Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Blaðsíða 14
Þessi voru líka nefnd Björn Jörund- ur Friðbjörnsson skýtur sér óvænt nokkuð ofarlega í þessari könnun. Björn hefur jú alltaf átt sína fylgismenn en sjaldnar drifið al- þýðuna á bak sér eins og nú. Fjölnir Þorgeirs- son er hins vegar fastagestur í keppnum sem þessari og verður að teljast óvenju neðarlega miðað við oft áður. Þetta skýtur eiginlega niðurstöður ný- legrar Netkönn- unar í kaf. Flestir hljóta að vera sammála um að Siv Friðleifsdótt' ir sé myndarleg' asti ráðherrann sem við eigum nú og passar það vel að minnst sé á hana nú. Vigdís Finnbogadóttir þykir enn stór- glæsileg kona og leikkonurnar Þórunn Lárus- dóttir, Steinunn Ólína Þorsteins' dóttir og María Ellingsen komu í sætunum á eftir henni. Fyjrum fyrirsætan Asdís María Franklín hefur greinilega unnið hug og hjörtu lands- manna með frá- sögn sínni af átröskunar- vandamálum sín- um og virtust norðanmenn reyndar sérstak- lega hrifnir af Ásdísi. Frétta- konan Elín Hirst vekur greinilega enn miklar kenndir hjá sjón- varpsáhorfendum og það sama má segja um kollega hennar, Jón Ár- sæl Þórðarson. Ungfrú Norður- lönd er furðu neð- arlega miðað við nýlegan árangur sinn en Iris Björk Árnadóttir hverfur kannski í skuggann af sig- urvegaranum ólétta. Chloé Ophelia Gorbu- lew á vel skilið sæti á listanum enda hefur hún verið eftirlæti Netverja í á ann- að ár. Kári Stef' ánsson heillar þær enn með ákveðinni fram- komu sinni og sterkum líkams' burðum og næst- ur honum kemur landshöfðinginn Davíð Oddsson. Páll Óskar fær öll sín atkvæði frá konum enda finnst þeim hann svo sætur. Fyrrum sjónvarps- fréttaþulurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson þykir alltaf jafn sjarmerandi enda er mál manna að maðurinn hreinlega geisli út frá sér. Andrea Róbertsdóttir flýgur ekki hátt í þetta skiptið og skipar sér neðarlega ásamt nýliðanum Birgittu Haukdal. í vikunni gerði DV skoðanakönnun meðal fólks á kosninga- aldri. Ein spurninganna var hver fólki fyndist vera kyn- þokkafyllsti íslendingurinn. Hér birtast niðurstöðurnar fólki til gamans. Athygli vekur hve áberandi fólk í þjóðfé- laginu einokar topplistann og má af því draga þá athuga- semd að því sýnilegri sem þú ert, þeim mun meiri mögu- leika áttu í svona könnunum. Þá hittist það þannig á að karlmenn raða sér í efstu sætin sem dregur okkur að þeirri athyglisverðu staðreynd að karlar voru tregari til að nefna kandídat en konurnar. Listinn er annars fjölbreyttur og inniheldur allt frá fjölmiðlamönnum til menntaskóla- og bókmenntafræðinema. Þeir sem eiga maka á listanum geta stært sig af því að hafa náð í þann rétta á meðan aðrir verða að gæta þess að maki sinn rekist ekki á einhvern á listanum. Þjóðin vill sofa hjói þessu fólki i Logi Bergmann Eiðsson Það er augljóst að létt yfirbragð Loga á skjánum höfðar vel til kvenþjóðarinn- ar. Logi er sjarm- erandi fféttaþulur og hefúr þann skemmtilega eigin- leika að taka sig ekki alltof alvar- lega. Tælandi bros- ið og gamansemin virka greinilega og svo þykir Logi bara vera hið besta skinn. 2 ÞORSTEINN J. VlLHJÁLMSSON Sem stjórnandi vinsælasta sjónvarpsþáttar á Is- landi er ekkert skrýtið að fólk taki eftir Þorsteini Joð. Það var nú svo sem ekki eins og hann hafi verið ókunnugur sjónvarpsáhorfendum heima í stofu fyrir því áralöng reynsla hans úr Islandi í dag er vel þekkt. Þorsteinn er afar einlægur sjónvarpsmaður, hann ger- ir ekki upp á milli viðmælenda sinna eftir stöðu þeirra. Hann einfaldlega færir okkur raunveruleik- ann heim í stofu. Utlitið og orðfæri Þorsteins Joð gera svo ekkert annað en að bræða fólk endanlega. Hilmir Snær Guðnason Hilmir hefur um árabil verið okkar ástsælasti leikari. Allt frá því hann út- skrifaðist hafa stærstu hlut' verkin verið geymd fyrir hann og aldrei hefur hann brugðist. Leikar- ar þykja alltaf áhugaverðir og ekki skemmir fyrir þegar þeir eru af bestu gerð. Konurnar ráða hreinlega ekki við sig þegar Hilmir stígur á sviðið, sjálfsöryggið og kynþokkinn geisla utan af honum. Þess utan er hann bara venju- legur og feiminn strákur og sakleysið kunna allir að 4 Egill Ólafsson Sagan segir að Egill Ólafsson megi ekki ganga inn á bar eða önnur mannamót án þess að viðstaddir kven- menn hreinlega sogist að honum. Egill er mað- ur á besta aldri og allar kunna konur að meta menn sem lifað hafa tímana tvenna. Það hefur Egill aldeilis gert sem söngvari í einni vinsælustu hljómsveit síðari tíma. Svo hefur hann auðvitað leikið í næstum öllum íslenskum bíómynd- um síðustu 20 árin. Konur fíla Egil, svo mikið er víst. 14 26. október 2001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.