Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 22
34 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Folk i frettum Gísli H. Guðjónsson MANUDAGUR 9. JULI 2001 I>V Gísli Guöjónsson Gísli Guöjónsson réttarsálfræöingur hefur veriö í fréttum aö undanförnu vegna starfa sinna aö morömáti í Bretlandi sem dómur er nýfattinn í. 85 ára_________________________________ Hallfríöur Jónsdóttir, Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík. 80.ára_________________________________ Friörik Guöjónsson, Barmahliö 37, Reykjavík. Daníel Guöm Einarsson, Sundlaugavegi 18, Reykjavík. 75 ára_________________________________ Garöar Sigfússon, Laugarásvegi 57, Reykjavik. Jónína Halldórsdóttir, Lálandi 2, Reykjavík. Þorgeröur Guömundsdóttir, Höskuldarvöllum 17, Grindavík. 70 ára_________________________________ Sigurjón Magnússon, Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík. Eggert Guömundsson, Stórahjalla 37, Kópavogi. Gunnlaugur Briem Vilhjálmsson, Hrisholti 12, Selfossi. gQ.ára_________________________________ Gunnar JónasJónsson, Sæviöarsundi 33, Reykjavík. Elínborg Kristinsdóttir, Rauöageröi 28, Reykjavik. Elínborg verö- ur aö heiman á afmælisdaginn. Sigrún Eyjólfsdóttir, Fífurima 7, Reykjavík. Ásgeir Leifsson, Bæjarholti 7a, Hafnarfirði. Valgerður Sigurbergsdóttir, Ytri-Brekkum 2, Varmahliö. 50 ára_________________________________ Guölaugur A. Stefánsson, Irabakka 34, Reykjavík. María Markúsdóttir, Rfurima 4, Reykjavík. Ólafur Haraldsson, Kjarrhólma 12, Kópavogi. Rúnar Gils Hauksson, Arnarsmára 18, Kópavogi. Birgir Hrafnsson, Leirutanga 22, Mosfellsbæ. Auður Skaftadóttir, Hraungeröi 2, Akureyri. 40 ára_________________________________ Ema Bjarnadóttir, Hraunbæ 30, Reykjavik. Snjólaug Guðrún Sigurjónsdóttir, Flétturima 22, Reykjavik. Hinrik Helgi Hinriksson, Vallarflöt 7, Stykkishólmi. Anna María Ragnarsdóttir, Skaftafelli 2 Freysn., Fagurhólsmýri. Ingibjörg Finnbogadóttir, Foldahrauni 41b, Vestmannaeyjum. Persónuleg, alhliöa útfararþjónusta. Sv«nr1r Elnarason Bryndís útfararstjóri Valbjarnardóttir útfararstjóri Útfararstofa íslands Suöurt)liö35< Sfmi 581 3300 allan sölarhringinn. www.Utforin.IS Dr. Gísli Hannes Guðjónsson, yf- irréttarsálfræðingur við Lundúna- háskóla, hefur mikið verið í fréttum að undanförnu vegna dómsins fyrir morðið á sjónvarpskonunni Jill Dando í Bretlandi en Gisli var feng- inn til að starfa að málinu Starfsferill Gísli fæddist í Reykjavík 26.10. 1947 og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík, lærði húsgagnasmíði, lauk sveins- prófi í þeirri grein 1967 og vann síð- an við húsgagnasmíði í eitt ár. Gísli ílutti síðan til Englands í því skyni að læra ensku, stundaði siðan nám við verslunarskóla í Englandi, lauk stúdentsprófi þar 1970, stund- aði nám í meðferðarsálfræði við Burnel-háskólann í Vestur-London, lauk þar BS-prófi með hæstu eink- unn 1975, lauk MS-prófi í meðferð- arsálfræði við Surrey-háskóla og síðan doktorsprófi