Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Blaðsíða 6
6
____________________________FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001
Fréttir DV
Vangoldin vörslugjöld hjá Úrvalsvörum:
Eldhúsið gjaldþrota
- léttir fyrir starfsmenn
Forsvarsmenn veitingastaðarins
Eldhússins i Kringlunni óskuðu eft-
ir gjaldþrotaskiptum á þriðjudag í
síðustu viku. Héraðsdómur Reykja-
víkur samþykkti beiðnina á
fimmtudag og úrskurðaði Úr-
valsyörur gjaldþrota. Þar með kem-
ur Ábyrgðasjóður launa til skjal-
anna og greiðir laun starfsmanna og
lífeyrisiðgjöld.
„Þá fær fólkið launin sin fyrr en
ella. Þetta leysir því ákveðinn
vanda,“ segir starfsmaður Eflingar
sem fer með málefni starfsmanna
Eldhússins í Kringlunni. Eins og
fram kom í DV var Eldhúsinu
skyndilega lokað um miðjan júli og
starfsfólkið fékk engin laun útborg-
uð i ágústbyrjun.
Þá kom í ljós að fyrirtækið Úr-
valsvörur ehf., sem rak Eldhúsið,
hafði dregið skatta og lífeyrisgjöld
af launum starfsfólks án þess að
skila gjöldunum til réttra aðila.
Sumir starfsmanna fengu því skell
þegar álagningarseðill skattsins
Starfsmennlmir
Erna María Þrastardóttir og Margrét Manda Jónsdóttir fengu ekki launin sín.
Margrét Manda var rukkuö um skatta sem þegar höföu veriö dregnir
af launum hennar.
Slokknaö undir pottunum
Eldhúsinu í Kringlunni var lokaö um miöjan júlí vegna greiösluerfiöleika. Nú
er Ijóst oröiö aö fyrirtækiö er gjaldþrota.
kom og þeim var gert að greiða stór-
ar fúlgur í vangreidda skatta. Meðal
þeirra var Margrét Manda Jónsdótt-
ir þjónustustjóri sem gert var að
greiða 110 þúsund krónur en einn
samstarfsmanna hennar fékk bak-
reikning upp á 300 þúsund. Margrét
Manda hafði reynt að fá upplýsing-
ar hjá fyrirtækinu um laun sín og
hve mikið hefði verið dregiö af
henni en það tókst ekki fyrr en hún
braust inn á skrifstofu þess með
ostaskera og náði afritum af pappír-
um sínum.
Eigendur Eldhússins eru Viggó
Sigursteinsson, Þórður Bragason og
Þorsteinn Hjaltested. Viggó 'sagði í
samtali við DV á dögunum að unn-
ið væri að lausn þessara mála en
skömmu síðar óskaði lögmaður
þeirra eftir gjaldþrotaskiptum.
Ólafur Sigurgeirsson hefur verið
skipaður skiptastjóri.
-rt
Heiti potturinn
Umsjón: Hörður Kristjánssou
netfang: hkrist@if.is
í upphafi var orðið ...
Viðtal við Baltasar Kormák, sem
birtist í Politiken fyrir skömmu, hefur
vakið mikla athygli. íslendingar eru
auðvitað ánægðir með athyglina sem
„strákurinn okkar“ fær,
en annað hefur ekki
vakið minni athygli og
það eru orð Baltasars
varðandi titil skáldsög-
unnar 101 Reykjavík eft-
ir Hallgrím Helgason
og skírskotun hennar tii
lífs Baltasars. Kvikmyndaleikstjórinn
ungi segir nefnilega að hann eigi titil
skáldsögunnar og auk þess geti öll sag-
an átt við lífshlaup hans, nema hvað
móðir hans sé ekki samkynhneigð.
Bókmenntalega sinnaðir gárungar hafa
eftir Politiken-viðtalið tileinkað sér nýj-
an frasa: í upphafi var orðið og orðið
var hjá Balta...
Björn prentari?
Guðjón Ólafur Jónsson, formaður
Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í
Reykjavík, segir í pistli á Hriflu, að
harður vetur sé fram undan hjá ör-
magna og villtri
íhaldshjörð. í heita
I pottinum hafa menn
™ ♦ •-I áður velt fyrir sér for-
ystuhlutverki Ingu
Jónu Þórðardóttur og
talið var líklegt að
Björn Bjarnason
myndi sækjast eftir því hlutverki.
Enn bólar ekkert á framboðstilkynn-
ingu Björns. Ýmislegt bendir þó til að
hann sé alvarlega að íhuga málið.
Hann hafi verið duglegur að láta sjá
sig við ýmis tækifæri í borginni. Nú
síðast við gangsetningu á nýrri
prentvél Prentmets í Skeifunni í
fyrradag - nema Bjöm hafi kannski
verið ráðinn prentari...?