Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 13
13
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001
x>v
Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri:
Tónlist, jöklar, hraun
og himneskt veður
Um helgina verða haldnir á Kirkjubæjar-
klaustri árlegir kammertónleikar undir stjórn
Eddu Erlendsdóttur píanóleikara. Þetta er í ell-
efta skipti sem tónleikarnir eru haldnir en þeir
eru haidnir í samvinnu Eddu og menningar-
málanefndar Skaftárhrepps.
„Það eru þrettán ár síðan ég fékk þá hug-
mynd að halda alþjóðlega tónlistarhátíð á
Kirkjubæjarklaustri. Það varð að veruleika
tveimur árum síðar þegar búið var að safna
fyrir vönduðum konsertflygli til að hafa á
staðnum. Með því var skapaður grundvöllur
fyrir því tónleikahaldi sem hefur verið árlegur
viðburður síðustu ellefu árin,“ segir Edda Er-
lendsdóttir. Hún segir að aðstaðan fyrir tón-
leikahald á Klaustri sé mjög góð auk þess sem
umgjörðin sé hin fegursta. „Jöklar, hraun og
fjöll og himneskt veður.“
Líka öðruvísi tónlist
Edda segir að í ár séu tónleikarnir að mörgu
leyti frábrugðnir því sem verið hefur. Tónlistin
er fjölbreyttari: suðræn sveifla, argentínskur
tangó, klassík og dægurlög.
„Egill Ólafsson og franski bandóneonleikar-
inn Olivier Manoury koma með öðruvísi tónlist
en flutt hefur verið á fyrri tónleikum. Egill
syngur klassíska tónlist eftir Schubert,
Brahms, Gerswhin, Ríkarð Örn Pálsson,
argentínsk tangóljóð og lög sem hann hefur
samið við ljóð Nínu Bjarkar," segir Edda og
bætir við: „Egill getur allt.“
Ásamt Agli og Olivier koma fram Auður Haf-
steinsdóttir flðluleikari, Bryndís Halla Gylfa-
dóttir sellóleikari, Hávarður Tryggvason
kontrabassaleikari og Helga Þórarinsdóttir
víóluleikari sem eru öll hljóðfæraleikarar í Sin-
fóníuhljómsveit íslands. Frá Belgíu kemur
Michael Guttman fiðluleikari sem er meðlimur
í Ariaga-strengjakvartettinum sem er einn
þekktasti strengjakvartett Belga.
Hljóðfæraleikararnir eru allir meðlimir í
hljómsveitinni Le Grand Tango sem undir
stjórn Oliviers Manoury hefur sérhæft sig í
flutningi á argentinskri tangótónlist sem hann
útsetur sjálfur. Mörgum er eflaust minnisstætt
Hópurinn í æfingabúöum
Um helgina verða haldnir árlegir kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustrí. Það er menningarmála-
ríefnd Skaftárhrepps og Edda Erlendsdóttir sem standa að tónleikunum ellefta árið í röð.
þegar sveitin kom fram á Listahátíð í Reykja-
vík fyrir nokkrum árum.
Fjölbreytt dagskrá
Tónleikarnir byrja á fóstudaginn klukkan
niu þar sem flutt verða verk eftir Egil Ólafsson,
Rossini, Puccini, Gerswhin og Barber. Á laug-
ardag klukkan fimm heldur dagskráin áfram
en á efnisskrá eru verk eftir Schubert, Brahms,
Anibal Troilo, Astor Piazzolla, Osvaldo
Pugliese, Jose Cabral, Carlos Gardel og Jose
Dames. Á sunnudag lýkur tónleikunum með
því að flutt eru verk eftir Brahms, Dvorák, Rík-
arð Örn Pálsson, Egil Ólafsson, Piazzolla, Olivi-
er Manoury, Mario Demarco, Vincente Greco,
Juan Carlos Cobian og Anibal Troilo.
Hlaupiö á fjallið
Edda segir að aðsókn að tónleikunum á
Kirkjubæjarklaustri hafi alltaf veriö góð.
„Dagskráin í ár er opnari og höfðar meira
til yngra fólksins þannig að ég á von á því að
hópurinn verði fjölbreyttari en áður en við
höfum átt tryggan hóp gesta.“
Og Edda segir ekki loku fyrir það skotið að
góða veðrið á Kirkjubæjarklaustri verði not-
að tO spilunar utandyra.
„Náttúran er mjög sterk og dregur mann
til sín. 1 gær hlupum við á fjallið og horfðum
á hreinan og tæran jökulinn. Það er því
aldrei að vita hvað gerist."
