Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 10
10 Útlönd FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 DV Jimmy Carter á Kúbu Carter hvetur til þess aö við- skiptabanninu á Kúbu veröi afiétt. Viðskiptabannið áfram gegn Kúbu Bandarísk stjórnvöld hafa lýst vanþóknun sinni á hugmyndum Jimmys Carters, fyrrum Banda- ríkjaforseta, um að létta viðskipta- banninu af Kúbu, þar sem það myndi aðeins þjóna hagsmunum stjórnvalda en ekki fólksins, en þessi vilji Carters, sem nú er í sex daga heimsókn á Kúbu, kom fram í sjónvarpsávarpi hans til kúversku þjóðarinnar í gær. Að sögn Ari Fleischers, tals- manns Hvíta hússins, er það stað- föst stefna stjómvalda að halda viðskiptabanninu gegn Kúbu áfram. Hann notaði þó tækifærið til að hæla Carter fyrir að hvetja í ávarpinu til aukins lýðræðis og frjálsra kosninga á Kúbu. UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- ______um sem hér segir:_____ Dalvegur 16b, 0104, þingl. eig. Heild- arnæring ehf., Reykjavík, gerðarbeið- endur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Kópavogsbær, Prentsmiðjan Oddi hf. og Sparisjóður Kópavogs, þriðju- daginn 21. maí 2002, kl. 13.00. Gullsmári 3, 0302, þingl. eig. Póra Björg Ágústsdóttir, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 21. maí 2002, kl. 13.30.____________ SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI ® FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRACARÐURINN Við erum búin að opna Fjölskyldugarðinn og taka tækin út. Nýir klessubátar á tjörninni. Hestateyming alla virka daga frákl. 14.00 til 14.30 og Cocoa Puffs lestin verður í áætlunarferðum alla daga frá 11.00 til 17.00 Opið 10.00 til 18.00 Verið velkomin Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Hollensku þingkosningarnar: Ekkert lát á hægri sveiflunni í Evrópu Þriggja mánaða gamall flokkur hægri öfgamannsins Pims Fortuyns, sem skotinn var til bana fyrir tíu dög- um, náði öðru sætinu í hollensku þingkosningum í gær, fékk um 17% fylgi og 26 þingsæti af 150 og gjörbylti þar með pólitísku landslagi í Hollandi þar sem vinstri- og miðflokkar hafa farið með völdin í áratugi. Verkamannaflokkur Wim Koks, fyrrum forsætisráðherra, sem síðustu áratugi hefur verið stærsti flokkur landsins og setið í samsteypustjóm með Frjálslynda flokknum, D66 og Miðflokknum, VVD, síðustu tvö kjör- tímabil eða þar tfl ríkisstjómin sagði af sér í síðasta mánuði vegna friðar- gæsluklúðursins í Bosniu, hlaut mesta afhroð i sögu flokksins og tap- aði um það bil helmingi fylgis síns frá síðustu kosningum. Flokkurinn náði þriðja sætinu, fékk aðeins um 16% atkvæða og þar með 23 þingsæti. Miðflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn töpuðu einnig nokkru fylgi, en Miðflokkurinn er nú Sigurvegarínn Balenende Jan Peter Balenende, leiötogi Kristilegra demókrata, er ótvíræöur sigurvegari kosninganna í Hollandi. jafnstór Verkamannaflokknum með 23 þingsæti. Ótvíræður sigurvegari kosning- anna er þó Jan Peter Balkenende, for- maður Kristilega demókrataflokksins, en hann bætti við sig verulegu fylgi, fékk um 26% og 43 þingsæti. Stór sig- ur þeirra kemur nokkuð á óvart þar sem leiðtogi flokksins, hinn 44 ára gamli Balkenende, þykir frekar þung- ur á bárunni, en er aftur á móti lýst sem mjög traustum og trúverðugum stjómmálamanni. Aðspurður hvort hann muni bjóða flokki Fortuyns tfl stjómarsamstarfs sagði hann skilaboð kjósenda augljós. „Við eigum þó eftir að skoða stöðuna betur og sjá hvaða kostir em í henni, en vilji fólksins er ljós,“ sagði Balkenende. Úrslit kosninganna eru nokkuð í takt við það sem verið hefur að gerast annars staðar í Evrópu siðasta árið og má þar minna á nýlegar kosningar á Ítalíu, Danmörku, Portúgal, og nú síð- ast í Frakklandi. Edmund Joensen kjörinn forseti lögþings Færeyja Edmund Joensen, fyrrum leiðtogi Sambandsflokksins og fyrrum lög- maður, var kjörinn forseti lögþings Færeyja í gær, á fyrsta fundi þess eftir kosningamar í aprillok. Greiða þurfti atkvæði þrisvar áð- ur en Joensen var kosinn í embætt- ið. Hann fékk sextán atkvæði. Að sögn færeyska útvarpsins var það formaður Jafnaðarflokksins