þaðan 1981. Með námi starfaði Gisli á geðdeildum sjúkrahúsa, vann á stofnun fyrir unga afbrotamenn, starfaði eitt sumar við Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar og nokkrum sinnum hjá Lögreglunni i Reykjavík og RLR. Gísli hóf störf í meðferð- arsálfræöi við Institute of Psychi- atry 1980 og var í framhaldi af því ráðinn í fyrstu rannsóknar- og kennslustöðuna í réttarsálfræði við Lundúnaháskóla. Hann hefur þvi jöfnum höndum unnið sálfræðistörf við meðferðarstofnun og sinnt kennslu og rannsóknum sem yfir- sálfræöingur við Lundúnaháskóla. Auk þess hefur hann verið ritstjóri tímaritsins Personality Individual Differences. Síðast en ekki síst hef- ur Gísli verið ráðgjafi og dómkvadd- ur umsagnaraðili um mikinn fjölda afbrotamála, einkum morðmála. Út hafa komið eftir Gisla ritin The Psychology of Interrogations, Confessions and Testimony og The Causes and Cures of Criminality, auk kennslubókar í réttarsálfræði. Sigríður Theódóra Sæmundsdóttir húsmóðir, Skarði í Holta- og Land- sveit verður sjötug á morgun. Starfsferill Sigríður Theódóra fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún tók gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Sigríður Theódóra flutti að Skarði 1950 og tók við búi þar ásamt eiginmanni sínum 1959. Sigríður Theódóra hefur starfað heima í Skarði og fylgst með velferð sveitarinnar og verið valin til for- ystu við ýmis mál. Einkum hafa kvenfélagsmál verið henni kær og hefur hún verið formaður Kvenfé- lagsins Lóu í Landsveit í 40 ár. Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar Theódóru var Guðni Kristinsson, bóndi og hreppistjóri, f. 6. júli 1926, en hann lést 25. desember 1998. Þau giftust Fjölskylda Eiginkona Gísla er Julía Guðjóns- son, f. 1945, húsmóðir. Stjúpdætur Gísla eru Rowena Guðjónsson og Rhiamon Guðjónsson. Tvíburabróðir Gísla er Guð- mundur Guðjónsson, f. 26.10. 1947, yfírlögregluþjónn hjá Ríkislögreglu- stjóra, kvæntur Tove Bech húsmóö- ur og eiga þau tvö börn auk þess sem hann á tvo stjúpsyni. Foreldrar Gísla eru Guöjón Aðal- steinn Guðmundsson, f. 6.1. 1921, fyrrv. kaupmaður í Reykjavík, og k.h., Þóra Hannesdóttir, f. 2.6. 1919, d. 6. febrúar 2000, húsmóðir. Ætt Guðjón er bróðir Karitasar, móð- ur Jóhönnu Sigurðardóttur alþm. Guðjón er sonur Guðmundar, kaup- manns í Reykjavík, Guðjónssonar, sjómanns í Reykjavík, Björnssonar, bróður Guðrúnar, ömmu Alberts Guðmundssonar ráðherra. Móðir Guðmundar var Steinunn Þor- steinsdóttir, b. í Breiðamýrarholti, bróður Steinunnar, móður Magnús- ar Jónssonar dósents og Þóris Bergssonar rithöfundar. Þorsteinn var sonur Þorsteins, garðyrkjub. í Úthlíð í Biskupstungum, Þorsteins- sonar, b. á Hvoli í Mýrdal, hálfbróð- ur Bjarna Thorsteinssonar amt- manns, föður Steingríms, rektors og skálds, föður Axels blaðamanns. Þorsteinn var sonur Þorsteins, b. í Kerlingardal, Steingrímssonar, bróður Jóns „eldprests". Móðir Þor- steins í Úthlíð var Þórunn