Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 Fréttir Baltasar Kormákur yfirtekur Kaffibarinn á 95% hlut á móti 4% Ingvars Pórðarsonar „Það var hald- inn löglega boð- aður hluthafa- fundur. Þar mætti Ingvar ekki og fundur- inn ákvað þá hlutafjáraukn- ingu sem orðin er. Ég hef ekkert heyrt frá Ingvari um málefni Kaffi- Baltasar Kormákur. barsins annað en þá yfirlýsingu sem hann sendi Helgarblaöi DV og birt- ist á laugardaginn," sagöi Baltasar Kaffibarinn Baltasar hefur tekiö yfír hlut tngvars barnum ásamt Damon Kormákur, leikstjóri og nýr aðaleig- andi Kaffibarsins við Bergstaöa- stræti. Kaffibarinn er enn í eigu Ingvars ‘Þórðarsonar, Baltasars og Damons Albarn tónlistarmanns. Á umrædd- um hluthafafundi samþykktu Baltasar og Damon, í fjarveru Ingv- ars, að auka hlutafé félagsins og eft- ir breytinguna á Baltasar 95%, Damon 1% og Ingvar 4%. Skuldum upp á fimm milljónir vegna ógreiddra vörsluskatta vegna Kaffibarsins hefur verið aflétt en staðurinn er enn lokaður vegna breytinga og endumýjunar veitingaleyfis. Vegna grein- ar í Helgarblaði DV, þar sem fjallað var um umsvif Ingvars Þórðarsonar, vildi Baltasar Kormákur taka fram að hann og Ingvar hefðu átt jafnan hlut í félaginu sem framleiddi kvik- myndina 101 Reykjavík og Þóröarsonar í Kaffí- Albarn. Hvanneyri: Tömdum fjárhundum fjölgar Fyrir skömmu lauk 14. fjárhunda- námskeiðinu á vegum Landbúnað- arháskólans á Hvanneyri á þessu ári. Aldrei fyrr hafa eins mörg nám- skeið verið haldin. Landbúnaðarhá- skólinn hefur haldið slik námskeið i fjölda ára í samstarfi við Gunnar Einarsson, bónda og fjárhundaþjálf- ara, á Daðastöðum. Frá árinu 1993 hafa 456 þátttak- endur sótt þessi námskeið, sumir oftar en einu sinni. Áhugi bænda á að temja og þjálfa góða fjárhunda fer sívaxandi og nú síðustu ár hefur árangurinn orðið bæði almennari og betri. Smalahundafélög víðs veg- ar um land hafa auk þess haldið fjárhundakeppni að erlendri fyrir- mynd og jafnvel með erlendum sér- þjálfuðum dómurum sem hefur vafalaust verið hvatning til margra. Á sínum tíma sótti Gunnar reynslu sína í notkun fjárhunda til Nýja-Sjá- lands og Ástralíu, auk þess að fylgj- ast með fjárhundakeppni á Bret- landseyjum. Hefur hann og staðið fyrir eigin keppni hér heima og fengið dómara frá Skotlandi og ír- landi til að aðstoða við keppni og námskeið. Gunnar hefur á nám- skeiðunum hvatt ungt og áhuga- samt fólk til að sækja sér reynslu í notkun fjárhunda, líkt og hann sjálf- ur gerði, til þeirra staða þar sem vinna með slíka hunda er jafnari allt árið. -DVÓ/GJ Akranes: Frystiskipin landa úr góðum túrum Frystiskip Har- aldar Böðvarssonar hf. eru að koma úr vel heppnuðum veiðiferðum. Helga María AK 16 kom í gær til Akraness með afla að verð- mæti 90 milljónir króna. Aflinn var aðallega þorskur en auk þess fiskaði skipið ýsu, karfa, ufsa, grálúðu o.fl. Góð veiöi Helga María AK 16 er annaö þeirra frystiskipa Skagamanna sem aflaö hafa vel. Jólahald í Dalvíkurbyggð: Jólavefur mikiö sóttur Nú er hafin vinna við uppfærslu Jólavefs Júlla 2001 og verður nýr og endurbættur vefur opnaður innan tíðar. Júlíus Júlíusson sem hefur veg og vanda af vefnum segir að vef- urinn hafi fengið góðar viðtökur og mikið verið heimsóttur. Á vefnum er að finna ýmislegt sem tengist jólahaldi í Dalvíkur- byggð fyrr og síðar, sögur, ljós- myndir o.fl. Þá er einnig jóladagatal með léttum gátum og- bækur og geisladiskar í vinning. Júlíus sagði í samtali við DV að sig langaði til að auka enn fjölbreytnina á jólavefn- um og biður hann alla sem luma á efni tengdu jólum á svæðinu; skemmtilegum frásögnum, ljós- myndum sem tengjast jólahaldi í Dalvíkurbyggð eða einhverju því efni sem tengist jólum á einhvern hátt, að hafa samband. -hiá framleitt hana saman. Uppgjöri fyr- ir kvikmyndina 101 er ekki lokið enn en Baltasar segist bera fulla ábyrgð á öllum skuldum félagsins 101 ehf. „Ég sóttist ekki eftir liðsinni hans við framleiöslu Hafsins og hann leit- aði ekki eftir þvi.