Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Blaðsíða 19
19
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002
DV Tilvera
Myndgátan
Myndgátan hér
til hliðar lýsir
orðasambandi.
Lausn á gátu nr. 3296:
Menn
þverskallast
Krossgáta
Lárétt: 1 gimd, 4 arð,
7 mildri, 8 ástarguð,
10 kvæði, 12 vatnagróð-
ur, 13 skógur, 14 sál,
15 hita, 16 falskur,
18 bjarti, 21 bikar,
22 harma, 23 truflun.
Lóðrétt: 1 feyskju,
2 þannig, 3 bolur,
4 lundi, 5 aðstoð,
6 hópur, 9 snjór,
11 furða, 16 andlit,
17 elska, 19 hrópa,
20 kvendýr.
Lausn neðst á síðunni.
Skák
Hvítur á leik!
Indverjinn Anand stóð uppi sem sig-
urvegari á atskákmótinu mikla í Prag.
Reyndar tefldu Karpov og hann venju-
legar kappskákir í lokaeinvíginu sem
var óvenjuleg ráðstöfun, af hverju að
hafa ekki allar skákimar í atskák-
formi fyrst þeir vora að þessu á annað
borð? En við fengum alla vega 2 „al-
vöra“ skákir, Anand vann hina fyrri
með pressu og tilþrifum á laugardag-
inn og síöastliðinn sunnudag komst
Karpov ekkert áleiðis gegn Indverjan-
um snjalla og jafntefli varð niðurstað-
an. Anand náði að tefla af nokkurri
lipurð. Þessar atskákir era reyndar
varasamari en venjulegar kappskákir,
það má ekki mikið út af bera. Karpov
var lagður með stöðubaráttu i fyrri
skákinni sem við skoðum í dag. Hann
var að leika 30. - DfB betra var 30. -
Dg7 en honum hefur líklega verið illa
við 31. Dbl b6 32. Db5! Þá kom einfald-
ur en atorkumikill hnykkur.
Hvitt: Vishy Anand (2752)
Svart: Anatoly Karpov (2690)
Rússnesk vöm.
Euru-símamótið í Prag 4.5. 2002.
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4.
Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. O- 0
Be7 8. c4 Rb4 9. Be2 0-0 10. Rc3 Bf5
11. a3 Rxc3 12. bxc3 Rc6 13. Hel
He8 14. Bf4 dxc4 15. Bxc4 Bd6 16.
Hxe8+ Dxe8 17. Rg5 Bg6 18. Bxd6
cxd6 19. h4 De7 20. Dg4 h6 21. Rh3
Df6 22. Hel Bf5 23. Df3 Kf8 24. Rf4
Bd7 25. g3 He8 26. Hxe8+ Bxe8 27.
De4 g5 28. hxg5 Dxg5 29. Bd5 Bd7
30. Dh7 Df6 (Stöðumyndin) 31. Bxf7!
Re7 [Ef 31. - Dxf7 þá mátar hvítur
með 32. Rg6+ Ke8 33. Dh8+] 32. Bb3
Bf5 33. Rh5 Bxh7 34. Rxf6 Bg6 35.
Rg4 Kg7 36. Re3 Be4 37. g4 Kf6 38.
Kh2 b6 39. Kg3 Kg5 40. Bf7 Kf6 41.
Bc4 Kg5 42. Bb3 Kf6 43. f3 Bg6 44.
f4 Be4 45. Bc4 Bc6 46. Bd3 Bb7 47.
Kh4 Bf3 48. Rc4 Rd5 49. Kg3 Bdl
50. Rxd6 Rxc3 51. RÍ5 Kg6 52. d5
Ba4 53. d6 Bd7 54. Kh4 a5 55. Re3+
Kf7 56. Kh5 b5 57. Kxh6 Ke6 58. g5
Kxd6 59. g6. 1- 0.
Bridge
Umsjón: ísak Öm Slgurösson
í þessu spili úr Cap Gemini boðs-
mótinu hollenska, sem fram fór á
dögunum, mátti líta ansi misjafnar
niðurstöður. AV fengu í mörgum til-
fellum að spila lokasamninginn, allt
frá 4 spöðum ódobluðum og upp í 6
spaða doblaða. Bandarikjamennirnir
Gamer og Weistein spiluðu 4 spaða
* 8763
•+ Á86
•+ DG743
£ * K
* AKG1Ó5
•+754
+ ■
* ÁDG96
* -
«0 KG109
+ ÁK1098
* 10854
Á hinum endanum vora þeir sem
fengu að spila tígulsamning í NS.
