Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 Fréttir I>V Fernt lést vegna eitrunar í Veiðivötnum: Vægast sagt nöturleg aðkoma - segir varðstjóri sem kom að fólkinu. Tveggja kílóa gastæki talið hafa valdið hinu hörmulega slysi Fernt lést vegna gaseitrunar í veiðiskála í Veiðivötnum, að talið er aðfaranótt sunnudagsins. Veiði- vörður kom að fólkinu um kvöld- matarleytið á sunnudag og lét lög- reglu strax vita. Fljótt var brugðist við en fólkið var úrskurðað látið við komu læknis á staöinn. Hin látnu eru: Sigurður Jónsson, 50 ára, Fjallalind 105, Kópavogi. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn. Eva María Sigurðardóttir, dóttir hans, 24 ára, ógift og barnlaus, var til heimilis hjá foreldrum sínum. Örn Sigurbergsson, 51 árs, Beykihlíð 19, Reykjavík. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn. Óli Ágúst Þorsteinsson, 37 ára, Hjarðarhaga 46, Reykjavík. Hann lætur eftir sig eiginkonu og dóttur. Ástæða þess að veiðivörðurinn hafði afskipti af fólkinu var að það hafði verið í veiði frá því á föstu- dag og átti að yfirgefa svæðið á morgun í gær og voru líkin flutt af staðnum í fyrrinótt í Fossvogs- kapellu og kennsl borin á þau þar. Ekkert verður talið sannað um dánarorsök fyrr en réttarkrufning hefur farið fram. „Við erum þó ekkert í vafa um að þarna hefur orðið slys. Það er það sem málið snýst um,“ sagði Gils. Alls eru 13 sambærileg hús leigð út á þessu svæði. -BÞ Eva María Sigurðardóttir. Siguröur Jónsson. Óli Ágúst Þorsteinsson Öm Sigurbergsson. Opinn eldur eyðir súrefni Líklega hafa íbúar skálans látiö loga á þessum sjö kertum. seinnipartinn á sunnudag. Vörður- inn hafði ekki orðið var við neina hreyfingu fyrir utan húsiö og fór því að kanna málið. Gils Jóhanns- son, varðstjóri hjá lögreglunni á Hvolsvelli, fór á staðinn og sagði hann í samtali við DV að þótt kringumstæður hefðu eðli málsins samkvæmt vægast sagt verið nöt- urlegar hefði friður ríkt yfir vett- vanginum. Rannsókn slyssins er ekki lokið en flest bendir til að tveggja lítra gastæki, sem jafnframt var gas- lampi, hafi orðið fólkinu að bana. Gils telur að væntanlega sé um svokallaða kolsýrlingseitrun að ræða. Allar dyr voru lokaðar og sömu sögu er að segja um glugg- ana. Engin hitun fylgir skálanum og ekkert rafmagn heldur aðeins rennandi vatn. „Þeir sem leigja þessi hús koma sjálfir með öll eldunaráhöld og hit- unartæki. Það virðist sem flætt hafi út af tækinu. Það étur upp súrefnið og þá sljóvgast fólk. Þrennt af fólkinu var trúlega kom- ið í svefn þannig að þaö deyr í svefni. Fjórða manneskjan var sennilega að búa sig undir að ganga til náða þegar hún datt út af,“ segir Gils. Fólkið var allt i rúmum sínum en einn virðist hafa verið að afklæðast og ganga frá svefnpoka þegar hann leið út af. Tvö önnur gastæki fundust í skál- anum og er verið aö rannsaka þau. Lögreglan var á vettvangi fram Vettvangur harmielks / þessum skála í Veiöivötnum köfnuOu fjórir aöfaranótt sunnudags. Fjórir köfnuöu aöfaranótt sunnudags dv-myndir hilmar þór Þetta er skálinn Setur, einn þrettán veiöiskála í Veiöivötnum. Hann rúmar 12 manns í gistingu og er sæmilega rúmgóöur. Allir gluggar og dyr voru lokaöar aðfaranótt sunnudags þegar harmleikurinn er talinn hafa gerst. Skil þetta ekki - segir veiðivörður „Ég taldi að þau hefðu ætlað að skila lyklinum og fór þess vegna að gá að þeim,“ sagði Rúnar Hauksson, veiðivörður í Veiðivötnum, í sam- tali viö DV. Rúnar kom að fjórum veiðimönnum látnum í einum hinna þrettán skála sem leigðir eru veiðimönnum í Veiðivötnum. Talið er að fólkið hafi látist aðfaranótt sunnudags en síðdegis á sunnudag knúði Rúnar dyra í kofanum enda hafði hann ekki orðið var neinna mannaferða allan daginn. Kofinn er merktur heitinu Setur og er úr timbri. Hann er nokkuð í Veiðivötnum sem kom að fólkinu látnu rúmgóður, með anddyri og eldhús- krók fram af svefnrými. Þar er pláss fyrir samtals 12 manns í sex tví- breiðum kojum. Flest bendir til þess að tveggja lítra gastæki, sem jafnframt var gas- lampi, hafi lekið og valdið súrefnis- skorti í skálanum en allir gluggar og dyr voru harðlokuð en dyrnar ólæstar. Jafnframt voru sjö svoköll- uð sprittkerti í hangandi stjaka í loftinu og voru þau öU brunnin upp, að sögn Rúnars, en það getur átt sinn þátt í að eyða súrefni úr and- rúmsloftinu. Rúnar fann þó enga gaslykt þegar hann gekk inn í skál- ann. „Þetta voru allt vanir veiðimenn og hafa komið hér árum saman til veiða," sagði Rúnar sem hefur verið veiðivörður í Veiöivötnum frá 1986, en á hans starfstíma hafa aldrei hent nein óhöpp á borð við þetta hörmulega slys. „Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt