Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 4
Fréttir FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 x>v íbúar Beykilundar og Lerkilundar á Akureyri leggjast gegn skóla í hverfið: Lögreglan á Akureyri: Fíkniefnahundur- inn í sumarleyfi Lögreglan á Akureyri hefur yfir aö ráða hundi sem hefur hlotiö sér- staka þjálfun til fíkniefnaleitar en hundar gegna sífellt stærra hlut- verki þegar leitað er fikniefna við ýmsar aðstæður. Hundarnir eru t.d. taldir ómissandi um verslunarmannahelg- ar þegar fjöldi fólks safnast saman á útihátíðir og sala og neysla á fikni- efnum er mikil. Víðs vegar um land voru lögreglumenn á ferðinni með sérþjálfaða hunda um nýliðna versl- unarmannahelgi í leit aö fikniefn- um. Hundur Akureyrarlögreglunn- ar átti hins vegar náðuga daga um verslunarmannahelgina. Lögreglu- maðurinn sem séð hefur um þjálfun hundsins og vinnur með honum var í sumarleyfi og hundurinn fékk því frí frá störfum. -gk 160 sektaðir fyrir hraðakstur DV, HVALFIRDI: Hvorki meira né minna en 160 ökumenn þurfa að greiða 15 þúsund króna sektir fyrir hraðakstur í Hvalfjarðargöngum síðustu daga að því er kemur fram á heimasíðu Spalar. Þessir ökumenn óku yfir löglegum hraða undir Hvalfjörð og lentu fyrir vikið á ræmu hraða- myndavélarinnar góðu sem Spölur ehf. gaf lögreglunni sl. fimmtudag. Á heimasíðu lögreglunnar segir að ríkissjóður muni fá 2,4 milljónir króna úr vasa þessa hóps öku- manna og víst er að ökuþórarnir hafa ekki „grætt“ mikinn tíma á flýtinum: Ef keyrt er á jöfnum 70 km hraða tekur akstur i gengum göngin 4 mínútur og 57 sekúndur. Ef hins vegar er keyrt á 91 km hraða tekur ferðin 3 mínútur og 48 sekúndur og því ljóst að tímasparn- aðurinn er því nánast enginn - en sektin 15 þúsund krónur. -DVÓ Öldungur í bílveltu í Hveradölum Maður á tíræðisaldri missti stjórn á bifreið sinni í brekkunni við Hveradali á Hellisheiði í gær- dag. I fyrstu fór bifreið mannsins, sem var á leið til borgarinnar, út af veginum hægra megin en síðan upp á veginn aftur, yfir hann og valt síðan út af veginum vinstra megin. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavikur en ekki er talið að hann hafi slasast al- varlega. -gk Mótmæla staðsetningu Hrasaði með lestarborð í höndunum: Samherji sýknaður Samherji hf. á Akureyri hefur verið sýknaður af öllum kröfum starfsmanns fyrirtækisins sem slas- aðist við vinnu í fyrirtækinu á Ak- ureyri snemma árs 1995. Maðurinn hafði krafið Samherja um rúmlega 5 milljóna króna skaðabætur auk vaxta og Tryggingamiöstöðina um eina milljón auk vaxta úr slysa- tryggingu launþega. Tryggingamið- stöðin var dæmd til að greiða mann- inum tæplega 700 þúsund krónur auk vaxta. Málskostnaður milli mannsins og Samherja var felldur niður en Tryggingamiðstöðinni gert að greiða honum 300 þúsund króna málskostnað. Tildrög slyssins voru þau að mað- urinn var að vinna við að skrapa og mála lestarborð og þegar hann var að flytja þau til skrikaði honum fót- ur og hann féll við. Samherji taldi hins vegar að maðurinn hefði misst borð sem hann hélt á og við að reyna að ná tökum á þeim aftur hefði hann orðið fyrir meiðslum. Engin vitni voru að slysi manns- ins sem vildi