Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002
Skoðun DV
Orkuveita Reykjavíkur.
Væri hún látin í friöi, greiddum viö lægri orkureikninga“...
Ríku konurnar í Reykjavík
Finnst þér sumarið komið?
Erna Haröardóttir nemi:
Nei, þaö er kalt.
Hrund Jakobsdóttir nemi:
Já, allavega þegar þaö snjóar ekki.
Ulja Rut Þórarinsdóttir nemi:
Nei, en þegar svona kalt er boöar
þaö bara gott sumar.
Sonja Hákonardóttir nemi:
Nei, þaö snjóar af og til.
Ólöf Siguröardóttir nemi:
Nei, sumariö kemur ekki fyrr
en í júlí.
Eyrún Inga Sævarsdóttir nemi:
Nei, þaö er tangt í sumariö.
Hildur Guömundsdóttir
skrifar:
í gærkvöldi (25. apríl sl.) var í
tíufréttum Sjónvarpsins frétt um
Orkuveitu Reykjavíkur. í fréttinni
mátti sjá tvö fokheld risastór sam-
hliða hús tengd með einhverjum
rönum, minnti nokkuð á tvær sam-
tengdar Hótel Sögur. Inni var gríð-
arleg gleði, hljómsveit og marg-
menni með glös í hendi og í baksýn
var upplýst merki Orkuveitunnar.
Ekki man ég hvert tilefni fagnaðar-
ins var en út úr partíinu var dreg-
inn Alfreð Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Orkuveitunnar. Hann var
spurður um þær ásakanir sjálfstæð-
ismanna að skuldir Orkuveitu
Reykjavíkur væru komnar upp i 17
milljarða.
Skýring Alfreðs var einfold; geng-
issig. - Hann sagði að þetta væri
bara genginu að kenna og spurður
um gríðarlegt rekstrartap á síðasta
ári (í fyrsta skipti í sögunni) sagði
Guðmundur Pétursson
bifreiöastj. skrifar:
Vegna fréttar í Fréttablaðinu þ. 20.
mars sl. um uppsögn Óskars Stefáns-
sonar, bílstjóra hjá Kynnisferðum og
formanns Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis, tel ég rétt að upplýsa örlítið
um trúverðugleika framkvstj. Kynn-
isferða við fréttamann blaðsins. Veit
svo sem að formaður Sleipnis er full-
fær um að svara rangfærslum en
ætla samt að taka upp hanskann fyr-
ir hann.
Varðandi starfsaldurinn, sem Ósk-
ar gerir m.a athugasemdir við, segir
framkvæmdastjórinn, Kristján, í
blaðagreininni: „Þá hafi ekki verið
hægt að fara eftir starfsaldri við upp-
sagnirnar af ýmsum ástæðum og
m.a. vegna sérhæfingarbílstjóra við
akstur misstórra bifreiða. Meðal ann-
„Þetta þýðir auðvitað að
við sem erum á svæði
Orkuveitu Reykjavíkur,
eins og ég sem bý í Kópa-
vogi, verðum að borga með
orkureikningum okkar fyr-
ir einhverjar bókhalds-
blekkingar í Reykjavík. “
hann að þeir væru nú byrjaðir að
græða aftur! Ég hefði nú líka spurt
formanninn hvaða veitingar voru
þama á boðstólum.
Þessi ummæli voru síðan borin
undir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúa minnihlutans. Þetta
eru lántökur í tíð R-listans sem
Orkuveitan hefur verið skikkuð til
að taka og veita síðan í borgarsjóð
til aö sýna betri stöðu hans sagði
Vilhjálmur. Þetta þýðir auðvitað að
við sem erum á svæði Orkuveitu
„Er ekki staðreyndin einfald-
lega sú að því verri málstað
sem verið er að verja þeim
mun meira áberandi verða
ósannindin?“
ars hefði Óskar unnið við að keyra
áhafnir Flugleiða.“
Ég fullyrði að enginn akstur hjá
Kynnisferðum er svo sérhæfður aö
einhverrar sérhæfingar í akstri sé
krafist. Óskar Stefánsson hefur farið
í allar þær ökuferðir sem Kynnisferð-
ir bjóða upp á, auk þess að hafa ekið
öllum bílum fyrirtækisins, lengur
eða skemur.
Hefði verið vilji til að láta starfs-
aldur ráða hefði Óskar einfaldlega
verið fluttur á annan bíl. Ég hef ekki
Reykjavíkur, eins og ég sem bý í
Kópavogi, verðum að borga með
orkureikningum okkar fyrir ein-
hverjar bókhaldsblekkingar í
Reykjavík.
