Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2001, Blaðsíða 12
12
Helqarblað
LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001
DV
Hu Jintao, varaforseti Kína, þykir líklegastur arftaki Jiang Zemins forseta:
Rísandi stjarna
í rauðu austri
Hu Jintao, varaforseti Kína, sem þykir líklegastur arftaki Jiangs Zemins í
embætti forseta Kína og formanns kínverska kommúnistaflokksins er
hér meö Putin Rússlandsforseta í upphafi feröar Hus til Evrópulanda fyrr
í vikunni, sem jafnframt er hans fyrsta ferö til vestrænna ríkja.
Frá Rússlandi hélt Hu til Bretlands þar sem hann hitti Elísabetu drottningu
eftir aö hafa fundaö meö breskum ráðamönnum í fyrradag. Síöan var feröinni
heitiö til Þýskalands, Frakklands og Spánar. Meö þeim á myndinni er Liu
Yongqing, eiginkona Hus.
í ágústmánuöi sl. komu helstu leið-
togar úr miðstjórn kínverska komm-
únistaflokksins saman í baðstrandar-
bænum Beidaihe við Bohaiflóa í Norð-
austur-Kína, til að ræða framtíð þess-
arar fjölmennustu þjóðar heims og
ákveða hverjum verði falið að leiða
hana til frekari nútímavæðingar og
aukinnar þátttöku í alþjóðasamfélag-
inu - verkefni sem Kínverjar standa
nú frammi fyrir í upphafi nýrrar ald-
ar, eftir að hafa í haust hlotið loforð
um inngöngu í alþjóða verslunarráð-
ið, WTO, auk þess að vera treyst til að
halda ólympíuleikana árið 2008.
Fundurinn, sem haldinn var fyrir
luktum dyrum, var til undirbúnings
þriggja daga miðstjórnarfundi sem
siðan var haldinn á lúxushóteli í Pek-
ing seinni partinn í september og var
mikilvægi hans því mikið og lítil
tækifæri til sól- eða sjóbaða. Enda tO-
tölulega stutt í að kommúnistaflokk-
urinn haldi 16. flokksþing sitt, sem
fram fer i október á næsta hausti, þar
sem fimm úr sjö manna æðstaráði
flokksins munu væntanlega draga sig
í hlé og eru þeirra á meðal þeir Jiang
Zemin, forseti landsins og núverandi
formaður kommúnistaflokksins, Zhu
Rongji forsætisráðherra og Li Peng,
forseti þjóðþingsins, allt þungavigtar-
menn af þriðju kynslóð kínverskra
forystumanna siðan kommúnistar
tóku völdin í Kína árið 1949.
Loft lævi blandið
Nýjustu fréttir herma þó að ein-
hverjir úr hópnum séu ófúsir til að
draga sig í hlé og mun harðlínumað-
urinn, Li Peng, forseti þjóðþingsins,
þar fremstur í flokki. Það gæti orðið
til þess að klofningur og óeining magn-
aðist innan miðstjórnarinnar, en loft
mun þar þegar vera orðið lævi bland-
ið og farið að iykta af hrossakaup-
mennsku. Ekki bætir það heldur and-
rúmsloftið í flokknum að harðlínu-
menn hafa haldið uppi stöðugri gagn-
rýni á Jiang forseta, sem endaði með
miklum látum i síðasta mánuði þegar
hann opnaði fyrir inngöngu sjálf-
stæðra atvinnurekenda i flokkinn.
Ekki ber þó að líta svo á að ástand-
ið sé það slæmt að það boði ekki eitt-
hvað gott og hafa síðustu gleðifréttir,
eins og um væntanlega inngöngu í
WTO og ólympíuleikahaldið í Peking
árið 2008, að mestu slegið á óánægju-
raddirnar í bili. Ekki eru þó allir jafn
ánægðir með að 15 ára barátta kín-
verskra framfarasinna fyrir inn-
göngu í WTO sé nú loksins á enda og
benda á að þar geti brugðið til beggja
vona þegar á reynir, eftir að Kínverj-
ar hljóta formlega inngöngu eftir
næstu áramót. Aukið verslunarfrelsi
getur að mati harðlínumanna haft al-
varlegar afleiðingar og jafnvel komið
ilia við kínverskan efnahag með
auknu atvinnuleysi.