kenna hálku á gólfinu um hvernig fór. Samherji taldi hins vegar að manninum hefði verið í sjálfsvald sett hvemig hann stóð að verkinu og ekki hefði þurft að koma til slyssins. Dómurinn taldi manninn eiga rétt á greiðslu úr slysatrygginga- sjóði sem Samherji hefði greitt til. Hins vegar taldi dómurinn ekki sannað að Samherji hefði sýnt af sér gáleysi með því að fela starfsmann- inum umrætt verkefni og skipu- leggja framkvæmd þess. -gk ■ '-x-> DV-MYND GVA Stafkirkjan á Skansinum Undanfarna daga hefur veriö unniö aö reglubundnu viöhaldi á gjöf Norö- manna, litlu Stafkirkjunni á Skansinum í Vestmannaeyjum. Málarar hafa veriö að bera tjöru á húsiö og angaöi allt umhverfiö af sterkri tjörulykt í sólinni. Fasteignir Akureyrarbæjar hafa ákveðið aö kaupa Beykilund 10 af Gísla Jónssyni fyrir 21 milljón króna undir Bröttuhlíðarskóla og sótt um breytta nýtingu á húsinu úr íbúðarhúsnæði í skólahúsnæði. Það er þó með fyrirvara um að grennd- arkynning gangi eftir en íbúar hafa enn tvær vikur til þess að skila inn athugasemdum. Bröttuhlíðarskóli er sérskóli fyrir unglinga með félagsleg vandamál en í honum munu vera um 20 nemend- ur á næsta ári. Fasteignir Akureyr- ar féllust ekki á tillögu fagaðila um kaup á Varpholti sem er hús sem stendur um 6 km utan bæjarins, í ljósi kostnaðar vegna aksturs til og frá og af ótta við að ekki yrði hægt að selja húsnæðið aftur ef til þess kæmi. Einnig var talið óeölilegt að starfsemin væri utan bæjar- markanna. íbúar við Beykilund og Lerkilund hafa brugðist ókvæða við þeim hug- myndum að skóli skuli settur í ná- grenniö en þeir telja sig hafa fest kaup á húsnæði þarna í þeirri trú að þeir væru að kaupa á rólegu svæði. Fundur hefur verið haldinn með þeim í upphafi grenndarkynn- ingar og segir Guðríður Friðriks- dóttir, forstöðumaður Fasteigna Ak- ureyrarbæjar, að fólk sé hrætt við umferðina sem af þessu hljótist. „Það er ekki auðvelt að finna hús- næði sem hentar því starfsemin þarf að vera í umhverfi sem er gró- ið og aðstaöan heimilisleg. Það komu tvö hús til greina en við skoð- Nýr Bröttuhlíðarskóli? Húsið aö Beykilundi 10 á Akureyri bar sem áformaö er aö Bröttuhlíðarskóli verði í framtíðinni. Nágrannar eru lítt hrifnir af því aö fá skóla í götuna. hafa ekkert með það að gera hvort svona skólar eigi rétt á sér, við erum okkur meðvitandi um nauð- syn þessarar þjónustu og sér- kennslu. En þarna er botnlangagata í afar rólegu hverfi og þarna geta verið allt að 16 nemendur auk 11 starfsmanna og við húsið eru aðeins 2 til 3 bílastæði. Þarna verður töluverð umferð á sama tima og börnin sem þarna búa eru á leið í sinn skóla. Lóðin við húsið er einnig fremur lítil svo nemendur hafa fremur lítið rými í frímínútum. Það eru t.d. aðeins 10 metrar stafn í stafn frá mér í Beyki- lund 10. Með svona mikilli starfsemi lækkar einnig fasteignaverð hér og það er spuming hvort þeir sem hér hafa verið að fjárfesta nýlega hefðu gert það ef vitneskja um þennan skóla hefði legið fyrir,“ segir Páll L. Sigurjónsson. -GG uðum miklu fleiri en skólastjóri Bröttuhlíðarskóla mat Beykilund 10 sem besta kostinn. Því var gert til- boð í það hús með fyrirvara um grenndarkynningu. Skólinn hefur