Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 13
13 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002__________________ DV ___________________________________________Innkaup Fyrstu sumarblómin í sölu um helgina: Höfum sumarið fallegt og blómlegt - segir Sigríður H. Sigurðardóttir í Mörk sem segir lesendum hvernig best sé að gróðursetja í blómaker Þegar plantað er í blómaker er að ýmsu að hyggja eigi árangurinn að vera góður. Sigríður Helga Sigurð- ardóttir, annar eigandi gróðrar- stöðvarinnar Merkur við Stjömu- gróf, segir að fyrst og fremst þurfi að tryggja að frárennsli sé gott, sér- staklega ef kerin standa undir ber- um himni. „Mikilvægt er að plönt- urnar fái hæfilega mikið vatn. Nái regnvatn í kerin þarf vatnið að geta lekið úr kerinu en standi það undir skyggni, svo sem á svölum, þá þarf að vökva vel. Til að frárennsli sé gott þurfa að vera göt á botni kers- ins og setja þarf vikur eða leirkúlur í botn þess því með tímanum þjapp- ast moldin niður og getur stíflað frá- rennslið." Sigríður segir að öll venjuleg gróðurmold, sem hægt er að kaupa í öllum blómabúðum, henti vel í ker- in. „Eins má nota mold frá í fyrra en hana þarf að stinga upp þannig að vel lofti um hana. í gamla mold er síðan gott að blanda áburði, t.d. blákomi, en aðeins þarf lítið magn í hvert ker. Svo er líka gott að blanda mold með vatnskristöllum sem gera það að verkum að ekki þarf að vökva eins oft en margir hafa kvart- að yfir því að sumarblómin fari illa á meðan eigendur bregða sér af bæ.“ Gott ker og falleg sumarblóm ,Allt sem þarf til að skapa réttu sumarstemninguna, “ segir Sigríöur í gróðrarstöðinni Mörk. Hér sést hún undirbúa sumarkomuna en fyrstu sumarbiómin fara í sölu nú um hetgina. Staðsetning kera með sumarblómum er annað atriði sem hafa þarf í huga. Öll blómstrandi sumarblóm þurfa sól og bestur árangur næst yf- irleitt þar sem þau fá hana meiripart dags. „Hins vegar ná mörg þeirra að dafha vel þó ekki sé sól allan daginn, heldur bara part úr degi. Séu þau sett þar sem skugginn rikir hætta þau að blómstra, blómin sem þegar eru á plöntunni þegar hún er keypt lifa sitt skeið en svo gerist ekki meir.“ Gott skjól getur lika skipt máli því margar plöntur þola illa mikinn vind. Blómakerin verða ræktarlegri ef þau standa í góðu skjóli. Sumarblómin þurfa nokkuð gott pláss í kerunum. Yfirleitt koma þau í 7 eða 12 cm pottum frá gróðrar- stöðvum en gera þarf ráð fyrir meira plássi þegar þau eru gróður- sett þannig að þau hafi pláss til að vaxa og dafna. „Þótt kerið virðist ekki blómlegt fyrst um sinn tekur það aðeins um hálfan mánuð fyrir plöntumar að vaxa þannig að kerið er fullt. Þó eru alltaf einhverjir sem kjósa að planta þéttar og hafa kerið ræktarlegt frá byrjun og er'það líka allt í lagi,“ Alparós Fjölærar jurtir henta líka vel í blómakerin. Atparósin verður æ vinsælli enda erfitt að standast slíkt blómskrúð. segir Sigríður. Hún telur að í raun sé hægt að setja nær allar tegundir sumcir- blóma í ker. „Stjúpur era alltaf sí- vinsælar, svo og skrautnál, silfur- kambur, levkoj, hádegisblóm, stúd- entanellikur, bellis og tóbakshorn svo eitthvað sé nefnt. Hengiplöntur ýmiss konar eru lika vinsælar, oft á jöörum keranna og þá koma plöntur eins og súrfmía (hengitóbakshom), skjaldflétta og lóbelía (brúðarauga) fyrst upp í hugann.