Fordæmalaus áskorun
Um niðurstöður baðstrandarfund-
arins er lítið vitað og sama er að segja
um miðstjómarfundinn í Peking. Ný-
legar hryðjuverkaárásir í Bandarikj-
unum munu þó örugglega hafa varpað
skugga á hann, en það var þó ekki ætl-
un Jiangs forseta að ræða þau mál
þar, heldur að gera allt til að tryggja
nauðsynlega einingu innan flokksins
til að tryggja frekari framgang þess
sem hann hefur nýlega kaUað „for-
dæmalausa áskorun á nýja heims-
sýn“. Þar á Jiang við þá áskorun sem
felst í því að takast á við ný vekefni
sem fylgja inngöngunni í WTO, en
hún opnar Kínverjum leðina inn á
nýja markaði um aUan heim, auk þess
að galopna þeirra eigin til frekari
heimsmarkaðssóknar. Slíkur risa-
markaður sem sá kínverski er, en
hann byggist á 1,3 miUjarða manna
neysluþjóðfélagi, hlýtur að eflast og
njóta góðs af, en í dag er Kína fimmta
stærsta úflutningsþjóð heims og í
sjötta sæti hvað varðar innflutning.
Það er þvi ljóst að innnkoma þeirra á
alþjóðamarkaðinn mun hafa mikil
áhrif og því mikUvægt að yfirvöldum
takist aö byggja upp samtakamátt
heima fyrir til að dæmið gangi upp.
Opnun markaða og aukinn vilji
Kínverja fyrir þátttöku í alþjóðasam-
skiptum hefur kaUað á miklar stjórn-
málalegar áherslubreytingar heima
fyrir og er nú svo komið að gamla
kommúnistahugsjónin er á miklu
undanhaldi fyrir nútimavæðingunni
sem reyndar er komin lengra á veg en
margur heldur. Enda sýna nýjar
kannanir að einstaklingshyggjan er á
hraðri uppleið og með opnun komm-
únistaflokksins fyrir inngöngu sjálf-
stæðra atvinnurekenda í flokkinn,
sem telja verður fyrsta skrefið í inn-
leiðingu kapítalismans, má segja að
gamla hugsjónin sé fokin út 1 veður og
vind. Nú er svo komiö að litrófið í
miðstjórn flokksins er orðið æði
skrautlegt, en þar takast nú á einar
þrjár fylkingar frá hægri til vinstri
þar sem Jiang forseti og félagar spUa
á miðjunni með vinstri arminn í vörn
og þann hægri í sókn.
Kínverjar ríkari og ríkari
Þessar skjótu þjóðfélagsbreytingar
sem orðið hafa í tíð Jiangs forseta,
sem tók við embætti árið 1993, hafa
haft það í fór með sér að Kínverjar
eru að verða ríkari og ríkari með
hverjum deginum og er talið að þeir
hundrað ríkustu eigi aflt frá 60 miUj-
ónum dollara og upp úr. Ríkastir eru
taldir bræðurnir Liu Yongxing og Liu
Yonghao, sem reka stærstu dýrafæðu-
verksmiðju í Kína og eru þeir taldir í
sameiningu luma á meira en einum
miUjarði dollara. Fyrir tveimur árum
hefði verið óhugsandi að finna Kín-
verja sem ætti meira en 100 þúsund
doUara og sýnir það hve hratt málin
ganga fyrir sig, enda heimamarkaður-
inn risastór.