Þor- steinsdóttir, b. á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, Eyjólfssonar. Móðir Stein- unnar var Guölaug Stefánsdóttir, b. á Brekku í Biskupstungum, Gunn- cirssonar, af Víkingslækjarættinni, bróður Helgu, langömmu Ingigerð- ar, móður Guörúnar Helgadóttur fyrrv. alþm. Móðir Guðjóns var Anna María Gísladóttir, sjómanns í Reykjavík, Jónssonar, frá írafelli í Kjós. Móðir þann 25. april 1954. Foreldrar Guðna voru Kristinn Guðnason, bóndi og hreppstjóri, og Sigriður Einarsdóttir ljósmóðir. Þau bjuggu í Skarði í Landsveit. Börn Sigríðar Theódóru og Guðna eru 1) Kristinn, bóndi í Skarði, f. 6. desember 1950, börn hans eru Borg- hildur, Guðni, Sigríður Theódóra, Laufey Guðný, Hekla Katharina og Rakel Natalie; 2) Helga Fjóla, búsett á Hvolsvelli, f. 7. nóvember 1957, gift Ingvari Ingólfssyni vélvirkja og eru börn þeirra Erlendur og Guðni. Barnabarnabörn Sigriðar Theódóru eru Fjóla Kristín og Karen. Systkini Sigríðar Theódóru eru Margrét Sæmundsdóttir hjúkrunar- framkvæmdastjóri og Sæmundur Sæmundsson vélstjóri. Foreldrar Sigríðar Theódóru voru Sæmundur Sæmundsson kaupmað- ur, f. 26. nóvember 1908, d. 5. júni 1995, og Helga Fjóla Pálsdóttir hús- móðir, f. 11. nóvember 1909, d. 3. nóv- Önnu Maríu var Vilborg, systir Sal- varar, langömmu Sigurðar Sigur- jónssonar leikara. Vilborg var dótt- ir Frímanns, b. að Kirkjuvogi í Höfnum, Gíslasonar. Móðir Vilborg- ar var Magnea Þórðardóttir, b. á Bakka i Höfnum, Þorkelssonar, bróður Ögmundar, afa Tómasar Guðmundssonar skálds. Þóra er dóttir Hannesar, útvegsb. í Vest- mannaeyjum, Sigurðssonar, b. á Seljalandi undir Vestur-Eyjaíjöll- um, bróður Tómasar, afa Grétars Haraldssonar lögmanns. Sigurður var sonur Sigurðar, hreppstjóra á Barkarstöðum í Fljótshlíð, ísleifs- sonar, Gissurarsonar. Móðir Sigurð- ar á Seljalandi var Ingibjörg, systir ember 1990. Þau voru lengst af búsett í Reykjavík. Ætt Sæmundur var sonur Sæmundar, b. á Lækjarbotnum á Landi, Sæ- mundssonar, b. og hreppstjóra á Lækjarbotnum, Guðbrandssonar, b. á Lækjarbotnum, Sæmundssonar, b. á Hellum á Landi, Ólafssonar, b. á Hellum, Ólafssonar, b. á Víkingslæk Tómasar Fjölnismanns, langafa Helga læknis, föður Ragnhildar, fyrrv. ráðherra. Systir Ingibjargar var Jórunn, amma Árna Þórarins- sonar, pr. á Stóra-Hrauni. Ingibjörg var dóttir Sæmundar, b. í Eyvindar- holti, Ögmundssonar, pr. á Krossi, bróður Böðvars, langafa Þorvalds, pr. í Sauðlauksdal, afa Vigdísar, fyrrv. forseta. Ögmundur var sonur Presta-Högna Sigurössonar. Móðir Sæmundar var Salvör Sigurðardótt- ir, systir Jóns, afa Jóns forseta. Móðir Þóru var Guðrún Jónsdótt- ir, b. á Seljalandi, Jónssonar, frá Bakka í Landeyjum, Einarssonar. Móöir Guðrúnar var Guðný Þor- björnsdóttir. á Rangárvöllum, Þorsteinssonar, b. á Minni-Völlum á Landi, Ásmundsson- ar, b. og smiðs á Minni-Völlum, Brynjólfssonar, lögréttumanns í Skarði á Landi, Jónssonar, lögréttu- manns í Skarði, Eiríkssonar, b. i Klofa, Torfasonar ríka sýslumanns í Klofa, Jónssonar. Helga