Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 13
13 MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2001 I>V Foldarskart Málverk Eggerts Péturs- sonar eru ekki öll þar sem þau eru séð. Eða réttara sagt: í þeim er svo mikið að sjá að venjulegur áhorfandi fær seint gaumgæft þau til fullnustu. Úr fjarlægö koma þau manni fyrir sjónir sem óhlutbundin tilbrigði í anda afstrakt-impressjónista, skilmerkilegar áréttingar á yfirborðseiginleikum myndflatarins með kvikum pensildráttum og alþöktum striga. í návígi breytist þessi myndvíðátta, makró- kosmos, í míkrókosmos, smáheim íslensks foldar- skarts, þar sem hverjum stilk, krónu og laufblaði er haldið til haga með undra- verðri nákvæmnisvinnu. Þessi nákvæmni verður til þess að árétta áðurnefnda flatneskju myndflatarins og opna auganu ótal skoðunar- leiðir í allar áttir nema inn á við; raunar svo margar og misvísandi leiðir að þær vekja með áhorfandanum bæði óþreyju og innilokun- arkennd. Um leið hlýtur áhorfand- inn að velta fyrir sér hvað listamanninum gangi til með því að vinna mánuðum saman að því að flytja blómstrandi grastodda og fífureiti yfir á striga. Ef Eggert tilheyrði aldamótakynslóöinni væri sennilega hægt að flokka málaralist hans undir fegurðarleit, jafnvel undir „leitina að Paradís", eins og segir í aðfaraorðum Jirki Siukonen að sýningu hans í Galleríi 18. Berum málverk hans til dæmis saman við nákvæmn- gert hefur vart við sig í vest- rænni málaralist hin síðari ár. Nú er ekkert til sem heitir „verð- ugt“ viðfangsefni - hámenning og lágmenning eru eitt - og því er listmálaranum frjálst að leita fanga þar sem honum þóknast. Jafnvel að mála sömu þúfuna allt sitt líf. Rétt er að hafa í huga að þessar náttúrumyndir Eggerts eiga upptök sín í myndskreyting- um sem hann gerði fyrir uppslátt- arrit um Flóru íslands. En fyrst og fremst virka þessi málverk á þann sem þetta skrifar eins og skrásetning tímans, jafn- vel eins og örvæntingarfullar til- raunir til að stöðva hann og þar með hnignun jarðargróðurs og þeirrar skapandi vitundar sem ber honum vitni. Það er því eng- in goðgá að nefna málaðar dag- setningar pólska listamannsins Roman Opalka, hvers verk voru til sýnis að Kjarvalsstöðum á síð- asta ári, í tengslum við þessi mál- verk Eggerts. Það er einmitt sí- byljan í þeim sem vekur með manni meðvitund um tímans rás; sérstök útlistun einstakra blóma eða stilka hefur hins vegar á sér yfirbragð tálsýnar. Loks má velta fyrir sér hvort þessi síbylja hafi ekki enn aðra merkingu fyrir listamanninn; hvort hún sé ekki árétting þess að við séum ekki stjórnend- ur náttúrunnar. Að hún muni fara sinu fram og endurnýja sig hvemig sem veröldin veltist. Aðalsteinn Ingólfsson Sýningin stendur til 28. júlí og er I i8 á Klapparstíg 33. Skrásetning tímans „En fyrst og fremst virka þessi málverk á þann sem þetta skrifar eins og skrásetning tímans, jafnvel eins og örvæntingarfullar tilraunir til að stöðva hann og þar með hnign- un jarðargróðurs og þeirrar skapandi vitundar sem ber honum vitni. “ ismyndir Kjarvals af melum, móum og kjarri - ein þeirra, Bláberjagrein (í eigu Karitasar Bjargmundsdóttur), er raunar sláandi lík mál- verkum Eggerts. Síbylja tímans Þó er kannski nær að sjá málverk Eggerts í samhengi þeirrar lýðræðistilhneigingar sem Leitin að Paradís „Ef Eggert tilheyrði aldamótakynslóðinni væri sennilega hægt að flokka mál- aralist hans undir fegurðarleit, jafnvel undir „leitina að Paradís", eins og segir í aðfaraorðum Jirki Siukonen að sýningu hans í Galleríi 18. “ DV-MYNDIR E.ÖL. Undraverð nákvæmnisvinna J návígi breytist þessi myndvíðátta, makrókosmos, i míkrókosmos, smá- heim íslensks foldarskarts, þar sem hverjum stilk, krónu og laufblaði er haldið til haga með undraverðri nákvæmnisvinnu. “ mannsgaman / \\\ Bókaveggfóður Merkilegt hvað bókahillur skipta miklu máli í lífi íslendinga. Á venjulegu heimili liggja þær í tugum metra eftir veggjum í stofum og herbergj- um, misjafnlega sveigðar af þunga bókanna. Á sumum heimilum er að finna sérstök húsbónda- herbergi þar sem hillur fylla alla veggi, frá gólfi og upp í loft. Það þykja góð heimili. Á enn öðr- um heimilum eru sérstakar bókastofur, þar sem hillumetrarnir nálgast kílómetra. Það þykja menningarheimili. Á Reykjavíkurárum