Brasilíumennimir Chagas og Brenner
spiluðu 3 tígla, fengu 11 slagi en því
ódoblaða gegn Sabinu Auken og
Klaus Reps sem láku einn niður og
fengu fyrir það 12 impa í plús. Pól-
verjamir Gawrys og Jassem börðust
upp í 6 spaða doblaða yfir 6 tfglum
gegn Brogeland og Sælensminde og
fóra 1100 niður. Það gaf AV 8 impa í
plús. Norður gjafari og NS á hættu:
miður fyrir þá, 12 impa í mínus.
Kanadamennimir Gitelman og Stans-
by spiluð 5 tigla, slétt unna, en fengu
5 impa í mínus. Aðeins
eitt par náði þvi að
segja og vinna 6 tígla,
en þaö vora Hollend-
ingamir Muller og De
Wijs. Sagnhafi hitti
rétt í hjartað og stóð
þannig spilið. Það var
mikils virði, 12 impar í plús í stað
þess aö fá 14 impa í minús ef slemm-
an hefði farið niður. Andstæðingar
þeirra i spilinu vora Zia Mahmood og
Andrew Robson.
•31} 08 ‘Bdæ 61 ‘}sb L\ 'saj gj ‘onpun n
‘flQta 6 ‘J3h 9 ‘0TI S ‘JnjSBjojd f ‘BjJÁSjSjæu g ‘oas z ‘enj 1 ijjajQoq
‘>]SBJ gz ‘Bjns ZZ ‘dnBjs \z ‘jjæi 81 ‘J?B 91 ‘siÁ gj
‘tpuB H ‘ijjoui gi ‘jas zi ‘JnQO oi ‘Jouiy 8 ‘iJ§æA l ‘8ojd f ‘usAj \ íjjajnq
Dagfari
Haukur Lárus
Hauksson
blaðamaöur
Skjólveggur á hjólum
Ég var í Leifsstöð á sunnudag,
í hópi fjölda farþega sem var að
koma frá Evrópu. Sú reynsla
gefur ekki beinlínis tilefni til já-
kvæðra skrifa. í komusalnum
mætti manni þessi venjulega
martröð þar sem farþegar úr
mörgum vélum, sem auðvitað
lenda allar um svipað leyti,
reyndu að troðast að færiband-
inu og síðan að græna hliðinu.
Úti um allt í troðningnum var
fólk að segja afsakiö. „Skemmti-
legar móttökur,“ hugsaði ég þar
sem ég dró hjólatöskuna yflr
tærnar á rosknum Þjóðverja og
stamaði „untschuldigung".
Frammi í móttökusalnum tók
ekki betra við. Eftir troðning og
pústra komst ég að útganginum.
Nokkrir útlendingar störðu agn-
dofa út. Suðaustan rok og lárétt
úrhelli. Veðurguðirnir voru 1
séríslensku skapi. Allir voru
heldur óþreyjufullir að komast
inn í rútuna þegar hún kom og
hópuðust að framdyrunum. En
urðu heldur hissa þegar bílstjór-
inn opnaði ekki dyrnar heldur
gerði sig líklegan til að aka inn
undir anddyrið. Kom í ljós að
hann var einfaldlega að búa til
skjól fyrir rokinu og rigning-
unni svo hægt væri að koma
töskunum og farþegunum klakk-
laust um borð. Það er merkilegt
að í þessari aðalflugstöð íslend-
inga skuli engin tilraun gerð til
að skýla komufarþegum fyrir
suðaustanrigningargeðvonsku
veðurguðanna. Að það skuli
undir umhyggju- og útsjónar-
sömum rútubílstjórum komið að
farþegar komist klakklaust í
rútuna er makalaust. Ég tek
ofan fyrir bílstjórum flugrút-
anna en verð ekki hissa ef út-
lendir farþegar, sem eru öðrum
og betri móttökum vanir, gefi
þeim sem bera ábyrgð á þessari
vitleysu langt nef.
Sandkorn__________________________J
Umsjón: Höröur Kristjánsson • Netfang: sandkorn@dv.is
Eins Og kunnugt er á útgáfuforlag-
ið Edda í miklum rekstrarerfileikum og
búist er við miklum aðhaldsaðgerðum
þar á bæ. Einn liður í þeim áætlunum
mun vera að leggja nið-
ur Tímarit Máls og
menningar. Tímaritið
fékk andlitslyftingu
ekki alls fyrir löngu
með nýjum ritstjóra,
Brynhildi Þórarins-
dóttur, og breytti um leið um nafn og
er nú kallað Timarit um menningu og
mannlif. Breytingin hefur ekki dugað
til að laða að nýja áskrifendur og tíma-
ritið stendur ekki undir sér. Edda mun
ekki lengur vilja borga með timaritinu
og dauði þess blasir við.