þetta fólk vel en kannaðist vel við það,“ sagði Rúnar að lokum og kvaðst aðspurður ekki hafa notið áfallahjálpar og ekki reikna með að sækjast eftir henni. -PÁÁ Gasnotkun oröin mjög almenn hjá íslendingum: Smærri gastæki á „gráu svæði“ - Brunamálastofnun segir eldvörnum víöa Olíufélögin flytja inn gastækin sem landsmönnum stendur tU boða f ýms- um verslunum. Hjá einu olíufélaganna fengust þær upplýsingar að gasnotkun væri orðin mjög almenn hérlendis en menn yrðu að vera meðvitaðir um hættumar sem fylgdu notkun gassins. Viðmælendur DV segja að primusljós, hitarar og þess háttar tæki séu einkum ætluð tU notkunar utanhúss. Pétur Valdimarsson hjá Brunamála- stofnun ríkisins segir að nákvæmlega sé útlistað hvemig nota skuli öU stærri gastæki en aUur gangur virðist á því hvort fólk fer rétt að. Pétur segir að stærri kútar megi ekki vera í notkun á svefnstöðum en tveggja kUóa tæki séu Gastæki eru af margvíslegum toga Þau þarf aö umgangast þau meö varúö. Myndin tengist ekki slysinu í Veiöivötnum. svæöi hvað varði svoUtið á „gráu“ notkunarreglur. Brunamálastofnun hefur verið að áfátt í fjallaskálum taka út ýmis hús á hálendinu undan- farið og telur Pétur að gera þurfi gang- skör að því að bæta úr ástandinu. „Já, það er gegnumgangandi niðurstaða hjá okkur og vonandi koma einhverjar leiðbemingar frá okkur í vetur um þessi mál. Sú vinna tengist hins vegar ekki þessu atviki í Veiðivötnum," seg- ir Pétur. Brunamálastofnun segir kringum- stæður á hálendinu mjög mismunandi en víða sé branavömum áfátt. T.d. gleymist stundum þegar timburhús era annars vegar að útgönguleiðir verði að vera greiðar. Oft gefist skammur timi til að forða sér þegar eldur kviknar. -BÞ Sáttatilraun Sævar Gunnars- son, formaður Sjó- S mannasambands ís- Jflj lands, SSÍ, segist líta ■ -*■ v-® svo á að deilan á B — MR milli Konráðs Al- H Æ freðssonar. formanns K Sjómannafélags Eyja- ^fjarðar, og Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafé- lags Reykjavikur, sé óskemmtilegt mál. Hann ætli að stuðla að því að lausn fáist. - Fréttablaðið greindi frá. Sjúkraliöar segja upp Alls hafa um 106 sjúkraliðar sagt upp störfum á Landspítala - háskóla- sjúkrahúsi vegna óánægju með launa- kjör að sögn Kristínar Á. Guðmunds- dóttur, formanns Sjúkraliðafélags ís- lands. Það era 16 fleiri en var um mitt sumar. - Fréttablaöið greindi frá. Tekiö í landhelgi Fokkervél Landhelgisgæslunnar stóð um hádegi í gær togskipið Aðal- vík SH að ætluðum ólöglegum veiðum um 0,7 mílur innan 12 mílna landhelgi út af Barða, milli Dýrafjarðar og Ön- undarfjarðar. Aðalvíkin sigldi inn til Þingeyrar og skipstjóri færður til yfir- heyrslu hjá Sýslumannsembættinu á ísafirði. Bilun í hreyfli Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF- SÝN, lenti heilu og höldnu í Keflavík um fjögurleytið í gær eftir að vart varð við bilun i öörum hreyfli vélar- innar vestur af Látrabjargi. Flugvélin hafði þá nýlega komið að báti að meintum ólöglegum veiðum út af Vest- fjörðum. Um borð í vélinni var fjög- urra manna áhöfh. Uppgreftri lokiö Fornleifauppgreftri að Hofsstöðum í Mývatnssveit lauk á fóstudag. Lokið var við að grafa upp úr víkingaskálan- um sem er sá stærsti sem fundist hef- ur hér á landi. Hringprjónn og silfur- spjald með krossmarki er meðal þess sem þar fannst í sumar. Flugráö klofnaöi Ekki reyndist einhugur í flugráði um að lýsa yfir stuðningi við Flug- málastjóm vegna Skerjafjarðarslyss- ins. Tveir af fimm flugráðsmönnum töldu slíka yfirlýsingu óviðeigandi á meðan lögreglurannsókn stendur yfir og var tillagan dregin til baka eftir aö vera ítrekað lögð fram. Rökstyöji fuliyröingar Náttúruvemdar- samtök Islands hafa sent frá sér yfirlýs- ingu þar sem þau krefjast þess að Dav- íð Oddsson forsætis- ráðherra rökstyðji þau orð sín í viðtali við fréttamann RÚV að úrskurður Skipulagsstofnunar um Kárahnjúkavirkjun samræmist ekki lögum. Missti framan af handlegg Ungur maður missti framan af handlegg í vinnuslysi sem hann varð fyrir þegar hann var við störf hjá fyr- irtæki í Fellabæ í gærmorgun. Maður- inn mun hafa fest handlegginn í marn- ingsvél og var fluttur með flugi á slysadeild Landspítalans - háskóla- sjúkrahúss þar sem hann gekkst und- ir aðgerð. Haldiö til haga í texta með forsíðumynd DV í gær af heimsmeistaramóti íslenskra hesta í Austurríki var ranglega farið með nafn. Á myndiinni mátti sjá Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra og eiginkonu hans ásamt hestamönnum. Eiginkona Guðna heitir Margrét Hauksdóttir en ekki María eins og ranglega var sagt í textanum. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.