Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 1
Forstjóri Samkeppnisstofnunar þiggur laun fyrir lögbundna stjórnarsetu: Fær á ári Georg Ólafsson, forstjóri Sam- keppnisstofnunar, og Jón Ögmundur Þormóðsson, skrifstofustjóri í við- skiptaráðuneytinu, þiggja báðir hundruð þúsunda króna í árslaun fyrir að sitja i stjóm Flutningsjöfn- unarsjóðs oliuvara. Guðrún Zoéga, formaður kjaranefndar, segir nefnd- ina ekki hafa vitað um þessar greiðsl- ur en laun beggja embættismanna em ákvörðuð af kjaranefnd. „Ég hafði ekki hugmynd um að Ge- org og Jón Ögmundur fengju greitt hálfa milljón króna fram hjá kjaranefnd fyrir þessi störf,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra við DV í gærkvöld og kunni heldur ekki skýringar á því hvernig þessar greiðslur gátu farið fram hjá kjara- nefnd. „Hins vegar þykir mér eðhlegt að þessir menn sitji í Flutningsjöfn- unarsjóði olíuvara. Hvort þessi nefndarstörf falli undir starfssvið for- stjóra Samkeppnisstofnunar hef ég ekki kynnt mér.“ 1 reglum kjaranefndar segir að embættismanni eigi ekki að greiða sérstaklega fyrir að sitja í nefnd ef seta hans í nefndinni er ákveðin með lögum. í 6. grein laga um Flutnings- jöfnunarsjóð segir að stjórnarfor- mennska skuli vera í höndum for- stjóra Samkeppnisstofnunar. Reglur kjaranefndar gilda jafnt um nefhda- setu og stjómarsetu. Samkvæmt þessu á forstjóri Samkeppnisstofnun- ar ekki rétt á sérstökum launum fyr- ir stjómarformennskuna. Fyrir hana hefur hann þó þegið 500.000 krónur á ári. Georg Ólafsson, forstjóri Sam- keppnisstofnunar, sagði við DV á þriðjudaginn var að kjaranefnd hefði lagt blessun sína yfir þessar greiðslur. Pappirar þar að lútandi eru hins vegar ekki komnir í leit- irnar. „En ég stend í þeirri trú að kjaranefnd sé fullkunnugt um setu mína í þessari stjórn og greiðslur sem ég hef þegið fyrir hana,“ sagði Georg við DV. Reglur kjaranefndar segja enn fremur að embættismenn skuli ekki þiggja sérstakar greiðslur fyr- ir setu í nefnd ef verkefni hennar tengjast þeirri stofnun eða því ráðuneyti sem þeir starfa við. Skrifstofustjóri í viðskiptaráðu- neytinu situr í stjóminni, skipaður af ráðherra, og þiggur 400.000 krón- ur á ári fyrir stjómarsetuna. -ÓTG/GG ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 4 í DAG KOQfhlM Guöjón Þórðarson og lærisveinar hans í Stoke eru komnir upp í 1. deild eftir tveggja og hálfs árs baráttu. Þrátt fyrir þennan árangur er framtíð Guðjóns hjá félaginu óráðin. Bls. 24 SAUÐBURÐUR HAFINN Á MOLASTÖÐUM í FLJÓTUM: 19-21 KA ÍSLANDSMEISTARI í ANNAÐ SINN: Vann þrjá leiki í röð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.