Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001
I>V
21
Helgarblað
Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður:
Engin leiö til baka
- bljúgur Árni höfðar til samúðar heimamanna
Meðan þjóð og þing bíða þess að
Ríkisendurskoðun ljúki rannsókn á
því sem kallað hefur verið einu
nafni „mál Árna Johnsens" heldur
lífiö áfram. Árni hefur hægt um sig
heima í Vestmannaeyjum og tjáir
sig lítt eða ekki við fjölmiðla en
hann er samt talsvert áberandi í
ijölmiðlum.
Að sögn heimamanna í Eyjum,
sem DV ræddi við, er „kallinn" tölu-
vert á ferli meðal fólks og tekur þá
tali sem hann þekkir. Hann er að
sögn bljúgur og hógvær í viðmóti og
vill lítt ræða sínar ávirðingar við
kunningja sína enda kannski ekki
ástæða til. Fjölskyldan fer alls ekki
huldu höfði heldur þvert á móti
blandar geði við bæjarbúa.
Árni meö mömmu
Það þótti merk frétt um verslun-
armannahelgina aö Árni skyldi
standa upp í brekkunni í Herjólfs-
dal og stýra hefðbundnum fjölda-
söng. Fjölmiðlar sögðu að honum
heföi verið tekið eins og popp-
stjömu en kaldhæðnir heimamenn
sögðu DV að það hefði verið minna
baulað á hann en venjulega.
í kjölfarið birtist mynd af honum
með aldraðri og langveikri móður
sinni framan á Séð og heyrt þar sem
bæði brostu á þjóðhátið en Árni seg-
ir inni í blaðinu að hann vilji ekki
blanda fjölskyldu sinni í sín mál.
Vinur Árna í Vestmannaeyjum
túlkaði viðhorf heimamanna á þann
veg við blaðamann DV að nú ríkti
logn á undan storminum. Eyjamenn
gerðu sér flestir grein fyrir því að
Árni ætti eftir að standa reiknings-
skil gerða sinna og þá kæmi ef til
vill fleira upp á yfirborðið en gert
hefur fram að þessu. Vinurinn vildi
sem sagt meina að þeir vildu vera
almennilegir við sinn mann þangað
til stormurinn skylli á.
Annar heimamaður, sem er ekki
eins hlynntur Árna, sagði að þjóð-
hátíðarnefnd hefði ætlað að fella
Árna út af hefðbundinni dagskrá en
hann hefði sagt við þá eitthvað á þá
leið að ef hann missti brekkusöng-
inn væri ekkert eftir.
Árni og tölurnar
1 þeirri viku sem rennur á enda
með þessu blaði hafa komið fram
þrenns konar niðurstöður skoðana-
kannana DV sem allar varpa ljósi á
afstöðu þjóðarinnar til Árna
Johnsens og skýra hver á sinn hátt
eftirköst málsins.'
stjórnmálamaðurinn þá slær hann
engin met. Bæði heldur Davíð Odds-
son forsætisráöherra enn sínu óvin-
sældameti, rúmlega 59% frá 1991, og
Finnur Ingólfsson seðlabankastjóri
og Jón Baldvin Hannibalsson sendi-
herra komust báðir nálægt mælingu
Árna meðan þeir fengust enn við
stjórnmál. En þetta eru vissulega
undantekningartilvik því yfirleitt
dugar að 20-30 nefni stjórnmála-
mann til þess að hann komist á
toppinn í óvinsældum.
Áf þessu mætti hugsanlega ráða
að mörgum þætti Árni ekki tiltak-
anlega slæmur, eða ekki miklu
verri en aðrir stjórnmálamenn,
nema þeir sem kusu að skilgreina
hann ekki sem stjórnmálamann í
þessari könnun, en sú skoðun hefur
heyrst.
Lognið og stormurinn
Þriðja niðurstaðan birtist síðan i
DV í dag en í áminnstri könnun var
spurt hvort menn teldu að Árni ætti
afturkvæmt inn á Alþingi. Þrír af
hverjum fjórum, eða 75,4%, telja það
af og frá. Mjög margir tóku afstöðu
til þessarar spurningar, eða 93,5%,
sem er óvenjuhátt hlutfall.
Það vekur athygli að þegar svar-
endur eru flokkaðir eftir stjórn-
málaskoðunum virðast Vinstri-
grænir einna umburðarlyndastir en
26% stuðningsmanna þeirra telja að
Árni eigi afturkvæmt. Einhvern
veginn hefði maður búist við þess-
ari afstöðu frá flokksmönnum Árna
sjáffs.
Þegar þetta er aflt fagt saman þá
hlýtur niðurstaðan að verá sú að
Vestmannaeyingar haft rétt fyrir
sér. Þeir skifgreina þennan tíma
sem fognið á undan storminum og
vilja vera hlýlegir og kammó við
„kallinn", eins og þeir kjósa að
kalla hann, sérstaklega meðan hann
hefur ekki hlotið formlegan dóm
fyrir afbrot sínu. En það virðist aug-
ljóst að brosið ristir ekki djúpt því í
hjarta sínu hafa menn ákveðið að
það er engin leið til baka. -PÁÁ
Árni Johnsen söng brekkusöng á þjóðhátíð að vanda
Margir virtust hissa á því aö hann skyldi leggja í það en aö sögn var honum
fagnað eins og poppstjörnu.
í fyrsta lagi sýna tölurnar að
Sjálfstæðisflokkurinn eykur fyfgi
sitt þrátt fyrir máf Árna. Það stað-
festir að forystumönnum flokksins
hefur tekist að skilja milli flokks og
manns í þeim skilningi að „mann-
legur harmleikur" getur seint átt
við heilan flokk.
í öðru lagi sýnir könnun á vin-
sældum stjórnmálamanna að þótt
Árni skrapi botninn i þeirri könnun
með 54,8% atkvæða sem óvinsælasti
Þrjár nætur í höfuðborg Portúgals og 4 nætur á sólarströnd.
Sól býður til skemmtilegrar dvalar í Lissabon sem oft hefur
verið nefnd San Francisco Evrópu. Dvalið verður á nýju og
stórglæsilegu íbúðahóteli Sólar í Albufeira, Paraiso de
Albufeira.
kr. á mann í tvíbýli með sköttum
Skoðunarterðir greiðast sórstaklega.
t¥- " béti&t jJ. ■
Ferðaskrifstofan SÓL hf. • Grensásvegi 22 • Sími 5450 900 • www.sol.is
Travel
-heitar ferðir