Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 24
28 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 Tilvera I>V Ilfiö Afrakstur vetrarins Friðrik Bridde, bílstjóri hjá borgarstjórn, opnar myndlistasýningu í dag í Tjarnarsal Ráðhússins. Þetta er fyrsta einkasýning Friðriks og hún er sett upp í tilefni flmmtugsafmælis hans. Hún birtir afrakstur síðasta vetrar og fáeinar eldri myndir fljóta með. Krár ■ BATTERI A VIDALIN Batterí er hópur djass- og funk-tónlistarmanna sem er í raun nútíma „djamm- sesslon" ■ GREIFARNIR Á PLAYERS Hljóm sveitin Greifarnir mun trylla Kópa- vogsbúa og nágranna þeirra í kvöld á Players. ■ GULLÖLDIN IIM HELGINA Það er Stórsveit Asgeirs Páls sem sér um dansstuðið á Gullöldinni í Kópavogi í kvöld. Láttu sjá þig því þar sem stuöið er þar átt þú skilið að vera. ■ KATALÍNA í kvöld mun hin stór- skemmtilega hljómsveit, Vírus, leika fyrir dansi á Katalínu ■ PENTA Á AMSTERPAM Hljóm sveitin Penta mun skemmta gestum og gangandi á Café Amsterdam í kvöld. ■ SPÚTNIK Á KAFFI REYKJAVÍK Stuðboltarnir í hljómsveitinni Spútnik standa fyrir dansiballi á Kaffi Reykjavík í kvöld. Á undan því verður diskótek og einnig á eftir. ■ ÍRAFÁR Á GAUKNUM Hljómsveit- in Irafár mun sjá um að halda uppi stemningu á Gauki á Stöng í allt kvöld og fram á nótt. Klassík ■ KRISTINN SIGMUNDSSONÍ SALNUM Kristinn Sigmundsson óp- erusöngvari og Jónas Ingimundar- son pianóleikari halda tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld klukkan 20. Uppselt var á tónleika þeirra í gær og því verða þeir endurfluttir „vegna fjölda áskorana" að sjálf- sögöu! ■ GILPRUMEZZ Á ODDVITANUM Gildrumezz skemmtir í allra síðasta sinn í kvöld á Oddvitanum, Akureyri. ■ HELGA MÖLLER VIÐ POLLINN I kvöld treður sjálf Helga Möller upp ásamt hljómsveitinni „Hot n Sweet" Stuö að eilífu. Leikhús______________________ ■ HEDWÍG Leikritið Hedwig verður sýnt í kvöld í Loftkastalanum kl. 20.30. Síðustu forvöð ■ BRÁUÐMÓT ÖGBÚMÖRKÍ Pakkhúslnu í Olafsvík stendur nú yfir sýningin Brauðmót og búmörk þar sem myndlistarkonurnar Bryndís Jónsdóttir og Þorgeröur Siguröar- dóttir sýna verk sín. Sýningunni lýk- ur í dag. Leirverk og dúkristumyndir Bryndísar eru byggöar á búmörkum en tréristur Þorgerðar á brauðmót- um. ■ STIAN RÖNNING Í GALLERÍ GEYSI Stian Rönning heitír ungur maður frá Noregi. Fyrstu einkasýn- ingu hans á Islandi lýkur í dag í Gall- erí Geysi við Ingólfstorg. Sýningin hefur yfirskriftina „Sérö Þú þaö sem Ég sé?“. Stian sýnir Ijósmyndir sem eru teknar í Taílandi, Laos, Noregi og á íslandi á árunum 1999-2001. Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is DV-MYNDIR HARI Ungur nemur, gamall temur Stefán Jónsson og Geir Ólafsson söngvarar og Guðmundur Steingrímsson trommuleikari á æfingu í gær. mmm Gamlir slagarar í nýjum búningi - einstök skemmtun sem líður fólki seint úr minni, segir Geir Ólafsson söngvari Geir Ólafsson, söngvari og lífskúnster, stendur þessa dagana fyrir uppsetningu á söngskemmt- un sem heitir Night’s on Broadway og verður, eins og nafnið bendir til, haldinn á skemmtistaðnum Broadway. Að sögn Geirs er um virkilega stórskemmtun að ræða þar sem margir af helstu skemmti- kröftum landsins koma fram. Kynnir kvöldsins er Bryndís Schram. Meðal þeirra sem