sem stakk upp á Joensen. Atkvæðagreiðslan í lögþinginu í gær þykir til marks um þá óvissu sem ríkir í færeyskum stjómmál- um. Landstjómin og stjórnarand- stæðingar fengu jafnmarga þing- menn í kosningunum og itrekaðar tilraunir Anflnns Kallsberg lög- manns til myndunar meirihluta- stjórnar hafa runnið út í sandinn. REUTERSMYND Kofi Annan á Kýpur Kofi Annan, aöalframkvæmdastjóri Sameinuöu þjóöanna, er nú staddur á Kýþur þar sem hann reynir aö miðla málum milli þjóöarbrota Tyrkja og Grikkja sem eldaö hafa grátt silfur síöustu áratugina. Myndin hér aö ofan er tekin þegar hann hitti leiötoga þjóöarbrotanna, þá Glafcos Cleride, leiötoga Kýþur-Grikkja, til vinstri, og Rauf Denktash, leiötoga Kýpur-Tyrkja til hægri, á George W. Bush Bandaríkjaforseta var sagt frá því nokkrum mánuðum fyrir 11. sept- ember að hryðjuverka- samtök Osama bin Ladens kynnu að ræna bandarískri farþegavél. Að sögn talsmanns Hvíta hússins voru stofnanir al- ríkisins varaðar við en almenningur ekki. Ari Fleischer, talsmað- ur forsetans, sagði að Bush hefði fengið upplýsingar frá bandarísku leyniþjónustunni síðastliðið sumar en hann hefði ekki fengið neinar upplýsingar sem bentu til að hryðjuverkamennimir ætluðu að fljúga farþegavélum á World Trade Center í New York og landvamaráðu- neytið í Washington. „Ég held að óhætt sé að segja að enginn hafi séð þann möguleika fyrir,“ sagði Ari Fleischer. Vangaveltur hafa verið uppi að undanfomu hvort bandarísk yfírvöld hafi brugðist með því að átta sig ekki á þeim viðvörunum sem höfðu verið gefnar um hugsan- lega árás hryðjuverkamanna. Blað- ið New York Times sagði frá því að starfsmaður FBI hefði varað yflr- menn sína við því að bin Laden kynni að senda flugnema vestur. George W. Bush Varaður viö. Bush var sagt frá flugránsáformum Hægrimenn með forystu Jacques Chirac, sem nýlega var end- urkjörinn Frakk- landsforseti, og hægrimenn munu sigra í þingkosning- unum í næsta mán- uði, ef marka má nýja skoðanakönn- un. Hægrimenn fá samkvæmt henni 41 prósent atkvæða en vinstriflokk- amir aðeins 39 prósent. Ekki þjóöaratkvæði Grænlenska þingið hefur fellt til- lögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um stöðu Grænlands innan danska ríkjasambandsins. Flokkurinn Inuit Ataqatigiit lagði til að kjósendur yrðu spurðir hvort þeir vildu sjálf- stæði, lausara samband við Dan- mörku eða núverandi skipan. Ákærður fyrir sjö morð Breska lögreglan hefur ákært asískan mann fyrir sjö morð vegna íkveikju þar sem sjö manna fjöl- skylda brann til bana í bænum Huddersfleld. Ellefu aðrir eru í haldi lögreglu vegna málsins. Samið í málmiðnaði Þýska verkalýðsfélagið IG Metall og vinnuveitendur komust I gær að samkomulagi um nýjan samning í Baden-Wúrttemberg þar sem starfs- menn í málmiðnaði höfðu verið i verkfalli í tíu vikur. írak efst á blaði vestra Paul Wolfowitz, aðstoðarutanrikis- ráðherra Banda- ríkjanna, sagði i gær að undirbún- ingur fyrir að steypa Saddam Hussein íraksfor- seta af stóli væri efst á blaði ráðamanna vestra, enda þótt þeir ættu fullt í fangi með deilu ísraela og Palestínumanna. Sendur í geðrannsókn Dómari í Maryland ákvað í gær að 26 ára maður sem viðurkenndi að hafa skotið og sært kaþólskan prest, sem hann sagði hafa misnot- að sig, skyldi sitja í gæsluvarðhaldi þar til niðurstöður geðrannsóknar lægju fyrir. Annan lofar Sierra Leone Kofl Annan, fram- kvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, bar í gær lof á íbúa Sierra Leone sem flykktust á kjörstaði til að kjósa sér nýja stjóm. Forseti lands- ins, Ahmad Tejan Kabbah, sem er þakkað fyrir að fá sveitir SÞ til að binda enda á illvígt borgarastríð, tók afgerandi forystu í gær. Gerum okkar besta Forsætisráðherra Japans sagði í morgun að japanskir diplómatar gerðu það sem þeir gætu til að fá flmm norður-kóreska flóttamenn í haldi Kínverja afhenta. Dularfullur sjúkdómur Átján breskir starfsmenn herspít- ala í Afganistan hafa veikst af óþekktum sjúkdómi, að því er yfir- maður breska heraflans í Afganist- an greindi frá í gær. Tveir menn eru alvarlega sjúkir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.