Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002
DV
7
Fréttir
Atvinnuleysi fer vaxandi eftir aö hafa verið lítið undanfarin ár:
Atvinnulausum fjölgar
um 83,4% á einu ári
Atvinnuleysi eykst
Atvinnuleysi mun líklega aukast töluvert á þessu ári miöaö viö sama tíma í
fyrra. Hlutfall fólks á aldrinum 16-24 ára af atvinnulausum hefur aukist
töluvert og kann það að skýrast aö hluta til af því aö samkvæmt
tóbaksvarnarlögum mega unglingar yngri en 18 ára ekki selja tóbak. Þar
meö geta þeir ekki unniö einir í söluturnum sem selja þennan varning.
Tölur um atvinnuleysi sem sjá má
í skýrslu Vinnumálastofnunar sýna
aö atvinnuástandið fer versnandi. At-
vinnuástandið var reyndar með
besta móti árin 2000-2001 en nú virð-
ist vera að síga á ógæfuhliðina og
hefur atvinnuleysi nú nær tvöfaldast
á einu ári. Atvinnuleysið hefur farið
stigvaxandi frá því í haust og hefur
nú vaxið úr 1% í september sl. í 2,7%
í mars á þessu ári.
Ef landið í heild er skoðað sést að
frá því í mars í fyrra, þegar atvinnu-
leysið var 1,5%, þar til í mars sl. hef-
ur atvinnulausum fjölgaö um 83,4% á
einu ári. Ef skoðað er hins vegar
lengra aftur í tímann á atvinnuleysi
dagsins í dag nokkuð langt í land
með að vera eins og það var hæst á
síðasta áratug. Ef litið er eingöngu á
marsmánuð síðustu tíu árin var at-
vinnuleysi mest 1995, eða 6,5% en á
síðasta ári var það 1,4%.
Frank Friðrik Friðriksson hjá
Vinnumálastofnun segir skýringuna
á auknu atvinnuleysi frá haustinu
helst vera hægt að rekja til samdrátt-
ar í byggingariðnaði, ekki hvað síst
eftir að lokið var við að byggja
Smáralind. „Þá höfðu hryðjuverkin í
Bandaríkjunum einnig áhrif því í
Kaupfélag Skagfirðinga vill skipa
Skagafirði í fremstu röð þeirra svæða
á landsbyggðinni sem flokkast undir
vaxtarsvæði. Á aðalfundi KS á dögun-
um var samþykkt tillaga um að leitað
yrði samstarfs við fyrirtæki og sam-
tök í héraði um myndun starfshóps er
ynni byggðaáætlun til næstu 10 ára
fýrir Skagafjörð. Fundurinn gerði til-
lögu um skipan 24 fulltrúa í „Byggða-
hóp Skagafjarðar": Gert er ráð fyrir
tveim fulltrúum frá eftirtöldum:
Kaupfélagi Skagfirðinga, Sveitarfélag-
inu Skagafirði, Leiðbeiningarmiðstöð-
kjölfarið var mikill samdráttur í
ferðaþjónustu. Þetta jók á samdrátt-
inn. Nú er hins vegar sumarsveiflan
að koma þannig að það má gera ráð
fyrir að atvinnuleysi minnki yfir
sumarmánuðina og í september er at-
vinnuleysi oft i lágmarki yfir árið.“
Samkvæmt upplýsingum DV hefur
atvinnulausum einnig fjölgað nokk-
uð í verslunar- og þjónustustörfum.
Hærra hlutfall ungs fólks
Þegar atvinnuleysi einstakra ald-
urshópa er skoðað kemur í ljós að
hlutfall ungs fólks, þ.e. á aldrinum
16-24 ára, hefur aukist nokkuð á síð-
ustu mánuðum og töluvert frá því í
fyrra. í mars í fyrra voru 22,1% at-
vinnulausra í þessum aldurshópi en í
mars sl. var hlutfallið 28,8%. Ef ung-
ir karlmenn eru skoðaðir var hlutfall
þeirra af atvinnulausum karlmönn-
um 26,6% í mars í fyrra en í mars sl.
var það 32%. „Ég tel að ástæðan fyr-
ir þessu sé einfaldlega sú að þeir sem
stystan starfsaldur hafa hverfi fyrr
úr vinnu en aðrir,“ segir Frank.
