Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Blaðsíða 22
34
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001
Islendingaþættir
Fólk í fréttum
Hjálmar Árnason
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára________________________________
Karl Árnason,
Kambi 1, Króksfjarðarnesi. Kona hans,
Unnur Halldórsdóttir, varð 85 ára þann
10. ágúst síðastliðinn. Karl veröur aö
heiman á afmælisdaginn en í tilefni af
afmælunum verða þau hjónin með heitt
á könnunni fyrir vini og vandamenn í
Jónsbúð, Akursbraut 14, Akranesi,
sunnudaginn 25. ágúst næstkomandi
eftir klukkan 15.00.
80 ára________________________________
Agnar G. Guðmundsson,
Haðalandi 15, Reykjavík.
Maren Júlíusdóttlr,
Víkurbraut 30, Höfn.
Svavar Vemundsson,
Lækjasmára 6, Kópavogi.
75 ára________________________________
Ingibjörg Þorgrimsdóttir,
Vallholti 40, Selfossi.
Jónas Þórir Dagbjartsson,
Flyðrugranda 20, Reykjavík.
Sveinbjörn Árnason,
Öldugranda 9, Reykjavík.
Þorgeir Guömundsson,
Glaðheimum 22, Reykjavík.
70 ára________________________________
Bjarni Hermannsson,
Sogavegi 116, Reykjavík.
Jón Hallgrímsson,
Sléttuvegi 17, Reykjavík.
Ólafía G Hagalínsdóttir,
Miðleiti 3, Reykjavík.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Funalind 15, Kópavogi.
Þórunn Jónsdóttir,
Brekkugötu 15, Vogum.
60 ára________________________________
Anna Guönadóttir,
Blómvangi 10, Hafnarfirði.
Elísabet Sigríöur Guönadóttir,
Miðgarði 4, Keflavík.
Haukur Tryggvason,
Laugabóli 2, Húsavik.
50 ára________________________________
Ágúst Örvar Ágústsson,
Hlaðbrekku 1, Kópavogi.
Bjarni Guömundsson,
Hvassaleiti 18, Reykjavik.
Lovísa Fjeldsted,
Blönduhlíð 35, Reykjavík.
Sigríður Hafdís Melsted,
Tryggvagötu 4, Selfossi.
Slgríöur Þorvaldsdóttir,
Ofanleiti 23, Reykjavík.
40 ára_________________________________
Galina Darikovna Akbacheva,
Bakkahjalla 8, Kópavogi.
Guölaugur L. Sveinsson,
Hraunbæ 4, Reykjavík.
Gunnar Þór Guömundsson,
Bollagörðum 8, Seltjarnarnesi.
Gunnsteinn Jónsson,
Jörfabakka 20, Reykjavik.
Inga María Friðriksdóttir,
Dalhúsum 13, Reykjavík.
Kristján Jóhannsson,
Úthlíö 29, Reykjavik.
Þór Sigurlaugur Jóhannsson,
Klettabergi 58, Hafnarfirði.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng raynsla.
Sverrir Einarsson Bryndís
útfararstjóri Valbjamardóttir
útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suöurhlf&35« Sími 581 3300
alþingismaður
Hjálmar Árnason alþingismaður
sagði í DV-frétt í síðustu viku að
hann myndi spá því að það væri
aðeins tímaspursmál hvenær menn
færu að skoða í fullri alvöru að
flytja út íslenskt vatn með tank-
skipum til þurfandi landa.
