Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 25
h '-!■ ■ >' FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 Tilvera I>V Hreindýraveiðar í fullum gangi: Gömul tré hæöar- mæld. Gengið á slóðir gamalla trjáa Inaust standa skógræktarfélög- in fyrir skógar- göngum víða um land, þar sem ætlunin er að skoða gömul og söguleg tré. Göngurnar eru hluti af fræðslu- starfi Skógrækt- arfélags íslands og skipulagðar í samvinnu við Garðyrkjufélag íslands og Ferðafélag íslands. Fyrstu göng- urnar eru laugardaginn 1. september og hefjast klukkan 10. Göngurnar taka um tvo tíma og eru farnar undir leið- sögn staðkunnugra. Á laugardaginn verða göngur á eft- irtöldum stöðum: Hafnarfjörður: Gangan hefst við Hellisgerði, Hellisgötumegin. Borgarnes: Gangan hefst við Skallagrímsgarðinn í Borgarnesi. Húsavík: Gangan hefst við Hótel Húsavík. Egilsstaðir: Mæting við Búnaðar- bankann á Egilsstöðum. - sem er þriðjungur af kvótanum í ár „Ema lyfið við Benz-bakter- íu er blásýrutöfluru - segir Rúnar Sigurjónsson Benz-eigandi Með Benzdellu Nýi Benzinn er árgerö 1958 og ól mestan sinn aldur úti í Eyjum og var búinn aö vera óhreyföur í bílskúr í 15 ár, segir Rúnar Siguqónsson sem er aö gera upp þriöja Benzinn. DV, HVANNEYRI:_________________________ Rúnar Sigurjónsson er nýkominn á götuna með Benz sem hann er búinn að gera upp og er þetta fjórði Benzinn sem hann á þátt í að gera upp. Hann hefur sannarlega tekið ástfóstri við Benz-bílana sem taldir eru með þeim bestu í heimi. Rúnar er með Benz- bakteríuna og við henni segir hann að aðeins blásýrutöflur dugi. „Þetta er þriðji gamli Benzinn sem ég hef komið að því að gera upp en svo hef ég komið nálægt yngri Benz- um, ég gerði til dæmis upp 1972-mód- elið af Benz frá grunni og svo aðstoð- aði ég félaga minn við að gera upp Benz-vörubíl. Þessi nýi er árgerð 1958 og ól hann mestan sinn aldur úti í Eyjum og var búinn að vera óhreyfð- ur í bilskúr í 15 ár. Þórður Magnús- son, eða Doddi á Skansinum, var síð- asti eigandinn og hann var til í að selja bílinn en kaupverðið er trúnað- armál,“ sagði Rúnar Sigurjónsson. „Ég fékk bílinn afhentan síðastliðiö haust og byrjaði strax að gera við hann og mála hann en það leið alveg ótrúlega stutt stund áður en hann fór í gang. Vélin í honum var föst og okk- ur Kjartani félaga mínum tókst að losa vélina úr honum og við komum henni í gang alveg ótrúlega fljótt mið- að við það að bíllinn hafði verið í bíl- skúr í 15 ár. Kostnaðurinn við að gera upp bílinn var ekki mikill þar sem bíl- inn var ekki illa farinn - ætli kostnað- urinn sé ekki á bilinu 2-300 þúsund en vinnustundirnar voru ansi marg- ar“ segir Rúnar. - En hvernig skyldi Rúnar hafa fengið áhuga á Benz? „Það má segja að það sé mér i blóð borið að hafa áhuga á Benz. Það var þannig að pabbi keypti hús í Miðtúni og það hús á ég í dag. Þegar hann seldi hús sem hann átti í Hafnarflrði tók hann Benz upp i hluta af kaup- verði hússins og sýktist algerlega af Benz-bakteriunni. Þegar ég kom ak- andi heim á fyrsta Benzinum sem ég eignaðist, sem var 1969-módelið, sagði pabbi við mig: „Það er bara eitt lyf við þessari bakteríu og það er blásýra," sagði Rúnar Sigurjónsson Benz-eig- andi við DV. -DVÓ Messa eftir Hróðmar Inga í Salnum: Samin upp úr Skólakveri Skálholtssveina DV, EGILSSTQÐUM:___________________ Hreindýraveiðar eystra eru nú í fullum gangi, en veiðitímabilið stendur frá 1. ágúst til 15. septem- ber. Stærsta dýrið sem veiðst hefur undanfarið var tarfur sem felldur var hjá Mjóanesi á Völlum