Ein skýringin sem heyrst hefur á
þessu eru ný tóbaksvarnalög sem
kveða á um að bömum yngri en 18
ára sé óheimilt að selja tóbak. Þetta
inni og Atvinnuþróunarfélaginu
Hring. Einn fúlltrúa í undirbúnings-
hópnum eigi Fiskiðjan Skagfiröingur,
Steinullarverksmiöjan, Trésmiðjan
Borg, Element, Akrahreppur, Hóla-
skóli, Fjölbrautaskóli Noröurlands
vestra, Árskóli, Aldan stéttarfélag,
Iðnsveinafélag Skagafjaröar, Útibú
Búnaðarbanka Islands, Útibú Lands-
banka íslands, Ungmennasamband
Skagafjarðar, Heilbrigðisstofnunin á
Sauðárkróki, Samband skagfirskra
kvenna og Byggðastofnun Sauðár-
króki. -ÞÁ
hefur gert það að verkum að 16-17
ára unglingar geta ekki unnið einir í
sölutumum sem selja tóbak eins og
töluvert var um áður. Frank kannað-
ist reyndar ekki við þessa skýringu
en fannst ekki ósennilegt að þetta
væri hluti af henni.
Það kemur einnig í ljós að at-
vinnuleysi á landsbyggðinni hefur
aukist heldur minna síðustu 12
mánuði en á höfuðborgarsvæðinu.
Reyndar er staðan orðin sú núna
að atvinnuleysið er minna á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæð-
inu. í mars í fyrra var það 1,8% á
landsbyggðinni en er nú 2,4% á
meðan atvinnuleysi á höfuðborgar-
svæðinu var 1,3% í mars í fyrra en
2,8% í sama mánuði þessa árs. At-
vinnuleysið hefur farið stigvaxandi
á höfuðborgarsvæðinu en minnkar
hins vegar um 6,9% á landsbyggð-
inni. Það á sér að miklu leyti skýr-
ingu i að meira sé að gera í sjávar-
útvegi, t.d. er loðnuvertíöin hafin.
„Það má síðan benda á að það eru
enn töluverðir flutningar frá lands-
byggðinni á höfuðborgarsvæðið
sem hefur það í för með sér að
vinnuafl á landsbyggðinni minnk-
ar,“ segir Frank og bendir jafn-
framt á að atvinnuleysi sveiflast
meira á landsbyggðinni í takt við
atvinnugreinamar.
Ekki viðvarandi ástand
Það er að heyra á verkalýðsfor-
ystunni að þeir séu nokkuð bjart-
sýnir á að þetta ástand verði ekki
viövarandi. Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ, segir þó að vaxandi at-
vinnuleysi sé áhyggjuefni. „Við
erum sæmilega bjartsýn á að þeg-
ar fer að líða á sumarið muni ræt-
ast úr þessu. Áhyggjuefnið núna
eru hins vegar fréttimar um að
dregið verði úr sumarráðningum
skólafólks í sumar. Það skiptir
miklu máli fyrir okkar fólk að
unglingamir fái vinnu á sumrin
og það er sérstakt áhyggjuefni ef
það gerist ekki. Vaxandi atvinnu-
leysi er hins vegar alltaf mikið
áhyggjuefni en ég held að það sé
fráleitt að við stefnum í svipað
ástand og var á ámnum
1993-1995.“
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segist ekki hafa orðið var
við það upp á síðkastið að félags-
menn hans hafi misst vinnuna í
auknum mæli.
Allt bendir til þess að meðalat-
vinnuleysi þessa árs verði tölu-
vert meira en í fyrra. í fyrra var
þetta meðaltal 1,4% en eins og
áður sagði spáði Þjóðhagsstofnun
2,2% meðalatvinnuleysi í ár.