Tónlist____________________________________________________________
Tenór í Sjallanum
DV-MYND GVA
Falleg rödd og mikiö öryggi
„Jóhann Friðgeir er söngvari sem vert er að veita mikla athygli.
fallega rödd sem liggur vel og sem hann beitir af miklu öryggi.
áreynslulaus og lipur á öllu tónsviði sínu. “
Laugardaginn 4. ágúst var efnt til
tónleika á vegum Listasumars á Ak-
ureyri 2001. Fram kom tenórsöngv-
arinn Jóhann Friðgeir Valdimars-
son og með honum Jónas Þórir pí-
anóleikari. Tónleikarnir voru
haldnir í Sjallanum á Akureyri.
Tónleikar Jóhanns Friðgeirs og
Jónasar Þóris voru ekki hluti af
áætlaðri dagskrá Listasumars á Ak-
ureyri 2001 heldur var nýtt tækifæri
sem upp kom til að fá þessa lista-
menn til Akureyrar til tónleika-
halds. Framtakið féll ljóslega í góð-
an jarðveg. Það sýndi aðsóknin.
Upphaflega hafði verið meiningin
að tónleikarnir yrðu haldnir í Deigl-
unni. Fljótlega kom í ljós að það
húsnæði mundi engan veginn rýma
alla þá sem vildu hlýða á listamenn-
ina tvo. Þvi var leitað til forráða-
manna Sjallans sem brugðust vel
við og veittu aðgang að höfuðsal
hússins til tónleikanna.
Sjallinn er ekki besta húsnæði
sem hugsast getur til tónleikahalds.
Galla í hljómburði var reynt að
bæta með mögnurum og tókst það
bærilega en ekki öllu meira en svo.
Þvi miður var „ekkó“ ekki nógu vandlega unn-
ið og gætti þess einkum í hendingalok, en þá
bar verulega á óþægilegu tómahljóði úr magn-
arakefmu.
Efnisskrá tónleika þeirra Jóhanns Friðgeirs
og Jónasar Þóris skiptist í tvennt um hlé. í
fyrri hluta fluttu þeir félagar níu verk af nokk-
uð léttara taginu en í hinum síðari fjórar aríur
úr óperunum La Bohéme, Tosca og Turandot,
sem allar eru eftir G. Puccini. Auk sunginna at-
riða flutti Jónas Þórir nokkur píanóverk.
Jóhann Friðgeir er söngvari sem vert er að
veita mikla athygli. Hann hefur fallega rödd
sem liggur vel og sem hann beitir af miklu ör-
yggi. Röddin er áreynslulaus og lipur á öllu
tónsviði sínu, háir tónar vel fullir og bjartir og
lágir gæddir góðum þrótti. Jóhann Friðgeir
komst ekki að öllu á fullan skrið í fyrri hluta
efnisskrár sinnar en gerði þó vel í Con te part-
iro eftir F. Sartori og L. Quarantotto og Þá var
ég ungur eftir Jónas Þóri, en í þessum verkum
náði hann fagurri túlkun, ekki síst í síðari hlut-
um lags Jónasar Þóris. í flutningi
Jóhanns Friðgeirs á Sjá dagar
koma, eftir Sigurð Þórðarson, brá
fyrir einkennilega miklum áhrif-
um flutnings Kristjáns Jóhanns-
sonar á þessu lagi og stakk það
verulega í stúf við önnur verk á
efnisskrá hans.
í seinni hluta efnisskrárinnar
var Jóhann Friðgeir í essinu sínu.
Túlkun var víða mikið falleg, svo
sem í aríunum Che gelida manina
úr La Bohéme og Recondita
armonia úr Tosca. Á þessum vett-
vangi var Jóhann Friðgeir greini-
lega á heimaslóð og náði sér að
fullu á flug sem var bæði glæsilegt
og hrífandi. Annað tveggja auka-
laga var Hamraborgin eftir Sig-
valda Kaldalóns. Flutningur þess
var nokkuð ósamstæður og Ijóst að
Jóhann Friðgeir hefur það ekki
enn að fullu á valdi sínu.
Undirleikur Jónasar Þóris var
góður. Hljóðfærið hefði mátt vera
betra en Sjallinn býður ekki upp á
flygil heldur einungis bærilegt
stofupíanó. Við meiru varð því
ekki búist. Milliverkin sem Jónas
Þórir flutti voru leikin af öryggi. Eitt þeirra var
Aría á G-streng eftir J.S. Bach og annað On the
Street Where You Live. Bæði þessi verk voru
jözzuð og bærilega af hendi leyst. Hið síðar-
nefnda tileinkaði Jónas Þórir Ingimari Eydal.
Það var við hæfl að minnast hans á þessum
stað, svo ríkur þáttur sem tónlistariðkun hans
var í menningarlífi Akureyrar á meðan hans
naut við.
