Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002 DV Fréttir Vilhjálmur Egilsson, formaður Kvikmyndasjóðs, ómyrkur í máli um fjármálastjórn sjóðsins: Alvarlegt ef reiknings- haldið er ekki í lagi - frestir á fresti ofan. Vona að öldur lægi, segir Þorfinnur Ómarsson „Ég tel mjög alvarlegt ef ríkisstofnun er ekki með sitt reikningshald í lagi. Ekki síst á þessum tímum þegar gilda æ stífari reglur þar að lútandi. Því lagði ég mjög mikla áherslu á að mál kæmust í lag, frestir voru veittir til þess að svo mætti verða,“ sagði Vil- hjálmur Egilsson, formaður stjómar Kvikmyndasjóðs íslands, í samtali við DV í gærkvöld. Tilefni þessa em að- finnslur sem gerðar hafa verið við fjár- málastjóm og reikningshald hjá sjóðn- um en honum stýrir Þorfmnur Ómars- son. Vilhjálmur segir að fyrir rúmlega ári hafi írá Ríkisbókhaldi borist þau skilaboð að bókhald Kvikmyndasjóðs væri ekki með eðlilegum hætti. Eðlileg- ar skýringar og fylgiskjöl vantaði með sumum reikningum, svo sem vegna bánkareikninga og ferðalaga. Segir Vil- hjálmur að því hafi verið settur á fund- ur með stjómendum Ríkisbókhalds. Þar Sorg á Patreksfirði: Telpa lést af slysförum Mikil sorg rikir á Patreksfirði vegna hins hörmulega slyss á föstudag þegar níu ára stúlka lést í heimahúsi í bænum, líklega við leik með sippuband. Lögreglan á Patreksfirði vill lítið gefa upp um tildrög slyssins að svo stöddu en málið er í rannsókn og mun krufn- ing leiða í ljós dánarorsök stúlkunnar. Allt bæjarlíf er lamaö á Patreksfirði og var ýmsum at- burðum i bænum frestað um helg- ina í kjölfar frétta af slysinu, m.a opnun kosingaskrifstofu Sjálfstæð- isflokksins og Óháðra í Vestur- byggð. Á laugardag var haldin bænastund í kirkjunni og mætti þangað mikill fjöldi til þess að votta fjölskyldu stúlkunnar sem lést samúð sína. -snæ hafi Þorflnni verið gefinn tímafrestur til að koma þessum málum sjóðsins í lag. Sá tími hafl lið- ið og mál ekki gengið upp. Frestir hafl verið veittir á fresti ofan og það sé fyrst nú sem mál séu að komast í eðlilegt lag. Það hafi hins vegar tekið vonum lengri tíma að koma málinu á réttan kjöl. V Vilhjálmur Egilsson. Þorfinnur Ómarsson. Ráðherra áminni fyrir ráðslagið Enn fremur segir Viihjálmur það hafa verið samdóma álit sitt og Gunn- ars Hall rikisbókara að eðlilegt væri að menntamálaráðherra veitti Þorfmni áminningu fyrir ráðslag sitt við fjár- málastjóm. Hins vegar hafi ekki verið samstaða meðal stjómarmanna að telja eðlilegt að fram- kvæmdastjórinn fengi áminningu. í fjölmiðlum hef- ur verið frá því greint að hluti af ágreiningsmáli þessu sé að Þor- fmnur Ómarsson, sem situr í úthlut- unamefnd sjóðs- ins, að hafi ekki stutt umsókn Hrafhs Gunnlaugssonar um styrk til geröar myndar eftir smá- sögu Ðavíðs Oddssonar, Glæpur skek- ur Húsnæðisstofhun. Þá sögu er að fmna í smásagnasafhi ráðherrans, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar. Hafi það afsvar ekki verið ráðandi mönnum að skapi. Vilhjálmur segir þessa