landsins í eitt kjördæmi. Ég er nokkuð viss um að næsta ríkisstjórn verði mynduð um uppstokkun í sjávarútvegsmál- um og Samfylkingin mun ekki taka þátt í neinni stjóm sem ekki hefur það sem eitt af forgangsverkefn- um.“ Sérðu einhver teikn á lofti um að Davíð sé að hverfa úr pólitík? „Nei, ég held það yrði ákaflega erfitt fyrir hann að hætta við þær aðstæður sem nú hafa skapast í efnahagsmálum vegna mistaka rík- isstjómarinnar. Mér sýnist hann fremur vera að vopntygjast. En hann á í vændum tvö erfið ár.“ Verður borgarstjóri í framboði fyrir Samfylkinguna í næstu al- þingiskosningum. Mimið þið leiða sitt hvort Reykjavíkurkjör- dæmið? „Ég þarf allar hendur á dekk. Fái ég einhverju um það ráðið þá verður borgarstjóri í framboði fyrir Samfylkinguna í öðru kjördæminu í Reykjavík. Ingibjörg Sólrún er ákaflega öflugur stjómmálamaður. Ég væri því ekki skynsamur for- maður stjórnmálaflokks ef ég leit- aði ekki eftir því viö hana og aðra þá sem ég tel mjög öfluga að þau tækju upp sverð fyrir Samfylking- una og berðust. En við höfum aldrei talað saman um þetta og þaö veröur að ráöast af pólitískum að- stæðurn." Heiti potturinn Umsjðn: Gylfi Kristjánsson netfang: gylfik@ff.is Mér líöur eins og... Oft getur verið erfitt að halda andlitinu þegar menn fara af stað á háfleygu nótunum en verður síðan á að misstíga sig. Sagt er aö sumir hafi fengið tilefni til að fara af- síðis á vígslu- hátíð kjúklingaverk- smiðju Ferskra kjúklinga í Mosfellsbæ fyr- ir skemmstu þeg- ar landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson hóf eina af sínum há- stemmdu ræðum á því að lýsa því yfir að sér liði í hinni nýju verk- smiðju eins og á fögrum sumar- morgni á Suðurlandi, fyrir hádegi. Fálkinn flýgur Væntanlegt mun á markaðinn nýtt tímarit sem bera mun nafnið Fákinn en vikublað með sama nafni var gef- ið út um miðja síðustu öld. Nýi Fálk- inn er reynd- ar af öðrum toga en sá gamli en þar mun vera á ferðinni svo- kallað menn- ingartímarit. Heyrst hefur að ritstjóri verði Sal- vör Nordal en meðal þeirra sem sitja í ritnefnd er enginn annar en Matthías Johannessen sem um áratugaskeið ritstýrði Mogganum en kvaddi þann starfsvettvang sök- um aldurs fyrir skömmu. Er ekki að efa að Matthías láti til sín taka í nýjum Fálka og mun væntanlega gusta af honum ef að líkum lætur. Pétri aö kenna? Helst var á David Winnie, þjálfara KR, að skilja eftir tapið í bikarleiknum gegn Fylki að sökina á því tapi ætti Pétur Péturs- son, fyrrver- andi þjálfari liðsins. Winnie sagði í viðtali við DV eftir leikinn að þeg- ar hann tók vi£ liðinu hefði þat verið búið ai ná botninum hvað karakter og liðs- anda varðaði og að hann hefði þurft að blása lífí í liðið að nýju. Þetta þykir ekki beint sannfærandi hjá Winnie enda hafa engir brestir verið í karakter KR-liðsins í sumar þrátt fyrir mótlætið. Það er ekki til annars hjá Winnie að bera svona á borð en að skemmta þeim fjöl- mörgu sem hafa sér það helst til skemmtunar þessa dagana að hlakka yfir ófórum KR-inga, nú síðast í bikarkeppninni. Omnya ónýtur? Rússneski ryðdallurinn sem leg- ið hefur bundinn við bryggju á Ak- ureyri árum saman gæti verið á leiðinni í burtu. Heyrst hefur að tog- arinn, sem Akureyrar- höfn hefur fundið stað á besta stað á at- hafnasvæði slippstöðvar- innar Stáltaks, hafi verið dæmdur ónýtur og þá liggur senni- lega ekkert annað fyrir en sigla honum til útlanda og selja hann þar í brotajám. Heyrst hefur að Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, sé fús að sigla skipinu utan, sé skipið á annað borð siglingarhæft, en til þess hef- ur hann öll tilskilin réttindi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.