Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 I>V Fréttir Heilbrigðisnefnd og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands: Enn hörð átök um tjáningarfrelsi - heilbrigðisnefnd beinir spjótum sínum að framkvæmdastjóranum Heilbrigöisnefnd Suöurlands hefur kraflð Matthías Garðarsson, fram- kvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, skriflegra skýringa vegna ummæla sem hann lét falla í viðtali við DV 25. maí sl. Nefndin hef- ur tekið málið upp á tveimur síðustu fundum sínum eftir að viðtalið birt- ist. Þá hefur hún boðað fram- kvæmdastjórann á fund þótt hann sé í veikindaleyfi þar til í haust. í fund- argerð nefndarinnar er bókað án frekari skýringa aö hann hafi ekki mætt á fundinn. Nefndin ákvað að ít- reka fyrrnefnd bréf til hans. Annaö var fært í „trúnaðarmálabók,“ að því er fram kemur í fundargerð. Þessi krafa nefndarinnar á hend- ur framkvæmdastjóra Heilbrigðis- eftirlits Suðurlands er nýr kafli í langri baráttusögu er varðar tján- ingarfrelsi heilbrigðisfulltrúanna á Suðurlandi i fjölmiölum. Upphafið má rekja til þess er campylobacter gaus upp árið 1999. Heilbrigðisfulltrúarnir fóru þá í eft- irlitsferð að kjúklingabúinu að Ás- mundsstöðum, þar sem mest mæld- ist 80 prósent campylobacter í kjúklingum. Upplýsingar úr skýrslu heilbrigðisfulltrúanna, sem send var fjölmörgum stofnunum, fóru í fjölmiðla. I kjölfarið máttu fulltrú- arnir sæta lögreglurannsókn, auk þess sem heilbrigðisnefndin bað umhverfisráðuneytið að athuga starfshætti þeirra. Niðurstöður urðu þær að heilbrigðisfulltrúamir reyndust hafa farið rétt að í einu og öllu varðandi samskipti við fjöl- miðla.Heilbrigðisnefnd fékk einnig ráðgjafarstofuna KPMG til að gera úttekt á starfsemi heilbrigðiseftir- Seinni hálfleikur Langvinnur málarekstur heilbrigöisnefndar Suöurlands á hendur heilbrigöis- fuiltrúum var hafinn þegar DV birti viötal viö Birgi Þóröarson um umgengni á Suöurlandi vegna átaksverkfnisins „Fegurri sveitir 2000“. í kjölfar þess viö- tals hófst „seinni hálfleikur“ sem stendur enn. litsins, auk þess sem nefndin hefur verið með sérstakan lögfræðing í málinu. Seinni hálfleikur hófst með því að DV tók viðtal við Birgi Þórðarson heilbrigðisfulltrúa í tengslum við átaksverkefni landbúnaðarráðherra „Fegurri sveitir 2000“. Birgir hvatti þá m.a. fólk tU að taka sig á og ræddi þátt heUbrigðiseftirlitsins í átakinu. Heilbrigðisnefndin gagn- rýndi að hann hefði veitt viðtalið án samráðs við Matthías Garðarsson, framkvæmdastjóra heilbrigðiseftir- litsins. Óskaði nefndin „skýringa Birgis Þórðarsonar á tilurð um- ræddrar fréttar". í kjölfarið fjallaði nefndin um málið á hverjum ein- asta fundi og bókaði um síendur- teknar bréfaskriftir tU heilbrigðis- Vill ekki tjá sig. Matthias Spjótin beinast nú aö honum. fulltrúans og kröfur sínar um skýringar frá honum. Loks sá heUbrigðisfuUtrú- inn þann kost einan í stöðunni að leita tU stéttar- félags slns og lög- manns þess um aðstoð vegna „stöðugs áreitis" nefndarinnar. í viðtali við DV 25. maí sl. lýsti Matthías Garðarsson framkvæmda- stjóri yfir fullum stuðningi við Birgi Þórðarson í þessu umrædda máli. Þaö varð til þess að heilbrigðis- nefndin beindi spjótum sínum að honum með ítrekuðum kröfum um skriflegar skýringar á umræddu viðtali. DV hafði samband við Heimi Haf- steinsson, formann heUbrigðis- nefndar, tU að spyrja hann um þetta mál. Heimir kvaðst ekki ræða þetta frekar við blaðamann DV og skellti svo tvívegis á. Varaformaöur nefnd- arinnar, Svanborg Egilsdóttir, vís- aöi DV á Heimi þegar haft var sam- band viö hana. -JSS Átakafundur hjá stjórn Sjómannasambandsins: Konráð gekk á dyr - formaður SR segir hann hættan „Konráð gekk af fundi og tU- kynnti okkur sem eftir sátum að hann myndi sjá okkur á næsta sjómannasam- bandsþingi. Það er ekki fyrr en eftir rúmlega ár þannig að ég lít svo á að hann sé hættur í stjóm Sjómannasambands- ins,“ segir Jónas