Haukur Ágústsson
DV*ND GVA
Hann hefur
Röddin er
____________________Menning
Umsjön: Sigtryggur Magnason
Fröken Júlía
kemur óð úr fríi
Fröken Júlía hefur
verið í sumarfríi að
undanförnu en mætir
að nýju í Smiðjuna við
Sölvhólsgötu á föstu-
dagskvöld og er enn og
aftur alveg óð. Þetta er
sýning sem enginn ætti
að láta fram hjá sér fara
en sýningar standa ein-
ungis yfir út ágústmán-
uð. Leikstjóri sýningar-
innar er Rúnar Guðbrandsson en leikarar
eru Sigrún Sól, Ámi Pétur Guðjónsson og
Pálína Jónsdóttir.
Söngnámskeið í sumar
Ingveldur Ýr, söngkona
og söngkennari, heldur
margs konar söngnám-
skeið í ágúst, þar á meðal
námskeið sem eru ætluð
byrjendum og fólki með
einhverja reynslu, svo
sem kórsöngvurum, kenn-
urum, leikurum og öllum
þeim sem nota röddina
mikið. Námskeiðin veita innsýn inn í
helslu atriði í söng, raddbeitingu og tónlist.
Kennd eru grunnatriði í söng; öndun, lík-
amstaða og raddæfingar, tóneyrað þjálfað
og einföld atriði í nótnalestri kynnt. Einnig
verður boðið upp á unglinganámskeið þar
sem kennd eru sömu atriði við hæfi ungra
radda. „Masterclass" verður á boðstólum
fyrir söngvara og söngnema sem eru lengra
komnir og vilja auka víðsýni og tækni þar
verður einnig unnið með erlend tungumál
og framkomu.
Ingveldur er einnig byrjuð að taka niður
pantanir vegna vetrarnámskeiða sem hefj-
ast í september og er hægt að nálgast upp-
lýsingar í síma 898 0108.
Listasumar í Súðavík
Dagana 9.-12. ágúst verður haldið Lista-
sumar í Súðavík. Hátíðin er samvinnu-
verkefni FÍH, Súðavíkurhrepps og Sumar-
byggðar hf. Þetta er í þriðja sinn sem hátíð-
in er haldin.
Á föstudagskvöldinu
hefst dagskráin með
spennandi og áhugaverð-
um fyrirlestri Jóhanns
Breiðfjörö um þá sérstöku
reynslu aö upplifa það að
hafa drukknað. Að fyrir-
lestrinum loknum hefjast
djasstónleikar Jóhönnu
Vigdísar Arnardóttur,
leik- og söngkonu, þar sem hún syngur um
ástina. Laugardagskvöldið 11. ágúst verður
brekkusöngur og varðeldur í brekkunni
neðan við skólann undir stjórn Vagns-
systkina frá Bolungarvík. Sunnudaginn 12.
ágúst verður opnuð listsýning á Lego-mun-
um feðga og mósaíkverkum mæðgna. Tón-
listarmessa verður í Súðavíkurkirkju og
þar munu djasstónlistarmennirnir Gunnar
Gunnarsson og Sigurður Flosason flytja
kirkjulega tónlist í djasskenndum útsetn-
ingum. Að messu lokinni verður safnaðar-
stjóm með fjölskyldukaffi í skólanum en
þar mun barnastjarnan Jóhanna Guðrún
syngja fyrir gesti.
Hádegi meö Hallgrími
Einar Jóhannesson klarínettuleikari og
organistinn Pavel Manásek koma fram á
hádegistónleikum í Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 9. ágúst kl. 12.00-12.30. Tón-
leikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Sum-
arkvöldi við orgelið sem haldin er ár hvert
í júlí og ágúst í Hallgrímskirkju.
Á efnisskránni eru verk eftir sautjándu
aldar meistarana Johann Sebastian Bach,
Giuseppi Tartini og Wolfgang Amadeus
Mozart.
Óli Stolz í Deiglunni
í kvöld
verður sjö-
unda kvöld
Tuborgdjass
í Deiglunni
á Akureyri.
í þetta sinn
leikur djas-
stríóið
Jazztríó Óla
Stolz en það
er skipað Jóni Páli Bjarnasyni, sem leikur
á gítar, Birki Frey Matthíassyni, sem leik-
ur á trompet og flúgelhorn, og Ólafi Agli
Stolzenwald sem leikur á kontrabassa.
Hrært verður í súpu sígildra djassnúmera
og lög eftir ólíka höfunda leikin. Má þar
nefna höfunda eins og Benny Golson, Clif-
ford Brown og Charlie Parker.