Þrjátíu nýjar farþegaþotur
Önnur merki um efnahagsbata og
aukna bjartsýni er nýleg pöntun kín-
verska ríkisins á 30 nýjum Boeing-far-
þegaþotum frá Boeing-verksmiðjun-
um í Bandaríkjunum, en þær munu
kosta um það bil 1,6 milljarða dollara
og verða afhentar til notkunar á
næstu þremur árum. Um er að ræða
þotur af gerðinni Boeing 737-800 og
munu 20 þeirra fara til „China
Southern Airlines", en restin tU fjög-
urra minni félaga sem öU eru ríkis-
rekin. Þetta mun aðeins byrjunin á
frekari uppbyggingu flugflotans í
landinu, en áætlanir sýna að Kínverj-
ar munu þarfnast 1764 nýrra flugvéla
á næstu 20 árum, en á því tímabili er
gert ráð fyrir um tíu prósenta aukn-
ingu í farþegaflugi. Þetta kemur sér
vel fyrir flugvélaiðnaðinn, sem stend-
ur nú frammi fyrir miklum erfíðleik-
um eftir hryðjuverkaárásirnar í
Bandaríkjunum.
Hu þykir vænlegri kostur
Hvað sem því líður liggur fyrir að
velja þarf nýjan formann kínverska
kommúnistaflokksins næsta haust og
i framhaldi af því nýjan forseta Kína,
sem taka mun við völdum í landinu
árið 2003 af Jiang Zemin. Það er því
engin furða að menn á þeim bænum
séu farnir að líta í kringum sig eftir
arftaka og er þá helst litið til þeirra
Hu Jintao varaforseta og Zeng Qing-
hong, formanns skipulagsnefndar
flokksins. Hu þykir þar af flestum
vænlegri kostur og er hann talinn
njóta víðtækari stuðnings innan mið-
stjórnarinnar þó svo að Jiang forseti
hafi hingað til gefið hinum 62 ára
gamla Zeng undir fótinn í tilraunum
hans til frama í flokknum. Það þykir
veikja stöðu Zengs að honum tókst
ekki að ná sæti í æðstaráðinu á síð-
asta flokksþingi og einnig það að
hann skuli vera undir handarjaðri Ji-
angs forseta, sem er umdeildur innan
miðstjórnarinnar.
Óvenjuskjótur ferill
Þótt embætti varaforseta hafi ekki
þótt merkilegt áður en Jiang kom til
valda árið 1993 og aðeins hugsað sem
heiðursembætti fyrir áhrifaminni for-
ystumenn sem biðu þess eins að
þeirra tíma væri allur, hefur það auk-
ið gildi sitt eftir að Hu tók við þvi,
enda kannski meiri þörf fyrir sterkan
aðstoðarmann með Jiang, sem hefur
haft í mörg horn að líta, ekki aðeins
sem forseti heldur líka sem yfirmaður
hers og formaður flokksins.
Ferill Hus, sem er aðeins 58 ára
gamall, sem þykir ungt í kínverskum
stjórnmálum, hefur verið óvenju
skjótur og óvæntur, en hann gekk i
flokkinn árið 1964, þá nemi í raf-
magnsverkfræði við háskólann í Pek-
ing. Deng Xiaoping, þáverandi leið-
togi, fékk fljótlega augastað á honum
þar sem hann vann ötult starf með
ungliðahreyfingu flokksins og einnig
varð hann handgenginn Hu Yaobag,
fyrrum flokksformanni. Upp úr því
tók hann við yfirstjórn flokksins í
Tíbet og Guizhou, en i Tíbet þótti
hann sýna fádæma hörku gegn að-
skilnaðarsinnum í héraðinu. Fram-
ganga hans þar varð til þess að hann
var kallaður heim til starfa í sjö
manna æðstaráði flokksins árið 1992
og var þá falið að stjórna almanna-
tenglum, auk þess að undirbúa yngri
flokksmenn til æðri starfa.
Rísandi stjarna
Árið 1998, var hann síðan settur í
embætti varaforseta og augljóst að
honum voru ætluð krefjandi störf í
framtíðinni, en þó ekki með svo skjót-
um frama sem raunin er. Þrátt fyrir
það er hann lítt eða ekkert þekktur
meðal almennings í heimalandinu og
er sömu sögu að segja um útlönd, eða
þar til nú á dögunum að hann hélt í
opinbera heimsókn til fimm Evrópu-
landa, sem raunar er hans fyrsta ferð
út fyrir Asíu. Samt er hann talinn lík-
legastur til að taka við af Jiang sem
formaður og forseti og virðist hafa til
þess nægan metnað. Hann er skoðana-
bróðir Jiangs um nútímavæðinguna
og hefur reyndar nokkuð talað fyrir
þeim málum. Þar á meðal á fundi í
stjórnmálaskóla kommúnistaflokks-
ins, þar sem hann varði t.d. ákvörðun
Jiangs um að opna flokkinn upp á
gátt. Hann lagði einnig áherslu á að
ná samstöðu innan flokksins og nauð-
syn þess að brúa bilið milli skoöana-
hópa og því augljóst að hann reynir
allt til að ná hylli allra skoðanahópa
og beitir við það diplómatískum að-
ferðum. Hér virðist því á ferðinni
rísandi stjarna með háar hugsjónir og
að margra mati sá rétti til að stýra
Kínverjum inn í nýjar víddir.