sögu- skýringu vera fráleita. Kjami málsins sé sá að bókhald og reikningsskil sjóðs- ins hafi verið ófullnægjandi - og það bæði þurft og eigi að komast í lag. Flóknara sé málið ekki. „Bókhald sjóðsins hlýtur að þurfa að vera i lagi, óháð því hverjir fá styrki til kvik- myndagerðar," sagði Vilhjálmur. Hef unniö hlutlaust í samtali við DV í gærkvöld sagðist Þorftnnur Ómarsson ekki vilja tjá sig um hvort umsókn Hrafits Gunnlaugs- son til gerðar á mynd eftir umræddri smásögu hefði hér áhrif. Trúnaður væri um einstaka umsóknir. „Ég tel mig hafa unnið hlutlaust og hef ekki látið flokkspólitík hafa áhrif á störf mín,“ sagði Þorftnnur. Um málið að öðm leyti sagðist hann telja aö meira væri gert úr ágreiningi miili sín og Vil- hjálms Egilssonar en efhi stæðu til. „En eigum við ekki aö vona að öldur lægi,“ sagði Þorfinnur - og vildi ekki tjá sig um málið frekar að svo stöddu. -sbs Þ»‘U 4u»ri t(lW hfí ua» DAVK PELZER Hann var kalUéur AN\A VAI HIMAkMJQl I'K Anna Valdimarsdóttir LEGGÐU HÆKT VIÐ SJÁLFAN þlG Eoin Colfer ARTEMIS FOWL Þórunn Stefánsdóttir KONAN I KÖFLÓTTA STÓLNUM Metsölubœkur á broslegu verði 6 vandaðar í kiljubroti Bræðraborqarstiqur 7 • Simi 575 5600 tLéiðbeinandi útsóluverð) DV-MYND KÖ Þrir fluttir á slysadeild Haröur árekstur tveggja bíla varö viö Bitruháls síödegis í gær. Ökumenn beggja bíla ásamt einum farþega voru fluttir á slysadeild. Bílarnir voru mikiö skemmdir og þurfti krana til aö flytja þá á brott. Nokkuö var um árekstra í höfuöborginni um helgina. Annar tveggja bíla árekstur varö á Bústaöavegi í gærdag og var þar vanfær kona sótt af sjúkrabíl. Böm eiga að fara til tannlæknis fyrir þriggja ára aldur: Fyrsta heimsókn verði ánægjuleg - aðeins 5% tveggja ára fara til tannlæknis Samkvæmt upplýsingum sem Tannvemdarráð hefur tekið sam- an um heimsóknir barna til tann- læknis fara aðeins 5% tveggja ára barna til tannlæknis. Hlutfallið er tæp 20% fyrir þriggja ára böm og næstum 50% fyrir fjögurra ára börn. Helga Ágústsdóttir, yfirtann- læknir heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins og formaður Tannverndarráðs, hvetur foreldra til þess að huga að þessu fyrr. „Já, foreldrar ættu að fara miklu fyrr með bömin sín til tannlæknis. Börn eiga að mínu mati að fara til tannlæknis fyrir þriggja ára ald- ur,“ segir Helga. „Það er mjög mik- ilvægt að fyrsta heimsókn sé ánægjuleg, að hún sé ekki vegna þess að komnar séu skemmdir sem þurfi að gera við. Það getur verið mjög erfítt fyrir lítið bam að upp- lifa það.“ Helga segir einnig mikilvægt að foreldrar fái snemma leiðbeiningar hjá tannlækni um leiðir til að fyr- irbyggja tannskemmdir hjá böm- um sínum. Flest böm taki fyrstu tönn á aldrinum S-12 mánaöa og í raun ætti þessi fræðsla að fara fram strax þá. Ekki hafi verið mannafli á heilsugæslustöðvunum til þess að sinna fræðslu um tann- vemd bama. Þá bendir Helga á að sumir for- eldrar átti sig ekki á að þeir þurfi að bursta tennur bama sinna til átta ára aldurs. „Fyrir