Ef Orkuveitan væri látin í friði
eins og var hér á árum áður þá vær-
um við öll á orkusvæðinu að greiða
mun lægri reikninga fyrir heitt og
kalt vatn, auk rafmagns. Skoðana-
kannanir eru sagðar sýna að meiri-
hluti kvenna styöji R-listann. Á
vinnustað mínum voru menn að
striða mér á því að skýringin væri
þetta sígilda ábyrgðarleysi kvenna í
fjármálum. Þær hefðu ekki hug-
mynd um að borgin væri sokkin í
hyldjúpt skuldafen og segðu bara að
Ingibjörg væri svo fin og frökk sem
stjórnandi. - Ég mótmæli svona
karlrembu, en velti þá upp þeirri
spurningu að mikið voðalega væru
þær ríkar konumar í Reykjavík að
hafa efni á að halda uppi þessu
valdabandalagi sem heitir R-listinn.
trú á öðru en Óskar hefði getað sinnt
því með sóma, ekki síður en þeir sem
vom ráðnir til Kynnisferða um svip-
að leyti og hann var aö hætta.
Það kemur mér á óvart að fram-
kvæmdastjórinn skuli sjá sig knúinn
til að gripa til ósanninda í þessu
máli, því ekki hef ég svo mjög staðið
hann að þeim öll þau ár sem ég ók
fyrir Kynnisferðir. Er ekki stað-
reyndin einfaldlega sú að því verri
málstað sem verið er að verja þeim
mun meira áberandi verða ósannind-
in? Er þetta ekki einn liðurinn hjá
Samtökum atvinnulífsins og ASÍ í að
ganga frá því stéttarfélagi sem berst
fyrir nokkuð raunhæfum launum fé-
lagsmanna sinna? Kannski ný stefna
fyrirtækisins með þessum uppsögn-
um til hagræðingar í rekstri að
bijóta samninga?
Uppsagnir bílstjóra Kynnisferða
Garri
Hatrammt meöal hinna heiðnu
Menn eru vanir því að Þór, Týr og fleiri af
þeirri sortinni berjist hatrammlega og eru þá
ekki með hin fornu goð í huga heldur íþróttafé-
lög með þessum nöfnum. í þeirri baráttu fellur
þó allt í ljúfa löð um leið og dómaraflautan gell-
ur. Tapliðið tekur örlögum sínum og vonast til
þess að betur gangi næst.
Ekki íþróttafrétt
Þessi sami vani sagði mönnum því að þeir
væru að lesa íþróttafrétt þegar fréttir bárust af
átökum goðanna. Svo var þó alls ekki og enginn
dómari með flautu til þess að leysa úr ágrein-
ingsmálum. Átökin mflli Þórs, Týs og aðaflega
Óðins voru harkaleg en ekki á íþróttavellinum
heldur á sumarblóti ásatrúarmanna. Þau samtök
hafa verið talin hvað friðsamlegust af öllum
samtökum en eitthvað hefur breyst. Venjulegir
þjóðkirkjumenn töldu að meðal ásatrúarmanna
væru léttgalnir sérvitringar, gleðimenn og hag-
yrðingar og raunar ekkert nema gott um slíkt að
segja. Einhvers staðar yrði að herbergja svoleið-
is fólk.
Þetta reyndist firra. Hatrömm átök eru meðal
hinna heiðnu og svo langt gengið að sjálfur alls-
herjargoðinn sér þann kost vænstan að segja af
sér embætti. Enn sýnir það vanþekkingu hinna
kristnu að þeir töldu að goðinn héldi stöðu sinni
til dauðadags, óumdeildur leiðtogi ekki síður en
páfinn. Svo er ekki. Það er hægt að kjósa nýjan
goða, eins og ekkert sé, rétt eins og félagsskapur
ásatrúarmanna sé hverfafélag stjórnmálaflokks í
smáíbúðahverfmu. Það verður að viðurkennast
að slíkri uppgötvun fylgja nokkur vonbrigði.
Aukalögrétta
Allsherjargoðinn boðar því tfl aukalögréttu og
segir af sér. Hann hefur verið sakaður um það
að sitja of lengi, gott ef ekki staönaður í emb-
ætti. Þetta er sárt þeim sem töldu það helsta
kost safnaðar af þessu tagi að vera staðnaður.
Goðinn Jörmundur Ingi er að minnsta kosti með
sígflt útlit goða, fagurlega skeggjaður ekki síður
en forverinn, Sveinbjöm Beinteinsson.