Fjóla var dóttir Páls Frið- rikssonar, verkamanns í Reykjavík, og Margrétar Ámadóttur. Friðrik var sonur Helgu Bergsdóttur, f. í Syðra-Seli, húsfrú í Pálshúsum, og Páls sjómanns Magnússonar, b. og hreppstjóra á Lambastöðum á Sel- tjarnarnesi og Seli við Reykjavik. Helga var dóttir Bergs Jónssonar, b. í Hæringsstaðahjáleigu, og Gróu Tómasdóttur, b. á Litla-Hrauni, Jóns- sonar, b. í Grímsfjósum. Móðir Gróu var Ingveldur Hafliðadóttir, b. á Flóagafli og síðar á Syðra-Velli. Margrét var dóttir Árna Þorvalds- sonar, b. og hreppstjóra á Meiðastöð- um i Garði, síðar á Innra-Hólmi. Sigríður Theódóra verður heima á afmæliskvöldið þriðjudaginn 10. júlí með kaffi á könnunni og þætti gam- an að fá að sjá ættingja og vini. Sigríður Theódóra Sæmundsdóttir húsmóðir » "Y Andlát Ólöf Vernharösdóttir, fyrrv. hússtjórnar- kennari, Eskihlíð 20, lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli miðvikudaginn 4. júlí sl. Elínborg Guömundsdóttir, Hringbraut 115, Reykjavík, lést miðvikudaginn 4. júlí. Ingi Rafn Lúthersson, Hverfisgötu 32, Reykjavík, áöur Bíldudal, lést sunnudag- inn 17. júní sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Olgeir Gíslason, dvalarheimilinu Jaöri, Ólafsvík, lést á Landspítalanum Foss- vogi aö kvöldi miðvikudagsins 4. júlí sl. IMerkir Islendingar Kristján Albertsson Kristján Albertsson rithöfundur fæddist 9. júlí 1897 á Akranesi. Foreldrar Kristjáns voru Albert Þórðarson, síðast aðalbókari Lands banka íslands, og kona hans, Steinunn Kristjánsdóttir. Kristján lauk stúdentsprófi frá MR 1917. Hann var í námi í bókmenntasögu í Hafnarháskóla 1917-1921 og í Þýska- landi og Frakklandi 1921-1924. Kristján var ritstjóri Varðar 1924-1927, leik- stjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1924- 1927 og formaður Leikfélagsins 1925- 1926. Hann var einn af ritstjórum Vöku 1927-1929, dvaldist í Frakklandi 1928-1931 og í Rvík 1931-1935. Kristján var lektor í ís- lensku í Berlínarháskóla 1935—1943 og bjó í Kaupmannahöfn 1943-1945, Gautaborg 1945 og í Stokkhólmi 1945-1946. Hann var sendiráðsrit- ari í íslenska sendiráðinu í París 1946-1950 og sendiráðunautur 1950-1967. Kristján var í menntamálaráði 1933-1936, formaður 1933-1934 og i þingkosinni lánamálanefnd 1933-1934. Hann var í sendinefnd íslands á allsherjarþingi SÞ 1951-1955 og 1959-1962, í nefnd SÞ til rannsókna á skilyrðum fyrir frjálsum kosningum um allt Þýskaland og endursameiningu landsins í Genf og í Þýskalandi 1952 og í nefnd íslands á alþjóðaráðstefnu um hag- nýtingu kjarnorku til friðarþarfa í Genf 1955. Kristján samdi mörg rit en hann lést þann 31. janúar árið 1989. Gústaf H. Ingvarsson Gústaf H. Ingv- arsson, frá Stykkishólmi, nú til heimilis að Háaleitisbraut 15 í Reykjavík, er fimmtugur í dag. Afþví tilefni býð- ur hann upp á kaffi í félags- heimili Karla- kórsins Þrestir að Flatahrauni 21 í Hafnarfirði eftir klukkan 20 í kvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.