Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 28
Stefnuskrá R-listans: Engin heild- artala nefnd Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri segir að Reykjavíkurlistinn hafi ekki slegið tölu á heildarkostnaðinn af stefnuskrá sinni með sama hætti og frambjóðendur hans hafa nefnt tölur um heildarkostnað af stefiiu Sjálfstæð- isflokksins. „Tölumar eru hins vegar allar í þriggja ára áætlun borgarinnar, hún liggur fyrir, þar er okkar stefiiumörk- un,“ segir borgarstjóri og segir að til viðbótar þessum kostnaði felist í stefiiuskránni útgjöld upp á um það bil 2,5 milljarða. í yfirheyrslu í DV í dag segir Ingi- björg Sólrún m.a. að fráleitt sé að bera saman biðlista leikskólanna nú og þeg- ar R-listinn kom til valda. Þeir einu sem hafi getað skráð sig á biðlista eftir heilsdagsvistun þegar sjálfstæðismenn skildu við hafi verið einstæðir foreldr- ar og námsmenn. „Þeir biðlistar voru bara bull, bara fals, og sögðu ekkert um það hver þörfin var fyrir þessa þjón- ustu,“ segir borgarstjóri. -ÓTG Sjá yfirheyrslu bls. 6 Smárabíói Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Smárabíói í gærkvöld til þess að slökkva eld sem kviknaði í poppkomsvél biósins. Um 750 bíógest- ir voru í bíóinu þegar eldurinn kom upp. Þegar slökkviliðið kom á staðinn höfðu vaktmenn á svæðinu náð að slökkva eldinn í poppvélinni og voru byrjaðir að rýma bæði bióið sem og aðra hluti hússins. Mikinn reyk lagði bæði inn í bíó- sali og Vetrargarðinn og að sögn Con- standin Mikaels Mikaelsonar, rekstr- arstjóra Smárabíós, var bíógestum að vonum mjög brugðið við þessa uppá- komu en þeir fá að sjálfsögðu miðana sina endurgreidda. Slökkviliðið reykræsti húsið en aðalskemmdimar eru vatnsskemmdir en sjálfvirkt slök- kvikerfi bíósins fór í gang þegar reyk- skynjarar létu í sér heyra. Stefnt er að því að opna bíóið í dag klukkan hálf- Veður vikunnar: Hlýindi af suðri í dag má búast við 10-15 sekúndumetrum af suðri og suðvestri og víða skúrum. Veður verður hægara og létt- skýjað norðaustan tfl. Hiti 5 til 13 stig og þá hlýjast austanlands. Á þriðjudag og miðvikudag má búast við 5 til 10 metram á sekúndu af suðri og suð- vestri. Léttskýjað verður á Austur- landi. Hiti verður 7 til 13 stig, hlýjast austanlands. Þegar kemur fram á fimmtudag og undir vikulok verður fremur hæg breytileg átt, skýjað með köflum og úrkomulítið. Þá daga verð- ur hiti á bilinu 5 til 10 stig. 47 AF STÖPINNI! Eldur í FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ Allianz© - Loforð er loforð MANUDAGUR 6. MAI 2002 DVJHYND HH Eldur í poppvél Allt er gott sem endar vel segir máltækiö og þaö átti svo sannarlega við í Smárabíói í gær þegar eldur kviknaöi í poppvél. Mikill viöbúnaöur var í bíóinu og var allt tiltækt slökkvilið kallaö á staöinn. Um 750 gestir voru í bíóinu sem var rýmt en auk þess voru um 300 manns á veitingastööum í Vetrargaröinum. Engin slys uröu á fólki og tókst slökkvistarf vel en nokkurt tjón varö vegna vatnsskemmda. I Stórhertar öryggiskröfur við komu utanríkisráðherra NATO og samstarfsríkjanna: Lögga en ekki leigubílstjóri undir stýri hjá ráðherrunum 47 Leigubílstjórar í Reykjavík eru ekki allir ánægðir með þá þróun mála að lögreglumenn munu annast um akstur utanríkisráðherranna 46 sem hingað eru væntanlegir í byrj- un næstu viku. Frami, stéttarfélag leigubilstjóra, ritaði utanríkisráðu- neytinu bréf þar sem óskað var skýringa. Ráðuneytið hefur svarað og útskýrt hvers vegna lögreglan er fengin til aksturs ráðherranna. Stjóm Frama mun koma saman á morgun og ræða málið. 