verið til þessa í íbúðarhverfi án vandræða, enda er þessi starfsemi aðeins frá klukkan 8 á morgana til 4 á daginn," segir Guðriður Friðriks- dóttir. Páll L. Sigurjónsson hótelstjóri býr í Lerkilundi 36, beint norðan Beykilundar 10, en íbúar Lerkilund- ar 34, 36 og 38 fengu bréf vegna grenndarkynningarinnar auk allra húseigenda við Beykilund. Páll seg- ir að allir þeir sem hafi fengið bréf vegna grenndarkynningarinnar leggist gegn starfsemi skólans þarna og bréf þess efnis hafa verið sent bæjaryfirvöldum. „Okkar mótmæli <. ■ , - y %/' -9*. . -JW - f ■ m 12“ si Bjart veður víöast hvar Fremur hæg norðvestlæg eða breytileg átt og bjart veður víöast hvar. Hiti 7 til 18 stig að deginum, hlýjast sunnanlands. Sólarlag í kvöld Sólarupprás á morgun Síódegisflóö Árdegisflóö á morgun 09.59 l lil> < 1 J*—VINDÁTT 10 —HITI “2 -10° ^.VINDSTYRKUR Vrensr í metrum i sekúndu x ‘ LETTSKÝJAÐ £> HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ í? RIGNING SKÚRIR SLYDDA 1 ÉUAGANGUR V ÞRUMU- VEÐUR pjjg SKAF- RENNINGUR AKUREYRI 22.04 22.05 05.03 04.32 21.37 02.10 14.32 HEIDSKiRT S®/ 1S* ý iiö> r>ró Mislæg gatnamót Senn lýkur framkvæmdum viö mislæg gatnamót Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar. Vegna fram- kvæmdanna er nauðsynlegt að beina umferö frá Nýbýlavegi sunnan Smiðjuvegar og Dalvegi austan Hlíöarhjalla. Lokað veröur fyrir umferð á þessum stöðum frá 7. ágúst til 9. september. tmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm i i i'i 111 n i iiitMidikaijmnai **’‘Mh* M -t. - >-m Vtflir i tkyggAum »v®ftum mýrdaMöftan •ru lokaftlr þv tu annsð "rt“ "*** www.vagag.ls/fMrd Vaxandi suöaustan átt vestanlands Snýst i hægt vaxandi suðaustan átt vestanlands á morgun og þykknar upp. Annars hæg breytileg átt og skýjað með köflum. Hiti 7 til 18 stig að deginum, hlýjast sunnanlands. ÁJ£'L7 Vindur: 3-5 m/% ’ Hiti 10’ til 15“ Vindur: 3-5 ov'* HitilO’ til 16’ Vindur: 5-10 m/» Hiti T tii 16° Fremur hæg suöaustlæg átt og rignlng um sunnan- og vestanvert landlö en suóvestlægarl og skúrlr siöar um daglnn. Skýjaó en úrkomulitló noróaustan tll. Hæg breytlleg átt og skúrlr I flestum lands- hlutum. Hltl 10 til 16 stlg. Norölæg átt, 5 tll 10 m/s. Rlgnlng noröan- og austanlands en skýjað meö köflum og stöku skúrir sunnan tll. Hltl 7 til 16 stlg. Vi-öríö M. @ AKUREYRI alskýjað 6 BERGSSTAÐIR alskýjaö 4 BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR léttskýjaö 4 KIRKJUBÆJARKL. hálfskýjaö 10 KEFLAVÍK léttskýjaö 9 RAUFARHÖFN alskýjaö 5 REYKJAVÍK léttskýjaö 6 STÓRHÖFÐl léttskýjaö 8 BERGEN rigning 13 HELSINKI úrkoma 18 KAUPMANNAHÖFN skúrir 15 ÓSLÓ alskýjaö 14 STOKKHÓLMUR slydda 16 ÞÓRSHÖFN skýjaö 8 ÞRÁNDHEIMUR rigning 13 ALGARVE heiöskírt 21 AMSTERDAM þokumóöa 15 BARCELONA skýjaö 22 BERLÍN léttskýjaö 17 CHICAGO þokumóöa 26 DUBLIN skýjaö 10 HALIFAX léttskýjaö 20 FRANKFURT HAMB0RG skýjaö 15 JAN MAYEN þokumóöa 5 LONDON skýjaö 13 LÚXEMBORG skýjað 14 MALLORCA þokuruöningur 23 M0NTREAL skýjaö 27 NARSSARSSUAQ skýjaö 16 NEW YORK skýjaö 32 ORLANDO léttskýjaö 25 PARÍS skýjaö 15 VÍN skýjaö 19 WASHINGTON þokumóöa 24 WINNIPEG 18 ■:YWó*-llld-:VUI)MII.1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.