Hinir bráðskemmtilegu og stórgáf-
uðu tvíburar Sverrir og Ármann Jak-
obssynir skrifa reglulega á vefsíðuna
Múrinn. Sverrir er í mikium ham þessa
dagana og beinir spjótum sínum að Stef-
áni Jóni Hafstein sem skipar þriðja
sæti R-listans. Sverrir, sem er stuðnings-
maður Vinstri grænna, virðist hund-
óánægður með veru Stef-
áns Jóns á listanum og
segir: „Skv. DV er Stefán
Jón Hafstein „vinsæl-
asti“ frambjóðandi R-
listans. Ég dreg það
mjög i efa. Hins vegar er
hann sá frambjóðandi sem lætur mest á
sér bera, á meðan aðrir eru aö spila sem
heild. Er það tilviljun að R-listinn fer að
tapa fylgi í könnunum um leið og Stefán
Jón byijar að troða sér í fjölmiðla? Ég
held ekki.“ Meira um Stefán Jón frá
Sverri: „Síðan fór ég til Stefáns (Páls-
sonar) og þegar upp var staðið voru orð-
in til 700 R-listamerki. í morgun heyrði
ég í Stefáni Jóni í útvarpinu og vissi um
leið að öll sú vinna er unnin fyrir gýg.
Hvaö varð um hið góða slagorð (og
stefnumál): FOF (Felum okkar fífl)!“
Heyrst hefur að sjáifstæðismenn
séu síður en svo ánægðir með frammi-
stöðu Kristjáns Kristjánssonar í Kast-
ljósþætti þar sem þau sátu fyrir svörum
Hanna Bima Kristjánsdóttir, Stefán
Jón Hafstein og Margrét Sverrisdóttir.
Sjálfstæðismenn kvarta undan því að
Kristján hafi gengið mjög hart að Hönnu
Birnu en hlíft Stefáni Jóni og Margréti
við óþægilegum spurningum. Meðal
þeirra sem eru á þessari skoðun er odd-
viti sjálfstæðismanna i borginni, Björn
Bjarnason, sem segir á heimasíðu sinni
um frammistöðu Kristjáns í þættinum:
„Gekk Kristján Kristjánsson þar fram
gagnvart Hönnu Bimu eins og hann væri
málsvari R-listans í staö þess að leggja
spumingar fyrir með hlutlægum hætti.“
Ljóst er að mikil viðkvæmni er í gangi
þegar kemur aö þátta-
stjórnun og ekki aðeins
hjá D-lista því athygli
vakti í sjónvarpsumræð-
um frá Ráðhúsinu að
Ingibjörg Sólrún brást
illa við þegar henni
fannst Bjöm Bjamason tala of lengi og
krafðist þess að stjórnendur sæju til þess
að hún fengi að tala nákvæmlega jafn-
lengi og hann.
í bókaverslunum Eymunds
sonar hafa verið sett upp borð með
myndum af oddvitum D- og R-lista,
þeim Bimi Bjamasyni og Ingibjörgu
Sólrúnu, og þeim bókum sem þau eru
að lesa þessa dagana. Reyndar er grun-
samlegt hversu mikinn tíma oddvit-
arnir virðast hafa í bóklestur því
þama er að finna þykka doðranta.
Bókavalið endurspeglar karakter fram-
bjóðendanna. Ingibjörg Sólrún gætir
þess að hafa bækur eftir tvær konur á
sínum lista, þær Amy Tan og Guð-
rúnu Evu Mínervudóttur. Húman-
isma sinn sýnir hún í vali á Veröld
sem var eftir Stefán Zweig og andúð á
hemaðarbrölti og fas-
isma með vali á Gerplu
| Laxness og Mefistó eftir
Klaus Mann. Bók-
menntasmekkur Björns
I Bjarnasonar er
■ kannski þyngri en ansi
traustur. Hann er með bækur eftir tvo
nóbelsverðlaunahafa, Blikktrommuna
eftir Gunter Grass, og bók eftir V.S.
Naipaul. Hinn friðsami náttúruunn-
andi sem býr i Birni velur Þingvalla-
bókina og íslenskar eldstöðvar. Bjöm á
síðan óvæntan og snjallan leik þegar
hann velur bók um Megas með þeim
ummælum að fátt hafi vakið meiri at-
hygli og deilur í menntamálaráðherra-
tíð hans og það þegar Megas hlaut
verðlaun á degi íslenskrar tungu.
Myndasögur_____________________