Allt er í heiminum hverfult. Á aukalögrétt-
unni slást áhangendur Óðins, Þórs, Týs og Bald-
urs og engin leið aö sjá hvemig fer. Fjölmiðlar
munu væntanlega lýsa þeim atgangi en trúlegt
er að forráðamenn þeirra sendi íþróttafrétta-
menn á vettvang og fyrirsögnin verði eitthvað á
þessa leið: Þór lagöi Tý á snörpum lokaspretti.
CiArri
Múlbundinn
forseti?
S.R. Haralds skrifar:
Hvað myndi Jón
„forseti" hafa sagt í
dag, hann sem
lagði sig allan fram
fyrir sjálfstæði
þessa lands? Er
virkilega enginn
sem ætlar að mót-
mæla því að þagga
skuli niður í for-
seta íslands er
hann ræðir sjálf-
stæðismál þjóðar-
innar? Er hann þá réttindalaus með
öllu? Við slíkan forseta höfum við lít-
ið að gera. Gefum honum því mál-
frelsi líkt og öðrum í þesu þjóðfélagi -
til að tjá sig um allt sem snertir þessa
litlu þjóð, og þá sérstaklega sjálfstæði
íslands. Sameiningartákn með múl á
sér? Hvers konar sameiningartákn er
nú þetta? En eins og Jón Sigurðsson
myndi segja: Við mótmælum öll.
Forseti íslands,
Ólafur Ragnar
Grímsson.
Meö skert tján-
ingarfrelsi?
Talið ekki
svona hratt!
Auðunn Bragi Sveinsson skrifar:
Til þess að allir geti heyrt og skflið
það sem lesið er eða mælt af munni
fram í ljósvakamiðlunum þarf það að
vera borið fram skilmerkilega og hæfi-
lega hratt. Oft í lok þátta vinnst ekki
nægur timi til að geta um það með
stilltri röddu, hverjir verið hafi þar að
verki. Þetta er áberandi, t.d. í þættin-
um I vikulokin, á laugardögum. Þá er
mikill asi og erfitt að greina hverjir
hafi verið viðmælendur i þessum ann-
ars ágæta þætti. Allt of oft er því líkast
sem fjölmiðlafólk þurfi mikið að flýta
sér og mikið liggi viö að koma efninu
frá á sem skemmstum tíma. Hlustend-
ur eiga kröfu á að að til þeirra sé talað
af fólki sem gefur sér tíma til að mæla
fram okkar ágæta tungumál.
Öfgar eða þjóð-
ernisstefna?
Vilhjálmur Alfreðsson skrifar:
Jean-Marie
Le Pen.
Þjóöhollusta
eöa öfgar?
Eg er engan veginn
sáttur við þá fram-
komu fjölmiðla,
hvemig þeir ráðast á
Jean-Marie Le Pen,
sem er opinber fram-
bjóðandi í seinni um-
ferð frönsku forseta-
kosninganna. Á árun-
um milli 1920 og 40
voru stjórnmálaflokk-
ar uppfullir af stjóm-
málamönnum til
hægri, að ég nefni nú ekki þá allra
hörðustu (sem voru þó aldrei kallaðir
„öfgamenn"). Jafnvel hér á íslandi voru
þekktir, harðir hægri menn, t.d. Helgi
S. í Keflavík, sannur heiðursmaður,
skátaforingi en þjóðernissinni. En
hvers vegna var þetta? Jú, vegna yfir-
vofandi hættu frá Sovétrikjunum. En
hægri stefna í Evrópu nú á sínar rætur.
Hugsum nú djúpt!
Formlegar
klippingar
Jðn Jónasson skrifar:
Ingibjörg borgarstjóri er á ferð og
flugi með skóflu og skæri úti um alla
borg. Það kveður svo rammt að þessu
að hún má ekki sjá snúru þá klippir
hún á hana formlega. Það voru menn
frá Línu.Neti að vinna inni í Borgar-
túni að leggja sínar línur þegar Ingi-
björgu bar þar að. Einhver orðaði það
svo að fyrir snarræði nærstaddra
hefði tekist að forða því að hún
klippti á ljósleiðarann þegar hún brá
skærunum á loft. Þekktur borgari
sagðist ekki þora lengur að loka á eft-
ir sér þegar hann færi í vinnuna af
ótta við að Ingibjörg kæmi og opnaði
húsið hans formlega að viðstöddum
blaöamönnum.
DVj Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasiða DV,
Skaftahlíð 24,105 ReyKfavik.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.