Starfsferlll
Hjálmar fæddist í Reykjavík, ólst
þar upp til átta ára aldurs en síðan
í Kópavogi. Hann lauk stúdentsprófi
frá MH 1970, kennaraprófi frá KHÍ
1979, BA-prófi í íslensku frá Ht 1982
og M.Ed.-prófi í skólastjórnun frá
Breska Kólumbíu-háskólanum í
Kanada 1990. Hjálmar var kennari
við Grunnskóla Sandgerðis 1970-72
og 1977-78, við Fróðskaparsetur
Færeyja 1972-73, við Flensborgar-
skóla 1973-77, Holtaskóla í Keflavik
1978-80, við Víðistaðaskóla og
starfaði í Fræðsluskrifstofu Reykja-
ness 1980-81, við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja frá 1981 og skólameist-
ari þar frá 1985. Þá er hann
alþingismaður Reykjaness fyrir
Framsóknarflokkinn frá 1995. Áuk
kennslustarfa hefur Hjálmar
stundað þáttagerð í útvarpi, lög-
gæslustörf, blaðamennsku og sjó-
mennsku. Hjálmar sat í stjórn
Félags tslenskra menntaskóla-
kennara 1975-77, í stjórn Samtaka
móðurmálskennara 1980-82, sat i
stjórn Skólameistarafélags íslands
1991-95 og var formaður þess
1993-95, sat í stjórn FH 1981-83, var
fyrsti formaður íþróttabandalags
Reykjanesbæjar 1996-99, ritstjóri
tímarits SVFK 1993-96, sat í
markaðs- og atvinnumálanefnd
Reykjanesbæjar 1994-98, var fulltrúi
Alþingis á ÖSE-þingi 1995-99, full-
trúi íslands á þingi Evrópuráðsins
1995-99, er varaformaður Vest-
norræna þingmannasambandsins,
sat allsherjarþing SÞ 2000, er
formaður iðnaðarnefndar Alþingis,
varaformaöur samgöngunefndar og
situr auk þess í sjávarútvegsnefnd
og í efnahags- og viðskiptanefnd.
Hann er formaöur Lánasjóðs land-
búnaðarins frá 1999.
Hjálmar hefur þýtt sögur og ljóð
og samið kennslubækur og leið-
beiningarrit fyrir kennara.
Fjölskylda
Sambýliskona Hjálmars var Berg-
ljót S. Kristjánsdóttir, f. 28.9. 1950,
lektor. Þau skildu. Foreldrar
hennar: Kristján Andrésson og k.h.,
Salbjörg Magnúsdóttir.
Börn Hjálmars og Bergljótar eru
Ragnheiður, f. 17.8. 1972 og eru börn
hennar María Kristína og Bergljót;
Kristján, f. 3.12. 1975, dóttir hans er
Þórhildur.
Hjálmar kvæntist 6.1. 1978
Valgerði Guðmundsdóttur, f. 3.6.
1955. Hún er dóttir Guðmundar
Rúnars Guðmundssonar og k.h.,
Bryndísar Ingvarsdóttur.
Börn Hjálmars og Valgerðar eru
Ingvar, f. 4.1. 1979; Bryndís, f. 22.3.
1987, nemi. Uppeldisdóttir Hjálmars
og dóttir Valgerðar er Dagmar
Guðmundsdóttir, f. 4.4. 1972.
Systur Hjálmars eru Svava, f.
1949; Kristín, f. 1952, búsett í
Kópavogi; Soffía, f. 1964.
Foreldrar Hjálmars eru Árni
Waag, f. 12.6. 1925, d. 3. apríl 2001 og
k.h., Ragnheiður Ása Helgadóttir, f.
5.7. 1927.
Ætt
Árni er bróðir Karinar, móður
Hjálmars Waag Hannessonar
sendiherra. Árni er sonur Hjálmars
Waag, skólastjóra í Klakksvík í
Færeyjum, sem lést ungur, bróður
Einars Waag, stofnanda og forstjóra
Föröjabjór. Móðir Árna var Kristín
Árnadóttir, prófasts á Stóra-Hrauni,
Þórarinssonar á Eyrarbakka,
Árnasonar. Móðir Þórarins var
Jórunn, systir Tómasar Fjölnis-
manns, afa Jóns Helgasonar
biskups og Tómasar læknis, afa
Ragnhildar Helgadóttur, fyrrv.
ráðherra. Jórunn var dóttir Sæm-
undar, b. í Eyvindarholti, Ögmunds-
sonar, pr. á Krossi, bróður Böðvars,
afa Þuríðar, langömmu Vigdísar
Finnbogadóttur. ögmundur var
sonur Presta-Högna Sigurðssonar.