þann aldur ráða börnin engan veginn við það sjálf,“ segir Helga. í upplýsingum Tannvemdarráðs kemur einnig fram að hlutfall ung- linga sem ekki fara til tannlæknis hækkar snarlega viö sextán ára ald- ur í 20% en hlutfalliö er um 10% hjá sjö tfi funmtán ára bömum. Helga segir þetta alvarlegt í ljósi þess aö á þessum aidri verði oft miklar breyt- ingar á neysluvenjum unglinga, oft- ar en ekki til hins verra. -ÓTG Vígir kirkju Biskup íslands, herra Karl Sigur- björnsson, vígði nýja kirkju á Táknafirði í gær. Kirkjan hefur verið tvö ár í byggingu. Áætlað er að kostn- aður við hana sé 60 milljónir króna. Sóknarprestur á Tálknafirði er sr. Sveinn Valgeirs- son, þjóðþekktur fyrir frækilega frammistöðu í þættinum Viltu vinna milljón? nýlega. Fær styrk 23 ára íslensk kona, Brynhildur Heiðarsdóttir Ómarsdóttir, fær veg- legan tugmiiljóna króna styrk frá Columbía-háskóla í New York til sex ára náms og rannsókna á stöðu kvenna í bókmenntum. í styrknum felst að Brynhildur á að kenna við skólann í fjögur ár af þessum sex. RÚV greindi frá. Gengiö bætir stöðuna Hagnaður Eimskips á fyrstu þremur mánuðum ársins er 347 miiljónir króna. Þessi jákvæða af- koma skýrist af gengishagnaði vegna styrkingar íslensku krónunn- ar, en að öðru leyti var afkoman óviðunandi. Reksturinn er erfiður, meðal annars vegna samdráttar í innflutningi. Bætur til sveitarfélaganna Geir H. Haarde fjármálaráðherra telur eðlilegast að húsaleigubætur flytjist alfarið til sveitarfélaganna. Þannig geti einstök sveitarfélög ráðið því sjálf hvað þau ganga langt í þessu efni, innan lög- boðins heildarramma, er haft eftir ráðherranum á Mbl.is í gær. Betri netskil Alls 95 þúsund manns töldu fram til skatts á Netinu. Það er fjórðungi meira en í fyrra. Bókhaldcirar geta einnig talið fram netleiðis á sér- stöku framtalsforriti. Framtalsfrest- ur fyrir félög rennur ekki út fyrr en 31. maí. Skil þeirra á Netinu eru miklu betri en á sama tíma í fyrra. Mannætuhákarl Skipveijar á Eldhamri GK lönd- uðu torkenniiegum hákarli í Grindavík i gær. Á vef Víkurfrétta segir að skepnan líkist helst mannætuhákarli en hún kom í net- in undan Alviðru, austan við Hjör- leifshöfða, í gær. Sérfræðingar Nátt- úrufræðistofnunar og Hafró sýna dýrinu áhuga. í Háskóla Halldór Ásgríms- son utanrikisráð- herra mun á morg- un flytja erindi í Háskólanum á Ak- ureyri um for- mennsku íslands i Norðurskautsráð- inu. Mun ráðherr- ann m.a. gera grein fyrir starfsemi ráðsins og hugmyndum sínum um þróun þess á formennskutíma ís- lands sem er nýlega hafinn. Sungu fyrir forsetann Um 400 manns voru viðstaddir lokahóf iþróttamóts fyrir fatlaða sem Lionsklúbburinn Hængur hélt á Akureyri um helgina. Forseti ís- lands, herra Ólafur Ragnar Gríms- son, og Dorrit Moussaieff voru viö- stödd lokahófið þar sem Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Óskar Pétursson sungu saman dúett í lag- inu Ó sóle míó. -sbs Halldor talar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.