-HI
DVA1YND JÚLlA IMSLAND
Veit hvað klukkan slær
Hér er veriö aö setja upp klukkur
sem eiga aö sýna tímann hjá
nokkrum viöskiptaaðilum og ekkert
eftir nema stilla klukkurnar rétt.
Konur leiða
öll framboöin
Framboðslisti sjálfstæðismanna í
Homafirði hefur verið birtur og er
Halldóra B. Jónsdóttir bæjarfulltrúi
í fyrsta sæti, Bjöm Traustason bæj-
arfulltrúi er í öðru sæti, Einar
Karlsson sláturhússtjóri í því þriðja
og Ármann Guðmundsson bóndi
númer fjögur. Konur eru i fyrsta
sæti á öllum þrem framboðslistun-
um sem fram koma í Homafirði,
það er á listum framsóknarmanna,
Kríunnar, óháðs framboðs, og sjálf-
stæðismanna.
Halldóra B. Jónsdóttir hefur setið
í bæjarstjóm tvö síðustu kjörtíma-
bil og er formaður bæjarráðs. Sam-
þykkt hefur verið í bæjarstjóm
Hornafjarðar að fulltrúar í næstu
bæjarstjóm skulu vera sjö í stað ell-
efu eins og verið hafa þetta kjör-
tímabil. Öll framboöin hafa opnað
kosningaskrifstofur og mun stefnu-
skrá þeirra verða birt nú í vikunni
og er þá von til að kosningaáhuginn
vakni en hann hefur, að sögn fróðra
manna, verið í algjöru lágmarki.
Nefnd á vegum ríkisstjómarinnar
hefur hvatt bæjaryfirvöld í landinu
til að veita styrki handa kvenfólki
til að sækja námskeið í stjómmál-
um til að auka hlut kvenna í stjóm-
málum. Hefur bæjarstjóm Homa-
fiarðar samþykkt að veita framboð-
unum þrem tuttugu þúsund krónur
hverju í þessu skyni. Námskeið
þessi era á vegum Endurmenntun-
arstofnunar Háskólans og eru
tveggja daga námskeið. -JI
Fyrsta skemmti-
ferðaskipið farið
Fyrsta skemmtiferðaskip sumars-
ins kom til landsins á fimmtudag-
inn var og stoppaði í einn sólar-
hring. Það var skipið Sarfaq Ittuk
frá Grænlandi sem heiðraði land-
ann með nærveru sinni ásamt gest-
um. Næsta skip sem er væntanlegt
er hins vegar Black Prince frá Nor-
egi. Það kemur á miðnætti 22. maí
og stoppar í sólarhring.
Alls munu hafnsögumenn Reykja-
víkurhafnar taka á móti 30
skemmtiferðaskipum á tímabilinu
júlí-september. Nokkur þeirra koma
oftar en einu sinni og reyndar
munu þrjú skip koma þrisvar sinn-
um í Reykjavíkurhöfn í sumar.
Höfnin mun alls 46 sinnum taka á
móti erlendu skemmtiferðaskipi á
þessu tímabili.
Þrettán af þessum 30 skipum
koma frá Bahamaeyjum en nokkur
koma einnig frá Bretlandi, Panama,
Rússlandi og fleiri löndum.
-HI
Kaupfélag Skagfirðinga:
Vill Skagafjörð í
flokk vaxtarsvæða
Þýsk gæði og þjónusta
Miinchen
Flugsæti 29*500kr
Föst aukagjöld innifalin
Dusseldorf
Flugsæti 30*400kr.
Föst aukagjöld innifalin
Flug og bíll
Ævintýraheimar Mið-Evrópu
Verð32*850kr.
á mann m.v. 2 fuilorðna og 2 börn 2-11 ára
Innifalið: Flug, bíll í B-flokki í viku
og föst aukagjöld
ODYRT FLUG
TIL EVRÓPU!
TERRA naÍi/
NOVA JsöL
-SPENNANDI VALKOSTUfí-
Stangarhyl3A • 110Reykjavik • Simí: 591 9000 • terranova.is