Móðir Sæmundar var Salvör Sig-
urðardóttir, systir Jóns, afa Jóns
forseta. Móðir Árna prófasts var
Ingunn, systir Helga, afa Ásmundar
Guðmundssonar biskups. Ingunn
var dóttir Magnúsar, alþm. í Syðra-
Langholti, Andréssonar og Katrínar
Eiríksdóttur, ættföður Reykjaættar,
Vigfússonar. Móðir Kristínar var
Anna Elísabet Sigurðardóttir,
hreppstjóra í Syðra-Skógarnesi,
Kristjánssonar.
Ragnheiður er dóttir Helga,
bróður Bjarna, alþm. og ráðherra á
Reykjum í Mosfellsbæ, afa Ástu
Ragnheiðar Jóhannesdóttur alþm.
Systir Helga var Þórdis, móðir
Gunnars Bjarnasonar ráðunautar.
Helgi var sonur Ásgeirs, b. í
Knarrarnesi, Bjarnasonar og Ragn-
heiðar Helgadóttur, b. á Vogi,
bróður Ingibjargar, langömmu
Kristjáns Eldjárn forseta. Helgi var
sonur Helga, alþm. á Vogi, Helga-
sonar. Móðir Ragnheiðar var Svafa,
systir Odds, fóður Jóns hrl., og
hálfsystir Huldu, ömmu Jónasar
Haraldssonar, aðstoðarritstjóra DV.
Svafa var dóttir Jóns, b. á Álftanesi,
Oddssonar og Mörtu Mariu, systur
Haralds prófessors. Systir Mörtu
Maríu var Þuríður, móðir Níelsar
Dungal. Marta María var dóttir
Níelsar, b. á Grímsstöðum, Eyjólfs-
sonar og Sigríðar, systur Hallgríms,
biskups og alþm., og Elísabetar,
móður Sveins Björnssonar forseta.
Sigríður var dóttir Sveins, prófasts
og alþm. á Staðastað, Níelssonar og
Guðrúnar, systur alþm. Halldórs á
Hofi og Ólafs á Sveinsstöðum. Systir
Guðrúnar var Þórunn, móðir Jóns
Þórarinssonar alþm., afa Jóhanns
Hafstein forsætisráðherra. Önnur
systir Guðrúnar var Sigurbjörg,
amma Jóns Þorlákssonar forsætis-
ráðherra. Guðrún var dóttir Jóns,
pr. og alþm., Péturssonar.
Smáauglýsingar
Þjónustu-
auglýsingar
►I 550 5000
l'.BWHBBMH
Margrét Jónsdóttir skáld var fædd þann
20. ágúst 1893 á Árbæ í Holtum í Rangár-
vallasýslu. Hún ólst upp með móður sinni
og áttu þær heima á ýmsum bæjum í
Rangárvalla- og Árnessýslu.
Margrét fluttist síðan til Reykja-
vikur og átti heimili þar frá árinu 1912.
Árið 19Í0 fór hún í nám í Kvenna-
skólanum í Reykjavík og varði námið
í tvö ár. Hún lauk kennaraprófi árið
1926 og hélt að því loknu til Danmerkur
og Svíþjóð þar sem stundaði framhalds-
nám.
Margrét var heimiliskennari í Gull-
bringusýslu og Borgarfirði 1912 til 1918. Frá
1918 til 1923 var hún verslunar- og
skrifstofustúlka í Reykjavík og kenndi svo frá
Margrét Jónsdóttir
1926 til 1944. Eftir það var hún gæslukona
Þjóðminjasafni íslands í sjö ár en var
síðan húsfreyja í Reykjavík frá 1959
til dauðadags.
Margrét skrifaði ljóð, smásögur,
skáldsögur og leikrit fyrir börn.
Má þar nefna bækurnar um Todda
og bækurnar um Geira glókoll.
Margrét var líka ritstjóri
barnablaðsins Æskunnar í 14 ár.
Hún þýddi líka margar
bamabækur, til að rríynda Karen,
Ámi og Ema, Silfurtuminn, Ólikir
drengir og Galdrakarlinn góði.
Margrét Jónsdóttir skáld lést árið
1971.
Mundu
^ afsláttlnn
þegar þú greiöir meö korti
’Sf teíiks
SsÉÍK
EUROCARD
Master
Skoðaðu smáuglýsingarnar á lflSÍV.
550 5000