“ í kerunum má einnig skapa lítinn kryddjurtagarð og hentar það vel Úr mörgu aö velja Hér má sjá hluta af blómaúrvalinu, t.d. morgunfrú sem hefur verið vinsæl í áratugi og tóbakshorn sem er meðal söluhæstu tegunda síðustu ára. Litir lífga upp á umhverfiö Þeir sem vilja mikla litadýrð geta plantað nokkrum dalíum saman í ker. þar sem pláss til rækt- unar er lítið, svo sem á svölum. „Kryddjurtir dafna ágætlega við slíkar að- stæður en gæta skal þess að gefa þeim nokk- uð gott pláss því þær stækka mikið yflr sum- artímann. Margir hafa valið þann kost að setja hverja tegund fyrir sig í einn sæmilega stóran pott og jafnvel umpotta yfir í stærri þegar kom- ið er fram á mitt sum- ar.“ Búist er við að fyrstu sumarblómin fari að sjást í gróðrarstöðvum nú um helgina en spáð er hlýnandi veðri næstu daga. „Þá mun- um við hefja sölu á stjúpum sem eru harð- gerar og þola jafnvel ör- lítið næturfrost. Líti langtimaveöurspáin vel út getur verið aö fleiri tegundir verði settar í sölu. Hins vegar ber að geta þess að við búum á þessu fallega landi, ís- landi. Höfum sumarið fallegt og blómlegt i kerunum okkar með sól í hjarta," segir Sigríður að lokum. Intersport á Selfossi Intersport hefur opnað verslun í verslunarkjarna KÁ á Selfossi og er hún þriðja Intersport-verslunin á Is- landi. Verslunin á Selfossi, sem var opnuð 24. apríl, hefur þá sérstöðu að hún er opin alla daga vikunnar, frá kl. 09-21. Intersport er stærsta sportvöruverslunarkeðja í heimin- um í dag með yflr 4700 verslanir í 25 þjóðlöndum. Ifyrsta Intersport-versl- unin á íslandi var opnuð í apríl 1998 að Bíldshöfða 20 í Reykjavík. Er sú verslun jafnframt sú fimmta stærsta á Norðurlöndum. í október 2001 var opnuð Intersport-verslun í Smára- lind í Kópavogi. Click, nýtt undratæki: Smellt á skordýrabit Nú er vorið komið fyrir alvöru en því fylgja skordýr, sum hver sem eiga það til að stinga mannfólkið. Þó ekki sé mikið um þau hér á landi lenda margir í þvi að vera illa bitn- ir eða stungnir þegar þeir bregða sér til annarra landa. Mörg húsráð eru til um hvemig meðhöndla skuli slík bit, eins og t.d. að nudda bitið með brennisteini á eldspýtu eða leggja koparpening yfir það. En í fyrravor kom á markað hér á landi lítið tæki sem slegið hefur í gegn í Evrópu. Tækið heitir Click og er ör- lítið og létt. Það er uppbyggt með öflugum kvartskristal sem gefur frá sér léttar rafbylgjur. Þegar skordýr bítur er tækið lagt yfir bitið og því smellt. Þá fer örlítill rafstraumur í húðina en hann dregur úr kláða, út- brotum og bólgum. Á þennan hátt má meðhöndla allt að 3000 bit með einu tæki. Tækið inniheldur engin aukaefni, þarfnast ekki rafhlöðu og er öruggt fyrir böm. En fólk með hjartagangráð eru þeir einu sem ekki mega nota þaö. Click hefur hlotið mikla umfjöll- un í erlendum fjölmiðlum, þar með talið ferða- og fagtimaritum. Það hefur m.a. fengið verðlaun UK Press auk þess sem það fékk titilinn „tæki ársins" (“Gear of the year“) í The Wanderhurst Magazine. MALM0 44.990.- MALM0 54.990.- MALM0 sófi, klæddur mjúku 2ja sæta sófi, L165 sm. Kr.44.990.- Bíldshöfða 20, 110Reykjavík og sterku chenillevelúr. 3ja sæta sófi - L 210 sm, Kr. 54.990.- sími 510 8000, www.husgagnaholtin.is MALAGA 52.840.- MALAGA 3ja sæta sófi, klæddur chenille-velúr. Fæst í ýmsum litum. L 196 sm Kr. 52.840,- BREEZE sófi klæddur flannelefni. Fæst í ýmsum litum. 3ja sæta sófi 198 sm, Kr. 44.460.-, 2ja sæta sófi, L162 sm, Kr. 37.950.- INTERNO hornsófi klæddur mjúku chenilleáklæði, B 236 x B 236 sm. Fæst einnigí dökkgráu. Kr. 119.980.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.