Nyrup boðar kosningar
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, boðaði á
miðvikudag til þingkosninga þann
20. nóvember næstkomandi, eins og
fjölmiðlar höfðu haft uppi vanga-
veltur um. Nyrup bar við óviss-
unni í heimsmálum í kjölfar
hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin
og herferðarinnar gegn talibönum í
Afganistan og Osama bin Laden.
Jafnaðarmannaflokkur Nyrups hef-
ur notið vaxandi fylgis meðal kjós-
enda upp á síðkastið. Engu að síð-
ur spá danskir fjölmiðlar því að
baráttan verði hörð.
Varað við hryðjuverkum
John Ashcroft,
dómsmálaráð-
herra Bandaríkj-
anna, varaði í
vikubyrjun við
því að nýjar
hryðjuverkaárás-
ir á Bandaríkin
eða bandarísk
skotmörk væru
yfirvofandi á
næstu dögum. Þá skýrði Gray Dav-
is, ríkisstjóri í Kaliforniu, frá því á
miðvikudagskvöld að upplýsingar
hefðu borist um að til stæði að
sprengja upp helstu brýr ríkisins,
þar á meðal Golden Gate-brúna í
San Francisco. Miltisbrandurinn
hélt áfram að skelfa Bandaríkja-
menn og í vikunni lést starfsstúlka
úr miltisbrandi í lungum. Ekki er
vitað hvernig konan smitaðist.
Loftárásir gagnrýndar
Bandarísk stjórnvöld hafa sætt
vaxandi gagnrýni fyrir loftárásir
sínar á Afganistan undanfarna
daga, bæði heima og heiman. Lítill
árangur virðist vera af loftárásun-
um og þá hafa sífellt fleiri fréttir af
mannfalli meðal óbreyttra borgara
farið fyrir brjóstið á mörgum.
Sharon kaliar heim dáta
Ariel Sharon,
forsætisráðherra
Israels, kallaði
loks hersveitir
sínar frá tveimur
bæjum á Vestur-
bakkanum i viku-
byrjun. Hermenn-
imir yfirgáfu Bet-
lehem og ná-
grannabæinn Beit Jala, sem þeir
höfðu hernumið, ásamt nokkrum
öðrum, í kjölfar morðsins á einum
ráðherra í stjórn landsins í októ-
ber. Um miðja viku lýsti Sharon
því yfir að hann væri reiðubúinn
að hefja friðarviðræður við Palest-
ínumenn á ný, en samkvæmt hans
eigin skilyrðum.
Hertar loftárásir
Bandaríkja-
menn hertu mjög
loftárásir sínar á
Afganistan í vik-
unni og tilkynnt
var að ekki yrði
gert hlé á árunum
í bænamánuði
múslima, Ramad-
an, sem hefst um
miðjan nóvember. Hersveitir tali-
banastjórnarinnar norðan höfuð-
borgarinnar hafa fengið að kenna á
sprengjuregni Bandaríkjamanna
sem ætlað er að veikja varnir
þeirra og auðvelda andstæðingun-
um í Norðurbandalaginu að ná höf-
uðborginni Kabúl á sitt vald.
Osama skrifar bréf
Sádi-arabíski hryðjuverkamað-
urinn Osama bin Laden hefur sent
trúbræðrum sínum í Pakistan opið
bréf þar sem hann hvetur þá til að
snúast til varnar gegn þvl sem
hann kallar krossferð kristinna
manna á hendur múslímum og ís-
lamstrú.