Garðarsson, gjald- keri Sjómannasambands íslands og formaður Sjómannafélags Reykja- víkur, sem segist líta svo á að Kon- ráð Alfreðsson, formaður Sjó- mannafélags Eyjafjarðar, hafi hætt sem varaformaður Sjómannasam- bandsins á fundi sambandsstjómar- innar sl. fostudag. Frá því í vor hefur andað köldu mUli formanna sjómannafélaganna í Reykjavík og í Eyjafirði. Eyfirð- ingamir voru ekki samstiga öðrum félögum þegar gripið var til aðgerða í kjölfar lagasetningar á sjómenn og í kjölfarið viðhafði Jónas Garðars- son stór orð um Eyfiröingana og sagði þá m.a. hafa svikist undan merkjum. í kjölfariö lýsti Konráö yfir að framkvæmdastjóm Sjó- mannasambandsins væri óstarfhæf og hann hefur fyrir hönd Eyjafjarð- arfélagsins margkrafist afsökunar- beiðni frá Reykvíkingunum. „Ég gekk út af fundinum eftir smáorðasennu inni í stjórninni, en ég þarf að ná stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar saman áður en ég get farið að ræða þetta mál að ráði í fjölmiðlum," seg- ir Konráð. Hann segir að fleiri en þeir Jónas hafi tekið til máls á fundinum og tjáð sig um deUuefnið. „Ég get þó sagt að ég skil ekki hvernig Jónas getur fundið það út að ég sé hættur sem varformaður Sjómannasam- bandsins sem er fjarstæða, Ég hef ekki sagt mig úr sambandsstjórn- inni og ekki sagt af mér varafo- mennsku. Ég er enn þá þama inni, það er morgunljóst að það hefur engin breyting oröið á því. Málið er hins vegar mjög alvarlegt og þær ásakan- ir sem Sjómannafélag Reykjavíkur hefur borið á hendur mér og Sjó- mannafélagi Eyjafjarðar eru þess eðlis að við sættum okkur ekkert við þær og ætlum ekki að sitja und- ir þeim,“ segir Konráð. „Ég ætla ekki að biðjast afsökun- ar á því að hafa álit á því að þeir gengu úr skaftinu í kjarasamning- unum og drógu samningsumboð sitt til baka frá Sjómannasambandinu. Ég held reyndar að margir fleiri hafi sama álit á því og ég en hafi viljað tjá sig um það,“ segir Jónas. Hann sagði aðspurður hvort hann heföi stuðning innan stjómar Sjó- mannasambandsins að þetta mál komi Sjómannasambandinu ná- kvæmlega ekkert viö. „Þetta eru engar deilur innan sjómannasam- bandsins," segir Jónas. -gk Konráð Alfreðsson. Kynnisferðir sf. hafa starfað án ferðaskrifstofuleyfis: Sóttu um leyfi að tilskipun ráðuneytis - eftir að ábendingar höfðu borist frá samkeppnisaðila skrifstofu íslands, Kynnisferðir sf. hafa sótt um ferða- skrifstofuleyfi til samgönguráðuneyt- isins, að kröfu hins síðarnefnda. Það var keppinautur ferðaskrifstofunnar sem vakti athygli ráðuneytisins á að þær væru reknar án ferðaskrifstofu- leyfis eða ferða- skipuleggjendaleyf- is. Ábendingin leiddi til þess að ráðuneytið skrifaði Kynnisferðum og tilkynnti að ferða- skrifstofunni bæri Leyfisleysi Kynnisferðir sf. hafa starfað án feröaskrifstofuleyfis en hafa nú sótt um leyfí skv. tilskipun sam- gönguráöuneytisins. að sækja um slíkt leyfi samkvæmt lögum. Að sögn Guðbjargar Ársælsdóttur hjá samgönguráðuneytinu er nú beðið eftir mati á því hversu háa trygg- ingu ferðaskrifstofan þurfi að hafa til að hægt sé að gefa leyfið út. Það var í byrjun þessa árs sem Allrahanda ehf. gerði fyrirspurn til samgönguráðuneytisins um hvort Kynnisferðir sf. væru með ferða- skrifstofuleyfi. I kjölfarið fylgdu bréfaskriftir milli ráðuneytisins og Kynnisferða þar sem í ljós kom að þær voru ekki með tilskilin leyfi að mati ráðuneytisins. í skýringum forsvarsmanna Kynnisferða kom fram að ferða- skrifstofan væri sameignarfélag fimm félaga sem öll væru með ferða- skrifstofuleyfi, þ.e. Flugleiða, Ferða- Samvinnuferða Landsýnar, Ferða- skrifstofu BSÍ og Ferðaskrifstofunnar Atlantik. Því væri litið svo á að Kynn- isferðir hefðu í raun fimm ferðaskrif- stofuleyfi til að byggja ábyrgðir sín- ar á. Frá stofnun fyrirtækisins 1968 hefði það verið skilningur sam- gönguráðuneytisins að leyfi eigenda nægði fyrir ábyrgð- um. Guðbjörg sagði við DV að upp- runalega hefði ráðuneytið