koma fram ásamt Geir er hljómsveitin Furst- amir með þeim Árna Scheving, Carli Möller, Jóni Páli Bjarnasyni, Guðmundi Steingrímssyni og Þor- leifi Gíslasyni. Auk íjölda annarra gesta munu gestasöngvararnir Anna Sigríður Helgadóttir Taka lagiö saman Gestasöngkonurnar Anna Sigríöur Helgadóttir messósópran og Anna Vil- hjálmsdóttir ásamt Geir Ólafssyni. messósópran, Haraldur Burr, Anna Vilhjálmsdóttir, Rut Regin- alds og Stefán Jónsson úr Lúdó og Stefáni taka þátt í sýningunni. Á sýningunni verða tekin lög sem menn á borð við Frank Sinatra, Toni Bennett, Mel Tormé og Elvis Presley geröu fræg á sín- um tíma. Að sögn Geirs var haldin svipuð sýning í vor. „Hún heppnaðist svo vel að við ákváðum að slá tO og gera þetta aftur og ætlum að vera með nokkrar sýningar í haust.“ Geir segir hiklaust að þetta sé frá- bær skemmtun. „Ég lofa því að þeir sem mæta munu upplifa ein- staka skemmtun sem líður þeim seint úr minni.“ -Kip Dansdagur á Ingólfstorgi: Foringinn er dans ársins Ingólfstorg mun iða af dansi á morgun er Dansráð Islands efnir til dansdags, annað árið í röð. Kara Arngrímsdóttir er varaforseti Dans- kennarafélags Islands sem stendur fyrir þessari fótafimi í miðborginni. „Tilgangur dansdagsins er sá að vekja athygli á dansi og gildi hans í samfélaginu," segir hún og heldur áfram: „Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg. Þar má nefna glæsilega sýningu Jazzballettskóla Báru og einnig eru ýmis atriði sem almenn- ingur fær að taka þátt í. Línudans verður að sjálfsögðu stiginn og svo verður kynntur splunkunýr dans frá Grikklandi, einfaldur Zorbadans sem fólk lærir eins og skot.“ Foringinn er „dans ársins" Að sögn Köru á fólk lika kost á aö læra hinn íslenska „dans ársins“ á Ingólfstorgi kl. 14.30 á morgun. Sá heitir Foringinn og varð i efsta sæti i keppni sem íslenskir danskennar- ar halda sin á milli. Höfundur hans er Irma Gunnarsdóttir og hún samdi hann við ákveðið spænskt lag. „Hann er léttur, skemmtilegur og auðlærður," segir Kara. En skyldu þeir dansar sem sigruðu í keppnum fyrri ára hafa náð fótfestu hjá þjóðinni? „Það er misjafnt," svarar hún. „Macarena og Mambó number five gerðu það. í fyrra var Laluna verðlaunadansinn og hann náði líka heilmiklum vinsældum. Þetta eru hópdansar og þeir eru kenndir í dansskólunum.“ Sigur Rós lætur farandgripinn af hendi Fyrir ári veitti Dansráð menning- ar- og listaverðlaun í fyrsta sinn. Þau féllu hljómsveitinni Sigur Rós í skaut. Nú er komið að úthlutun verðlaunanna í annað sinn. Þau eru veglegur farandgripur, tákn um risandi stjörnu sem Gull og silfur smíðaði. Sigur Rós mun afhenda hann þeim sem hlýtur hann í ár. Það skýrist á morgun í miðborg- inni. Niður í bæ að dansa Eins og kunnugt er er dans kom- inn á námskrá allra grunnskóla og það segir Kara stóran áfanga út af fyrir sig. Hins vegar segir hún mik- ið vanta á að sú stefna sé komin til framkvæmda, þrátt fyrir góðan vilja margra skólamanna. Hún hvetur fólk eindregið til aukinnar dansiðk- unar og segir einn lið í því að mæta á dansdaginn á Ingólfstorgi. „Okkar ósk er sú að það verði fastur punkt- ur í tilverunni hjá fólki að koma niður í bæ og dansa með okkur einn dag í byrjun september." -Gun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.