sínum hefur sá sem þetta skrifar flutt fjörlega oft á milli húsa. Líklega hef- ur hann skipt tólf sinnum um íbúð á tuttugu árum. í hvert sinn.hefur hann raðað ölium bók- um sínum í pappakassa og burðast með þá á milli húsa og eilíflega orðljótur, því fátt reynir meira á mannanna bak en fullur kassi af bókum. Bækur eru enda þungavara, saman komnar í kassa. Fyrir örfáum árum fann þessi skrifari fínt hús í uppsveitum Reykjavíkur. Og enn fylgdu bæk- umar með, mikill fjöldi af margteipuðum pappa- kössum. Þegar honum var litið yfir gluggalausa veggina í niðurgröfnum kjallara hússins sá hann að þarna ættu bækur hans heima, nú loks kæmust þær á leiðarenda og kassar væru liðin tið. Hafist var handa og hamarshöggin dundu dag og nótt. Núna er erfiðið að baki og sælusvipur skrifar- ans er enn eins og helgimynd. Hann stendur fyr- ir framan hillurnar á kvöldin og getur verið þar tímunum saman og dáðst að þvi hvernig ein bók- in tekur við af annarri í fagurlega skornum hill- unum sem fylla út í öll horn. Honum finnst fátt fylla hugann meir en návist við bækur. Hann er á því að ekkert fóðri veggi eins vel og bækur. Ekkert klæði hús og hug jafn ríkulega. Æði margar, ef ekki flestar bókanna, eru ólesnar. En það er aukaatriði. __________Menning Uinsjón; Sígtryggur Magnason Hinn danski Svavar Nú stendur yfír í Carl-Henning Ped- ersen og Else Alfelt-safninu í Herning í Danmörku sýningin Fimm danskir Cobra-málarar. Það er Per Hovdenakk sem er sýningarstjóri og meðal þessara fimm „dönsku“ málara er Svavar Guðnason. í Jyllands-Posten er það einmitt mynd án titils eftir Svavar sem er birt með jákvæðri gagnrýni þar sem segir meðal annars aö þau bestu hafí öðlast .eigið líf. Minnisvaröi um Björgu C. Þorláksdóttur Þann sautjánda júní var afhjúpuð brjóstmynd af Björgu C. Þorláksdóttur en hún var fyrst ís- lenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi. Því lauk hún í Sor- bonne 17. júní árið 1926. Doktorsritgerð hennar er á sviði lífeðlisfræðinnar með sterk tengsl við heimspeki og sálar- fræði. Áður en hún hóf nám við Sor- bonne hafði hún unnið við hina miklu íslensk-dönsku orðabók sem er vana- lega kennd við Sigfús Blöndal, eigin- mann hennar. Eftir Björgu liggja mörk rit og meðal þeirra má nefna bækur og þýðingar um mataræði, þjóðþrif, svefn og drauma og menntamál kvenna. Auk þess skrifaði hún leikrit og ljóð og þýddi erlend skáldverk. Björg lést af völdum krabba- meins árið 1934, þá sextug að aldri. Brjóstmyndin af Björgu er gerð eftir afsteypu Ásmundar Sveinssonar. Stöp- ullinn undir brjóstmyndinni er hannað- ur af listakonunni Soffíu Árnadóttur og unninn af Steinsmiðjunni Rein og Þór Sigmundssyni steinsmið. Styttan er reist fyrir tilstuðlan áhugahóps um að halda á lofti minningu Bjargar. Ungir menn enn á uppleið HSýning Stúdenta- leikhússins, Ungir menn á uppleið, verð- ur frumsýnd í fjórða sinn á miðvikudags- kvöld og nú í Kaffí- leikhúsinu. Sýningin hlaut góða dóma þeg- ar hún var sett upp fyrst síðari hluta vetr- ar og var auk þess valin Áhugaleiksýn- ing ársins af Þjóðleikhúsinu og sett upp þar í maí. Þá var sýningunni boðið á leiklistarhátíð í Vilnius þar sem hún sópaði að sér verðlaunum. Til dæmis var hún valin besta erlenda sýningin og leikhópurinn sá besti. Leikritið gerist á galakvöldi herra- klúbbsins Ungir menn á uppleið en all- ir meðlimir klúbbsins eru uppar, fjár- glæframenn og vitleysingar að atvinnu. Hægt er að borða mat frá Tapas-bar og fá sér drykk á meðan á sýningu stendur. í nærveru - nokkrir sálgæsluþættir Skálholtsútgáfan, út- gáfufélag Þjóðkirkjunn- ar, hefur gefið út bók- ina I nærveru - nokkr- ir sálgæsluþættir eftir Sigfinn Þorleifsson, sjúkrahúsprest á Landspítala háskóla- sjúkrahúsi. í bókinni er meðal annars lýsing á því hvernig maður á að nálgast annan mann, einkum í sálarneyð, og reynir að leggja lið, styrkja og leiða. Bókin er góð hjálp öllum þeim sem hlúa vilja að and- legri velferð annarra, hún vekur upp meðvitundina um hvað felst í því að hlusta á aðra og skilja hvað þeim liggur á hjarta. Hún leiðbeinir og hvetur til skilnings og hluttekningar til að skynja dýpstu tilfinningar fólks og andlegt ástand þess. Kápumynd er eftir Krist- ínu Gunnlaugsdóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.