litið svo á að um væri að ræða kynnisferðir of- angreindra ferðaskrifstofa sem allar hefðu verið með leyfi. Síðan hefði fyrirtækiö aukiö starfsemina, orðið sjálfstæðara en áður og fengið sér- staka kennitölu. í timans rás hefði það tekið þeim breytingum að lög- fræðingur ráðuneytisins hefði talið að því bæri að sækja um leyfi. „Það má kannski segja að 1999, þegar síðasta breytingin varð á ferðamálalögunum, hefðum við átt aö taka viö okkur og benda þeim á að þær þyrftu leyfi,“ sagði Guð- björg. „En þær gengu strax í að sækja um þegar ráðuneytið hafði bent þeim á að það bæri þeim að gera samkvæmt gildandi lögum.“ -JSS ii'fy.nww Umsjón: Birgir Guðmundsson „Kauði" fundinn? Sjónvarpið sýndi á sunnudagskvöld þátt úr þáttaröðinni „Fréttir aldarinn- ar“og var fjallað um Geirfinnsmálið. Ólafur Jóhannesson, þáverandi dóms- málaráðherra, flutti fræga ræðu á Al- þingi og sneri vörn í sókn, en mjög hafði verið sótt að honum og hann ásakaður um að hafa haft óeðlileg afskipti af rannsókn Geir- fmnsmálsins. í ræðu sinni minntist Ólafur á „kauða“ í fyrsta sinn, og sagð- ist hann hafa grun um hver sá væri: „það væri ekkert slæmt að leiða þann kauða fram í dagsljósið, hann hefði kannski eitthvað á samviskunni", sagði Ólafur og leit upp í blaðamannastúk- una i Alþingishúsinu. Eins og greini- lega kom fram á myndskeiði í þættin- um á sunnudagskvöld sátu þar þá tveir ungir þingfréttamenn, þeir Davið Oddsson og Alfreð Þorsteinsson. Munu þeir hafa orðið mjög undrandi á þessu en skýringin kom fljótlega í ljós, því þingpallar höföu fyllst og fólk því troðið sér inn í blaðamannastúkuna. Þegar þeir félagar Alfreð og Davíð fara að skima í kringum sig kom í ljós að tollvörðurinn frægi, Kristján Péturs- son, stóð fyrir aftan þá en hann hafði beitt sér mjög í Geirfinnsmálinu. Telja menn að þar hafi verið komin skýring- in á augnagotum dómsmálaráðherra ... Krækjur í pottinum hafa orðiö talsverðar um- ræður um klámið á Netinu í kjölfar frétta af heimasíðunni hjá Bleiku og bláu og raunar fleiri síðum líka. Aug- ljóst er að frétta- flutningurinn af þessu klámefni hef- ur vakið meiri at- | hygli á því en nokk- uð annað því fúllyrt er að heimsóknum á heimasíðu Bleiks og blás hafi fjölgað gríð- arlega eftir fréttimar í útvarpinu og fyrstu dagana á eftir hafi þessar heim- sóknir orðið um 30 þúsund talsins. í ljósi tals um „klámkrækjur" á vefsíðum velta menn nú fyrir sér hentugu orði yfir þær þá hljóörænu krækjur sem RÚV setti á heimasíðu Bleiks og blás ... Menningarfulltrúi Það er alltaf líf og fjör í menning- arpólitíkinni á Akureyri og nú er far- in af stað umræða um hver kunni að verða næsti menningarfulltrúi Akur- eyrarbæjar en ljóst þykir að Ingólfur Ármannsson, nú- verandi menningar- fulltrúi, muni hætta fyrir aldurs sakir um eða upþ úr ára- mótum. Helgi Vil- berg, skólastjóri Myndlistarskólans á Akureyri, skrifar mikla grein um þetta mál á vefsíðu sína akureyri.to fyrir skömmu og þar telur hann líkur á að í það minnsta tveir menn muni sækjast eftir stöð- unni, en það eru Þröstur Ásmunds- son, sem er formaður menningar- málanefndar bæjarins, og svo hins vegar Þórgnýr Dýrfjörð sem er menningarsinnaður framkvæmda- stjóri búsetu- og öldrunardeildar bæj- arins... Himnagrátur Það var fátt sem spillti góða skap- inu hjá Reykvíkingum á menning- arnótt og fæstir létu veðrið eða smá- vægileg tæknileg at- riði slá sig út af lag- inu. Þannig lýsti Ingibjörg Sólrún því yfir að samsöngurinn með Garðari Cortes hefði verið hápunktur kvöldsins þrátt fyrir smávægilega óþekkt í hátalarakerfinu. Einn pottverja heyrði annan borgarfulltrúa tala um að .jafnvel himnarnir grétu af gleði“, en nokkur rigning var á stundum. Þessi síðasta orðræða er raunar fengi að láni frá Helga Hjörvar sem lýsti í útvarp hátíðahöldum á Þingvöllum 1944 og mátti vegna stríðsins ekki segja hvemig veðrið var ...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.