og vó hann um 110 kíló. Engin kærumál varðandi hreindýraþjófnað hafa komið upp enn sem komið er. í ár var veiðikvótinn 453 dýr, á móti 407 dýrum í fyrra. Að sögn Karenar Erlu Erlingsdóttur, starfsmanns hreindýraráðs, hefur veiðin gengið nokkuð vel þrátt fyrir rysjótt veður, og er búið að fella 150 dýr en á sama tíma í fyrra voru þau 110. Fjöldi veiðidýra er ákvarðaður af um- hverfisráðuneyti samkvæmt ráðgjöf frá hreindýraráði og Náttúrustofu Austurlands, sem sér um mælingar á stofnstærð. Svæðið sem veitt er á nær allt frá Vopnafirði, suður í Hornafjörð og er DV-MYND FJÖLNIR BJÖRN HLYNSSON Ferðamaöur með stóran tarf Geor- ge E. Keller, einn fárra útlendra veiöimanna, meö haus af 92 kílóa tarfi sem hann felldi um daginn. skipt niður í 9 veiðisvæði. Mestum kvóta er úthlutað á veiðisvæðum 1 og 2, Fljótsdalsheiði og svæðinu norðan Jökulsár á Dal. Verð á veiði- leyfum er mismunandi eftir svæð- um og eru þau dýrust á fyrrnefnd- um svæðum eða 90 þúsund fyrir tarf og 45 þúsund fyrir kú. Fyrir utan kostnað við veiðileyfi er veiðimönn- um skylt að hafa með sér leiðsögu- mann. Kjötið af dýrunum er eign hvers veiðimanns, en þeim er skylt að láta stimpla það hyggist þeir selja. Sú breyting varð á úthlutun hreindýraráðs að dagsetning úthlut- unar var færð framar til að koma á móts við óánægju þeirra sem stóðu að markaðssetningu veiðileyfa er- lendis, en þó virðist sem ekki hafi orðið mikil aukning á komum er- lendra veiðimanna í kjölfar breyt- inganna. Það fyrirkomulag sem er á veið- unum nú er frá því í fyrra en það verður síðan endurskoðað 2003. Þó eru þær breytingar fyrirhugaöar næsta ár að láta veiðimenn greiða staðfestingargjald fyrir 1. apríl og fullgreiða síðan leyfið fyrir 1. júlí, en óánægju hefur orðið vart hjá veiðimönnum sem hafa þurft að greiða leyfin strax 1. apríl. Skálholtsmessa hans verður ílutt í Salnum í Kópavogi sunnudagskvöldið 2. september. Flytjendur eru þau Marta G. Halldórsdóttir sópransöng- kona, Finnur Bjarnason tenór, Bene- dikt Ingólfsson bassi og Caputhópur- inn undir stjóm Gunnsteins Ólafsson- ar. Hymni scholares Messuna samdi Hróðmar Ingi fyrir Sumartónleika í Skálholti og þar var hún frumflutt í fyrra. Messan er í átta köflum. í fjórum þeirra er notast við hina hefðbundnu latnesku messu- texta, Kyrie, Gloria, Sanctus og Agnus dei, en í hinum fjórum eru textamir fengnir úr gömlum íslenskum hand- ritum. „Þar er tengingin við Skál- holt,“ segir Hróðmar og heldur áfram: „Hún kemur aðallega í gegnum kafl- ann Credo. Hann er tekinn úr hand- riti sem heitir Hymni scholares, eða Skólakver, sem talið er að hafi verið ritað um 1687. í því kveri er trúarjátn- ingarsálmur Lúthers þýddur úr þýsku „Við erum að ljúka upptökum á haldnir í tilefni þess,“ segir tónskáld- messunni og þessir tónleikar eru ið Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson en yfir á latínu og getum er að því leitt að skólasveinar í Skálholti hafi notað þann sálm til að æfa sig í latínunni. Ég tók þennan foma texta og samdi tónverkið við hann og reyndar er ég líka með annað lag við texta úr þessu skólakveri þeirra Skálholtssveina." Flutningur messunnar hefst kl. 20 á sunnudagskvöld og tekur um 40 mín- útur. En hver skyldi standa fyrir upp- tökum á verkinu? Hróðmar svarar því: „Það er Smekkleysa og hún stefn- ir að útgáfu á því næsta vor.“ -Gun. Verð frá 35.500 EVRÓ Allar stærðir DV-MYND Höfundur Skálholtsmessu Hróömar Ingi Sigurbjörnsson 150 dýr hafa verið felld

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.