Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 21
21 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001_________________________________________ X>v _____________________________________________ Helgarblað Framlag íslands „Þau voru svo flott aö ég var gráti næst af þjóöarstolti og óþolandi þaö sem eftir liföi kvölds því mér fannst enginn standast samanburö viö landann. “ örskamma tíma og sýnir að allt er hægt ef vilji og brennandi áhugi eru fyrir hendi. Breikið er best Að öðru ólöstuðu varð ég hrifnust af breikdansinum og söngleikjasöngn- um. Mér fannst ótrúlegt að sjá hvað krakkarnir gátu gert við líkamann á sér í breikinu og hvernig þetta varð á endanum keppni á milli fárra út- valdra. Söngleikjasönghópurinn tók lög úr West Side Story, Oliver Twist og Les Miserables þannig að gæsahúð- in hvarf aldrei alveg af handleggjun- um. Þau enduðu á titillaginu úr kvik- myndinni Fame og þá kom djassdans- hópurinn og dansaði með og það fór um mig unglingahrollur enda var ég 14 ára þegar sú frábæra mynd var frumsýnd! Hvaða vandamál? Mér til mikillar furðu gekk alltaf öll tækni og allt skipulag eins og í sögu. Hin klassíska setning „tæknin er eitthvað að stríða okkur“ var aldrei notuð í sirkustjaldinu í Karlstad. En allt tæknifólk var eins og þátttakend- ur afskaplega ungt. Það voru kynn- arnir tveir líka, Mari og Rasmus, hún leikkona og hann tónlistarmaður, bæði sænsk og alveg pottþétt. Þau voru sniðug og skemmtUeg með stutt „skjets" á milli atriða þegar þurfti að flytja míkrófóna, stilla upp dóti eða taka það niður aftur. Þó að ýmsar upplýsingar sem maður er vanur að fá á listviðburðum - eins og hvað sé ver- ið að spila og eftir hvern - hafi sárlega vantað var nóg af öðrum heimildum um hátíðina. Bæði var verið að vinna að heimildarkvikmynd alia dagana, og var fyrsti hluti hennar sýndur á laugardagskvöldið, og á hverjum degi var gefið út lítið dagblað með fréttum gærdagsins úr listsmiðjunum og af sviðinu og slúðrað um hverjir væru orðnir skotnir i hverjum o.s.frv. Einnig var alltaf spurning dagsins (það er víða vinsælt), og á baksíðunni voru skilaboð sem þátttakendur gátu sent ritstjórninni og hún valdi síðan úr og birti. í fimmtudagsblaðinu voru þessi skilaboð á baksíðunni: ERU TIL SMOKKAR SEM ÉG GET FENGIÐ LÁNADA? í sviga fyrir neðan skrifar ritstjórnin: „(Ef við eigum að vera hreinskilin þá höfum við ekki hug- mynd um hvað þetta þýðir en náinn vinur ritstjórnarinnar hefur þýtt þetta svona: Veiðistöngin er úti í gar-ði, sæktu hana).“ Ungur húmor! Öll dýrin í skóginum eru vinir Ég fór til Karlstad beint úr versl- unarmannahelgarhrjáðu landi þar sem allar umræður snerust um nauðganir og annað ofbeldi og þau sjónarmið virtust vera ríkjandi, a.m.k. hjá einhverjum forsvars- mönnum útihátíða, að svoleiðis sé óhjákvæmilegt þegar unglingar safnast saman. Þess vegna var svo yndislegt að upplifa listahátíðina Ung i norden þar sem ekkert leiðin- legt gerðist - öll dýrin í skóginum voru vinir, eins og skáldið sagði. Þau þurftu að vísu að fara eftir tveimur reglum var mér sagt. Þau Flottir breikarar „Mér fannst ótrúiegt aö sjá hvaö krakkarnir gátu gert viö líkamann á sér í breikinu og hvernig þetta varö á endanum keppni á milli fárra útvaldra. “ þurftu að mæta á réttum tíma og þau máttu ekki drekka. Þessum reglum fóru allir eftir. Þannig að þetta er líka hægt. Meira að segja höfðu íbúar Karlstad ekkert nema gott um það að segja að litli bærinn þeirra fylltist af norrænum ungling- um af öllum stærðum og gerðum. Það var eitthvað alveg lífsauk- andi að vera þama, og maður varð að hafa sig allan við til að verða ekki hálfheilagur yfir því hvað allt var gott og skemmtilegt. Enda sögðu íslensku þátttakendumir mér að þetta hefði verið „alveg æðislegt". Þau vildu alls ekki fara heim og einn ungur maður gekk svo langt að segja að þetta hefðu verið bestu dag- ar lífs hans! Ég hlakka til þegar Ung i Norden kemur til íslands og ég öf- unda þá unglinga sem fá að vera með. Ég hef aldrei óskað þess að verða unglingur aftur fyrr en í Karl- stad eina helgi í ágúst 2001. DV, Karlstad: Sif Gunnarsdóttir Fame í Norden „Þau enduöu á titillaginu úr kvikmyndinni Fame og þá kom djassdanshópur- inn og dansaöi meö og þaö fór um mig unglingahrollur enda var ég 14 ára þegar sú frábæra mynd var frumsýnd!“ Miðasölusími: 568 8000 BORGARLEIKHUSIÐ fSLENSKA LEIKHÚSGRÚPPAN 36-JOÖOO “ \ LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR OG fSLENSKA LEIKHÚSGRÚPPAN KYNNA: ÞU TÁRAST AF HLATRI! YFIR 6000 MANNS HAFA SÉÐ: í borgarleikhúsinu SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU 25. ÁGÚST Á SPRENGHLÆGILEGASTA GAMANLEIKRITI ÁRSINS. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX!!!!!!!!!!!!!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.