1 bréfi utanríkisráðuneytisins kemur í ljós að lögreglan mun bera ábyrgð á öryggi ráðherranna meðan þeir dvelja á íslandi. Ríkislögreglu- stjóri fór fram á að lögreglumenn yrðu undir stýri í bílunum sem flytja ráðherrana á milli staða, en bílarnir eru BMW-glæsibifreiðir sem B&L hefur flutt inn í tilefni vorfundar utanríkisráðherra NATO og samstarfsríkjanna. Þá bíla mun lögreglan fá til að aka ráöherrun- um. Auðunn Atlason sendiráðsritari DVWYND HARI Skotheldur fyrir NATO-ráðherra Þessi glæsibifreiö þolir sitt af hverju, skothelt farartæki sem lögreglumaöur mun stjórna. Bifreiöar og landbúnaöarvélar flytja inn 30 BMW-bíla vegna vor- fundarins og útvegar 16 glæsibíla til viöbótar. sagði í gær að hingað væri von á um þúsund gestum í tilefni fundar- ins sem stendur 13. til 15. maí. „Það sem verið er að gera með þvi að láta lögregluna aka bílunum er tvennt. Aðalatriðið er að auka ör- yggið, lögreglan ber ábyrgð á öryggi ráðherranna, og lögreglumaður í bílnum er ekki aðeins ökumaður heldur jafnframt öryggisvörður við- komandi ráðherra. Verið er að gera auknar kröfur um öryggi, sem rekja má til atburðanna sem urðu 11. september. Auk þess næst fram um- talsverður spamaður með þessari tilhögun,“ sagði Auðunn. Auðunn sagði að mikinn fjölda af bílum þyrfti til að annast um gest- ina, þeir kæmu meðal annars frá sendiráðum i borginni. Auk þess mundu leigubílstjórar sinna akstri og án efa hafa mikið að gera dagana sem fundurinn stendur. Utanríkis- ráðuneytið hefur þannig gert samn- ing um leigu á 50 leigubílum fyrir allar sendinefndir þátttökuríkja. -JBP Ráðuneytismaður með 90 þúsund á mánuði fyrir aukavinnu: Eins og bókhaldari á bílaverkstæði Hákon Sigurgrímsson, deildcU- stjóri í landbúnaðarráðuneytinu, fær rétt um 90 þúsund króna greiðslu í hverjum mánuði frá Áformum - átaksverkefni um sölu íslenskra landbúnaðarafurða und- ir merkjum hreinleika og hollustu. Verkefnið er starfrækt af landbún- aðarráðuneytinu og fjármagnað úr ríkissjóði. Laun óbreyttra stjóm- armanna í verkefninu, sem til- nefndir eru af Bændasamtökun- um, Samtökum bænda í lífrænni ræktun og umhverfisráðuneyti, eru 23.215 krónur á mánuði. For- maðurinn, Haukur Halldórsson, sem er tilnefndur af ráðuneyti land- búnaðarmála, fær tæpar 70 þúsund krónur í laun mánaðarlega. Hákon Sigurgrímsson hefur starfaö sem ritari verkefnisins og laun hans er sú tala sem að fram- an greinir. „Æi, eru vinir mínir í Bændahöllinni nú að koma þessu af stað,“ sagði Hákon Sigurgríms- son í samtali við DV þegar blaðið innti hann skýringa á þessum greiðslum. Hákon var um áralangt skeiö framkvæmdastjóri Stéttar- sambands bænda en þegar það var lagt niður fyrir sjö árum var hann á lausum kili um nokkurt skeið. Kveðst hann þá hafa tekið að sér störf ritara Átaks, það er að halda utan um fjárreiður og pappíra verkefnisins. Síðar hafi hann farið til starfa í landbúnaðarráðuneyt- inu, en engu að síður haldið þessu starfl. Það hafl verið gert með fullu samþykki ráðandi manna þar. „Ég hef unnið þetta alveg fyrir utan minn vinnutíma í ráðuneyt- inu. Þetta er líkt því að ég myndi til dæmis sjá um bókhald fyrir bílaverkstæði úti í bæ,“ sagði Há- kon. Hann telur ástæðu þess að málið er komið í umræðuna nú vera hefnd sér á hendur í refskák í æðstu stjóm landbúnaðarmál- anna. -sbs Brother PT-2450 merkivélin er Mögnuövét sem, með þinnl hjálp, hefur hlutina (röð og reglu. Snjöll og góð lausn á óreglunni. Rafporf Nýbýlavegi 14 • s(mi 554 4443 • BFRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALOREISEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert I fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, | greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar I er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.