Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2001
DV
Utlönd
11
Norður-England:
120 logreglumenn
slösuðust í óeirðum
Sól og
öryggisfilma.
Sandblástursfilmur
120 lögreglumenn slösuöust í kyn-
þáttaóeirðum i borginni Bradford í
Noröur-Englandi á laugardags-
kvöld. Óeirðirnar blossuðu upp eftir
að andrasistar mótmæltu áætlunum
hins nasiska Þjóðarflokks um að
halda fjöldafund í borginni. Upptök
átakanna má rekja til þess að hópur
hvítra manna sem kom út úr öldur-
húsi í borginni hreytti niðrandi
kynþáttatengdum ummælum í mót-
mælendurna.
Um þúsund ungmenni, flest af
pakistönsku og indversku bergi
brotin, köstuðu flöskum, múrstein-
um og bensínsprengjum í lögreglu-
menn og byggingar. Meðal annarra
vopna sem voru notuð má nefna lás-
boga, sleggjur og neyðarblys. Múg-
urinn kveikti í bifreiðum og húsum,
auk þess sem bílar voru ítrekað not-
aðir til að keyra inn í varnarlínu
lögreglunnar. Fyrir utan 120 slasaða
lögregluþjóna voru tveir lögreglu-
Vígvöllur í Bradford
Múgur fór um Bradford og skemmdi bíla og byggingar og særði 120 lögreglu-
þjóna. Auk þess var einn lögregluhestur stunginn með hnífi.
Bolahlaup í Pamplona
Hin árlega San Fermin hátíð í Pamplona á Spáni hófst um helgina með bolahlaupi. Hundruð manna hlupu á undan
eða með fram sex mannýgum nautum á laugardag og sunnudag. Níu manns eru slasaðir eftir hlaupin, einn var stang-
aður í brjóstið og bandarísk kona fékk horn í lærið. Mannfall hefur ekki orðið í bolahlaupinu í Pamplona síðan 1995.
Hamas hótar tíu
sjálfsmorðsárásum
11 ára palestínskur drengur var
skotinn til bana á Gaza-svæðinu á
laugardag. Hann var ásamt fleiri
drengjum að kasta grjóti í ísraelska
hermenn þegar þeir hófu skyndi-
lega skothríð. Talsmenn ísraelshers
segja hermennina hafa verið að
svara handsprengjuárás palest-
ínskra byssumanna en segjast að
öðru leyti ekki hafa upplýsingar um
málið.
Palestínsku baráttusamtökin
Hamas hótuðu því að senda út af
örkinni tiu sjálfsmorðsárásir í
hefndarskyni fyrir morðið drengn-
um. „Við höfum tiu píslarvætti í
biðstöðu innan ísraels. Þeir eru til-
búnir til að koma fram hefndum á
ísraelsku morðingjunum."
Palestínskir embættismenn til-
kynntu í fyrradag að ísraelskir her-
11 ára drengur skotinn
Israelsher skaut 11 ára Palestínu-
mann á laugardag.
menn í dulargervi hafi numið á
brott einn framvígismann Hamas-
samtakanna í Hebron á Vesturbakk-
anum. Handtakan var framkvæmd
á svæði sem á að vera undir fullri
stjórn Palestínumanna. 400 ísraelsk-
ir landnemar búa undir verndar-
væng hersins í Hebron, á meðal 120
þúsunda Palestínumanna.
ísraelskir landnemar sækja í
auknum mæli í aðferðir til að verj-
ast ágengni palestínskra íbúa í
grennd við landnemabyggðirnar. 20
brynvarðar Merzedes Benz-bifreiðar
ísraelshers verða eftirlátnar land-
nemum á næstunni. Flestir þeirra
ganga um vopnaðir og í skotheldu
vesti.
Margt bendir til þess að vopnahlé
siðustu vikna sé í raun runnið út í
sandinn.
hestar særðir, annar stunginn með
hnífi.
Einnig sló í brýnu milli asískra
mótmælenda og hópa hvítra and-
stæðinga þeirra og voru tveir menn
stungnir með hnífum. Lögreglan
handtók 36 manns, 13 hvíta og 23
asíska.
David Blunkett, innanríkisráð-
herra Bretlands, kallaði í gær óeirð-
irnar hugsunarlaust ofbeldi. Hann
sagði íbúa Bradford hafa skemmt
sitt eigið samfélag og framtíð.
Óeirðirnar í Bradford koma í
kjölfar kynþáttaóeirða í Burnley og
Oldham í Norður-Englandi fyrr í
sumar. Óvenju heitt hefur verið í
veðri í Englandi í sumar og er það
talið ýta undir samsöfnuð ofbeldis-
fulls múgs á götum úti.
Bradford leit út eins og vigvöllur
á sunnudaginn, brennd bílhræ og
rúðubrot þöktu göturnar. Mikil
reiði kraumaði í íbúum borgarinn-
ar yfir eyðileggingunni. Margir
vildu meina að óeirðirnar hafi lítið
haft með kynþáttaátök að gera,
þarna hafi verið að verki hópur
fólks í leit að slagsmálum.
Staðsetning átakanna kemur
nokkuð á óvart. Bradford er þekkt
fyrir góðar samvistir mismunandi
kynþátta. Af tæplega 500 þúsund
íbúum á borgarsvæðinu er fólk af
asísku bergi brotið um 100 þúsund.
• Stórminnkar sólarhita
• Gerir sólabirtuna mildari og þægilegri
• Útilokar nánast útfjólubláa geisla og upplitun
• Eykur öryggi í fátviðrum og jarðskjálftum
• Eykur öryggi gegn innbrotum
• Branavarnarstuðull er F15
■ Einangrar gegn kulda, hita og hávaða
■ Glerið verður 300% sterkara
• Minnkar hættu á glerfiísum í andlit
• Gerir bílinn/húsið glæsilegra
GLÓIHF
Dalbrekku 22 • Kópavogi
sími 544 5770
Toyota
Nissan
Range Rover Ford
Chevrolet
Suzuki
Cherokee
JeepWillys
Land Rover
Musso
Isuzu
mmmmt mm heim8SÍ6ð:
JSE E www.slmnet.lt/aplait
ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740
Framíeiðum brettakanta, sðlskyggni og boddihluti á fiestar aerðir jeppa,
einnig boddihluti í vórubila og vanbíla. Séfsm® og viðgerðir.
Vikuferð til
Benidorm
20. júlí
frá kr. 29.985
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri á síðustu
sætunum til Benidorm 20. júlí í vikuferð. Miðað
við heimflug þann 27.júlí.Þú bókar núna og 2
dögum fyrir brottför segjum við þér hvar þú gistir
og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu
fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Kr 29.985 Kr. 39.985
Verð á mann miðað við hjón Kr. 39.985Verð á mann
með 2 böm, 2—11 ára, flug, miðað við 2 í íbúð/stúdíó
gisting, skattar.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 sími 595 1000. www.heimsferdir.is