“ -PÁÁ £5 Sg (/>»- w (0 Z co NISSAN PATROL 3,3 TURBO DÍSIL^ árg. 1987, ekinn 238 þ. km, 35“ dekk, álfelgur, er á gormum, gott kram. Verð 590.000, skipti athugandi, 100% lán athugandi. Til sölu á JR Bílasölu, Bíldshöfða 3, sími 567-0333 j. R. BÍLASALAN www.jrbilar.is Visa/Euro raðgreiðslur. Höfrungur III AK 250 var vænt- anlegur síðdegis í gær með afla að verðmæti 100 millj- ónir króna. Aflinn þar var líka að mestu þorskur en skipið fiskaði einnig ufsa, karfa, grálúðu o.fl. Bæði skipin fengu aflann að mestu leyti út af Vestfjörðum. -DVÓ BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing, um tillögu til breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, breytingu á deiliskipulagsáætlun og tillögur að deiliskipulagsáætlunum í Reykjavfk. [ samræmi við 21. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar eftirfarandi tillögur að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, tillögur að deiliskipulagáætlunum og breytingu á deilskipulagsáætlun í Reykjavík. Bryggjuhverfi, Naustabryggja 13-17, 21-33 (oddatölur) og 54-57 og Tangarbryggja 10-12, breyting á deiliskipulagi. Tillagan gerir ráð fyrir að breyttu fyrirkomulagi bílastæða við hús nr. 12 og 13 á uppdrætti þ.e. Naustabryggju nr. 21 -33. Tillagan gerir og ráð fyrir að lóðir nr. 14A og 14B á uppdrætti, þ.e. Naustabryggja nr. 13-17 (oddatölur), sameinist. í samræmi við það verði ekki lengur gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja neðanjarðarbílageymslu á lóðinni nr. 14B en hún var m.a. ætluð fyrir húsin nr. 54-57 við Naustabryggju. Langholtsvegur 109-115, deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi. Annarsvegar er um að ræða tillögu að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Langholtsvegi til vesturs, Drekavogi til norðurs, opnu grænu svæði og lóðinni nr. 6 við Drekavog til austurs og göngustíg norðan húsanna nr. 12-16 við Sigluvog til suðurs. Hinsvegar er um að ræða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 varðandi lóðina nr. 115 við Langholtsveg. Tillögurnar gera ráð fyrir að heimilt verði að byggja inndregna hæð ofan á húsið nr. 109-111 við Langholtsveg. Lóðinni nr. 115 verði skipt upp í tvær lóðir og landnotkun hennar, skv. Aðalskipulagí Reykjavíkur 1996-2016, breytt úr athafnasvæði í íbúðasvæði. Heimilt verði að byggja viðbyggingu norðan við húsið nr. 115 við Langholtsveg (þ.e. húsið sem stendur við Langholtsveg). Jafnframt verði heimilt að byggja tvær hæðir ofan á austara húsið sem nú stendur á lóðinni nr. 115 og tvö þriggja hæða íbúðarhús, með 6 íbúðum í hvoru, syðst á lóðinni þ.e. aftan við húsin nr. 12 og 14 við Sigluvog. Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir öðrum minni breytingum f tengslum við þær sem taldar hafa verið upp hér að framan. Kirkjutún, deiliskipulag (Sóltún, Mánatún, Borgartún, Kringlumýrarbraut). Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi svæðis sem afmarkast af Borgartúni til norðurs, Sóltúni og Kringlumýrarbraut til austurs, Sóltúni tii suðurs og lóð Sóltúns 3 og Borgartúns 26 til vesturs. Tillagan gerir m.a. grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á skipulagi svæðisins frá samþykkt síðasta heildarskipulags þess. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að byggja tvö ný hús á svæðinu. Annarsvegar er um að ræða 6 hæða íbúðarhús með 24 íbúðum vestan hússins nr. 11-13 við Sóltún auk neöanjarðarbílgeymslu fyrir 24 bíla. Hinsvegar er gert ráð fyrir aftan við húsið nr. 28 við Borgartún rísi u.þ.b. 2300 m2 skrifstofuhúsnæði sem getur orðið allt að 6 hæðir (6. hæðin inndregin). Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir breytingu áfyrirhugaðri götu (Mánatúni) milli lóðanna nr. 2-6 við Mánatún og Sóltúns nr. 3. Breytingin felur m.a. í sér nokkuð meiri skerðingu á lóðinni nr. 3 við Sóltún en eldra skipulag gerði ráð fyrir. Tillögurnar verða til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 21. nóvember til 19. desember 2001. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 4. janúar 2002. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillögurnar Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 21. nóvember 2001. Borgarskipulag Reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.